Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 47
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst miðvikudag-
inn 31. janúar. Kennt verður frá
kl. 19-23 og verða kennsludagar
31. janúar, 1. og 6. febrúar. Nám-
skeiðið verður 16 kennslustundir
og verður haldið í Fákafeni 11, 2.
hæð.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára
og eldri og þeir sém áhuga hafa á
að komast á námskeiðin geta skráð
sig í síma Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins frá kl. 8-16. Námskeiðs-
gjald er 4.000 kr. en skuldlausir
félagar í RKÍ fá 50% afslátt. Hægt
verður að ganga í félagið á staðn-
um. Einnig fá nemendur í fram-
haldsskólum og háskólum sama
afslátt gegn framvísun skólaskír-
teina.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursaðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna og blæðingum úr sárum.
Einnig verður fjallað um helstu
heimaslys, þ.m.t. slys á börnum og
forvarnir almennt. Að námskeðinu
loknu fá nemendur skírteini sem
hægt er að fá metið í ýmsum skól-
um.
Flogaveiki og
heilaskurð-
aðgerðir
LAUF, Landssamtök áhugafólks
um flogaveiki, heldur fræðslufund
þriðjudaginn 30. janúar kl. 20.
Þetta er fyrsti fræðslufundur ársins
og verður einn fundur haldinn í
hveijum mánuði út maímánuð.
Umræðuefni kvöldsins er Floga-
veiki og heilaskurðaðgerðir. Fyrir-
lesari er Sigurlaug Sveinbjörnsdótt-
ir, sérfræðingur í taugasjúkdómum.
Fræðslufundurinn er haldinn á
Laugavegi 26, 4. hæð, í sal félags
heyrnalausra. Næg bílastæði eru
Grettisgötumegin og þar er gengið
inn í húsið.
Fundur um
sorg barna
SÁLFRÆÐINGARNIR, Sigurður
Ragnarsson og Inga Stefánsdóttir,
flytja fyrirlestur á vegum Nýrrar
dögunar á morgun, fimmtudaginn
1. febrúar. Fyrirlesturinn verður í
Gerðubergi og hefst kl. 20.
Fyrirlesturinn, sem nefnist Glíma
barna við sorg, íjallar um sorg
barna við missi. Sigurður Ragnars-
son hefur áður haldið fyrirlestra
fyrir Nýja dögun um sorg og sorg-
arviðbrögð.
Næstu opnu hús í Nýrri dögun
eru fimmtudagana 15. og 29. febr-
úar kl. 20-22 í Gerðubergi.
Heimahlynning
með opið hús
SAMVERUSTUND fyrir aðstand-
endur verður í kvöld kl. 20-22 í
húsi Krabbameinsfélags íslands,
Skógarhlíð 8.
Gestur kvöldsins verður Margrét
Olafsdóttir sálfræðingur og mun
hún ræða um börn og unglinga í
sorg. Kaffi og meðlæti.
■ RICHARD SCOBIE syngur
fyrir gesti Kaffi Reýkajvíkur
þriðjudags- og miðvikudagskvöld.
Honum til aðstoðar verður gítar-
leikarinn Sigurgeir Sigmundsson.
Saman munu þeir leika og syngja
fyrir gesti staðarins ýmsar þekktar
ballöður og slagara.
Ur dagbók lögreglunnar
Fjöldi mnbrota
ífyrirtæki
26.-29. j*anúar
í DAGBÓK helgarinnar er m.a.
að finna 4 skráðar líkamsmeiðing-
ar, 17 tilkynnt innbrot (flest að-
faranótt sunnudags og mánudags)
og 7 þjófnaði, 24 eignarspjöll, 8
tilvik þar sem lögreglumenn höfðu
afskipti af fólki með fíkniefni und-
ir höndum, afskipti af 16 einstakl-
ingum vegna slæmrar ölvunarhátt-
semi og 43 umferðaróhöpp. Þa_r af
urðu slys á fólki í 4 tilvikum. Átta
ökumenn eru grunaðir um öl'vuna-
rakstur og 35 voru kærðir fyrir að
aka hraðar en leyfileg hámarks-
hraðamörk sögðu til um. Þá voru
lögreglumenn 4 sinnum kvaddir til
vegna heimilisófriðar. í tveimur til-
vikum hafði ofbeldi verið beitt.
Talsvert var kvartað yfir hávaða
og ónæði að næturlagi, eða 35 sinn-
um. Aðstoð ýmiss konar, s.s. við
fólk sem hafði læst sig úti, þurfti
að komast undir læknishendur eða
þarfnaðist annars konar fyrirgre-
iðslu, var um að ræða í tuttugu
tilvikum af 392 færslum í dagbók
helgarinnar. Sextán einstaklingar
gistu fangageymslurnar, 4 vegna
fíkniefnabrota, 3 vegna auðgunar-
brota, 3 vegna ölvunar og 3 vegna
annarra mála og 3 voru þar í út-
tekt yfir helgina.
Tveir menn handteknir
vegna innbrota
Tilkynnt var um innbrot í bifreið
í Höfðahverfi, í fyrirtæki við Hálsa-
sel, við Skógarhlíð, við Hyijarhöfða
og við Vagnhöfða. Þá var farið inn
í sjö fyrirtæki við Bíldshöfða. Lög-
reglumenn handtóku síðdegis á
sunnudag tvo menn, annan á fer-
tugsaldri og hinn um fimmtugt.
Þeir eru grunaðir um innbrotin í
fyrirtæki við Bíldshöfða sem og
nokkur önnur innbrot helgarinnar.
Mennirnir hafa áður komið við sögu
slíkra mála hjá lögreglu. Þá var
tilkynnt um innbrot í íbúð við
Flúðasei, í hús við Hálsasel, í hús
við Hamrahlíð og í hús við Sævar-
land. Þar var stolið bíllyklum og
bíl, sem stóð við húsið.
Aðfaranótt laugardags fundust
fíkniefni (amfetamín) í fórum far-
þega í bifreið, sem stöðvuð hafði
verið á Vífilsgötu. Þá voru tveir
menn handteknir af sömu ástæðu
um nóttina eftir aðgerðir lögreglu
á skemmtistað við Lækjargötu.
Aðfaranótt sunnudags voru 7 ung-
menni færð á lögreglustöð eftir að
iögreglumenn höfðu stöðvað tvær
bifreiðir á Suðurlandsvegi við
Rauðavatn. í bifreiðunum fannst
eitthvað af fíkniefnum. Um morg-
uninn var maður færður á lögreglu-
stöð grunaður um akstur undir
áhrifum fíkniefna eftir að hafa
verið stöðvaður á bifreið nálægt
Mjölnisholti.
Féll fjóra metra
Aðfaranótt laugardags varð
vinnuslys í fyrirtæki við Eldshöfða.
Þar féll maður um tæplega fjóra
metra og kom niður á steingólf.
Talið var að hann hefði ökklabrotn-
að. Um nóttina þurfti að flytja
menn á slysadeild eftir að hafa
verið slegnir í miðborginni. Annar
hafði hlotið skurð á kinn og hinn
við auga. Aðfaranótt sunnudags
var maður fluttur á slysadeild eftir
að hafa fengið minniháttar skurð
á höfði í slagsmálum í Austur-
stræti. Mótaðilinn var fluttur á lög-
reglustöðina.
Undir morgun var ölvaður mað-
ur handtekinn eftir að hafa valdið
skemmdum á bifreið í Rimahverfi.
Þá var slökkviliðið kvatt að húsi
við Háholt eftir að kviknað hafði
þar í potti með feiti í. Litlar
skemmdir hlutust af. Um miðjan
dag á laugardag fór kranabifreið
á hliðina á Miðbakka. Við fallið
lenti hún á dráttarbifreið með
tengivagn. Stjórnandi kranans og
einn starfsmanna voru fluttir á
slysadeild með minniháttar meiðsli.
Á sunnudagskvöld var þrennt flutt
á slysadeild með sjúkrabifreið eftir
harðan árekstur tveggja bifreiða á
Höfðabakka.
Unglingar héldu sig innan
dyra eftir útivistartfma
Á laugardagskvöld hirtu lög-
reglumenn ofurölvi ungling upp í
Stekkjahverfi. Hann var færður
heim til sín. Annars sáust ungling-
ar undir 16 ára aldri vart utan
dyra eftir að útivistartíma lauk.
Af engum slíkum þurfti að hafa
afskipti í miðborginni eða nágrenni
hennar um helgina.
Aðfaranótt sunnudags voru þrír
ungir menn handteknir á Njálsgötu
eftir að þeir höfðu gert sér það að
leik að valda skemmdum á bifreið.
Um nóttina varð umferðarslys á
gatnamótum' Miklubrautar og
Reykjanesbrautar. Bifreið hafnaði
þar á ljósastaur. Ökumaður meidd-
ist í andliti og var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið.
Snemma morguns á sunnudag
voru tveir menn staðnir að því að
stela hjólbörðum undan bifreið við
Fiskislóð. Þeim var gert að setja
hjólbarðana aftur undir bifreiðina
og voru síðan færðir á lögreglu-
stöðina til skýrslutöku.
Nokkuð
um hálkuslys
Þrisvar var tilkynnt um slys á
fólki, sem falið hafði í hálku og
flytja þurfti á slysadeild, en mikil
hálka var víða á götum og gang-
stéttum, sérstaklega aðfaranótt
sunnudags. Telja má víst að mun
fleiri hafi meiðst og þurft að leita
aðstoðar hjá læknum slysadeildar.
Til upplýsinga fyrir lesendur
dagbókarinnar skal þess getið að
fjölgað hefur um rúmlega 24 þús-
und manns á starfssviði lögregl-
unnar í Reykjavík á sl. 10 árum,
þ.e. rúmlega 14 þúsund í Reykja-
vík auk þess sem Seltjarnarnes,
Mosfellsbær, Kjalarnes og Kjós
hafa bæst við svæðið með rúmlega
10 þúsund íbúa.
Gengið í verið
og farið í róður
VETRARVERTÍÐ byijar 3. febrúar
að gömlum sið. í tilefni af því ætlar
Hafnargönguhópurinn að vera með
gönguferðir miðvikudags-, fimmtu-
dags- og föstudagskvöld eftir forn-
leið sem vermenn að vestan og
norðan fóru á leið í verið. En ver-
menn þurftu að vera mættir til skips
á kyndilmessu, 2. febrúar, daginn
áður en farið var í fyrsta róðurinn.
Á miðvikudagskvöldið 31. janúar
verður farið frá Hafnarhúsinu kl.
20 í stutta helgistund í Dómkirkj-
unni. Síðan í rútu upp að Korpúlfs-
stöðum og gangan hefst við Blika-
staðavað á Korpúlfsstaðaá og fylgt
gömlu þjóðleiðinni að Keldnaholti
og þyrstir þiggja sýrudrykk að
Keldum. Þaðan verður farið í rút-
unni að Hafnarhúsinu.
Á fimmtudagskvöldið 1. febrúar
verður farið frá Hafnarhúsinu kl.
20 í rútu upp að Keldum og þjóðleið-
inni fylgt áfram niður að Ártúns-
vaði á eystri kvísl Elliðaánna. Þaðan
farið með rútunni að Hafnarhúsinu.
Á föstudagskvöldið 2. febrúar
verður einnig farið frá Hafnarhús-
inu kl. 20 í rútu inn að Elliðaám
og gengið frá Álftanesingavaði á
vestari kvísl Elliðaánna og gamla
þjóðleiðarstæðinu niður í Grófina
fylgt eins og kostur er. Göngunni
í verið lýkur við árabátana í Hafnar-
húsjiortinu.
A laugardagsmorgun 3. febrúar
býðst öllum að fara í róður með
skemmtiferðaskipinu Árnesi frá
Ægisgarði ef sjóveður verður.
Kynnt nánar síðar.
Öllum er heimil þátttaka í göngu-
ferðunum og sjóferðinni. Ekkert
þátttökugjald utan rúllugjalds og
fargjalds með skipinu.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
BRYNDÍS EINARSDÓTTIR,
Þykkvabæ 16,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum laugardaginn
27. janúar.
Stefán Pétursson,
Einar Stefánsson, Bryndis Þórðardóttir,
Pétur Stefánsson, Gyða Jónsdóttir,
Þórunn Stefánsdóttir, Þormar Ingimarsson
og barnabörn.
Lokað
verður þriðjudaginn 30. janúar milli kl. 13-16
vegna jarðarfarar ÞÓRBJARNAR JÓNSSONAR.
Saloon Ritz,
Laugavegi66.
t
Útför elskulegrar móður, tengdamóður,
fósturmóður og ömmu okkar,
AUÐAR H. ÍSFELD
verður gerð frá Dómkirkjunni f Reykjavfk
miðvikudaginn 31. janúar kl. 13.30.
Haukur ísfeld, Kristín G. ísfeld,
Auður Björnsdóttir, Eva Aasted,
Lárus ísfeld, Jón Haukur ísfeld,
Guðmundur Fjalar ísfeld.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERNHARÐ TRYGGVI JÓSEPSSON,
dvalarheimilinu Skjaldarvik,
áður á Bjarkarstíg 5,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Skjaldarvík og á lyfjadeild F.S.A.
fyrir góða umönnun
Óskar Bernharðsson, Magna Oddsdóttir,
Svanhildur Bernharðsdóttir, Kjartan Sigurðsson,
Kristbjörg Bernharðsdóttir, Guðmundur Jóhannesson,
Karólína Bernharðsdóttir, Árni Bjarman,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
KRISTJÁN BOGlElNARSSON,
Sléttahrauni 34,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 1. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er
bent á hjúkrunarþjónustu Karitas, sími
551 5606.
Sólveig Haraldsdóttir,
Einar Kristjánsson, Bianca Thomsen,
Sólveig Kristjánsdóttir,
íris Kristjánsdóttir, Ásgeir Þór Ásgeirsson,
Erla Yr Kristjánsdóttir, Óðinn Ásgeirsson,
Dóróthea J. E. Eyland,
Ólafur G. Einarsson
og barnabörn.