Morgunblaðið - 30.01.1996, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
Þú kastar og ég fer og kasta til
Þetta var endurkastið...
baka.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Lostæti
Frá Sigurði Harðarsyni: '
ÞAÐ ER ekki algengt að hinn al-
menni neytandi leiti eftir því hvern-
ig þær vörur sem hann gefur pen-
inga fyrir eru unnar, aðaláherslan
er á að varan nýtist eða bragðist
eins og kröfur neytandans gera ráð
fyrir. Við athugun á því hvernig
staðið er að framleiðslu Paté de
foie gras, eða gæsalifrarpatés, kem-
ur í ljós að aðferðirnar eru þannig
að framleiðslan er bönnuð í mörgum
löndum.
Gæsirnar fá að vaxa úr grasi til-
tölulega frjálsar, síðan nokkrum
vikum áður en bundinn er endir á
líf þeirra er þeim smalað í stíur,
allt að tólf fuglum saman á svæði
sem er 1x2 metrar. Lítið pláss spar-
ar fóður þar sem fuglarnir eyða
ekki orku í hreyfingu á meðan.
Þegar ferðast er um aðalfram-
leiðslusvæðin j Frakklandi (Ung-
veijaland og ísrael cru tvö önnur
stærstu framleiðslulöndin) er hægt
að kaupa póstkort sem sýna gamla
konu sitjandi við þá iðju að troða
fóðri niður um hálsinn á önd eða
gæs. Þessi ímynd er lítið skyld þeim
aðferðum sem viðgangast í aag:
Fuglinum er haldið milli fóta
matarans með hálsinn teygðan á
meðan að 40 cm málmröri er
þröngvað niður um kokið. Höfuð
fuglsins er klemmt fast og vélknúin
dæla dælir fóðrinu niður í maga.
Þannig eru fuglarnir fóðraðir á
soðnum, salt- og fitubættum maís,
u.þ.b. þrem kílóum á dag, hlutfalls-
lega er þetta eins og að meðalmann-
eskja æti 12,5 kíló af soðnu spag-
hettíi á dag og ekki einu sinni sér
til ánægju. Þessi offóðrun á svona
orkuríkum graut fær lifrina til að
safna fitu í stað þess að eyða henni
og um leið stækkar hún óeðlilega.
Lifur eðlilegrar gæsar vegur um
120 grömm og er rauðleit á lit.
Lifur nauðungarfóðraðs fugls er
gul, glansandi og fitug að sjá og
getur vegið 1,3 kg. Þegar lifur,
magi og þarmar hafa verið fjarlægð
má sjá hvernig lifrarstækkunin hef-
ur valdið þrýstingi á hjarta og lungu
og þannig valdið öndunarerfiðleik-
um. „Gæðalifur" þekkist á því að
það sjást á henni för eftir rifbeinin,
við getum bara ímyndað okkur
hvaða áhrif þetta hefur á líðan
fuglsins.
Árið 1983, á Evrópuþinginu, var
tillaga um bann við framleiðslu foie
gras borin undir atkvæði, tillagan
var felld með einungis sjö atkvæð-
um. Það sem ýtti undir það að tillag-
an var felld var skýrsla á vegum
Evrópuráðsins sem sagði að ekki
þætti sannað að nauðungarfóðrun
kveldi fuglana. í skýrslunni var
haldið fram sönnunargögnum frá
dýraverndarsamtökum sem hafa
aldrei verið til. Þar að auki hafa
þeir sem tóku saman skýrsluna
aldrei haft neitt að gera með dýra-
vernd eða eftirlit með því að húsdýr
hljóti mannúðlega meðferð. Samt
er þessari skýrslu enn haldið fram
sem sönnun fyrir því að nauðungar-
fóðrun sé ekki slæm meðferð á
dýrum.
Það að margt fólk sé sælkerar
þarf alls ekki að bitna á skepnum
á'þennan hátt, þar að auki er svona
fiturík fæða líka slæm fyrir mann-
eskjur. Við skulum bara vona að
aðferðir eins og að setja band um
háls fuglanna, til að koma í veg
fyrir að þeir kasti upp fóðrinu, eða
að negla fætur þeirra við gólf, hafi
verið aflagðar.
SIGURÐUR HARÐARSON,
búfræðingur,
Grettisgötu 75, Reykjavík.
Mikil er reisn
þín kona
Frá Ásthildi Þórðardóttur:
LOKANIR á geðdeildum, lokun á
Unglingaheimilinu að Tindum, og
nú lokun á vistheimilinu Bjargi,
fólk hvíslar að svo eigi að loka heim-
ilinu í Krýsuvík.
Hvað er að gerast? Þetta hvolfist
yfir mann á sama tíma og fregnir
berast um að fíkniefnaneysla fari
vaxandi.
Hver er stefna stjórnvalda í fíkni-
efnamálum - hver er framtíðarsýn
ykkar - hvar eru forvamimar?
Hvert fór slagorðið fólk í fyrirrúmi?
Hvar er hjálpin venjulegri fjölskyldu
þegar hörmungin skellur á?
Það er sárt að horfa upp á barn-
ið sitt fara lengra og sökkva í sí-
fellt dýpra fen, en reyna að klóra
í bakkann og æpa á hjálp af van-
mætti, en fá ekkert svar.
Eiturmorðingjar hælast um, þeir
hafa frjálsar hendur - auglýsa
varning sinn m.a. á tískufötum,
tæla ungmennin þar sem foreldr-
arnir ná ekki til þeirra - á skemmti-
stöðum og samkomum.
Þið gerið ekkert, EKKERT.
Og við, fólkið í landinu, hvað
gemm við? Af hveiju stöndum við
ekki upp til varnar börnunum okk-
ar, og vekjum athygli á málinu, en
sitjum þegjandi og horfum upp á
að hverri stofnuninni er lokað á
fætur annarri, til að spara, SPARA!
Heilbrigðisráðherra þessa lands
brosir bara framan í heiminn og
segir já, já. Er þetta sama mann-
eskjan og reif sig niður í rass í
stjórnarandstöðu á þingi?
Eg segi við þig - þú berð þunga
ábyrgð, talaðu ekki við okkur um
sparnað, sem horfum upp á okkar
nánustu fara til fjandans hægt og
hægt. Talaðu ekki við okkur um
hagræðingu, hennar er mest þörf á
toppnum í kringum þig og stjórn-
sýsluna. Talaðu ekki við okkur um
hallalaus fjárlög, við hlæjum fram-
an í þig.
Og ég segi við þig: Nú er nóg
komið. Hingað og ekki lengra. Þótt
við séum kannske buguð af aðstæð-
unum og tætt á sálinni þá segi ég
að minnsta kosti fyrir mig: Skamm-
astu þín.
ÁSTHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR,
Seljalandsvegi 100, ísafirði.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sém er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.