Morgunblaðið - 30.01.1996, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 53
Sýning hans í Tate-galleríinu í London ber
nafnið Glópagull, eða „Fools’ Gold“. Meðal
annarra sýningargripa er Hlustað á söguna,
eða „Listening to History", steingerð bók, fjötr-
uð við stein. Að sögn vísar titillinn á sýning-
unni, Glópagull, til þess útbreidda misskilnings
að blessuð jarðarkringlan sé í góðum böndum.
FÓLK í FRÉTTUM
►BRESKI myndhöggvarinn Bill Woodrow hef-
ur í gegnum tíðina aðallega fengist við að
breyta heimilistækjum í listaverk, en nú hefur
hann söðlað um. Nýjustu verk hans byggja ein-
ungis á hans eigin ímyndunarafli, svo sem þessi
sjálfsmynd úr bronsi sem við sjáum hér.
Er a tali ?
Villi karlinn veit ekki að hann þarf aðeins að nýta sér
Hann ýtir bara á 0 fær staðfestingu,
leggur á og notar tímann til annars.
Þegar hitt símtalið er búið, hringir
síminn hjá Vilia og brátt er hann
kominn i samband. Simtalspöntun
kostar aðeins 9,97 krónur.
PÓSTUR OG SÍMI
;du
ANNABETH Gish leikurí
myndinni „Beautiful Girls",
eða Fallegum stúlkum, ásamt
Umu Thurman, Lauren Holly
og Matt Dillon. „Ég er m.jög
stolt af að tengjast þessari
mynd," segir hún. Annabeth
lék í átta myndum, meðal ann-
ars „Desert Bloom“ og „Mystic
Pizza“ áður en hún lauk námi
og útskrifaðist með enskugr-
áðu frá Duke-háskólanum.
Hún er 23 ára og hefur nóg
að gera um þessar mundir.
Auk áðurnefnds hlutverks í
Fallegum stúlkum leikur hún
í mynd Olivers Stones um Nix-
on og í myndinni „The Last
Supper“, eða Síðustu kvöld-
máltíðinni. í þeirri siðarnefndu
leikur hún konu sem myrðir
íhaldsmenn ótt og títt.