Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 60

Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Fjögurra ára gutti veiddi 22 punda lax í gegnum vök „ Var stærri en hvalur“ HANN var stærri en hvalur. Hann var svo stór að hann hefði getað synt með mig á bakinu,“ segir Stefán Geir Sigfússon, fjögurra ára gamall Reykvík- ingur, sem krækti i tuttugu og tveggja punda lax í Reynisvatni um helgina. Stefán var í för með föður sínum og eldri bræðrum, 12 ára og 9 ára, og átti sá stutti að leika sér á snjó- þotu meðan hinir dorguðu í gegnum vök á ísnum. En það fór á annan veg. Stefán heimtaði að fá að reyna líka við veiðimennskuna svo að faðir hans, Sigfús Har- aldsson, batt spún, sem hann fann, við tveggja og hálfs metra langt girni og leyfði stráknum að dorga í gegnum vökina. Hann veiddi fljótlega tveggja punda regnbogasilung. „Fékk áfall“ „Við vorum rétt búnir að fagria þessum afla og byrjaðir aftur, þegar hann kallaði í mig og sagði að það væri eitthvað þungt fast í girninu. Eg hélt að þetta væri silungur eins og hinn og var ekkert að hjálpa honum nærri strax, en athugaði þegar á leið hvað væri á seyði. Þetta var eins og gijót. Girnið skarst inn I hendurnar á manni,“ segir Sigfús. Laxinn synti í hringi en slapp sem betur fer ekki. „Þegar hann þreyttist loks stakkst hausinn upp á yfirborðið og hann reyndist vera svo stór að hann rétt slapp í gegnum gatið á ísnum. Maður fékk áfall þeg- ar kom í ljós hvers konar skepna þetta var,“ segir Sigfús. Laxinn sem kom upp úr kaf- inu er sá stærsti sem veiðst hefur í Reynisvatni, en að sögn Olafs Skúlasonar í Laxalóni sem selur veiðileyfi í vatnið, er þar að finna að minnsta kosti 30 punda lax. 50 löxum var sleppt í vatnið í fyrrahaust. „Þetta er með ólíkindum og ég þakka bara fyrir að vökin á isnum var aðeins minni en strákurinn," segir hann. Ólafur tók fiskinn til varð- veislu í því skyni að reykja hann fyrir veiðimanninn, sem kveðst ætla að borða hann þótt hann hafi „aldrei borðað fisk sem er veiddur í vatni“. Bikar í sjónmáli I yor verður veittur bikar Meistaramóts Reykjavíkur í dorgveiði fyrir stærsta fisk sem veiðist yfir veturinn. Bikarhaf- inn í fyrra stærði sig af sex og hálfs punds þungum fiski, þannig að ljóst má vera að Stef- án er sigurstranglegur. Aðspurður um hvort honum hafi ekki þótt laxinn sterkur og erfiður viðureignar svarar Stefán Geir því neitandi. „Hann var ekki með neinar hendur." Morgunblaðið/Emilía STEFÁN Geir með fenginn, 22ja punda lax úr Reynisvatni. Góð þátttaka í útboði Lánasýslu ríkisins Vaxta- lækkunar vænst á næstunni LÁNASÝSLA ríkisins bauð eig- endum 5 ára spariskírteina frá árinu 1991 upp á þá nýbreytni í gær að gera tilboð í vexti nýrra spariskírteina um leið og þeir inn- leystu þau gömlu. Viðbrögð við þessari nýjung voru framar öllum vonum, að sögn Péturs Kristins- sonar hjá Lánasýslunni, og tókst að endurfjármagna um 67% af þeim skírteinum sem koma til inn- lausnar þann 1. febrúar með þess- um hætti. Ávöxtunarkrafa breytist lítið Ávöxtunarkrafa spariskírteina breyttist lítið frá því sem verið hefur og segir Sigurður B. Stef- ánsson, framkvæmdastjóri Verð- bréfamarkaðar íslandsbanka, að vænta megi um 0,3% vaxtalækk- unar á vöxtum húsbréfa í kjölfarið á þessari niðurstöðu. Hann segir að vextir spariskírteina muni væntanlega fylgja í kjölfarið. Sigurður segir jafnframt að munurinn á ávöxtunarkröfu spari- skírteina og húsbréfa sé óeðlilega lítill um þessar mundir. Spariskír- teini beri yfirleitt um 0,25% lægri vexti en húsbréf, en munurinn sé talsvert minni nú. Hann treystir sér þó ekki til að spá um hvort vextir spariskírteina muni lækka umfram vexti. húsbréfa á næst- unni. ■ Reiknað með/16 Fundurinn í London um Reykjaneshrygginn ESB með nýja tillögu um úthafskarfann Sálfræðideild skóla í Reykjavík Tilvísanir hafa tvö- faldast Á UNDANFÖRNUM árum hefur 800-1000 börnum verið vísað til sálfræðideildar skóla á Fræðslu- skrifstofu Reykjavíkur. Hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá árunum 1975-83 þegar um 400 nemendum að meðaltali var vísað til stofn- unarinnar. Heildarnemendafjöld- inn hefur á sama tíma aukist úr 12.800 í 14.200. Stöðugildum sál- fræðinga hefur ekki fjölgað þessi 20 ár. Ástæður tilvísana eru aðajlega hegðunarvandamál eða slök náms- frammistaða. Að sögn Víðis Krist- inssonar, forstöðusálfræðings hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, er ineira um að yngri nemendum sé vísað til sálfræðideildar vegna þess að á því stigi eru úrræðin fleiri en tiltækum úrræðum fækkar þegar komið er á unglingastigið. Flestar tilvísanir koma frá skólum eða 60-65% en aðrar frá foreldrum eða ýmsum stofnunum. ■ Sálin í ólagi/26 Morgunblaðið/Ásdís Lífsgleði VEÐRIÐ hefur leikið við lands- menn í vetur og veðurblíða eins og verið hefur að undanförnu stytt- ir óneitanlega svartasta skamm- degið. Börnin eru söm við sig hvernig sem viðrar og nota hvert tækifæri til þess að bregða á leik. FULLTRÚAR Evrópusambandsins á fundi Norðaustur-Atlantshafsfisk- veiðinefndarinnar, NEAFC, lögðu fram nýja tillögu í viðræðum um skiptingu á úthafskarfastofninum á Reykjaneshrygg. Tillagan gerir ráð fyrir að 70% skiptingarinnar byggist á veiðireynslu. Guðmundur Eiríks- son, formaður íslensku samninga- nefndarinnar, sagði að ísland gæti ekki sætt sig við þá hugmyndafræði sem tillagan byggðist á. Á fundi NEAFC í London í gær voru lagðar fram þær tvær tillögur sem áður hafa komið fram á fundum nefndarinnar. Önnur er tillaga ís- lands, Færeyja og Grænlands. Hún gerir ráð fyrir að leyft verði að veiða 150 þúsund tonn úr stofninum, ís- land fái tæplega 59 þúsund tonn, Færeyjar og Grænland fái sameigin- lega tæp 57 þúsund tonn, Evrópu- sambandið rúm 6 þúsund tonn, Nor- egur 4 þúsund tonn, Rússland rúm 17 þúsund tonn og aðrir tæp 7 þús- und tonn. Rússar vilja að eingöngu verði byggt á veiðireynslu, sem þýddi að í hlut Islands kæmu um 27 þús- und tonn en um 65 þúsund tonn í hlut Rússlands. Fulltrúar Evrópusambandsins lögðu í gær fram nýja tillögu. Hún gerir ráð fyrir svipaðri heildarveiði og hinar tillögurnar, 150-155 þús- und tonnum. Samkvæmt tillögunni eiga 30% kvótans að skiptast jafnt á milli strandríkjanna, íslands, Grænlands og Færeyja, og 70% eft- ELLEFU erlendir nemendur frá sjö löndum stunda nú nám í hrossa- rækt á Hólum í Hjaltadal. Á Hólum er lögð megináhersla á hrossarækt, hestamennsku, fiskeldi og vatna- nýtingu. „Margir nemenda sem hér stunda nám í hestamennsku tengj- ast ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti. í ráði er að taka hér upp kennslu og námskeiðahald í ir veiðireynslu í fyrra. Á síðasta ári veiddu íslensk skip um 30 þúsund tonn, en árið 1994 var veiði þeirra rúmlega 50 þúsund tonn. „Þetta er hugmyndafræði sem við getum ekki samþykkt, en við munum ræða þetta áfram,“ sagði Guðmund- ur Eiríksson um tillögu ESB. Hann sagði ólíklegt að samkomulag tækist um skiptingu á fundi NEAFC í dag. sérhæfðri ferðaþjónustu til sveita. Hestamennskan og nýting á veiði í ám og vötnum er mjög samtvinn- uð ferðaþjónustunni, er hluti af þeirri starfsemi sem fellur undir ferðaþjónustu," segir Jón Bjarnason skólastjóri í samtali við Morgun- blaðið ■ Glímtvið/40 Ellefu útlendingar læra hrossarækt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.