Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D
37. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
John Bruton um möguleika á vopnahléi
Sinn Fein get-
ur ráðið miklu
London. Dublin. Reuter.
JOHN Bruton forsætisráðherra írlan'ds, sagði í gær í írska þinginu,
að Sinn Fein, stjórnmálaarmur írska lýðveldishersins (IRA) hefði bæði
tengsl og áhrif innan hryðjuverkasveitanna til þess að fá IRA til að
lýsa aftur yfir vopnahléi vegna tilrauna til að finna friðsamlega lausn
deilumála á Norður-írlandi.
helgi og sagði þá, að hún myndi
aðeins kynda undir ófriði á ný. Á
þingi á mánudag og í sjónvarps-
ávarpi til bresku þjóðarinnar lagði
Major hins vegar áherslu á, að
kosningarnar myndu leiða strax
til viðræðna um frið og hann tók
einnig fram, að hann væri reiðubú-
inn að ræða aðrar hugmyndir.
ítreka andstöðu
Hefur Bruton brugðist vel við
ávarpi Majors en embættismenn
írsku stjórnarinnar segja, að hún
hafi ekki skipt um skoðun á kosn-
ingunum. Talsmenn Sinn Fein og
John Hume, leiðtogi Verkamanna-
flokksins á N-írlandi, hafa einnig
ítrekað andstöðu sína við kosning-
ar.
Rekja má andstöðu kaþólikka á
N-írlandi við kosningar til gamla
Stormont-þingsins, sem að meiri-
hluta var skipað mótmælendum
og gætti jafnan hagsmuna þeirra.
Major sagði hins vegar í fyrradag,
að nýtt þing myndi hvorki hafa
löggjafar- né framkvæmdavald og
aðeins sitja í stuttan tíma.
Rússar
loka fyrir
rafmagn
til Úkraínu
Kiev.Reuter.
HÆTTA þurfti starfsemi í tugum
verksmiðja í Úkraínu í gær eftir
að Rússar lokuðu fyrir rafmagn
til landsins. Rafmagnslaust varð á
heimilum víða í dreifbýli og stjórn-
völd fyrirskipuðu að verksmiðjum
yrði lokað í öllum héruðum lands-
ins.
Kolabirgðir eru litlar í Úkraínu
eftir mikla kulda undanfarna tvo
mánuði og tveggja vikna verkfall
kolanámumanna, sem reyndar er
að fjara út, hefur ekki bætt úr
skák.
Oksana Liven, talsmaður orku-
málaráðuneytis landsins, sagði að
nú væri ástandið slæmt.
Hún sagði að Rússar hefðu lok-
að fyrir rafmagn til Úkraínu á
mánudagskvöld vegna aukinnar
notkunar. Þetta er önnur lokunin
á þremur mánuðum.
„Það bendir fátt til þess að
Úkraína verði sett í samband aftur
á næstu dögum,“ sagði Liven.
„Stjórnin íhugar að loka iðnfyrir-
tækjum tímabundið til að koma í
veg fyrir að kerfið hrynji."
Segja friðarsamn-
ingum teflt í voða
Sarajevo, Pale, Moskvu, Amsterdam. Reuter.
HÁTTSETTUR embættismaður í rússneska utanríkisráðuneytinu sagði í
gær að framsal tveggja yfirmanna hers Bosníu-Serba til stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag gæti orðið friðarsamkomulaginu, sem náðist í Dayton í
Bandaríkjunum, að falli. Richard Holbrooke, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, beitti sér hins vegar fyrir því að leiðtogar Balkan-þjóðanna
aðstoðuðu stríðsglæpadómstólinn við að sækja meinta stríðsglæpamenn til
saka.
Sambandssinnar á N-írlandi
hafa ekki viljað setjast a,ð samn-
ingaborði með Sinn Fein, stjórn-
málaarmi IRA, írska lýðveldis-
hersins, og IRA hefur ekki viljað
afhenda vopn sín áður en samning-
ar hæfust. Með kosningunum, sem
kynntar voru í síðasta mánuði, er
hins vegar stefnt að því að sneiða
framhjá þessu hvorutveggja.
John Bruton fordæmdi tillögu
Majors um kosningar um síðustu
Yfirheyrslur hófust í gær yfir serb-
neska hershöfðingjanum Djordje
Djukic og ofurstanum Aleksa
Krsmanovic, sem voru fluttir í fang-
elsi í Haag á mánudagskvöld með
flugvél friðargæsluliðs NATO frá
Sarajevo.
Viðræðum hafnað
Leiðtogar Bosníu-Serba mót-
mæltu framsalinu og sögðust ekki
ætla að taka þátt i viðræðum um
vígbúnaðarmál sem fyrirhugaðar eru
í Vín síðar í vikunni. Bosníu-Serbar
hafa neitað að ræða við embættis-
menn Bosníustjórnar frá því Djukic
og Krsmanovic voru handteknir. Þeir
eru sakaðir um að hafa drepið
óbreytta borgara í stríðinu í Bosníu
og stríðsglæpadómstóllinn ákveður
bráðlega hvort þeir verða ákærðir.
„Þetta eru hættulegar aðgerðir
sem gætu eyðilagt friðarumleitanirn-
ar og neytt annan aðilann til enn
harkalegri aðgerða,11 sagði embætt-
ismaður í utanríkisráðuneytinu í
Moskvu um framsalið. „Þetta er ekki
til þess fallið að skapa gagnkvæmt
traust sem hlýtur að vera nauðsyn-
legt til að koma á varanlegum friði.“
Bosníu-Serbar segja að handtaka
yfirmannanna tveggja gangi í ber-
högg við ákvæði Dayton-samkomu-
lagsins um ferðafrelsi í Bosníu. Bos-
níustjórn hefur nú samþykkt að láta
hér eftir aðeins handtaka þá sem
stríðsglæpadómstóllinn hefur beðið
um að verði framseldir.
Serbnesku föngunum er haldið í
sérstakri deild fyrir stríðsglæpadóm-
stól Sameinuðu þjóðanna í fangelsinu
í Haag. Dómstóllinn hefur þegar
ákært 52 menn - 45 Serba og sjö
Króata.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, hefur fyrirskipað rannsókn
vegna óstaðfestra frétta um að Rado-
van Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba,
hafi sloppið nokkrum sinnum í gegn-
um varðstöðvar friðargæsluliðsins.
Karadzic hefur verið ákærður fyrir
stríðsglæpi.
Samið um vatn
Ósló. Reuter.
FULLTRÚAR ísraels, Jórdaníu og
stjórnar sjálfstjómarsvæða Palest-
ínumanna náðu í gær sögulegu sam-
komulagi um nýtingu vatns á landi
sínu.
Samkomulag af þessu tagi hefur
ekki áður tekist milli ríkja í Miðaust-
urlöndum. Það kveður á um samstarf
um skilvirkari notkun vatnslinda og
aðferðir og leiðir til þess að skapa
nýjan vatnsforða, m.a. með vinnslu
drykkjarvatns úr sjó.
Reuter
Dagur norrænna
í Snæfjöllum
SEGJA má að gærdagurinn
hafi verið dagur Norðurland-
anna á heimsmeistaramótinu í
alpagreinum skíðaíþrótta, sem
nú fer fram í Snæfjöllum á
Spáni. Áf fyrstu sex mönnum í
risasvigi voru fimm frá Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi. Atle
Skárdal frá Noregi, sem verður
þrítugur nk. laugardag, varð
heimsmeistari og vann sinn
stærsta sigur á ferlinum. Á
myndinni sneiðir hann tignar-
lega fyrir eitt hliðið. Landi hans
Kjetil-Andre Ámodt varð þriðji,
en upp á milli þeirra komst
Svíi, Patrick Jarbyn. í fjórða
sæti varð Finni, Austurríkis-
maður í því fimmta og í sjötta
sæti varð þriðji Norðmaðurinn.
■ Norðurlandabúar/C4.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur hert á undirbún-
ingi undir nýjar kosningar á Norð-
ur-írlandi og svo virðist sem írska
stjórnin sé ekki jafnandvíg þeim
og áður.
Ian Paisley, leiðtogi annars
stjórnmálaflokks mótmælenda á
N-írlandi, sagði í gær, að Major
væri að leggja drög að áætlun um
friðárviðræður að loknum kosn-
ingum og sjálfur kvaðst hann bú-
ast við, að allir flokkar myndu
taka þátt í þeim.
Viðræður í
kjölfar kosninga
Reuter
MILAN Kucan forseti Slóveníu kom í gær í heimsókn til Sarajevo í Bosníu þar sem hans beið sér-
stakur heiðursvörður. Á myndinni sér hreingerningakona um að dusta ryk af rauðum dregli fyrir
framan heiðursvörð hermanna Bosníustjórnar.
Framsali tveggja Serba til Haag mótmælt í Moskvu