Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR BJARNI JÓN JÓNSSON + Guðmundur Bjarni Jón Jónsson fæddist 2. nóvem- ber 1926 í Bolungarvík. Hann lést á heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði 28. janúar sl. og fór útför hans fram frá Hólskirkju, Bolungarvík, sl. laugardag. GUÐMUNDUR Bjarni Jónsson járnsmíðameistari lést í Hveragerði ■ 28. janúar sl. þar sem hann dvaldi ásamt eiginkonu sinni, Fríðu Pét- ursdóttur, til hressingar, en hann átti við vanheilsu að stríða nokkur undanfarin ár. Ég vil minnast Guðmundar nokkrum orðum. Kynni okkar og samstarf hófust fyrir 32 árum er ég flutti sem ungur maður til Bol- ungarvíkur og hóf störf við fyrir- tæki Guðmundar í Vélsmiðju Bol- ungarvíkur hf. Það var nauðsynlegt fyrir ungan mann sem var að feta fyrstu sporin í nýjum heimkynnum og stofna heimili, að geta leitað með vandamál sín til manns sem vildi leysa allra vanda. í Guðmundi fann ég þann bakhjarl sem hverjum manni er nauðsynlegur þegar ein- hver mál koma upp, ekki síst þegar maður flytur brott frá sínum nán- ustu. 011 kynni mín af Guðmundi sem atvinnurekanda og vini ein- kenndust af ráðdeildarsemi, skilvísi og hlýju í garð starfsfólks og við- skiptavina. Guðmundur var mikil félagsvera sem endurspeglaðist í störfum hans til fjölda ára fyrir Hólshrepp og í bæjarstjórn, eftir að hreppurinn hlaut kaupstaðarréttindi. Hann starfaði í mörgum nefndum á veg- um bæjarins og í hinum ýmsu fé- lögum til margra ára. Á þeim vett- vangi vérður Guðmundar minnst og sárt saknað af félögum sínum. Minningin um þig kæri vinur yljar manni jafnt og sólin á Kanarí á liðnum vetri en þá áttum við Björg því láni að fagna að vera samvistum við ykkur hjónin í vetrarfríi í þess- ari paradís. Það bar aðeins einn skugga á í okkar samstarfi nýlega, sem því miður tókst ekki að leysa vegna ótímabærs fráfalls þíns. Mín eina ósk er að Almættið komi því til þín að í mínum huga verður þú ávallt sami góði Gummi og þú varst í þessu jarðlífi. Þín verður sárt sakn- að og minnst sem góðs atvinnurek- anda og félaga. Þetta atvik hefur þó kennt mér eitt, að fresta ekki til morguns því sem hægt er að gera í dag. Ég bið góðan Guð að vera með þér, Fríða mín, og vera þér nálæg- ur í sorg þinni. Við Björg sendum þér og ij'ölskyldu þinni samúðar- og vinarkveðjur. Orn Jóhannsson. Guðmundur B. var alla tíð stað- fastur maður, sannur íhaldsmaður. Síðastliðinn vetur lágu leiðir okkar saman, við urðum nágrannar. í augum hans var ég ekki bara ætt- ingi heldur líka granni. Það leiddi af sér bíltúra niðrá Bijót, fram Syðridalinn að Skriðu. Eftir bíltúr- inn var líka boðið uppá kaffi og með því á ættaróðalinu Sólbergi. „Fríða mín, það er kominn gestur, hann vill kaffi," við frændurnir settumst niður ýmist í bókaher- bergi eða borðstofu og ræddum um forfeður okkar, faðir hans dó tæp- lega sextugur, varð bráðkvaddur, Guðmundur keypti síðar Sólberg sem faðir hans hafði byggt, hann fór með mig um húsið, lýsti lífinu á Sólbergi, sjálfur hafði ég verið þar áður sem ærslafullur krakki. Allir hlutir höfðu sál í hans augum enda hagleikssmiður bæði á járn og timbur. Lýsingar hans á hvernig foreldrar hans brutust áfram heill- uðu, hveijum hlut var þannig lýst að ég yrði að minnast þeirra allra með stórum staf. Heimsóknir urðu þannig ógleymanlegar. Óðalshöfðinginn Guðmundur B. hafði að eigin sögn svipaðan hjarta- galla og faðir hans, sagðist hafa fengið nokkur ár vegna framfara í læknavísindum, hann lét að því liggja að bestu heilbrigðisráðherr- BALDUR HELGASON + Baldur Helgason fæddist á Ekru í Stöðvarfirði 26. febrúar 1919. Hann Iést í Reykjavík 2. febrúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðarkirkju 13. febr- úar. HANN Baldur er dáinn. Við höfum misst afburða vin og góðan dreng. Við sem eftir lifum eigum alltaf erfitt með að skilja þennan síðasta hluta lífsins, þó svo að við vitum öll að hann er óumflýjanlegur. Við eigum fullt af spurningum en afar Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÖTEL LÖFTLEIDIR fátt um svör. Það er eðli mannsins að leita svara, en svör við þessum spurningum fást aðeins hjá Guði sjálfum og best að fela þær honum. Á svona stundum eigum við ekki bara spurningar heldur eigum við einnig mikið af minningum. Minn- ingarnar, sem við í fjölskyldu Har- aldar B. Bjarnasonar eigum um Baldur eru ákaflega góðar. Baldur var alveg sérstakur fjöl- skylduvinur sem tókst á sinn ein- læga og hlýja hátt að laða það besta fram hjá hveijum manni. Af öllu því sem hann tók sér fyrir hendur mátti sjá að þar fór maður með stórt hjarta og mikið næmi fyrir öðrum samferðamönnum. Vinskapur hans og stuðningur við Harald frænda okkar var einstakur í gegnum árin. Hugulsemi Baldurs og næm tilfinning fyrir fólki átti ekki síst þátt í því að treysta þessi vinabönd. Þetta var vinskapur sem skilaði þeim báðum mikilli ánægju og gleði. Baldur var alltaf boðinn og búinn að leysa vanda allra þeirra sem til hans leituðu og gerði það af einlægni. Með þessu vann hann hug og hjarta allra sem umgengust hann, jafnt barna sem fullorðinna. Baldur kom oft í sumarbústað fjölskyldunnar á Grafarbakka í Hrunamannahrepp. Sá staður var honum einstaklega hugleikinn og naut hann þess að dveljast þar. Hann talaði oft um það hve sér- stakt það væri að geta dvalið upp til sveita og notið þess að vera úti MINNIIMGAR arnir væru sjálfstæðismenn, sér í lagi vinur hans Matti Bjarna. Við útidyrnar fékk ég yfirleitt bók til aflestrar, „svo þú sofir betur, frændi". Eitt sinri áritaði hann bók handa mér, niðjatal Sveins á Hesti auk annarra rita um forfeður okkar. Á ættarmóti síðastliðið sumar upp- lifðum við frændfólk hans og ætt- ingjar frásagnargleði hans og innra þrek. Þannig var að eldri bróðir hans, Pétur Friðrik, lá hel- sjúkur syðra, það kom því í hans hlut að halda hátíðarræðu. Búið var að reisa tjaldbúðir og stórt sýslumannstjald á Miðdalsodda í Syðridal. Um kvöldið sátum við öll að snæðingi. Úti var grenjandi rigning, dæmigert íslenskt veður. Guðmundur B. dró fram lágar tröppur, steig á stokk og tók af skarið á kjarngóðri vestfirsku. Hann var með engar vífilengjúr frekar en fyrri daginn. Ræðuna sem skrifuð var sá hann ekki vegna aðstæðna. Það kom ekki að sök. Allir sem í tjaldi voru áttu vin í Guðmundi B. Hugur húsbóndans á Sólbergi var alltaf hreinn, ætt- ingjar voru allir hreyknir að eiga slíkan vin. Eftir ræðuna teygði einn sig yfir langborðið og þakkaði honum fyrir, Guðmundur B. gaf ekkert útá hól- ið, teygði sig í vænan sviðasultu- bita og bað vininn vel að lifa. Hann lét aldrei sterka drykki inn fyrir sínar varir, hugur hans alltaf hreinn. Var alltaf allsgáður. Mér leið vel þetta kvöld og okkur öllum. Það hélt áfram að rigna, um nótt- ina urðu sumir að fella tjöld og fara út í Bolungarvík, þeir vissu að eitt hús stóð öllum opið og inn- an dyra byggju hjón á Sólbergi með allt til reiðu, þá sem endranær. Einar Garðar Hjaltason. Kveðja frá Lionsklúbbi Bolungarvíkur Guðmundur Bjarni Jónsson járn- smíðameistari og fyrrum fram- kvæmdastjóri í Bolungarvík hefur nú kvatt þennan heim langt um aldur fram. Skarð er fyrir skildi í Lionsklúbbnum okkar. Guðmundar Bjarna verður sárt saknað af klúbb- félögum. En þrátt fyrir að hann hafi ekki gengið heill til skógar um árabil, var hann frá stofnun klúbbs- í náttúrunni. Hann kom samt ekki í sveitina til að sólunda tímanum og liggja í leti út á túni. Hann naut þess að geta tekið til hendinni úti við og hlúð að náttúrunni á sama hátt og hann hlúði að mann- fólkinu. Hann fór oft í gönguferðir um umhverfið, tók gjarnan með sér veiðistöng og renndi fyrir silung. Ef heppnin var með átti hann það til að bjóða öllum viðstöddum upp á grillaðan, nýveiddan silung í lok slíkrar gönguferðar. Hann sinnti ekki síður bömunum en fullorðna fólkinu. Það var spennandi fyrir börnin að vera með Baldri því allt- af var hann til í að taka þátt í öll- um mögulegum leikjum sem þau stungu uppá. Því var oft kátt á hjalla í sumarbústaðnum þegar Baldur var þar. Þær eru margar og góðar minn- ingarnar um þennan ljúfa mann. Sérhver minning um hann vermir og hleypir birtu inn í líf okkar sem þekktum hann. Haraldur og fjölskylda mun ætíð minnast Baldurs með mikilli virð- ingu og þökk. Virðingu vegna þeirrar lífssýnar sem hann hafði. Þökk fyrir allt það sem hann gerði fyrir okkur og einstaka vináttu hans. Með Baldri er horfinn á braut góður maður. Með athöfnum sínum og orðum minnti hann okkur sífellt á hvað það er sælla að gefa en þiggja. Hversu mikil gleði felst í náungakærleika og hvað hann gef- ur lífinu ríkt innihald. Við viljum senda dætrum Bald- urs og ættingjum öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Megi Guð vera með ykkur öllum. Fjölskylda Haraldar B. Bjarnasonar ins og allt til dauðadags einn öflug- asti og áhugasamasti félaginn. Guðmundur Bjarni kynntist fyrst Lionshreyfingunni á ísafirði, er hann vann þar við iðn sína. Hann gerðist fyrst félagi í Lionsklúbbi Isaíjarðar, en var síðan einn helsti hvatamaður að stofnun Lions- klúbbs Bolungarvíkur eftir að hann flutti aftur til Bolungarvíkur árið 1958. Klúbburinn var stofnaður árið 1959. Móðurklúbburinn var Lionsklúbbur ísafjarðar og gerðist Guðmundur einn af stofnfélögum og sat í fyrstu stjórninni sem gjald- keri. Hann var formaður klúbbsins starfsárið 1963-1964 og aftur gjaldkeri starfsárið 1985-1986, auk þess að gegna fjölda annarra trúnaðarstarfa. Guðmundur var Lionsmaður af lífi og sál, og gerði göfugar hugsjónir og markmið Li- onshreyfingarinnar að sínum. Hann var upphafsmaður að mörg- um góðum verkum sem Lionsmenn tóku að sér, og alla tíð var hann fyrstur manna á vettvang þegar unnið var að Ijáröflun eða við önn- ur sjálfboðastörf. Hann hvatti fé- lagana eindregið til þess að hliðra til öðrum störfum vegna Lions- starfsins, og sýndi einstakt for- dæmi í þeim efnum. Það sýnir kannski best einlægan áhuga hans á starfinu, að öll þau ár sem hann starfaði í klúbbnum fékk hann við- urkenningu fyrir 100% mætingu. Eftirminnilegastur verður Guð- mundur Bjarni okkur Lionsmönnum vegna þátttöku sinnar í umræðum á fundum klúbbsins. Þar tók hann alla tíð virkan þátt, og hafði skoðun á þeim málum sem rædd voru. Mörgum fundinum bjargaði hann með umfjöllun sinni um hin ólíkustu málefni, og var þá oft stutt í grínið. 1 öllu starfi Guðmundar Bjarna innan Lionsklúbbsins, var áhugi hans á uppbyggingu bæjarfélags- ins og velferð íþúanna sem rauður þráður. Á vettvangi sveitarstjórnar fékk hann tækifæri til að sinna þeim hugðarefnum sínum, en hann sat samfellt í hreppsnefnd og síðar bæjarstjórn Bolungarvíkur um tuttugu ára skeið. Árið 1990 var einróma samþykkt í Lkl. Bolungarvíkur að gera Guð- mund Bjama að Melvin Jones fé- laga, sem er æðsta viðurkenning sem Lionsklúbbur getur veitt með- limum sínum. Við leiðarlok er 36 ára fórnfúst og árangursríkt Lionsstarf í þágu Bolvíkinga þakkað af heilum huga, um leið og einlægar samúðarkveðj- ur eru fluttar eiginkonu, börnum . og öllum aðstandendum. F.h. Lionsklúbbs Bolungarvíkur, Hafliði Elíasson. Hver af öðrum til hvíldar rótt halla sér nú og gleyma vöku dagsins um væra nótt vinimir gömlu heima. Þó leið þín sem áður þar liggi hjá, er lyngið um hálsa brumar, mörg höndin sem kærast þig kvaddi þá, hún kveður þig ekki’ í sumar. Og andlitin, sem þér ætíð fannst að ekkert þokaði úr skorðum - hin sömu jafnt langt og lengst þú manst - ei ljóma nú við þér sem forðum. Og undrið stóra, þin æskusveit, mun önnur og smærri snýast. Og loksins felst hún í litlum reit af leiðum, sem gróa og týnast. (Þorst. Vald.) Mig langar að segja svo margt um hann Gumma frænda, eins og við köllum við hann alltaf, en hugurinn er alveg tómur. Þetta kom svo snöggt og allt of stutt stórra högga á milli. Það verður svo hljótt þegar svona kátir og hressir menn kveðja. Ég man fyrst eftir Gumma og Fríðu þá þau áttu heima á Isafirði. Að fara þangað í þá daga var nú meiri háttar ferð- lag, það er svipað og þegar núna er farið frá íslandi til Parísar. Allt- af þótti okkur eitthvað sérstakt við jólagjafírnar sem komu alla leið frá Isafirði. Þegar afi á Sólbergi dó, keyptu Gummi og Fríða húsið og fluttu í víkina okkar og hafa búið þar síðan, þá byijaði strax mikill samgangur, enda mjög náin vinátta milli pabba og Gumma bróðir hans. Krökkunum þeirra þótti mjög gam- an að koma í sveitina til okkar. Einn af krökkunum var Nonni, hann vildi helst flytja fram í Meiri- Hlíð og hann var meira og minna hjá okkur öll sumur. En þá voru komnir tveir með sama nafni svo hann var kallaður Nonni litli. Gummi og Fríða eiga sumarbústað í Hafnardal í Ísaíjarðardjúpi en mamma og pabbi eiga bústað á Uppsalaeyri í Seyðisfirði, sem líká er í djúpinu. I þessum fallegu sum- arbústöðum var dvalist mest allt sumarið, þar var oft mannmargt og glatt á hjalla. Hafnardalurinn er ekki við þjóðveginn. Þegar ekið er suður var maður alltaf að flýta sér, en síðasta sumarið sem pabbi minn gat verið í djúpinu buðum við mömmu og pabba í ferð inn í Hafn- ardal. Það var ógleymanleg ferð og Gummi frændi hafði svo gaman að sýna okkur allt sem hann var búinn að byggja upp og öll trén sem þau höfðu gróðursett og hlúð að. Nú eru þær einar, Fríða og mamma, hvor á sínu óðalinu, en þær eiga okkur, öll börnin, sem ekki er svo lítið. Elsku Fríða nafna mín, guð geymi þig og varðveiti í þessari miklu sorg. Við huggum okkur við það að hann fékk hægt andlát, enda var hann búinn að beijast svo mikið við þennan erfiða hjartasjúk- dóm. Ég bið hann líka að styrkja börnin ^ykkar, þau Nonna, Björgu, Betu, Ásu, Rögnu og Ingu og fjöl- skyldur þeirra og systkini pabba og Gumma. Ekki má heldur gleyma mömmu minni, sem er alveg ein- staklega dugleg. Far þú í friði, elsku frændi minn. Hafðu þökk fyrir allan þann hlýhug og áhuga sem þú hefur sýnt mér og minni fjölskyldu í gegnum okkar útgerðarferil, bæði í Bolungarvík og í Olafsvík. Þín frænka, Friðgerður. INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR + Magnea Ingibjörg Magnús- dóttir fæddist á Húsavík hinn 21. október árið 1950. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hinn 30. janúar síðast- liðinn og fór útförin fram frá Húsavíkurkirkju 6. febrúar. ÉG VARÐ þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Ingibjörgu Magnúsdótt- ur og starfa með henni í næstum heilan áratug. Hún var einstök kona og bæði einlægari og hjarta- hlýrri en fólk er flest. Svo var hún alltaf svo sérlega jákvæð og bjart- sýn og lífsglöð að þeir sem kringum hana voru hlutu að njóta þess ríku- lega. Ingibjörg var að auki ákaflega duglegur og traustur starfsmaður og alltaf boðin og búin að ganga erinda blaðsins síns, hvernig sem á stóð hjá henni sjálfri. Slíkur starfsmaður er fjársjóður hveiju fyrirtæki. En skyndilega er Ingibjörg okkar horfin af sjónarsviðinu. Við sem eftir sitjum erum snauðari en orð fá lýst. Ég vil að skilnaði færa Ingibjörgu hjartans þakkir fyrir samfylgdina og vona að sú kveðja berist henni eftir þeim leiðum sem ekkert okkar þekkir. Þorbirni, son- unum þremur, sonardótturinni Ingibjörgu og öðrum aðstandend- um færi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorginni. Fyrir hönd fyrrum vinnufélaga á Degi, Bragi V. Bergmann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.