Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 13 LAIMDIÐ Farsími Lítill og þunnur, fer vel í vasa. Einn sá vinsælnsti í Þýskalandi í dag! Esrrn’ -frjáls cins ogfuglimt DANSAÐ af kappi í Skólarappinu. Lífleg árshátíð í Sólvalla- skóla Selfossi. YNGRI deildir Sólvallaskóla á Selfossi héldu árshátíð í lok síðustu viku. Hver bekkj- ardeild kom þar fram með atriði af ýmsu tagi. Yngstu nemendurnir sungu og þeir eldri fluttu leikrit og söngleiki, þar á meðal Gaggó Vest og Skóla- rapp. 7. bekkingar fluttu leik- ritið Lalli ljósastaur og var því vel tekið enda fóru leikar- arnir á kostum. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með sýningunni og fagnaði hressilega hveiju atr- iðinu af öðru. í lokin sýndi hópur nemenda fimleika af ýmsu tagi og í þeim hópi voru tveir líflegir trúðar. Árshátíðin er fjáröflun fyr- ir 7. bekkina sem fara í ár- legt ferðalag á hverju vori. Nemendur lögðu heilmikið á sig, seldu veitingar í hléinu ásamt foreldrum og tóku þátt í skipulagningunni með kenn- urum og skólastjóra. Stefna á útflutning á pastaréttum Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson. BJÖRN Roth og Gunnar Helgason. Gáfu Seyðfirðing- um myndir af öllum húsunum í bænum Stöðvarfirði - Fyrirtækið JG mat- væli ehf. hefur verið starfrækt hér á Stöðvarfirði frá því í byijun hóv- ember á síðasta ári. Þetta fyrir- tæki var áður starfrækt á Reykja- víkursvæðinu og þá undír nafninu Pasta og var þar í rekstri í um þijú ár, þá í eigu Garðars Sigurðs- sonar. Við stofnun JG matvæla ehf. kaupir Jóhann Jóhannsson á Stöðvarfirði sig inn í reksturinn og flytja þeir félagar þá fyrirtæk- ið á Stöðvarfjörð þar sem fram- leiðsla er nú komin í fullan gang er varan komin in í dreifingu og sölu til á þriðja hundrað aðila. Auk þessa framleiða þeir sem undir- verktakar ferskt pasta fyrir önnur matvælafyriitæki hér innanlands. Fyrirtækið JG matvæli ehf. hefur nú þegar sent fyrstu prufusend- inguna á pastaréttum erlendis í neytendaumbúðum og er stefnt að því að ná fótfestu og hefja út- flutning á þessu ári. í framleiðsl- Morgunblaðið/Bjarni Gíslason GARÐAR Sigurdsson og Jóhann Jóhansson, eigendur JG matvæla. unni eru sex pastaréttir í neytend- aumbúðum og eru það pastaréttir sem saman standa af tveimur fisk- réttum, þremur kjötréttum og ein- um grænmetisrétti. Hráefni í framleiðsluna er pastamjöl og frosið grænmeti sem flutt er beint inn til Stöðvarfjarðar erlendis frá. Kjötvaran er frá kjöt- vinnslunni hér á Austurlandi og fiskur nánast nýdreginn úr sjó frá útgerðarfyrirtækjum héðan úr fjórðungnum. Héraðsprent sf. á Egilsstöðum sá um hönnun og framleiðslu um- búða ásamt Jósef L. Marinóssyni ljósmyndara og Ingvari H. Guð- mundssyni matreiðslumeistara sem sá um skreytingar fyrir ljósmyndun réttanna. JG matvæli ehf. mark- aðssetja þessa nýju framleiðslulína sína undir merkinu Pasta 2000. Þegar fyrirtækið hóf starfsemi hér á Stöðvarfirði í haust voru tveir starfsmenn en nú þremur mánuð- um seinna eru starfsmenn fjórir. Þeir félagar eru nú á næstu dögum að fara út í kynningarátak til að kynna framleiðsluna. Byrjað verður á Reykjavíkursvæðinu þann 16. febrúar nk. og síðan áfram í öðrum landsfjórðungum. Seyðisfirði - Nýlega afhentu listamennirnir og feðgarnir Björn og Dieter Roth endanlega gjöf sína til Seyðfirðinga í tilefni af 100 ára afmæli Seyðisfjarðar- kaupstaðar. Gjöfin samanstend- ur meðal annars af skyggnu- myndum sem teknar hafa verið af öllum húsum í kaupstaðnum. Myndir voru teknar af húsunum fyrst í desember 1988 og síðan aftur í júní 1995. Myndunum hefur verið raðað í hringekjur og fylgja tvær skyggnusýninga- vélar með þannig að hægt er að sýna báðar myndaraðirnar í einu. Einnig fylgir myndaskrá og trékassi utan um allt saman sem Gunnar Helgason smíðaði. í sumar sem leið buðu þeir feðgar gestum og gangandi upp á sýningu á þessum myndum sem hluta af hátíðarhöldunum vegna 100 ára afmælis Seyðis- Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson. Dieter Roth. fjarðarkaupstaðar. Á sýningunni voru einnig myndir af sjoppum og bensínstöðvum við hringveg- inn. Sýningin var í einu af elstu húsum kaupstaðarins, Engros, húsi netagerðarinnar og voru myndirnar sýndar með hjálp fjöl- margra sýningarvéla samtímis. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson. KASSINN utan um gjöfina sem Gunnar Helgason smíðaði. Morgunblaðið/Sig. Jóns. YNGSTU bekkjardeildirnar sungu nokkur lög. GÖMLU konurnar í Lalla ljósastaur fóru á kostum. .000 SALLY MÖRKINNI 3 • SÍMI S88 0640

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.