Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 35 ! I I I I ( i ( ( ( ( I i i i FRÁ undankeppni sem fram fór í Þróttheimum. Karaokekeppni félags- miðstöðva á morgun HALDIN verður Karaokekeppni félagsmiðstöðva á Hótel íslandi fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20. Komið er að úrslitum keppninnar en undankeppni hefur farið fram í 15 félagsmiðstöðvum á suðvest- urhorni landsins. Þetta er í 5. keppni sinnar teg- undar, fyrstu tvær fóru fram í Gæðastjórn- un og fram- leiðslutækni TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAG ís- lands og Verkfræðingafélag íslands gangast fyrir ráðstefnu um tækni og vinnslu í sjávarútvegi að Hótel KEA á Akureyri 17. febrúar nk. Fjölmargir aðilar munu flytja fyrir- lestra á ráðstefnunni. Þar verður meðal annars fjallað um gæða- stjórnun og framleiðslutækni. Tækni sem nýjungar í búnaði fyrir skip og fískvinnslu. Fjallað verður um nýjungar í skipahönnun. Einnig verður fjallað um stefnumótun og kennslu í sjávarútvegsfræðum. Að loknum fyrirlestrum verða pall- borðsumræður. Leikskólakenn- arar vilja tak- marka áhorf barna STJÓRN Félags íslenskra leikskóla- kennara ályktaði eftirfarandi á stjórnarfundi þann 8. febrúar sl.: „Stjórn Félags íslenskra leik- skólakennara fagnar aukinni um- ræðu um málefni barna og ungl- inga bæði í fjölmiðlum og manna á meðal. Innihald umræðunnar er þó ekki ánægjulegt þar sem um ofbeldi og aukna neyslu vímuefna er að ræða. Hlutverk fjölmiðla sem áhrifa- valdur í uppeldi er mikið. Skorar stjórn Félags íslenskra leikskóla- kennara á dagskrárstjóra að sýna metnað sinn í vönduðu vali á efni og sjá til þess að dagskrá sé laus við ofbeldi þann tíma sólarhrings sem vitað er að börn horfa mikið á sjónvarp. Stjórnin vill ennfremur vísa til ábyrgðar foreldra og hvetja þá til þess að setja mörk varðandi áhorf barna þar sem framboð á erlendu efni lengist stöðugt og samkeppni um tíma þeirra eykst. Stjórn Félags íslenskra leikskóla- kennara hvetur opinbera aðila, sam- tök og alla sem málið varða að taka höndum saman, sporna við þessari óheillaþróun og standa stöðugt vörð um velferð barna.“ Danshúsinu Glæsibæ, næstu tvær í félagmiðstöðinni Þróttheimum og nú á Hótel Islandi. Keppt er bæði í einstaklings- og hópa- keppni. Miðaverð er 300 kr. og eru miðar til sölu í félagsmiðstöðv- um. Einnig er hægt að kaupa miða á Hótel íslandi fimmtudag- Kvöldganga í Orfirisey KVÖLDGANGA Hafnargöngu- hópsins í kvöld miðvikudagskvöld, verður frá Hafnarhúsinu kl. 20 og verður gengið með höfninni út í Orfirisey og til baka um vesturbæ- inn. Á fimmtudagskvöldum verður farið úr Sundahöfn frá Sundakaffi. Á föstudagskvöldum frá Ártúns- höfða frá húsi Ingvars Helgasonar fhf. Á mánudagskvöldum verður far- ið frá Skeljanesi við Birgðastöð Skeljungs. Reiknað er með að gönguferðirnar taki um l‘/2 klst. Heimild er fyrir að nota bílastæði ofangreindra staða og stutt er í biðskýli SVR frá þeim. Fundur um fjármál Reykjavíkur HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna, heldur opinn fund um fjármál Reykjavíkurborgar í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í kvöld kl. 20:30. Frummælandi verður Kjartan Magn- ússon, varaborgarfulltrúi. í frétt frá Heimdalli segir að á fundinum verði rætt um þá þróun sem orðið hafi í fjármálum borgar- innar á undanförnum árum í víðu samhengi. Fjallað verði um útgjöld til einstakra málaflokka, auknar álögur R-listans á borgarbúa og hallarekstur borgarsjóðs. Reynt verður að svara þeirri spurningu hvort hallarekstur verði viðvarandi og hvort skilyrði séu til að lækka álögur á Reykvíkinga. A eftir erindi frummælanda gefst fundarmönnum færi á að koma með fyrirspurnir og athugasemdir. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Aðgerðir í heil- brig’ðismálum ÓLAFUR Örn Haraldsson, Siv Frið- leifsdóttir og Hjálmar Árnason, þingmenn Framsóknarflokksins, munu standa fyrir hádegisverðar- fundi á Hótel Borg fimmtudaginn 15. febrúar nk. Hefst fundurinn kl. 12 og stendur til kl. 13.30. Frummælandi verður Ingibjörg Pálmadóittir, heilbrigðisráðherra. A fundinum mun hún ræða um mark- mið og aðgerðjr í heilbrigðismálum. FRETTIR Dagbók Lögreglunnar Lögregla hindruð í starfi 9.-12. febrúar Vitni vantar SJÓNARVOTTA vantar að þremur ákeyrslum í Reykjavík. Ekið á svarta jeppabifreið sem stóð á bílastæði framan við World Class við Fellsmúla miðvikudaginn 7. febrúar milli kl. 9 og 13. Skrán- ingarnúmer jeppans er SN-700. Ekið var á gráan Daihatsu Charade, árgerð 1990, LZ-720 fyr- ir utan Flúðasel 85 aðfaranótt 7. febrúar og hægri framhurð skemmd. Ekið var framan á sama bíl sl. mánudag eftir klukkan tvö þar sem hann stóð við Búnaðar- bankann við Hlemm. Þeir sem hafa upplýsingar um þessar ákeyrslur eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Grafarvogur Fundur um fíkniefni FRÆÐSLUFUNDUR um vímuefni og varnir gegn þeim verður haldinn í febrúar. Fundarstaður er Félagm- iðstöðin Fjörgyn í kvöld, miðviku- daginn 14. febrúar, kl. 20. Fyrirlesarar verða Ólafur Guð- mundsson og Jón Arnar frá for/arn- ardeild Fíkniefnalögreglunnar. For- eldrar og forráðamenn barna og unglinga í Grafarvogshverfum eru velkomnir. Myndakvöld Ferðafélagsins SÝNT verður frá tveimur sumar- leyfisferðum sem farnar voru sl. sumar á næsta myndakvöldi Ferða- félags íslands sem haldið verður í kvöld í Mörkinni 6 kl. 20.30. Fyrir hlé sýnir Eysteinn Sigurðs- son frá Litlu hálendisferðinni sem farin var í ágústlok. Farið var um Sprengisand, Vesturdal og yfír í Austurdal (gist í Hildaseli) og Fögruhlíð. Bólu-Hjálmar kemur talsvert við sögu í Austurdal og mun Eysteinn krydda myndsýning- una með frásögnum af honum. Eftir hlé sýna Þór Halldórsson og Páll Steinþórsson frá ferð á hin litríku Lónsöræfi er farin var 22.-27. júlí. Þorra- og vættaferð verður í Biskupstungur 17.-18. febrúar. Brottför laugardag kl. 8. Skíða- og gönguferðir. Gisting í góðu húsi í Uthlíð. Valentínusar- kvöld á Kaffi Reykjavík V ALENTÍNU S ARKV ÖLD verður haldið á Kaffi Reykjavík í kvöld, miðvikudagskvöldið, 14. febrúar. Spænski söngvarinn Gabriel Gancia San Salvador leikur og syngur fyrir gesti til kl. 1. Allar konur fá ástardrykk frá Austur- bakka og blóm frá Blómálfinum. ■ NEFND utanríkisráðuneytis- ins vegna 50 ára afmælis Samein- uðu þjóðanna og félag Sameinuðu þjóðanna á Islandi hafa gefíð út bækling um samtökin. í fréttatil- kynningu segir m.a. að bæklingur- inn sé sniðinn að þörfum skólafólks, en gagnast einnig sem almennt upplýsingarit um Sameinuðu þjóð- irnar. Jafnframt er íjallað um starf Islands innan samtakanna og mikil- vægi þeirra fyrir íslenska hags- muni. ■ ÁRLEGA senda skiptinema- samtökin AFS á íslandi á annað hundrað ungmenni til fjölmargra landa í heiminum. Eftir áramót héldu 16 ungmenni til Ástralíu og Suður-Ameríku. Eins og undanfarin ár halda flestir skiptinemar utan á tímabilinu júní til ágúst. Frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumar- brottför rennur út fljótlega og er áhugasömum bent á að hafa sam- band við skrifstofu ÁFS. I VEÐURBLÍÐUNNI um helgina var talsvert annríki hjá lögreglu- mönnum. Mikið var um ölvun og afskipti af ölvuðu fólki. Vista þurfti 28 í fangageymslunum sem ekki telst margt yfir helgi. Þá var tilkynnt um 48 umferðaróhöpp. Meiðsli á fólki urðu í þremur til- vikum. Innbrotin voru mörg eða 18, um helmingur innbrot í bif- reiðir. Fótgangandi kona á sextugs- aldri varð fyrir bifreið á Miklu- braut við Lönguhlíð á föstudags- morgun. Hún var flutt á slysa- deild með sjúkrabifreið. Skömmu eftir hádegi var fernt flutt á slysa- deild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Suðurlands- vegar. Lömdu mann með kylfu Á föstudag var leit gerð að tveimur mönnum sem höfðu lamið annan í andlitið með kylfu í versl- un við Laugaveg. Ástæða verkn- aðarins er óljós en gerendurnir hafa báðir komið við sögu fíkni- efnamála. Þrír ungir menn, 15 og 16 ára, voru handteknir eftir að tilkynnt hafði verið um innbrot í verslun í Árbæjarhverfí. Mennirnir, sem all- ir voru ölvaðir, höfðu komist út úr versluninni með vindlinga. Tveir þeirra viðurkenndu innbrotið. Skömmu eftir miðnætti á föstu- dag voru 5 unglingar fluttir á lögreglustöðina eftir að tilkynnt hafði verið um rúðubrot í verslun í Rimahverfi. Nokkuð hefur borið á að sumt fólk í hverfinu kunni ekki að umgangast umhverfi sitt með þeirri virðingu sem því ber. Foreldrarölt er ekki í hverfínu en það hefur einmitt skilað góðum árangri við þessar aðstæður. íbúi handtók innbrotsþjóf Tiikynnt var um að maður hefði verið laminn í húsi aðfaranótt laugardags. Hann var fluttur á slysadeild. Gerandinn viðurkenndi verknaðinn. Um nóttina var til- kynnt að eldri maður hefði ráðist að stúlku í Vesturbænum. Hún náði að komast undan í nálægt hús og varð ekki meint af. Þá veittist farþegi að leigubifreiðar- stjóra í Grafarvogi síðla nætur. Maðurinn var handtekinn. Undir morgun reyndi maður að brjótast inn í íbúð við Barónsstíg. íbúi hússins brá skjótt við og hélt hon- um þangað til lögregla kom. Aðfaranótt laugardags var maður fluttur á slysadeild eftir að hafa verið hrint aftur á bak á Lækjartorgi með þeim afleiðing- um að hann féll aftur fyrir sig og lenti með hnakkann á gang- stéttinni. Sá sem það gerði var handtekinn og vistaður í fanga- geymslunum. Á meðan lögreglu- menn voru að gera að sárum þess slasaða bar þar að ölvaðan mann á þrítugsaldri og fór hann að skipta sér um of af störfum þeirra. Endaði það með því að fjarlægja þurfti manninn af vettvangi og færa á lögreglustöðina. Lögreglumenn þurftu einnig að handtaka tvo ölvaða unga menn á Lækjartorgi aðfaranótt sunnu- dags og færa á lögreglustöð. Mennirnir reyndu að hindra þar handtöku ölvaðs manns, sem af- skipti þurfti að hafa þar af vegna háreysti og óspekta. Mennirnir voru fullir iðrunar eftir á, en munu að öllum líkindum eiga þess kost að ljúka máli sínu með greiðslu sekta. Refsing liggur við því að tefja eða hindra störf lög- reglumanna á vettvangi. . Mannsöfnuður í Austurstræti Fátt fólk var í miðborginni þangað til vínveitingahúsum var lokað aðfaranótt laugardags. Fólk safnaðist saman í Austurstræti og hékk þar það sem eftir lifði nætur. Einn unglingur var færður í athvarfið og sóttur þangað af foreldri sínu. Fjórir voru færðir í fangamóttöku, þar af tveir vegna líkamsmeiðinga. Aðfaranótt sunnudags þurfti að handtaka 10 manns í miðborg- inni, aðallega vegna ölvunar. Sex þeirra þurfti að vista í fanga- geymslunum. Skömmu eftir miðnætti á laug- ardag var tilkynnt að 15 ára pilt- ur hefði orðð fyrir hnífsstungu í húsi í austurborginni. Þegar lög- reglumenn komu á staðinn hafði sá sári farið þaðan. Hann fannst skömmu síðar í strætisvagnabið- skýli skammt frá. Tveggja cm grunnur skurður var á maga pilts- ins. Ástæða verknaðarins var sögð vera leikur með hníf í partíi. Pilturinn var fluttur á slysadeild- ina þar sem gert var að sári hans. Um svipað Ieyti var tilkynnt um mann sem ætlaði að kasta sér í sjóinn við Miðbakka. Tveir bátar voru mannaðir og sendir til leitar. Auk þess voru gerðar ráðstafanir til að fá kafara og sjúkrabifreið á staðinn. Þegar þetta stóð yfir fannst maðurinn á ferli í miðborg- inni. Um einhvern misskilning virtist hafa verið að ræða. Tveir menn stungnir Hnífur stakkst í sköflung á rnanni um borð í bát skammt utan við höfnina aðfaranótt sunnu- dags. Þegar í land var komið var hann fluttur á slysadeild til að- gerðar. Á sunnudagsmorgun var mað- ur stunginn með hnífi neðarlega í bakið og í læri þegar hann var á leið ásamt öðrum út úr húsi í vesturbænum. Komið hafði til stympinga þar innan dyra eftir samkvæmi, en þegar viðkomandi hugðist yfirgefa staðinn var hann stunginn. Averkinn var ekki al- varlegs eðlis. Vitað er hveijir voru þarna að verki. Á sunnudag voru lögreglumenn kvaddir á slysadeild vegna ölvaðs kvenmanns, sem veist hafði að einum hjúkrunarfræðingnum, sem hafði verið að reyna að að- stoða viðkomandi vegna meiðsla. Varð að færa konuna á lögreglu- stöðina og síðan vista.í fanga- geymslu. Fólk nýtti sér útivistaraðstöðu í nágrenni höfuðborgarinnar. Fjölmenni var t.d. bæði í Skála- felli og í Bláfjöllum. Lítið var um óhöpp. Sjö ára stúlka féll þó niður um 5-6 metra úr skíðatoglyftu í Skálafelli um miðjan dag á laugardag. Óhappið varð eftir að vír úr annarri lyftu festist í stúlk- unni með fyrrgreindum afleiðing- um. Stúlkan kenndi til eymsla í hrygg, en var þó talin óbrotin. Hún var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. Þá þurfti þyrla Land- helgisgæslunnar að fara í Skála- fell á sunnudag til að sækja 12 ára dreng sem skíðað hafði þar á stein og meiðst innvortis. Dreng- urinn var fluttur á Borgarspítal- ann. Lögreglan á Suðvesturlandi ætlar að fylgjast með skráningu og búnaði eftirvagna á næstunni. Ætlunin er að skoða vélsleðakerr- ur sérstaklega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.