Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Smáfólk VE5, SIR.. I 0 LIKETOBUYA 0OK OF CRAY0N5 FOR MV D06.. HE NEED5 A BOX UUITH L0T5 OF BLUE5, AMP VELL0W5, ^AND 6REEN5. HE LIKE5 TO COLOR BI6 BLUE 5KIE5, BRI6HT 5UN5, ANP 0EAUTIFUL LAWN5.. Já, herra, mig langar Hann þarf marga bláa, til að kaupa einn gula og græna... kassa af krítarlitum handa hundinum mínum... Honum finnst gaman að lita stóra bláa himna, bjartar sólir og fallegar grasflatir... BRÉF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Toronto- vakningin Frá Guðbjörgu Þórisdóttur: NÝ TRÚARLEG vakning breiðist út um heiminn eins og eldur í sinu. Aðallega í Hvítasunnu- og „char- ismatískum“ (náðargjafa) kirkjum , en einnig inn í hefðbundnari kirkju- deildir. Vakning þessi er af mörgum nefnd: Toronto-vakningin, Toronto- blessunin eða einfaldlega „nýja vakningin" og „hin mikla úthelling heilags anda í dag“. Rætur þessarar nýju andlegu bylgju má rekja til predikara sem heitir Rodney How- ard Browne. Hann er þekktur fyrir „hysterískar" hlátursamkomur og mikinn yfirnáttúrulegan kraft. For- stöðumenn og „pastorar" (prestar, hirðar) ýmissa kirkna hafa sótt sam- komur hans og opnað sig fyrir hin- um svokallaða nýja anda. Þeir hafa fengið sérstaka fyrirbæn og handa- yfírlagningu frá Rodney, sem segir að með því yfirfæri hann sína „smurningu" yfír á þá. Þessum nýja anda er líkt við „nýtt vín“ og segist R.H.B. hafa opnað Jóelsbar og að hann sé barþjónninn sem gefí drykk- ina ókeypis. „Drekkið! drekkið! , drekkið í ykkur andann" („soak in the Spirit") hvetur hann samkomu- gestina. Forstöðumennirnir fara svo heim í kirkju sína og söfnuði og sömu hlutir fara að gerast þar! Hvaða hlutir? Fólk fær t.d. óviðráð- anlegan hlátur, oft „hysterískan“, skjálfta, hristing, hoss og stapp, „spastískar“ hreyfingar og þörf fyr- ir að rúlla og velta sér um gólfið. Þannig ástand getur jafnvel varað í marga klukkutíma. Sumir dofna og fara inn í annarlegt ástand, eins konar andlega ölvun eins og það er víst kallað. Þeir missa stjórn á lík- amanum, vafra um og tala þvoglu- kennt. Aðrir missa málið og verða jafnvel ófærir um að hugsa í lengri eða skemmri tíma. Fólk finnur mik- inn þunga og máttleysi koma yfir sig svo það hnígur niður. Sumir sjá sýnir af englum sem flögra um allt. Aðrir rymja og urra eins og dýr (oft predikararnir sjálfír). Onnur dýrahljóð eins og gelt og gól og jafnvel gagg eru algeng. Fæðingar- hríðir með líkamlegum rembingi og tilheyrandi hljóðum er eftirsótt reynsla, sem ákveðin tegund af fyr- irbæn. Margir fá sýnir, spádóma og nýjar opinberanir frá guði. Ein af kenningunum sem komið hafa fram í þessari vakningu er að urrið og rymjið sé eins konar andleg fæðing. Paul Cane, sem er af mörgum kristnum talinn vera mikill spámað- ur guðs, kennir að kirkjan sé í lík- ingu við Maríu Mey að fæða hinn „andlega Jesúm“. Hann segir: „Ég segi ykkur, Jesús mun koma til kirkjunnar áður en hann kemur eft- ir henni“, (það er að sækja hana við hina raunverulegu endurkomu). (Paul Cane: Nov 88,Tape: „My fat- her’s house“.) Sumir kenna að þessi andlegi Jesús verði útvalinn postula- og spámannahópur. Þeir hafí öðlast smurningu og vald Jesú Krists og verði þannig höfuðið yfír kirkjunni sem kirkjan á að lúta sem Kristi! Samkvæmt Op.12.5. muni síðan þessi Jesús, sem kirkjan er að fæða (oft nefndur „the corporate man- child“), stjóma heiminum með járn- sprota! Vineyard-kirkjan í borginni Tor- onto í Kanada er orðin fræg fyrir að flæða í þessum nýja anda. Þaðan kemur nafnið Toronto-vakningin. Slagorð þessarar vinsælu en um- deildu vakningar eru: Ný úthelling heilags anda; Ný smurning; Heilag- ur andi starfar öðruvísi í dag! Öðru- vísi en hann starfaði í Jesú Kristi? Er það ekki Jesús Kristur sem við eigum að líkjast og feta í fótspor hans? Gera sömu verk og hann gerði. í 2 Tímóteusarbréfi 4.3. seg- ir: „Því að þann tíma mun að bera er menn þola ekki hina • heilnæmu kenning, heldur hópa þeir að sér kennurum eftir eigin fýsnum sírium til þess að heyra það, sem kitlar eyrun. Þeir munu snúa eyrum sín- um burt frá sannleikanum og hverfa að ævintýrum.“ Sú stað- reynd að margir hinna kristnu safn- aða hér á landi hafa tekið við þess- ari blekkingu, sem stórkostlegri úthellingu heilags anda, er bæði óhugnanleg og hryggileg. (Tor- onto-ráðstefnan, sept.’ 95.) Ég velti því fyrir mér hvaða „víntegund" þeir velja sér næst. „Vínið“ í Tor- onto-blekkingunni er ekki frá guði og það sem lýst er hér að framan hefur ekkert með heilagan anda að gera. Ég vil taka það fram að ég er ekki að tala gegn skírn í heilögum anda, náðargjöfum and- ans, lækningum, smurningu heil- ags anda, tungutali, spádómsgáf- um né sönnum opinberunum guðs. En þau andlegu öfl sem starfa í þessari fölsku vakningu eru hættu- íeg blekking og villa. Þú sem hefur gefið Kristi lif þitt láttu ekki afvegaleiðast. Mundu að það er sannleikurinn sem gerir okk- ur frjáls. GUÐBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR, forstöðumaður Borgar ljóssins, kristins safnaðar, Álfholti 24, Hafnarfirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Gólf listar yf ir rör Vinna - efni - ráðgjöf Einar Guðmundsson pípulagningameistari LAUFBREKKU 20 / DALBREKKU MEGIN - KÚP. SÍMI 554 5633 - BRÉFSlMI 554 0356

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.