Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 7 FRÉTTIR Nýtt tóbaksvarnafrumvarp gerir ráð fyrir að bannað verði að selja yngri en 17 ára tóbak Tillaga um reyk- ingabann í skólum BANNAÐ verður að reykja í leikskólum, hvers konar dagvistun barna, grunnskólum, framhaldsskólum og sérskólum og í hús- næði sem ætlað er til félags- og tómstunda- starfs barna og unglinga, samkvæmt frum- varpi um breytingar á tóbaksvarnalögum, sem heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þá verður einnig bannað að selja eða af- henda tóbak til einstaklinga yngri en 17 ára en það aldurstakmark er nú 16 ár. Er aldurs- takmarkið í frumvarpinu miðað við að sölu- bannið nái til allra grunnskólanema. Frumvarpið byggir á öðru frumvarpi til nýrra heildarlaga um tóbaksvarnir, sem lagt var fram á Alþingi snemma á síðasta ári, en fékk þá ekki afgreiðslu. í athugasemdum með nýja frumvarpinu kemur fram, að í ljósi neikvæðrar þróunar varðandi reykingar ungl- inga sé nú lögð áhersla á að breyta ákvæðum um aðgengi að tóbaki, svo sem um reyking- ar á ýmsum stöðum til að styrkja baráttuna gegn reykingum þessa aldurshóps. Til viðbótar við reykingabann í skólum gerir frumvarpið einnig ráð fyrir reykinga- banni í heilbrigðisstofnunum, með þeirri undantekningu einni, að leyfa megi reyking- ar sjúklinga í vissum tilfellum. í greinargerð með frumvarpinu segir, að undanþáguheim- ildir frá sambærilegum ákvæðum í núgild- andi lögum hafi leitt til slappleika í fram- kvæmd þeirra og sé gert ráð fyrir að undan- þágumar falli úr gildi. Munn- og neftóbak bannað Ymis önnur nýmæli eru í frumvarpinu. Þar er meðal annars kveðið á um bann við að framleiða hér á landi tónlistarmyndbönd þar sem tóbaksneysla er áberandi. Hægt verði að svipta smásala leyfí til tóbakssölu við ítrekað brot við banni gegn tóbakssölu. Bannað verður að selja eftirlíkingar af sígar- ettum eða öðrum reykfærum. Þá verður munntóbak og fínkornað nef- tóbak bannað hér á landi. Samhljóða ákvæði var í eldra frumvarpinu og sætti það mik- illi gagnrýni frá Inga Birni Albertssyni þá- verandi alþingismanni vorið 1995 og leiddi það m.a. til að frumvarpið dagaði uppi á þinginu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að 0,4% af brúttósölu tóbaks verði varið til tóbaksvarn- arstarfs, en þetta hlutfall er 0,2% samkvæmt gildandi lögum. Fjármálaráðuneytið áætlar að þetta gefi um 20 milljónir króna til tób- aksvarna. Bekkjarblaðið er rekið með gróða BEKKJARBLAÐIÐ heitir blað sem Oddur Eysteinn Friðriks- son, 12 ára strákur í Hlíðaskóla í Reykjavík, hefur gefið út tvö tölublöð af. Fyrsta tölublað kom út þann 11. febrúar í átta eintökum og annað tölublað kom út í gær í 10 eintökum. í blaðinu eru einkum myndasög- ur og auglýsingar og Oddur segist hafa Iagt út í útgáfuna í von um ágóða. I öðru tölublaði er einnig bryddað upp á nýjung- um því þar er að finna frétt. Oddur Eysteinn heimsótti rit- stjórn Morgunblaðsins í gær. „Eg hef lengi gengið með þessa hugmynd,“ sagði hann aðspurð- ur um hvers vegna hann hefði ráðist í útgáfuna. „Ég veit um fullt af fréttnæmum atburðum.“ Áskrifendur Bekkjarblaðs- ins eru nú þrír bekkjarbræður útgefandans. Auk þeirra hafa auglýsendur tekið blaðinu tveim höndum og hafa keypt hver sitt eintakið. Oddur Eysteinn sagði að út- gáfa Bekkjarblaðsins stæði undir sér og virtist ætla að verða gróðavænleg. Hann sagði að hvert eintak kostaði 50 krónur í framleiðslu en út- söluverðið væri 75 krónur. Að auki eru talsverðir tekjumögu- leikar á auglýsinga- markaðinum en heils- íðuauglýsing í síðasta tölublaði Bekkjarblaðs- ins kostaði 300 krónur og var talsvert um aug- lýsingar í blaðinu. „Þetta fyrirtæki er búið að gera samning um að kaupa auglýsingar í fimm næstu blöðum," staðhæfir útgefandinn hróðugur og bendir á heilsíðuauglýsingu fyr- irtækis í Kringlunni í fyrsta tölublaði Bekkjarblaðsins. Oddur Eysteinn stefnir að því að færa út kvíarnar hægt og síg- andi þannig að næsta tölublað komi fljótlega út í 12 eintökum og svo aukist upplagið hægt og rólega. Hann hefur þeg- ar ráðið sér samstarfs- mann til að undirbúa með útgáfu næsta tölu- blað Bekkjarblaðsins. Meginefni Bekkjarblaðsins eru myndasögur sem Oddur Eysteinn hefur klippt úr og þýtt úr erlendum blöðum. Blaðið er unnið á Ijósritunar- vél á vinnustað föður Odds Eysteins. Eins og fyrr sagði er útgáfa Bekkjarblaðsins nú rekin með talsverðum hagnaði en Oddur Eysteinn kvaðst ákveðinn í að láta arðinn renna í uppbygg- ingu fyrirtækisins, kaupa pappír í fleiri litum, plastmöpp- ur að binda blaðið í og fleiri nýjungar eru í bígerð. Meðal annars eru uppi hugmyndir um að blaðið verði prentað á leys- erprentara innan tíðar og þá jafnvel í lit. Morgunblaðið/RAX ODDUR Eysteinn með eintök af 1. og 2. tölublaði Bekkjarblaðsins. Kosnir einróma KJÖRNEFND Skinnastaðasókn- ar í Öxarfírði hefur einróma kos- ið Eðvarð Ingólfsson guðfræðing sem prest í sókninni, en hann var eini umsækjandinn. í kjörnefnd sitja 12. Á Raufar- höfn var Arnaldur Bárðarson guðfræðingur sömuleiðis kosinn einróma af kjörmönnum, en hann einn í framboði. Kjörmenn voru níu. Eftir er að ganga til kosn- inga um frambjóðandann á Tálknafirði, Svein Valgeirsson, en búist er við að það verði gert næstu daga. Verði af kosningu Sveins, verða prestarnir þrír vígðir til starfa 25. febrúar næst komandi í Dómkirkjunni. Til haminqju, mpð Pðsturoq sími, Samnetið Tðktu réttd ákvörðun Nú er tækifærið til að nýta sér möguleika Samnetsins til hraðvirkari boðmiðlunar, styttri tengitíma og þar með hagræðingar í rekstri. Búnaður frá viáurkenndum framleiðendum Gagnaflutningar/Opin kerfi hf. bjóða þeim heildarlausn sem vilja tengjast Samnetinu, hvort sem í hlut eiga PC-notendur eða fyrirtæki með viðameiri tölvukerfi. Ráðqjöfog þekking Gagnaflutningar/Opin kerfi hf. bjóða ráðgjöf, kynningu og námskeið í notkun á Samnetinu. í fararbroddi á sviði tölvujiekkinp o§ þjónustu Gagnaflutningar/Opin kerfi hf. búa að mikilli reynslu. Samnetsspjöld og tengibúnaður frá viðurkenndum framleiðendum opna þér greiða og örugga leið til stafrænna fjarskipta um Samnetið hér innanlands og við útlönd. Nýttu þérSamnetið ísamvinnu við Gagnaflutninga/Opin kerfi hf. OPIN KERFIHF Whpt hewlett AL'rJk PACKARD Höfðabakka 9, Sími: 567 1000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.