Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Flóttamönnum frá Norður-Kóreu fjölgar stöðugt Reuter Útlent sælgæti í Kína SÚKKULAÐI, sem framleitt er af sameiginlegri verk- smiðju Kínverja og sviss- neska fyrirtækisins Vochelle, var kynnt nýlega í Peking. Stúlkurnar tvær á myndinni beittu nútímalegum kynn- ingaraðferðum í gær og deildu út blómum og pappírs- hjörtum til viðskiptavina í stórmarkaði í borginni til að minnast Valentínusardagsins. Umbætur á þýska eftir- launakerfinu Bonn. Reuter. ÞÝSKA stjórnin hefur komist að samkomulagi við verkalýðsfélögin og vinnuveitendur um umbætur á eftirlaunakerfinu. Ryður það brautina fyrir umbótum á mörgum öðrum sviðum, sem aðilar vinnumark- aðarins eru sammála um, að séu nauðsyn- legar til að ná niður atvinnuleysinu. Samkomulagið dregur úr líkum á, að lífeyriskerfið verði gjaldþrota 1997 eins og stefndi í en það hefði gert þýsku stjórn- inni erfitt fyrir með að uppfylla skilyrði væntanlegs myntband- slags um að ríkissjóðshalli sé innan við 3%. Úr 60 í 63 ár í Þýskalandi hafa launþegar getað farið á eftirlaun sextugir í fyrsta lagi en á næstu þremur árum verður aldurinn hækkaður í 63 ár og eftirlaunin lækkuð. Þetta mun þó ekki gilda um þá, sem eru um það bil að öðlast þessi rétt- indi, og eftirlaunaþegum verður leyft að gegna hlutastarfi og hafa í tekjur allt að 70% af fyrri launum. Samkomulag um að hækka aldursmörk o g lækka greiðslur Norbert Bliim, vinnumálaráð- herra Þýskalands, sagði í viðtali við dagblaðið Bild Zeitung fyrir fáum dögum, að lífeyriskerfið stefndi í gjaldþrot vegna þess, að tekjurnar væru miklu minni en útgjöldin. Væri ástæðan meðal annars atvinnuleysið og einnig, að margir atvinnurekendur hefðu séð sér hag í að fá fólk til að fara á eftirlaun strax og lög leyfðu. Væri það ódýrara fyrir þá en að sitja uppi með of marga starfs- menn á fullum launum. Sigur samstöðunnar Samkomulaginu um eftirlaunin hefur verið fagnað enda lögðu all- ir áherslu á, að það væri lykillinn að frekari umbótum og forsenda fyrir því, að „Samtök um atvinnu- sköpun“ næðu tilgangi sínum. Að þeim standa stjórn og stjórnarand- staða, vinnuveitendur og verka- lýðsfélög og þau þykja lýsandi dæmi fyrir þá áherslu, sem er í Þýskalandi á samstöðuna, ólíkt því, sem er handan landamæranna í Frakklandi. Reuter Seoul. Reuter. SUNG Hye-rim, fyrsta eiginkona Kims Jong-ils, leiðtoga Norður- Kóreu, hefur leitað hælis erlendis, líklega í Suður-Kóreu. Var þetta haft eftir suður-kóreskum embættismanni í gær en Sung hefur að undanförnu dvalist í Sviss. Ekki var upplýst hvar hún væri nið- urkomin nú. Sung, sem er 58 ára að aldri, var fyrsta eiginkona Kims Jong-ils og er móðir elsta sonar hans, Jong- nams, en langt er síðan leiðir þeirra skildu. Þau eru þó ekki í raun skilin að lögum. „Eiginkona Kims og þijár manneskjur með henni hafa leitað hælis. Við erum með þetta mál til athugunar en getum ekki veitt nánari upplýsingar að sinni,“ sagði embættismaðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Kvaðst hann ekki geta útilokað, að fólkið fengi hæli í Suður-Kóreu. í Moskvu frá 1983 Hin þijú eru eldri systir Sung, Sung Hey-rang, frænka hennar, Lee Nam-ok, og ónefndur að- stoðarmaður. Sást síðast til þeirra í Sviss 20. janúar en suður-kór- eski embættismaðurinn sagði, að Sung hefði átt við ýmis vandamál að striða í Norður-Kóreu. SUNG Hye-rim á þrítugsaldri. Hún var fyrsta eiginkona Kims Jong-ils, sem tekið hefur við ríkiserfðum í Norður-Kóreu. Suður-kóreska dagblaðið Chos- un Ilbo sagði í gær, að fólkið hefði komið til Sviss frá Moskvu þar sem Sung hefði verið undir læknis- hendi frá 1983. Kvaðst blaðið hafa haft milligöngu um símtal milli Sung Hey-rang og sonar hennar, Lee Han-young, sem flýði til Suð- ur-Kóreu 1982, og hefði þá Sung sagt syni sínum, að þau hygðust fara frá Moskvu til einhvers þriðja lands seint i janúar. „Við getum hist, við getum hist. Ég mun gera allt til að við hittumst, bíddu min,“ sagði Sung. Neydd til að skilja og giftast Kim í blaðinu sagði, að Sung Hye-rim, sem er fyrrver- andi leikkona, hefði verið gift þegar hún hitti Kim Jong-il 1967. Hefði hann neytt hana til að skilja og giftast sér. Soninn Kim Jong-nam áttu þau 1971. Sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu í Seoul segja, að Kim, arftaki „Leiðtogans mikla“, föður síns Kim Il-sungs, hafi átt tvær aðrar konur, fyrrver- andi einkaritara sinn og dansmey. Talið er, að Kim Jong-il hafi öll ráð í sinni hendi í Norður- Kóreu þótt hann hafi ekki enn tekið formlega við tveimur emb- ættum, sem faðir hans gegndi, stöðu aðalritara kommúnista- flokksins og forsetaembættinu. Að undanförnu hefur farið mikl- um sögum af hungursneyð í land- inu og stjórnin í Pyongyang hefur farið fram á alþjóðlega aðstoð. Eigínkona Kims Jong-ils sögð flúin Moskvu. Reuter. Endurminningar fyrrverandi blaðafulltrúa Jeltsíns Rússlandsforseta Valdasjúkur og ekki lýðræðissinni VJATSJESLAV Kostíkov, fyrrum blaðafulltrúi Borís Jeltsíns, segir Rússlandsforseta valdasjúkan mann sem beri enga virðingu fyrir lýðræð- inu. Kostíkov er 55 ára og herma blaðafregnir í Rússlandi að innan tíðar muni endurminningar hans koma út. Þær nefnast „Forsetinn kvaddur" og greinir höfundurinn þar m.a. frá störfum sínum innan Kremlarmúra en í þijú ár var hann í hópi talsmanna Jeltsíns. Höfund- urinn fer hörðum orðum um Alex- ander Korzhakov, hershöfðingja og yfirmann lífvarðasveita Rússlands- forseta, sem almennt er talið að sé með valdamestu mönnum í Rúss- landi nú um stundir. Kostíkov sagði í sjónvarpsviðtali að Jeltsín væri ekki og hefði aldrei verið lýðræðissinni. Hann væri þvert á móti maður sem sæktist eftir völd- um og bæri virðingu fyrir þeim. „Hann er maður sem þekkir hið óskoraða vald og hefur unun af að beita því. Valdið er hugmyndafræði hans og besti vinur. Gyðja valdsins er eiginkonan, ástkonan og viðfang allrar ástríðu hans,“ sagði Kostíkov í viðtalinu sem tekið var á skrif- stofu hans, hvar myndir hanga af honum og Jeltsín, sem teknar voru við margvísleg tækifæri er Kostíkov var í þjónustuliði forsetans. Blaðafulltrúinn fyrrverandi, sem oftlega fór hörðum orðum um and- stæðinga Jeltsíns áður fyrr og líkti þeim gjarnan við skordýr eða úr- gangsefni af ýmsum toga, sagði að afturhaldsöfl og umbótasinnar tækj- ust á um hylli Jeitsíns. Nú væri á hinn bóginn Ijóst að harðlínumenn væru í mikilli sókn líkt og aukin völd Korzhakovs væru til marks um. Undirsátar Jeltsíns gerðu hvað þeir gætu til að skjalla forsetann og sannfæra hann um eigið mikilvægi. „Það er skeifilegt þegar tiltekinn maður öðlast sannfæringu fyrir því að hann sé mikilmenni og gjörsam- lega ómissandi." Það er vitanlega afar mikil hætta á ferðum þegar reynt er að breyta forsetanum í ein- vald liðinna tíma,“ bætti Kostíkov við. Líklegt þykir að fjendur Jeltsíns hugsi sér gott til glóðarinnar og að bókinni verði óspart beitt gegn hon- um í baráttunni fyrir forsetakosn- ingamar. Sífellt fleiri hallast að því að Jeltsín, sem er 65 ára, sækist eftir endurkjöri en Rússar ganga að kjörborðinu í júnímánuði. Þegar Kostíkov sagði af sér sem blaðafulltrúi Rússlandsforseta í nóv- ember 1994 var hann skipaður sendi- herra í Páfagarði. Óstaðfestar fréttir herma að hann hafí nú afsalað sér sendiherratigninni og höfðu rúss- neskir ijölmiðlar eftir starfsmönnum utanríkisráðuneytisins að „fram- ganga hans [sæmdi ekki] fulltrúa rússneskra stjómvalda erlendis." Mótmæla kosningum í Bangladesh SHEIKH Hasina, leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokksins i Bangladesh, sést hér aka um í rickshaw eða reiðhjólavagni í höf- uðborginni Dhaka í gær. Flokkur Hasina, Awami-bandalagið, hvatti til tveggja sólarhringa allsherjar- verkfalls til að mótmæla fyrirhug- uðum kosningum á morgun, fimmtudag. Rickshaw verður þá eina samgöngutækið sem leyft verður að nota. 16 manns hafa fallið og mörg hundruð særst í átökum vegna kosninganna að undanförnu. Stjórnarandstaðan hyggst hunsa kosningarnar þar sem þær geti ekki farið heiðarlega fram meðan Begum Khaleda Zia forsætisráðherra sé við völd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.