Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillögur um að leggja niður og sameina norrænar samstarfsstofnanir
Starfsemi haldið áfram
með verkefnastyrkjum
SAMSTARFSRÁÐHERRAR
Norðurlanda ákváðu á fundi í
Helsinki í gær að starfsemi allra
þeirra norrænu stofnana, sem
rætt hefur verið um að leggja
niður, verði haldið áfram þótt það
verði hugsanlega í öðru formi, til
dæmis með verkefnastyrkjum.
Tillögum sérfræðingahóps, sem
lagði til að nítján stofnanir yrðu
lagðar niður, hefur verið breytt
talsvert.
Ráðherrafundurinn ákvað að
aðalmarkmiðið væri að gera þá
starfsemi, sem stofnanirnar hefðu
með höndum, skilvirkari. Væri
stofnunarformið ekki það bezta
til að ná því markmiði, mætti
leggja niður vissar stofnanir en
veita styrki til annarra aðila á
viðkomandi sviði norræns sam-
starfs.
Framkvæmdastjóri norrænu
ráðherranefndarinnar, Pár
Stenbáck, hefur lagt fram nýjar
tillögur, byggðar á skýrslu sér-
fræðinganefndar, sem lagði til að
nítján norrænar samstarfsstofn-
anir yrðu lagðar niður þar sem
þær uppfylltu ekki kröfurnar um
„norræn not“, þ.e. að starfsemin
þjónaði ekki núverandi markmið-
um Norðurlandasamstarfsins.
Færri stofnanir lagðar niður
Tillögur Stenbácks voru ræddar
í fyrsta sinn á ráðherrafundinum
í gær. Þær gera ráð fyrir að í stað
þess að nítján stofnanir verði lagð-
ar niður verði sumar stofnanir
sameinaðar, umboð annarra styrkt
og þremur nýjum stofnunum kom-
ið á fót, að hluta til í stað eldri
stofnana, sem lagðar verða niður.
í þeim tilfellum sem stofnanir eru
lagðar niður á að tryggja með
verkefnastyrkjum að norrænu
samstarfi á viðkomandi sviði verði
haldið áfram. Í fréttatilkynningu
frá ráðherranefndinni kemur með-
al annars fram að engri stórri
stofnun á sviði menningarmála
verði lokað.
Blaðamannamiðstöðin
endurskipulögð frá grunni
í stað tveggja stofnana, sem
sérfræðinganefndin lagði til að
yrðu lagðar niður, leggur fram-
kvæmdastjórinn til að hluti starf-
semi þeirra haldi áfram innan
tveggja nýrra stofnana, sem bera
vinnuheitin „Norræna mál- og
menningarstofnunin" og „Nor-
ræna samtímalistastofnunin“. Þá
er lagt til að tvær stofnanir í
Stokkhólmi verði sameinaðar í
eina, undir vinnuheitinu „Nord-
Reg“.
Lagt er til að þijár stofnanir
verði endurskipulagðar frá grunni,
þar á meðal Norræna blaðamanna-
miðstöðin í Árósum. í einu tilfelli
er lagt til að stofnun verði samein-
uð lýðháskóla (Norræna alþýðu-
kveðskaparstofnunin í Turku). Sex
stofnanir verði hins vegar lagðar
alfarið niður og starfseminni hald-
ið áfram í formi samstarfsverk-
efna með norrænum styrk.
Reuter
Björk í
Beijing
BJÖRK Guðmundsdóttir hélt
tónleika með hljómsveit sinni i
tólf þúsund manna íþróttasal í
Beijing í gærdag að íslenskum
tíma. Frá Beijing hélt hún siðan
til Hong Kong og heldur tvenna
tónleika þar á fimmtudags- og
föstudagskvöld.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Aðeins 50 af 900 hús-
bréfalánum til 40 ára
AF um 900 afgreiddum og lofuðum
húsbréfalánum það sem af er þessu
ári eru aðeins fimmtíu til 40 ára
og níu til 15 ára, en 841 eru hús-
bréf til 25 ára. Þessar upplýsingar
fengust hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins í gær, en í ársbyijun var
heimilað samkvæmt lögum, sem
Alþingi samþykkti, að hafa Iáns-
tíma húsbréfalána mismunandi í
stað eins og sama lánstíma til 25
ára sem verið hafði áður.
Reglum um greiðslumat hefur
hins vegar ekki verið breytt. Það
miðast áfram við að lán séu greidd
niður á 25 árum og gerir það að
verkum að sá hópur sem gæti tek-
ið lán stækkar ekki frá því sem
var fyrir breytinguna. 17% minni
greiðslubyrði húsbréfalána til 40
ára en af láni til 25 ára nýtist því
einungis þeim sem uppfyllir það
Greiðslumat
vegna húsbréfa-
láns miðast ein-
ungis við 25 ára
greiðslutíma
skilyrði greiðslumats að geta stað-
ið undir greiðslubyrði af láni til
25 ára.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, segir að varfærni ráði því
að svona sé að málum staðið og
menn hafi einnig haft áhyggjur
af því að útstreymi úr húsbréfa-
kerfinu myndi aukast þegar sá
hópur stækkaði sem hefði mögu-
leika á lántöku. Því hefði greiðslu'-
matið ekki verið hreyft í þetta
skipti, en um það gilti reglugerð.
Þess vegna nægði að breyta
ákvæðum hennar ef því væri að
skipta og hann útilokaði ekkert í
þeim efnum þegar reynsla væri
komin af því hver viðbrögðin við
lengri lánstíma yrðu.
Fyrst og fremst til
nýbygginga
Grétar Guðmundsson, þjónustu-
stjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins,
sagði að þau húsbréfalán sem tek-
in hefðu verið til fjörutíu ára væru
fyrst og fremst tekin vegna ný-
bygginga. Væntanlega hefði þar
áhrif að seljendur notaðra eigna
væru ekki tilbúnir til þess að taka
á sig meiri afföll vegna íengri láns-
tíma 40 ára húsbréfa en væru á
25 ára bréfum.
Arneyjin
tók niðri
Neskaupstað. Morgunblaðið
LOÐNU SKIPIÐ Arney KE
rakst á sker, er það var að
koma með loðnufarm til lönd-
unar á Vopnafirði á mánudag.
Gat kom á stefni skipsins og
er það nú komið í slipp á Nes-
kaupstað, þar sem myndin var
tekin í gær.
Samningar á milli Reykjavíkurborgar og SÍM á lokastigi
Myndlistarmenn fái rými
á Korpúlfsstöðum
Borgarráð
Ekki var
fjallað um
Hafnarhúsið
TILLAGA starfshóps um nýtingu
Hafnarhússins var ekki lögð fram í
borgarráði í gær, eins og til stóð.
Í tillögu starfshópsins er gert ráð
fyrir að um 3.500 fermetra húsnæði
í Hafnarhúsinu verði keypt af
Hafnarsjóði fyrir 110 milljónir króna
og fengið Listasafni Reykjavíkur til
umráða.
Hugmyndin er að Errósafnið, gjöf
Errós til Reykjavíkurborgar, fái var-
anlegt aðsetur í Hafnarhúsinu, þar
sem einnig yrðu sýningarsalir, lista-
verkageymslur, skrifstofa Lista-
safnsins og byggingarlistasafn.
SAMNINGAR á milli Reykjavíkurborgar og
Sambands íslenskra myndlistarmanna um út-
leigu á húsnæði á Korpúlfsstöðum eru nú á
lokastigi. Rætt er um að leigja myndlistar-
mönnum um 680 fermetra húsnæði sem yrði
skipt í 10 vinnustofur, að sögn Sólveigar Eg-
gertsdóttur formanns SIM.
Ekki er búið að ganga endanlega frá samn-
ingum, en í viðræðum hefur meðal annars
verið gert ráð fyrir að Reykjavíkurborg sjái
um að leggja hita, vatn og rafmagn í hús-
næðið og stúka það niður í átta 50 fermetra
vinnustofur og tvær sem yrðu stærri í sniðum.
Búbót fyrir myndlistarmenn
„SÍM er mjög ánægt með að borgin skuli
koma til móts við myndlistarmenn í sambandi
við vinnustofur, en þessi hugmynd hefur verið
rædd lengi án þess að komast til fram-
kvæmda. Það er mikil búbót fyrir myndlistar-
menn að fá húsnæði á þessu verði sem er
undir því sem tíðkast á almennum markaði,"
segir Sólveig.
Rætt er um að leigja
680 fermetra húsnæði
sem yrði skipt í tíu
vinnustofur
Gert er ráð fyrir að SÍM endurgreiði kostn-
að við endumýjun húsnæðis á 16 mánuðum
með leigugjaldi, um 150 krónum á fermetra,
eða rúmum 1,6 milljónum á öllu tímabiiinu.
Eftir það myndu myndlistarmenn greiða um
50 krónur á fermetra, eða 34 þúsund krónur
á mánuði fyrir rýmið, fyrir utan rafmagn og
hita, sem jafngildir 3-4 þúsund krónum fyrir
góða vinnustofu.
Þörfin talsverð
„Þetta er þær hugmyndir sem eru til um-
ræðu, með fyrirvara um að samningurinn er
ekki frágenginn. Við gerum ráð fyrir að hægt
verði að he§a framkvæmdir fljótlega, þannig
að með mikilli bjartsýni gæti þetta verið komið
í gagnið um miðjan apríl,“ segir Sólveig.
I SIM eru 360 félagar. Sambandið gekkst
í fyrra fyrir könnun meðal myndlistarmanna
á þörf fólks fyrir vinnustofur, sem um 60
manns tók þátt í. Af þeim töldu 40 sig þurfa
á vinnustofu að halda, þar sem sú sem þeir
höfðu væri í heimahusi, leleg eða ótrygg.
„Þarna skapast vinnuaðstaða fyrir um 10
manns og er um langtímasamninga að ræða,
eða sex ára til að byija með sem er mjög
hagstætt þar sem venjan er sú að fólk sé að
hrekjast úr einum stað í annan, auk þess sem
leigan er sanngjörn. Staðsetningin hefur að
vísu bæði kosti og galla, en þeir vega hvorir
aðra upp,“ segir hún.
Hún segir að við úthlutun verði m.a. farið
eftir þvf hversu mikið og alvarlega umsækjend-
ur vinna að myndlist, sinni til að tryggja há-
marks nýtingu, auk þess sem höfð verði hlið-
sjón af athafnasemi á því sviði og hugsanleg-
um verkefnum.