Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 11
FRÉTTIR
„Loggjof se
byggð á
kristnu siðferði.“
^ Sigurður Sigmundssn
KALT BORÐ A ÞORRA
Fyrirlestur um friðargæslu-
störf NATO í Bosníu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun hóps forystu-
manna ýmissa kristinna safnaða og
samtaka:
„VEGNA umræðu um málefni sam-
kynhneigðra undanfarið og frum-
varps þar að lútandi vilja undirritað-
ir, forsvarsmenn kristinna safnaða
og samtaka, álykta um afstöðu sína
til samkynhneigðs lífernis. Málefnið
er ekki einkamál þeirra sem það
varðar heldur snertir það uppbygg-
ingu þjóðfélagsins, gildi og stöðu
íjölskyldunnar, menningu o.fl.
Kristin trú hefur Biblíuna að
grundvelli og það siðferði sem þar
er boðað er ofar menningu, tísku-
straumum og skoðunum fólks á
hverjum tíma. Guð er almáttugur
skapari himins og jarðar, eins og
segir í hinni postullegu trúaijátn-
ingu. Hann skapaði karl og konu í
sinni mynd til að þau skyldu lifa
saman og verða eitt hold. Þetta er
það hjónaband sem Guð stofnaði í
upphafi. Hjónaband tveggja karla
eða tveggja kvenna er því ósam-
ræmanlegt kristinni trú hvort sem
vígslan fer fram í kirkju eða á borg-
aralegan hátt. Um samkynhneigt
líferni segir Ritningin meðal ann-
ars: „Bæði hafa konur breytt eðli-
legum mökum í óeðlileg, og eins
hafa líka karlar hætt eðlilegum
mökum við konur og brunnið í losta
hver til annars..." (Róm. 1.26-27).
Mörkin milli þess sem er eðlilegt
og óeðlilegt eru hér skýr.
Kristnum mönnum ber að elska
og virða alla menn, samkynhneigða
sem og aðra, en geta þó ekki lagt
blessun sína yfir kynhegðun þeirra.
Þekkt er frásögnin úr Jóhannesar-
guðspjalli 8. kafla um það þegar
farísear vildu grýta konu sem stað-
in var að hórdómi. Jesús kom þar
að og bauð þeim sem syndlaus
væri að kasta fyrsta steininum. Það
gat enginn og þeir hurfu á braut
en Jesús sagði konunni að fara og
syndga ekki framar. Hann kom í
veg fyrir að farísearnir grýttu ber-
syndugu konuna en hann lagði ekki
blessun sína yfir líferni hennar,
heldur sagði henni að láta af því.
í þessari frásögu kemur fram hug-
arfar miskunnseminnar en einnig
skýr ábending um breytt líferni.
Samkynhneigðir eiga að hafa
sömu mannréttindi og aðrir ein-
staklingar í þjóðfélaginu. Að meina
þeim að giftast og ættleiða börn
er ekki brot á mannréttindum. Lög-
gjöf þjóðfélagsins setur mönnum
siðferðilegan ramma sem ætlað er
að standa vörð um heilbrigt og
gott mannlíf. Fjölkvæni er til að
mynda ekki viðurkennt á íslandi
en telst þó ekki mannréttindabrot.
Algengt er að tveir vinir eða ætt-
ingjar kjósi að halda heimili saman
og njóta þeir þá allra mannréttinda
sem aðrir einstaklingar í þjóðfélag-
inu njóta. Hið sama gildir um sam-
kynhneigða sem búa saman. Hjóna-
bandslöggjöfin nær hins vegar ekki
yfir slík sambýlisform. Samkvæmt
kristinni trú nær hjónabandið að-
eins til þess er einn maður og ein
kona gera með sér hjúskaparsátt-
mála. Sú eining er hornsteinn þjóð-
félagsins sem hafa ber í heiðri.
Kristnir menn geta ekki sætt sig
við að börnum verði kennt að sam-
kynhneigð sé rétt eins eðlileg og
gagnkynhneigð og þau jafnvel hvött
til að láta á það reyna hver kyn-
hneigð þeirra sé. Slíkt getur valdið
varanlegum ruglingi og skaða hjá
ómótuðum börnum og unglingum
þar sem kynhvötin er að vakna.
Við ættleiðingu er velferð barna
höfð að leiðarljósi. Þar af leiðir að
ýmsum er synjað um ættleiðingu
vegna þess að lífsmynstur eða heim-
ilishagir uppfylla ekki þær kröfur
sem gerðar eru til væntanlegra for-
eldra. Með þessu er verið að standa
vörð um réttindi barnanna en ekki
að bijóta mannréttindi á þeim sem
vilja ættleiða börn.
Ekki hefur verið hægt að sanna
að líkamlegar ástæður séu fyrir
samkynhneigð. Orsákanna ber
fremur að leita í umhverfi og upp-
eldi. Jesús boðar mönnum lausn
undan hvers konar fjötrum og mörg
dæmi eru um að fólk hafi með
Guðs hjálp losnað undan því oki sem
samkynhneigð vissulega er.
Kristin trú er grundvöllur þess
siðferðis sem ríkjandi hefur verið á
íslandi og vonandi verður svo um
ókomna framtíð. Meðan svo er mun
samkynhneigt líferni teljast óeðli-
legt og hjúskapur tveggja einstakl-
inga af sama kyni ekki hljóta opin-
bera viðurkenningu. Af sömu
ástæðum geta kristnir menn ekki
sætt sig við að börnum verði kennt
að samkynhneigð sé rétt eins eðlileg
og gagnkynhneigð.
Ef yfiryöld setja í lög rétt sam-
kynhneigðra til.að giftast og ætt-
leiða börn og viðurkenna þannig
samkynhneigt líferni sem eðlilegt,
verður það ekki til heilla fyrir þjóð-
ina. Hins vegar er það til blessunar
fyrir þjóðfélag okkar að löggjöf sé
byggð á kristnu siðferði.
Virðingarfyllst,
Hafliði Kristinsson, forstöðu-
maður Hvítasunnukirkjunnar
í Reykjavík, Samúel Ingi-
marsson, forstöðumaður Veg-
arins, kristins samfélags, Eric
Guðmundsson, forstöðumað-
ur Aðventista SD, Knut Gamst
deildarsljóri, Hjálpræðis-
hernum, Friðrik Ó. Schram,
formaður samtakanna Ungs
fólks með hlutverk, Ásmund-
ur Magnússon, forstöðumað-
ur Orðs lífsins, Gunnar Þor-
steinsson, forstöðumaður
Krossins, séra Magnús
Björnsson, framkvæmdasljóri
Kristilegs félags heilbrigðis-
stétta, séra Halldór Gröndal,
sóknarprestur."
JAMIE P. Shea, talsmaður NATO
og aðstoðaryfirmaður fjölmiðla-
deildar samtakanna, heldur
fimmtudaginn 15. febrúar erindi á
sameiginlegum liádegisverðar-
fundi Samtaka um vestræna sam-
vinnu (SVS) og Varðbergs í Skála,
Hótel Sögu. Fundurinn hefst kl.
12 og lýkur klæ. 13.30.
Heiti erindsins er Friðargæsla
NATO í Bosníu. Shea verður hér
í fylgd með Javier Solana, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, sem kemur gagngert til
íslands til viðræðna við ríkisstjórn
íslands.
Jamie P. Shea mun fjalla um
stöðu NATO í friðargæslustörfum
i Bosníu sem eru í sviðsljósi heims-
fréttanna um þessar mundir. Shea
er nýkominn frá þessum átaka-
svæðum og er mjög vel að sér í
málefnum þessa heimshluta.
Jamie P. Shea, sem er breskur,
hefur verið starfsmaður banda-
lagsins frá árinu 1980 og gegnt
fjölda trúnaðarstarfa fyrir NATO
m.a. á upplýsinga- og fjölmiðla-
sviðinu. Frá árinu 1988 hefur hann
unnið náið með framkvæmdastjóra
NATO og m.a. verið ræðuritari,
talsmaður, blaðafulltrúi og ráðgjafi
á sviði pólitískra- og hernaðarlegra
málefna svo dæmi séu tekin.
Hann hefur á undanförnum
árum verið gestafyrirlesari við
fjölda háskóla í Evrópu um örygg-
is- og varnarmál og önnur mikil-
væg málefni NATO. Shea er eftirs-
óttur fyrirlesari á alþjóðlegum ráð-
stefnum um öryggis- og utanríkis-
mál víða um heim. Þá er hann
afkastamikill greina- og bókahöf-
undur en hann skrifar mest um
öryggis- og vamarmál. Shea lauk
BA-prófi frá Sussex University
árið 1977 og doktorsprófi frá Ox-
ford University 1981. Hann talar
fimm evrópsk tungumál. Shea er
giftur og á tvö börn.
Síðustu dagar útsölunnar
Allir skór á kr. 1.495
eða minna
oppskórinn
Veltusundi viö Ingólfstorg sími 552 1212
Útsölumarkaður Austurstræti sími 5522727
#índesít
...vönduð á góðu
verði frá Indesit!
#índesft iw sóo
• Vinduhraði 800 sn/mín.
• 14 þvottakerfi
• Stiglaus hitastillir
• Orkunotkun 2,3 kwst
• Hæð: 85 cm
• Breidd: 60 cm
• Dýpt: 60 cm
Umboðsmenn um land allt
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kt. Borgfiröinga,
Borgarnesi.Blómsturvellir, Hetlissandi.Guöni Hallgrímsson,
Grundarfiröi. Vestflrölr: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi.
Rafverk,Bolungarvík.Straumur, ísafiröi.
Noröurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö,
Sauðárkróki. KEA -byggingavörur Lónsbakka Akureyri. KEA.Dalvík.
Kf. Þingeyinga, Húsavík.
Austurland: Sveinn GuÖmundsson, Egilsstööum.
Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga,
Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rángæinga, Hvolsvelli.
Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Vestmannaeyjum.ReykJanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg,
Grindavík. £
BRÆÐURNIR |
=)] ŒtMSSONHF t
Lágmúla 8, Sími 553 8820 I