Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 17
Jaruzelski
sleppur
við ákæru
PÓLSK þingnefnd mælti í gær
með því að ekki yrði borin fram
ákæra á
hendur
Wojciech
Jaruzelski,
fyrrver-
andi hers-
höfðingja.
Hann lét
setja her-
lög í land-
inu 1981 i
von um að geta kveðið verka-
lýðshreyfinguna Samstöðu í
kútinn. Margir gamlir Sam-
stöðuleiðtogar vildu að Jaruz-
elski yrði dreginn fyrir sér-
stakan ríkisrétt en hann segir
herlögin hafa verið nauðsynleg
til að hindra sovéska innrás.
Þungaðar fá
kauphækkun
DÓMSTÓLL Evrópusam-
bandsins úrskurðaði í gær að
vinnuveitendur yrðu að greiða
konum, sem notfært hefðu sér
rétt til barnsburðarleyfis,
sömu kauphækkanir og aðrir
starfsmenn hefðu fengið með-
an á leyfinu stóð. Hópur írskra
kvenna fór með málið fyrir
dómstólinn.
Arangursrík-
ar tilraunir
HELSTI vopnasérfræðingur
Frakklands, Jacques Bouc-
hard, sagði í gær að kjarn-
orkusprengingar Frakka á
Kyrrahafi hefðu borið góðan
árangur og veitt mikilvægar
upplýsingar. Vegna tilraun-
anna myndu Frakkar halda
varnarmætti sínum næstu tvo
áratugina án fleiri sprenginga.
Réttarhöld-
um frestað
RÉTTARHÖLDUM yfir 46
liðsmönnum fyrrverandi
stjómar marxista í Eþíópíu var
frestað í gær um tvo mánuði
vegna þess að fulltrúar ákæru-
valdsins voru ekki búnir að
ljúka undirbúningi sínum.
Marxistarnir voru við völd frá
1974 til 1991 og eru m.a. sak-
aðir um þjóðarmorð.
Plúton var
frá Rússlandi
í NÝJU bréfi frá rússneskum
stjórnvöldum er þýska leyni-
þjónustan, BND, hreinsuð af
ásökunum um að hafa sett á
svið smygl á geislavirku plú-
tóni frá Rússlandi 1994, að
sögn fulltrúa þýskra stjórn-
valda á mánudag. Þjóðveijar
fundu plútonið í flugvél er lenti
í Munchen.
Mælir með
Stankevicius
ALGIRDAS Brazauskas, for-
seti Litháens, mælti á mánu-
dag með því að starfandi for-
sætisráðherra, Mindaugas
Stankevicius, myndaði næstu
ríkisstjórn. Stankevicius tók
nýlega við af Adolfas Slezevic-
ius sem varð að víkja vegna
meints fjármálamisferlis.
ERLEIMT
Kjörfundur repúblikanaflokksins í Iowa
BOB Dole fagnar sigri í gær. Stjórnmálaskýrandi í Washington sagði Dole vera „haltrandi forystu-
sauð“, sigurinn væri svo naumur að hann sýndi hve veik staða Dole væri. Þetta er í þriðja sinn
sem hann reynir að verða forsetaframbjóðandi repúblikana.
Sigrir Dole naumur
o g lítt sannfærandi
Des Moines í lowa. Reuter.
LEIÐTOGI meirihlutans í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, Bob Dole,
varð efstur á kjörfundi repúblikana
í Iowa á mánudag með 26% en á
hæla honum kom Pat Buchanan er
hlaut 23%. Sigur Dole, sem hefur
lengi verið langefstur meðal
væntanlegra frambjóðenda repú-
blikana, þykir ekki sannfærandi og
er ljóst að vinni hann ekki með yfir-
burðum í prófkjörinu í New Hamps-
hire á þriðjudag á hann erfiða bar-
áttu fyrir höndum. Bill Clinton for-
seti vann fyrirhafnarlausan sigur á
kjörfundi demókrata, hann var einn
í framboði.
Fréttaskýrendur segja að niður-
staðan á kjörfundi repúblikana hafi
fyrst og fremst haft þau áhrif að
styrkja Clinton í sessi. Hann hlaut
atkvæði allra þeirra 50.000 demó-
krata sem mættu á kjörstaði. Fram-
bjóðendur repúblikana virðast eiga
harðan slag fyrir höndum í prófkjör-
um næstu vikurnar og ekki víst að
sigurvegarinn komi óskaddaður úr
þeim leik.
Dole þykir ekki hafa tekist vel upp
síðustu mánuðina, hann er 72 ára
gamall og andstæðingar hans segja
að tími hans sé liðinn. Hann hafi
hvorki nægilegan eldmóð til að beij-
ast til sigurs og sé auk þess allt of
rótfastur í valdakerfinu í Washington
London. Thc Daily Telegraph.
HALASTJARNA, sem uppgötv-
aðist nýlega, mun fara framhjá
jörðu seint í næsta mánuði. Búist
er við, að hún sjáist vel á nætur-
himninum og einkum ef fólk kem-
ur sér burt úr ljósaflóðinu í bæjum
og borgum.
Það var japanskur áhugamaður
um stjarnfræði, Yuji Hyakutake,
sem kom auga á halastjörnuna en
hún á að verða sýnileg berum
augum í annarri viku mars. Birtist
hún þá eins og móðukennd stjarna
í Vogarmerkinu. Verður hún næst
jörðu í 26 miljjón mílna fjarlægð
26. mars.
Þótt Hyakutake-halastjarnan
fari með gífurlegum hraða mun
hún virðast kyrrstæð á hiinninum
en unnt verður að gi-eina hreyf-
ingu frá einum klukkutíma til ann-
til að geta höfðað til kjósenda sem
séu í uppreisnarhug gegn kerfinu og
hefðbundnum stjórnmálaleiðtogum.
Skortur á framtíðarsýn
„Repúblikanar vilja ekki stefnu
gærdagsins. Flokkurinn vill framtíð-
arsýn. Og með allri virðingu fyrir
vini mír.um Bob Dole þá býður hann
ekki slíka framtíðarsýn," sagði' Pat
Buchanan í sjónvarpsviðtali í gær
og bætti við að Dole gæti aðeins
boðið kjósendum eitt; hann væri ekki
Bill Clinton.
Buchanan er fyrrverandi ráðgjafi
forsetanna Richards Nixons og Ron-
alds Reagans en hefur síðustu árin
vakið athygli sem fréttaskýrandi og
spyrill í sjónvarpsþáttum. Fylgi Buc-
hanans í Iowa reyndist mun meira
en spáð hafði verið. Hann hefur sótt
hart að Dole að undanförnu í skoð-
anakönnunum og leggur mikla
áherslu á siðferðisgildi og kristindóm
í málflutningi sínum. Einnig er hann
andvígur frelsi í alþjóðaviðskiptum.
Aköf hægristefna hans í mörgum
efnum er talin útiloka að hann verði
forsetaframbjóðandi flokksins en
hann getur velgt helstu keppinautum
undir uggum og haft mikil, óbein
áhrif á prófkjörsbaráttuna.
Stjórnmálaskýrendur segja að
þriðjungur repúblikana í Iowa setji
ars. Þegar best sést til hennar
verður hún næstum jafnbjört og
björtustu stjörnurnar.
Halastjörnur eru úr ís, gasteg-
undum og ryki, sem þyrlast af
kjarnanum og getur halinn verið
margra milljón km langur. Þær
verða fyrst sýnilegar þegar þær
nálgast sólu en þær eru taldar
eiga upptök sín í Oort-þokunni, í
6.000 milljarða mílna fjarlægð frá
sólinni.
CFullmarkD
• Prentborðar í flestar gerðir prentara.
• ISO 9002 gæðaframleiðsla.
• Urvals verð.
J. ÓSTVflLDSSON HF.
Skipholti 33, 105 Reykjovik, sími 552 3580.
trúmál á oddinn og geti þetta skýrt
fylgi Buchanans. Of snemmt sé að
fullyrða mikið um. stöðu frambjóð-
enda fyrr en nokkur prófkjör hafa
farið fram í öðrum ríkjum; oft hafi
kjörfundurinn í Iowa reynst léleg
vísbending.
Alexander bætir stöðuna
Um 100.000 repúblikanar greiddu
atkvæði í Iowa, mun færri en búist
hafði verið við. Þriðji varð Lamar
Alexander, fyrrverandi ríkisstjóri í
Tennesse, með 18% og var að vonum
ánægður með árangurinn en honum
hefur gengið illa að vekja athygli á
sér. Alexander er talinn hófsamur
og fullyrti hann að kjósendur hefðu
með stuðningi við sig m.a. sýnt and-
úð sína á öfgafullum aðferðum og
árásum sem aðrir frambjóðendur
hefðu notað.
Niðurstaðan var áfall fyrir
auðkýfinginn Steve Forbes sem
eyddi miklu fé í kosningabaráttuna
en uppskar aðeins 10% og öldunga-
deildarþingmanninn Phil Gramm frá
Texas er fékk 9%. Forbes hefur
komið vel út í könnunum síðustu
vikurnar og bar sig vel í gær þrátt
fyrir niðurstöðuna. Hann álítur til-
lögur sínar um flatan tekjuskatt
geta tryggt sér meiri stuðning í New
Hamsphire.
/' : : STANDIX
Álinnréttingar
Hönnum og smíðum eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
Halastjarna
á himni í mars
Nýr lítill GSM
á kynningarverði
Audiovox GSM - 650
263 g með rafhlöðunni
sem fylgir símanum •
Rafhlaða endist í 70 mín.
samtal eða 18 klst. bið •
Tekur stórt kort
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800
Þjónustumiöstöö í Kirkjustræti, sími 550 6670
l Söludeild Kringlunni, sími 550 6690
\ Póst- og símstöðvum um land allt