Morgunblaðið - 14.02.1996, Qupperneq 25
24 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 25
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LIFTÆKNIKEMST
Á SKRIÐ
ISLENZKUR líftækniiðnaður hefur slitið barnsskónum og
nú í ár er vonast til þess, að líftæknifyrirtækið Genís hf.
skili hagnaði í fyrsta sinn. Það var stofnað fyrir sjð árum af
Háskóla íslands, Iðntæknistofnun, tveimur lyfjafyrirtækjum
og íslenzka Járnblendifélaginu til að koma á markað vörum,
sem framleiddar eru í framhaldi af umfangsmiklum rannsókn-
um á hitakærum örveirum. Genís hefur lokið þróun á fyrstu
fullnaðarafurð sinni, sem er ensím, sem hefur einstaka eigin-
leika til erfðarannsókna.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að umræður hóf-
ust hér á landi fyrir rúmum áratug um þá miklu möguleika,
sem líftæknin geti fært íslendingum í útflutningi á afurðum
hátækniiðnaðar. Milljarðatekjur fyrir þjóðarbúið sáust í hill-
ingum, en í ljós hefur komið að mjög kostnaðarsamar og tíma-
frekar rannsóknir færustu vísindamanna þarf áður en slíkt
getur orðið að veruleika.
Að baki fyrstu fullnaðarafurð Genís er margra ára þrot-
laust rannsóknarstarf og hefur það verið kostað af innlendum
og norrænum styrkjum, svo og fé frá hluthöfum. Ensímið,
sem Genís hefur þróað, er alger nýjung og verður notað við
raðgreiningu á genum við erfðarannsóknir. Verður sótt um
alþjóðlegt einkaleyfi á uppfinningunni. Verðmæti framleiðsl-
unnar er mikið og með henni hefur verið brotið blað í starf-
semi Genís, sem fram að þessu hefur einkum selt þekkingu
og tekið að sér sérverkefni fyrir erlenda aðila.
í Efna- og líftæknihúsinu að Keldnaholti fara fram allviða-
miklar líftæknirannsóknir á vegum Iðntæknistofnunar, stofn-
erfðarannsóknir á fiskum á vegum Hafrannsóknarstofnunar
og svo starfa þar fyritækin Genís og íslenzk fjallagrös hf.,
sem selur heilsuvörur. Jakob Kristjánsson, forstöðumaður líf-
tæknideildar Iðntæknistofnunar og brautryðjandi á sviði líf-
tæknirannsókna hér, segir, að á ýmsu hafi gengið fyrstu tíu
árin. Framundan séu bjartari tímar, þegar litið sé til þekking-
argrunns, sem byggður hafi verið upp í landinu. „Ég yrði
ekki hissa,“ segir Jakob, „þótt að fimm árum liðnum verði
líftækniiðnaðurinn farinn að velta minnsta kosti hálfum millj-
arði á ári.“
Full ástæða er til að halda áfram þróun þessarar nýju at-
vinnugreinar af fullum krafti, þótt bið kunni að verða á tilætl-
uð.um árangri.
MENNTUN OG GÆÐI
SKÝRSLA eftirlitsmanns breska skólakerfisins kom út í
síðustu viku. Þar kemur m.a. fram að 40% breskra gagn-
fræðaskóla uppfylla ekki þær kröfur, sem nemendur eiga
heimtingu á. Kennsla í fimmtu hverri kennslustund í breska
skólakerfinu er slök. Þekkingu nemenda í reikningi og staf-
setningu er sérstaklega ábótavant.
Þessi könnun, sem byggir á fjögur þúsund eftirlitsferðum
í breska skóla, kemur nokkrum dögum á eftir hroðalegri út-
komu í samræmdum prófum í Bretlandi. Helmingur ellefu ára
nemenda stóðst fekki þær kröfur sem gerðar voru.
Verst er ástandið hjá nemendum á aldrinum sjö til ellefu
ára en staðan er einnig slæm hjá ellefu til fjórtán ára nemend-
um og sú skýring gefin að bestu kennararnir séu látnir sjá
um aðra aldurshópa.
Kennsluaðferðir eru sagðar ekki nægilega góðar í helmingi
barnaskóla og um þriðjungi gagnfræðaskóla.
Gæðaeftirlitsmenn kenna ekki síst „tískuaðferðum“ við
kennslu um hversu slæmt ástandið sé í raun. Kennarar og
samtök þeirra benda aftur á móti á að það sé einföldun að
kenna kennurum fyrst og fremst um ástandið. Margir aðrir
þættir komi til.
Þessar upplýsingar eru sláandi. Þrátt fyrir það hefur breska
menntakerfið þokkalega gott orð á sér í Evrópu.
Þetta vekur jafnframt upp spurningar hvernig ástandið sé
í öðrum löndum, þar á meðal íslandi. Er ekki ástæða til að
fylgjast með gæðum kennslu og menntunar með reglubundn-
um hætti líkt og byrjað er að gera í Bretlandi? Er ekki ástæða
til að efna til opinberra umræðna á grundvelli slíkra upplýs-
inga um hver hafi verið og hver eigi að vera þróun íslenska
menntakerfisins?
Kannanir hér á landi hafa bent til að ýmsu sé ábótavant,
til að mynda varðandi lestrarkunnáttu barna. Ein skýring
kann að vera sú að „tískuaðferðir" við kennslu hafi ekki reynst
jafn vel og hefðbundnari aðferðir. Önnur er eflaust sú að
kennarastarfið er ekki jafn eftirsóknarvert og vel metið og
það var fyrir nokkrum áratugum.
Grunnskólamenntun er mikilvægasta veganestið sem ung-
menni fá á ferð sinni inn í lífið. Sé því veganesti ábótavant
hefur það alvarlegar afleiðingar í för með sér, ekki einungis
fyrir einstaklinga heldur þjóðfélagið í heild.
+
Umræðan í Þýskalandi í kjölfar flugslyssins í Puerto Plata
r .— 1 r
Flugmálastj óri segir Birgenair-vélina hafa komið hingað á flugnúmeri TAESA
Reglur hertar svo vélar
komi ekki í leyfisleysi
ÞORGEIR Pálsson, flug-
málastjóri, segir að það
hljóti að vera meginverk-
efni íslenskra yfirvalda að
koma í veg fyrir að það endurtaki
sig að hingað komi flugvélar án til-
skilinna leyfa. Hann segir fáar regl-
ur að styðjast við um slík mótmæli,
enda sé sem betur fer afar sjald-
gæft að ekki sé sótt um leyfi fyrir
leiguflug.
Flugmálastjóri segir að á þingi
Alþjóða flugmálastofnunarinnar síð-
astliðið haust hafi verið samþykkt
að stofnunin beitti sér af alefli fyrir
auknu öryggi í flugi. „Stofnuninni
var komið á laggirnar árið 1944 og
hún hefur gefið út ákveðna öryggis-
staðla og tilmæli. Þegar ríki gerist
aðili að stofnuninni undirritar það
sáttmála og skuldbindur sig til að
fylgja þessum reglum. Eiginlegt eft-
irlit af hálfu Alþjóða flugmálastofn-
unarinnar með að þau sinni því er
ekki sterkt, en ríki eiga að tilgreina
öll frávik frá stöðlum og að hvaða
leyti þau geti ekki uppfyllt kröfurn-
ar. Meginreglan innan þessa sam-
starfs, sem flest ríki heims taka
þátt í, er gagnkvæmni, þ.e. eitt ríki
á að geta treyst því.að annað fari
að settum reglum.“
Upplýsingar víða að fá
Aðspurður hvernig íslensk flug-
málayfirvöld færu að því að fá stað-
fest að félag uppfylli kröfur og að
veita ætti því leyfi til að fljúga hing-
að til lands, ef ekkert heildareftirlit
er með flugrekstri, segir Þorgeir að
upplýsingar sé víða að fá. „Við höf-
um samband við loftferðayfirvöld
viðkomandi landa, en einnig við
samstarfsaðila innan Evrópusam-
taka loftferðaeftirlita og skrifstofu
þess sambands, og eigum einnig
gott samstarf við bandarísku flug-
málastofnunina. Við getum því víða
fengið greið svör við spurningum.“
Þorgeir er inntur eftir því hvort
ekki séu ákveðnar reglur um hvar
eigi að leita upplýsinga og hvaða
upplýsingar teljist fullgildar, eða
hvort slíkt eftirlit byggist á góðu
sambandi við ákveðnar stofnanir.
„Við erum fullgildir aðilar að Evr-
ópusamtökum loftferðaeftirlita og
eigum samstarf við loftferðaeftirlit
í öðrum heimshlutum. Þessir aðilar
eru auðvitað til þess bærir að svara
þessu og það gerist eftir opinberum
leiðum. Þetta er ekki spurning um
einhvern kunningsskap, heldur
skipulögð og traust samtök. Ég get
íslensk yfírvöld taka ákvörðun um það síðar
í vikunni til hvaða aðgerða verður grípið vegna
þess að mexíkóska flugfélagið TAESA lét
undir höfuð leggjast að sækja um leyfi fyrir
flug vélar tyrkneska félagsins Birgenair hing-
að til lands. Ekki hefur fengist staðfest að
Birgenair hafí haft heimild til að fljúga til
Þýskalands, en þangað fór vélin í sömu ferð.
nefnt því til stuðnings, að evrópsku
samtökin, sem heita JAA, Joint
Aviation Authorities, starfa að sjálf-
sögðu innan þess ramma, sem Al-
þjóða fiugmálastofnunin setur, en ,
útfærir reglurnar nánar og setur
staðla, meðal annars með tilliti til
landsfræðilegra atriða, sem öll að-
ildarríki JAA gangast undir. Inn-
tökuskilyrði JAA eru mjög ströng
og við erum mjög ánægðir með að
ísland skuli hafa fengið aðild. Tyrk-
ir eru ekki innan JAA.ý
„Svartur listi“
Bandaríkjamanna
Bandaríkjamenn hafa undanfarin
tvö ár tekið saman lista yfir ríki,
sem þeir telja að standi sig mjög
illa eða slaklega í eftirliti með flugi.
Þeir skipta ríkjum í þrjá flokka og
í þeim fyrsta eru ríki þar sem eftir-
lit með flugi telst mikið og gott, í
öðrum flokki eru ríki þar sem ýmis-
legt er aðfinnsluvert og í þeim þriðja
eru ríki sem Bandaríkjamenn telja
alls ekki uppfylla kröfur um flug-
öryggi. Bandarísk yfirvöld hafa
meinað öllum flugvélum frá síðast-
nefndu ríkjunum að fljúga til Banda-
ríkjanna. I þessum þriðja flokki eru
ýmis ríki Suður- og Mið-Ameríku
og Afríku. Eitt þessara ríkja er
Dóminíska lýðveldið, en önnur eru
t.d. Belize, Gambía, Gana, Haíti,
Hondúras, Níkaragúa, Paragvæ,
Urúgvæ og Zaire.
Eitt þeirra ríkja sem Bandaríkja-
menn telja til 2. flokks, er Tyrk-
land. Það þýðir að Bandaríkjamenn
eru ósáttir við frammistöðu Tyrkja
í flugöryggismálum, en telja þó ekki
svo miklu ábótavant, að ástæða sé
til að banna flug tyrkneskra véla
til landsins.
Þorgeir staðfestir að Tyrkland sé
á lista Bandaríkjamanna. „Það hef-
ur ekkert annað ríki, mér vitanlega,
ákveðið opinberlega að beita svona
lista, enda er þessi herferð Banda-
ríkjamanna mjög umdeild og sumir
telja þá ganga of langt. Hins vegar
hafa menn listann til hliðsjónar.
Bandaríkjamenn líta til loftferða-
yfirvalda í viðkomandi ríki og ef þau
uppfylla ekki kröfur þeirra fær eng-
in vél frá því ríki að fljúga til Banda-
ríkjanna. Ef menn taka sig á falia
þeir hins vegar af listanum."
Hvert ríki ber ábyrgð
á vélum skráðum þar
Boeing 757-þota tyrkneska flug-
félagsins Birgenair, sem fórst fyrir
viku, var í Puerto Plata í Dóminíska
lýðveldinu, þ.e. þar var þotan oftast
og fór þaðan til hinna ýmsu leigu-
verkefna, s.s. í Mexíkóflug með ís-
lendinga fyrir TAESA. Þorgeir seg-
ir að hvert ríki eigi að hafa eftirlit
með þeim flugvélum, sem þar eru
skráðar, hvar sem þær eru niður
komnar í heiminum. „Til saman-
burðar get ég nefnt, að íslensk flug-
málayfirvöld hafa eftirlit með þotum
Atlanta, sem eru um allan heim.
Flugvélar hlíta ákveðnu eftirlits-
kerfi og Loftferðaeftirlitinu berast
staðfestar upplýsingar um hvernig
því eftirliti hafi verið háttað og
getur gripið inn í ef þörf er talin
á. Ekkert kerfi er hnökralaust, en
með þessu móti höfum við þó yfir-
sýn yfir ástand mála.“
íslendingar skipta við
traust félög
í gær hafði Þorgeir ekki hand-
bæran lista yfir þau leiguflugfélög
sem tekið hefðu að sér að fljúga
fyrir íslenska aðila, þ.e. Flugleiðir
og ferðaskrifstofur, en sagði að aldr-
ei hefði komið upp sú staða, að
ekki væri sótt um leyfi fyrir leigu-
flugfélag og hann kannaðist ekki
við að íslensk fyrirtæki hefðu nokk-
urn tímann samið um slíkt flug við
aðila, sem flugmálayfirvöld teldu á
einhvern hátt varasama. „Undanf-
arið hafa TAESA og Canada 3000
flogið hingað og TAESA í raun all-
ar götur frá 1994. Það er stórt fé-
lag, með öll sín gögn í lagi og við
höfum ekki haft ástæðu til að ætla
að mexíkósk flugmálayfirvöld
sinntu ekki sínu hlutverki sem
skyldi."
Þorgeir segir að í Evrópu sé
munur á leiguflugfélögum og áætl-
unarflugfélögum sáralítill, því sömu
öryggiskröfur séu gerðar til allra
flugfélaga_ og það eigi við hér á
landi. Það sé þó ekki að ástæðu-
lausu sem alþjóðleg flugmálayfir-
völd hafi hvatt til aukins eftirlits,
þó íslendingar standi vel að vígi.
Hér þurfi þó enn að auka eftirlit,
þvi það hafi komið á óvart að hing-
að hafi komið tyrknesk flugvél, í
’stað mexíkóskrar. Sú tyrkneska
hafi verið undir flugnúmeri þeirrar
mexíkósku, svo yfirvöld hér hafi
ekki átt möguleika á að sjá hið rétta
fyrr en vélin lenti og ekki séu sér-
stakir eftirlitsmenn á flugvöllum til
að fylgjast með slíku. „Við verðum
að gera einhveijar ráðstafanir til
að fylgjast með því að vélarnar séu
frá þeim félögum, sem við teljum
þær vera frá og að þær fái ekki
afgreiðslu hér nema þær hafi sótt
um tilskilin leyfi. Að vísu er ekki
fljótséð hvernig því verður best
háttað, en þetta eftirlit þarf að
herða.“
Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri,
segir að því fari fjarri að öll kurl
séu komin til grafar vegna komu
Birgenair-vélarinnar hingað til
lands. „Við höldum áfram að safna
að okkur öllum upplýsingum um
málið, ekki síst að því er varðar
tyrkneska flugfélagið. Við höfum
farið fram á að fá staðfestingu á
því að það hafi haft heimild til flugs
í Þýskalandi, en svar hefur ekki
borist frá Þjóðveijum. Þegar við
höfum þessar upplýsingar í höndum
munum við, í samráði við sam-
gönguráðuneytið, taka ákvörðun um
til hvaða ráðstafana verður gripið.
Það verður hins vegar ekki látið
átölulaust að hingað komi erlendar
vélar í leyfisleysi.“
W W
o
RYGGI í leiguflugi hefur
verið eitt helsta umfjöll-
unarefni þýskra fjölmiðla
eftir að 189 létust er
Boeing 757 þota tyrkneska flugfé-
lagsins Birgenair fórst skömmu eft-
ir flugtak frá Puerto Plata í Dóm-
inikanska lýðveldinu. Neytendur
gera kröfur um sífellt lægri fargjöld
en bent hefur verið á að þegar kom-
ið er niður fyrir ákveðið mark hljóta
lágu fargjöldin að verða á kostnað
ekki bara gæða og þæginda heldur
einnig öryggis:
Gífurleg aukning hefur orðið á
leiguflugi frá Þýskalandi til fjar-
lægra á sólarstranda. Á fimm ára
tímabili hefur fjöldi farþega nær
tvöfaldast. Staðir sem áður var það
langt að fljúga til að ferðir þangað
voru einungis á færi fárra, s.s.
Flórida og eyjur í Karíbahafi, eru
nú vinsælir ferðamannastaðir sem
hægt er að komast til fyrir tiltölu-
lega lágt verð.
Til fjarlægra landa fyrir
fjallahjólsverð
Ferðaskrifstofur bjóða pakka-
verðir á oft ótrúlega lágu verði og
neytendur velta því sjaldan fyrir sér
hvað felist á bak við hið lága verð.
„Þegar peningarnir eru af skornum
skammti spara menn þar sem síst
er tekið eftir því nefni-
lega á flugörygginu,"
segir Klaus Neufeldt hjá
þýsku flugmálastjórninni
í samtali við tímaritið Der
Spiegel. Talsmaður
þýsku flugmannasam-
takanna Cockpit bendir á
að nú geti fólk ferðast
til fjarlægra landa fyrir
sama verð og fjallahjól
myndi kosta.
Flugmenn hafa löng-
um varað við slæmu
ástandi ekki síst í leigu-
flugi og fyrir nökkrum
vikum vöruðu Cockpit-
samtökin við því að í loft-
inu fyrir ofan Þýskaland
væri allt að fyllast af
„fljúgandi ruslafötum".
Fjölmargar þotur, sem
skráðar eru í Afríkuríkj-
um, Mið-Ameríku eða
fyrrum Sovétlýðveldum,
uppfylla alls ekki þær
gæðakröfur sem gerðar eru á Vest-
urlöndum.
Viðhaldi á vélunum er ábótavant,
tæknilega séð eru þær á köflum
úreltar og flugmannasamtökin
segja að jafnframt sé starfsfólk
sumra flugfélaga illa þjálfað.
Vandamálið sé ekki síst að enginn
viti í raun í hvaða tæknilega ástandi
vélar sumra flugfélaga séu. Þá sé
hvíldartími áhafna í mörgum tilvik-
um alls ekki virtur og oft séu flug-
menn látnir fljúga þar til þeir detta
nánast út af vegna þreytu.
Að mati Spiegel liggur sökin ekki
einungis hjá flugfélögum heldur
einnig stjórnvöldum, sem ekki hafa
gripið í taumana. Nefnir tímaritið
sem dæmi að bifreiðum sem ekki
uppfylla öryggiskröfur sé vísað frá
við landamæri Þýskalands en á stór-
um flugvöllum á borð
við Frankfurt lendi
flugvélar með slitin
og nær ónýt lending-
arhjól og dæmi séu
um að leiðslur hafi
verið límdar saman með bráða-
birgðaviðgerð. Oft eigi flugmenn,
ekki síst frá fyrrum Austantjalds-
ríkjum, í stökustu vandræðum með
að gera sig skiljanlega á ensku í
samræðum við flugturninn.
Vilja strangari reglur
Samgönguráðherra Þýskalands
telur nú tímabært að teknar verði
upp strangari reglur í þessum efn-
um í Evrópu og í samtali við Bild
leggur hann til að útbúinn verði
evrópskur „svartur listi“ yfir flugfé-
lög sem ekki uppfylla skilyrði varð-
andi flugvélar, viðhald og starfsfólk.
Yrði þeim flugfélögum meinað að
fljúga um í evrópskri lofthelgi. Þetta
mm
Oryg’g'ið
mætir
afg’angi
Neytendur vilja stöðugt ódýrari ferðir til
ijarlægra landa. Þegar verðið er komið niður
úr öllu valdi er hins vegar hætta á að
slakað sé á öryggiskröfum.
NEYTENDUR vilja stöðugt ódýrari ferðir til fjarlægra staða.
„Flugmannasam-
tök lengi verið
áhyggjufull“
er í samræmi við þær kröfur sem
flugmenn og samtök þeirra hafa
haldið á lofti um langt skeið.
Aðgerðir af þessu tagi hafa verið
til umræðu hjá evrópskum flug-
málayfirvöldum.
Mun strangari reglur eru í gildi
í Bandaríkjunum og hefur banda-
ríska flugmálastjórnin, FAA, gert
könnun á flugöryggi í þijátíu ríkj-
um. Níu ríki stóðust ekki hinar
ströngu kröfur stofnunarinnar:
Belize, Dóminikanska lýðveldið,
Gambía, Ghana, Honduras, Nic-
aragua, Paraguay, Urugay og Za-
ire. Engin vél sem skráð er í ein-
hveiju þessara ríkja má fljúga til
áfangastaða í Bandaríkjunum.
Búast má við að þessi listi eigi
eftir að lengjast því FAA mun á
þessu ári kanna flugöryggi í tuttugu
ríkjum til viðbótar.
Bandarísku sér-
fræðingarnir hafa
ekki enn kannað stöðu
mála í Tyrklandi þó
hafa þegar verið gerð-
ar athugasemdir við ástandið þar
að sögn alþjóða flugmannasamtak-
anna IFALPA. Þegar bandarískt
flugfélag hugðist kaupa vélar frá
Tyrklandi var farið yfir viðhalds-
skýrslur þeirra hjá FAA, að sögn
starfsmanns IFALPA. Voru þeir
mjög óánægðir með stöðu viðhalds-
mála í Tyrklandi.
Gagnrýni
flugmannasamtaka
Jafnt Cockpit og IFALPA hafa
gagnrýnt mikið álag á tyrkneskum
flugmönnum. Bent hefur verið á að
flugfélagið Turkish Airlines hafi á
skömmu tímabili fjölgað vélum sín-
um úr 28 í 68 án þess að flugmönn-
um hafi verið fjölgað að ráði. Tyrk-
neskir flugmenn hafa komið þeim
upplýsingum áleiðis til IFALPÁ að
af 600 flugmönnum hafi líklega
átta fengið hjartaáfall af völdum
of mikils álags. Nokkrir þeirra á
meðan á flugi stóð.
IFALPA mun hafa upplýsingar
undir höndum um að dæmi séu um
tyrkneskar áhafnir sem á innan við
þremur sólarhringjum hafi verið allt
að 40 klukkusttindir í loftinu. Sam-
tökin kvörtuðu yfir þessu til Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar
(ILO) en án árangurs.
Flugmannasamtökin IFALPA og
Cockpit segjast hins vegar ekki
hafa neinar upplýsingar sérstaklega
um flugfélagið Birgenair. Eigandi
flugfélagsins Cetin Birgen segir að
þotan sem fórst hafi verið í full-
komnu ástandi tækni- -----------
lega og að viðhald
hafi verið framkvæmd
samkvæmt forskrift
Boeing í Abu Dhabi.
Þá hafi þýska leigu-
flugfélagið LTU séð um viðhald í
Þýskalandi. LTU segist hins vegar
einungis hafa framkvæmt tilfallandi
viðgerðir. Einnig hefur verið gagn-
rýnt að vélin hafi staðið lengi á flug-
vellinum í Puerto Plata án þess að
henni hafi verið flogið en sérfræð-
ingar segja að vél sem ekki hafi
verið flogið í margar vikur sé vart
flughæf án sérstakrar skoðunar.
Leiguflug varasamast
Spiegel segir tölfræðina benda til
þess að leiguflug sé mun áhættu-
samara en áætlunarflug. Af 57 flug-
vélum er fórust í flugslysum á síð-
asta ári voru einungis níu í áætl-
unarflugi. Enginn þessara níu til-
heyrði evrópsku flugfélagi og ein-
ungis ein, vél American Airlines er
flaug á fjall í Kólumbíu, hafði flug-
leyfí í Bandaríkjunum.
Það eru ekki síst Austantjaldsvél-
ar sem virðast oftast lenda í slysum.
Nokkur dæmi frá síðast ári: Tupolev
TU 134B-vél frá Aserbaidschan
Airways hafði einungis verið á lofti
í tvær mínútur er annar hreyfillinn
datt út. Flugmennirnir slökktu fyrir
mistök á röngum hreyfli og 54 lét-
ust er vélin hrapaði til jarðar. Önn-
ur Tupolev TU 154B-vél frá Cha-
barowsk Air hvarf skyndilega af
ratsjá er hún var í 9.500 metra hæð
og fannst ellefu dögum síðar. 97
létust í því flugslysi. Þá flaug An-
tonov Án-24 vél frá Mongolian
Airways á fjall í aðflugi og kostaði
það 42 menn lífið.
Flogið undir
öðru nafni
Það flækir allt eftirlit með flugfé-
lögum að oft fljúga vélar undir nafni
annars flugfélags. Sú var til dæmis
raunin með Birgenair-vélina er fórst
við Puerto Plata. í raun hafði flugfé-
lagið ekkert flugleyfi á milli Dómin-
ikanska lýðveldisins og Þýskalands.
Boeing 757-vélin var hins -vegar
leigð félaginu Carribbean Airlines,
sem er skráð í Barbados, veturinn
1993- 1994 og veturinn
1994- 1995. Þegar leyfi
þess félags rann út tók
Birgenair upp samstarf
við þýska félagið Ratio-
flug og flaug Boeing 767-
vél Birgenair á milli
Þýskalands og Karíba-
hafs frá 29. maí_ í fyrra
til 27. október. Á föstu-
dagsmorgnum lenti hún
sem Ratioflug-vél í Ham-
borg og flaug undir
merkjum Birgenair til
Tyrklands sama kvöld.
Þýska samgönguráðu-
neytið hafði gefið út sex
mánaða bráðabirgðaleyfi
vegna þessa samstarfs en
þegar það rann út var
tekið upp samstarf við
Alas Nacionales í Dómin-
ikanska lýðveldinu, sem í
raun var flugfélag án
flugvéla fyrir samstarfið
við Birgenair. Alas Naci-
onales hafði fram til ársins 1993
stundað vöruflug með DC-8-vél.
Uppi eru vangaveltur um að Alas
Nacionales hafi í raun einungis ver-
ið pósthólfsfyrirtæki sem Birgenair
endurvakti til að fá flugleyfi milli
Karíbahafs og Þýskalands.
Svipað er uppi á teningnum varð-
andi j dóminíkanska flugfélagið
Dominicana. Mexíkanska fyrirtækið
Taesa keypti hlut í því til að geta
flogið milli Dóminikanska lýðveldis-
ins og Þýskalands.
Enn skrautlegri aðferðir notaði
félagið Far East Airlines Maldives
til að komast inn á þýska markað-
inn. Það fékk ekki lendingarleyfi í
Þýskalandi og tók því upp samstarf
um að skiptast á flugnúmerum við
búlgarska félagið Balkan Air. Búlg-
ararnir fljúga því vikulega Airbus
A-320-vél frá Frank-
furt til Male.
Einnig geta menn
án þess að vita það
___________ fyrirfram orðið far-
þegar í vél frá fyrir-
tækjum á borð við Skyjet í Belgíu,
sem eiga gamlar vélar og sérhæfa
sig í því að fylla upp í skarðið ef
vél dettur út af einhveijum ástæð-
um.
Ferðaskrifstofurnar veija þetta
með því að viðskiptavinir þeirra
krefjist stöðugt ódýrari ferða og
þær sé ekki hægt að fá hjá hefð-
bundnu flugfélögunum. Franz
Shcoiber, forstjóri Condor-leigu-
flugfélagsins, sem er í eigu Luft-
hansa, bendir á í viðtali við Spiegel
að ýmis kostnaður sé fastur hjá öll-
um flugfélögum. Flugfélög skráð
utan Þýskalands geti helst sparað
í mannahaldi og með því að draga
úr öryggiskröfum.
„Níu ríki eru
á bandarískum
bannlista"
i