Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 38

Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 38
38 • MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Sólarpönnukökur o g flengingarbollur Um þessar mundir sést sólin á Seyðisfirði eftir langt hlé, segir Kristín Gestsdóttir, Seyðfirðingar ættu því að geta sameinað sólarpönnukökur og bolluát að þessu sinni. AÐ MORGNI kyndilmessu 2. febrúar heyrði ég í útvarpinu að sólarkaffi væri drukkið á Seyðis- firði þann dag, ég sem Seyðfirð- ingur kom alveg af fjöllum, þetta er bara alls ekki rétt. Síðar í veð- urfregnum sjónvarpsins kl. 8.30 áréttaði veðurfræðingurinn: „í dag, á kyndilmessu, er sólarkaffi drukkið á Seyðisfirði, og þar hef- ur verið bjart veður í dag og áreið- anlega sést til sólar.“ Þetta áreið- anlega er bara ekki rétt. Sólin er hvergi sýnileg fyrr en um 2 vikum síðar. Seyðisfjörður er langur og sólarleysi skammdegis- ins er þar langt. Vissulega nær sólin ekki niður til allrar byggðar- innar á sama tíma. Ég bjó í Múla og þar sást sólin fyrst 14. febr- úar. A mínu æskuheimili var þann dag drukkið sólarkaffi, en innar í bænum, þar sem aðalbyggðin er fer sólin að sýna sig frá 15.-20. febrúar. En hvað sem því líður, brottfluttir Seyðfirðingar drekka sólarkaffi og gera sér glaðan dag 17. febrúar nk. Þar verður boðið upp á ijómapönnukökur og hver veit nema hægt verði að fá fleng- ingarbollur eins og þær voru kall- aðar á Seyðisfirði hér áður fyrr. Pönnukökur ___________2egg___________ 1 msk. sykur ’/s tsk. salt ’Atsk. vanilludropar 2 msk. matarolía 4 dl hveiti 'Atsk. sódaduft eða ’Atsk. lyftiduft 8-9 dl nýmjólk eða léttmjólk 1. Setjið egg, sykur og salt í skál og þeytið vel saman. Setjið matarol- íu og vanilludropa út í og hrærið saman. 2. Setjið fyrst um 2 dl af mjólk út í, þá 1 dl af hveiti og síðan koll af kolli þar til allt er komið út í. 3. Gott er að láta deigið standa í V2-I klst. áðuren það erbakað. 4. Bakað á pönnukökupönnu, aðferðina þekkja líklega allir íslend- ingar. Flengingarbollur ___________2 egg__________ '/2 dl sykur ’A tsk. salt ’Atsk. kardimommudropar lOOgmjúktsmjörlíki 1 '/2 msk. þurrger 3 dl fingurvolgt vatn úr krananum, alls ekki heitara. 1. Setjið egg, sykur og salt í skál og þeytið vel. 2. Setjið kardimommudropa út í ásamt mjúku smjörlíki og hrærið saman. 3. Setjið hveiti, þurrger og volgt vatn út í og hrærið saman. Leggið stykki yfir skálina og látið þetta lyfta sér á eldhúsborðinu í 1-2 klst., jafnvel lengur. 4. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu, setjið deigið á plötuna með skeið, hafið bil á milli, bollurn- ar stækka mikið. Leggið stykkið aftur yfir bollurnar og látið lyfta sér í 20-30 mínútur. 5. Hitið bakaraofninn í 210° C, blástursofn í 200° C, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 15 minútur. Kælið bollurnar örlítið, kljúfið og fyllið með sultu og rjóma eða búð- ingi. Setja má súkkulaði eða kakó- hræru ofan á bollurnar. Súkkulaðið: Hitið bakaraofn í 70° C, setjið súkkulaðiplötuna á eld- fastan disk eða fat og bræðið í ofnin- um. Smyijið bollumar að ofan með súkkulaðinu. Kakóhræra 3 dl flórsykur 1 msk. kakó örlítil eggjahvíta eða vatn. Hrærið saman og smyijið ofan á bollumar. Athugið: Setja má rúsínur og súkkat saman við deigið og borða bollumar með smjöri. IDAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is SKAK Umsjón Margeir Pétursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp á opnu móti í þýsfta bænum Schwábisch Gmund í jan- úar í viðureign tveggja stórmeistara. Valentin Arbakov (2.455), Rúss- landi, var með hvítt og átti leik, en Viktor Kupreitsc- hik (2.485), Hvíta-Rúss- landi, var með svart. 30. Bxh6! - Bxal (Eða 30. — Bxh6 31. Hh4, en eini varnarmögu- leikinn var 30. — Bf6) 31. Dxal - Rf6 32. Bxf8 - Hxf8 33. Hxe6 (Vinnur, því 33. — Dxe6 er auð- vitað svarað með hjónagafflinum 34. Rg5+) 33. - Kg8 34. Dbl - Dxe6 35. Dxg6+ - Kg8 36. Dh6+ - Kg8 37. Rg5 - Dd5 38. Rh5 - Hf7 39. Dg6+ — Kh8 40. Rf4 og svartur gafst upp. Skákþing Kópavogs 1996 hefst annað kvöld í félagsheimili TK Hamra- borg 5 og er öllum heimil þátttaka. Málleysa MAÐUR, sem annt er um tungumálið, hringdi til Velvakanda og hafði þetta að segja: Mér finnst það fyrir neðan allar hell- ur að Háskóli íslands skuli standa fyrir slagorð- inu: „Happaþrennan get- ur skaffað þér drossíu." Ekki er málvönduninni fyrir að fara. Ur tapaðist GYLLT og krómað kven- úr með lítilli skelplötu- skífu tapaðist á Astró föstudagskvöldið 9. febr- úar sl. Finnandi vinsam- lega hringi í Birnu í síma 553 5618. Fundarlaun. Gleraugu töpuðust GLERAUGU töpuðust á göngustígnum sem liggur frá Fossvogi og vestur í bæ, meðfram Ægissíðu, sl. sunnudag. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 552 6068 eftir kl. 17. Ur fannst FYRIR u.þ.b. þrem vik- um fannst úr með svartri 61 við Búnaðarbankann við Hlemm. Eigandinn má hringja í síma 581 4370. Kápa tekin í misgripum KÁPA var tekin í mis- gripum á Gauk á Stöng aðfaranótt laugardags- ins 10. febrúar sl. Kápan er stuttur, svartur gervi- pels og voru hanskar í vösunum. Uppl. í síma 562 3557. Armband tapaðist GULLARMBAND (keðja) tapaðist fimmtu- daginn 8. febrúar sl., trú- lega í Blesugróf eða Týs- götu, Lokastíg eða ná- grenni. Finnandi er vin- samlega beðinn að hafa samband við Siggu í síma 552 9445. Gæludýr Gregory er týndur STÓR og bústinn köttur af persnesku kyni hvarf frá heimili sínu í Álf- heimum 35 sl. fimmtu- dag. Gregory er grá- svartur og vegur ein 7-8 kíló. Hann var ómerktur en hægt er að þekkja hann á því að önnur framtönnin er brotin. Geti einhver gefið upp- lýsingar um hann er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 553 5353. Hlutavelta ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til styrktar krabbameinssjúkuin börnum og varð ágóðinn 2.900 krónur. Þær heita Rósa Björk Bergþórsdóttir og Erika Aikins. ÞESSIR duglegu strákar héldu hlutaveltu nýlega til styrktar Rauða kross íslands og varð ágóðinn 868 krónur. Þeir heita Sigurbjörn, Jón Þór, Heiðar Atli og Halldór. Með morgunkaffinu HVAÐ eru innlánsvextir háir núna? Ást er... að týna hjartanu. TM Ftag. U S. Pat. Ott — ■« rtgtits rosorvod (c) 1005 Los Angotes Timos Syndlcato Víkverii skrifar... JÓN Viðar Jónsson, leiklistar- gagnrýnandi Dagsljóss Sjón- varpsins, ritar í fyrradag kjallara- grein í DV, þar sem hann segir m.a.: „Frá því að ég tók að mér fyrir röskum tveimur árum að gagnrýna leiklist í Dagsljósi Sjón- varpsins hef ég lagt áherslu á að aðalleikhús Akureyrar sæti þar við sama borð og atvinnuleikhús höfuð- borgarinnar og Sjónvarpið sendi mig á allar helstu frumsýningar þess. Auðvitað hefur þetta haft í för með sér nokkurn aukakostnað fyrir fjölmiðilinn, en sá kostnaður hefur aldrei verið talinn eftir af ráðamönnum Sjónvarpsins, sem er nú einu sinni eign okkar allra, hvar sem við búum á landinu. Sjónvarpið hefur því ekki haft sama hátt á og morgunblað allra landsmanna sem árum saman taldi fullboðlegt að láta prest einn úr nágrannabyggð annast þennan starfa." VIÐ þessi orð gagnrýnandans er hægt að gera ýmsar at- hugasemdir. Leiklistargagnrýnend- ur Morgunblaðsins sem gagnrýna atvinnuleikhúsin skiptast á um að fara norður til Akureyrar, til þess að fjalla um frumsýningar LA. Það hafa þeir gert yfirstandandi leikár. Morgunblaðið sendir gagnrýnendur sína norður sama dag og aðalæfing fer fram, svo þeir hafi a.m.k. séð tvær sýningar, þegar þeir skrifa um verkið eftir frumsýningu. Morgun- blaðið lítur ekki á útlagðan kostnað vegna þessa sem „nokkurn auka- kostnað" eins og gagnrýnandinn orðar það, heldur sjálfsögð útgjöld til þess að halda uppi eðlilegri þjón- ustu við lesendur sína. Gagnrýnand- inn hnýtir einnig í það, að árum saman hafi Morgunblaðið talið „fullboðlegt að láta prest einn úr nágrannabyggð annast þennan starfa“. Þetta er misskilningur. Morgunblaðið réði skáld og rithöf- und til þessara starfa fyrir norðan og telur sig hafa haft sóma af störf- um séra Bolla Gústafssonar, sem sinnti þessu starfi af kostgæfni en án illdeilna. X X X STAÐHÆFING gagnrýnandans um að listamenn LA þroskist örugglega ekki af „velviljuðum" skrifum eins og þeim sem lengi birtust í Morgunblaðinu", dæmir sig sjálf, en Víkverji hallast þó að þvi að ómálefnalegt skítkast og rakalaus niðurrifsskrif gagnrýn- anda séu alls ekki til þess fallin að „þroska listamennina,“ enda hélt Víkverji að það væri ekki í verkahring leiklistargagnrýnanda að taka að sér að sjá um listrænan þroska leikara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.