Morgunblaðið - 21.02.1996, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rættum
bílatrygg-
ingar
SENDINEFND erlends trygg-
ingafélags á vegum NHK
tryggingamiðlunarinnar kemur
til landsins í lok vikunnar til
viðræðna við forsvarsmenn Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er líklegt að
tryggingafélagið stofni sér-
stakt fyrirtæki hérlendis ef
samningar nást. NHK bauð
lægst í útboði FÍB á ökutækja-
tryggingum félagsmanna
sinna. Tilboð NHK fyrir hönd
umbjóðenda sinna var allt að
30% undir meðaliðgjöldum í
ökutækjatryggingum hérlend-
is.
Erlenda tryggingafélagið
mun gera kröfu um ákveðinn
Ijölda tryggingataka. í tengsl-
um við útboðið gerði FÍB átak
í söfnun nýrra félaga sem nú
eru um 18 þúsund talsins.
Auk NHK gerði Skandia ís-
land hf. tilboð í ökutækjatrygg-
ingar FÍB.
Amfetamín
o g hass fund-
ust í geymslu
Fíkniefnalögreglan fann 51
gramm af amfetamíni og 200
grömm af hassi í geymsluhús-
næði í miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt sl. föstudags.
Maður sem hafði húsnæðið
til umráða var handtekinn. Á
föstudagskvöld úrskurðaði
Héraðsdómur Reykjavíkur
manninn í gæsluvarðhald til 27.
febrúar. Hann hefur áður kom-
ið við sögu fíkniefnamála.
Fíkniefnadeild lögreglunnar
rannsakar málið.
Góður dagur
í skákinni
ÍSLENSKU skákmönnunum
gekk vel á alþjóðlega skákmót-
inu í Dunkerque í Frakklandi í
gær.
Andri Áss Grétarsson, Helgi
Áss Grétarsson og Sigurður
Daði Sigfússon unnu sínar
skákir en þeir Hannes Hlífar
Stefánsson og Þröstur Þór-
hallsson gerðu jafntefli.
Staðan er sú eftir 5 umferð-
ir að Sigurður Daði er með 2'h
vinning en hinir fjórir eru með
3 vinninga. Sjötta umferð verð-
ur tefld í dag.
95 ára reglan afnumin í frumvarpi um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
Lífeyrir hlutfail af meðal-
launum en ekki lokalaunum
LÍFEYRISRÉTTUR starfsmanna
ríkisins mun reiknast sem hlutfall
af meðallaunum í stað hlutfalls af
lokalaunum, verði frumvarp fjár-
málaráðherra um Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins að lögum. Þá
er gert ráð fyrir að sjóðsfélagar og
launagreiðendur greiði iðgjöld til
sjóðsins alla starfsævi sjóðsfélag-
anna.
Niðurfelling iðgjaldagreiðslu og
takmörkun réttindaávinnings eftir
32 ára greiðslutíma, eða þegar 95
ára reglu er náð, verður því afnum-
in. Réttur til töku lífeyris verður
alfarið miðaður við 65 ára aldur.
Fj ármálaráðherra lagði í gær
fyrir ríkisstjórn tvö frumvörp sem
snerta starfsmenn ríkisins. Annars
vegar er það frumvarp til laga um
réttindi og skyldur starfsmanna rík-
isins, sem skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu, og hins vegar um
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Auk þess, sem lagt er til að líf-
eyrisgreiðslur miðist við meðallaun
sjóðsfélaga, er gert ráð fyrir að
eftir að taka lífeyris hefst breytist
hann í samræmi við breytingar á
vísitölu neysluverðs, í stað breyt-
inga á lauhum eftirmanns, eins og
nú er.
Auknar greiðslur
og meiri réttindi
Með afnámi 95 ára reglunnar,
þ.e. þegar lífaldur og iðgjalda-
greiðslutími er samtals 95 ár, auk-
ast iðgjaldagreiðslur vegna þeirra,
sem náð hafa þessum greiðslutíma
til sjóðsins, en á móti kemur að
réttindaávinningur verður meiri en
áður á þessum árum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
réttur til töku lífeyris verði alfarið
miðaður við 65 ára aldur. Nú er
það almenna reglan, en að auki
heimilar 95 ára reglan mönnum
töku lífeyris fyrr, þó ekki fyrr en
við 60 ára aldur. Þrátt fyrir að
miðað verði við 65 ára aldur hér
eftir, er mönnum heimilt að flýta
eða seinka töku lífeyris um allt að
5 ár. Fyrir hvert ár, sem sjóðsfélagi
seinkar töku lífeyris eftir 65 ára
aldur hækkar áunninn ellilífeyris-
réttur um 6%, eða um 0,5% fyrir
hvern mánuð. Lífeyririnn skerðist
að sama skapi um 6% fyrir hvert
ár sem töku hans er flýtt.
Í athugasemdum með frumvarp-
inu kemur fram, að miðað við nú-
gildandi lög megi almennt gera ráð
fyrir að lífeyrisréttindi þeirra, sem
munu kjósa að hætta störfum eftir
65 ára aldur aukist, en skerðist hjá
þeim sem að myndu vilja nýta sér
heimild til að hætta störfum og
hefja töku lífeyris fyrir þann aldur.
Iðgjald launa-
greiðanda hækkað
Þar sem þau réttindi, sem sjóðs-
félagar fá samkvæmt ákvæðum
frumvarpsins, verða áfram meiri en
svo að sjóðurinn standi undir þeim
með 10% iðgjaldi, er lagt til að ið-
gjöld verði hækkuð. Iðgjald sjóðsfé-
laga verði áfram 5%, en iðgjald
launagreiðanda verði hækkað úr
6% og við það miðað, að sjóðurinn
eigi jafnan fyrir skuldbindingum.
Frumvarpið leggur til að trygginga-
sérfræðingi verði falið að reikna
út þessa iðgjaldaþörf.
Gert er ráð fyrir að kennarar
eigi áfram aðild að sjóðnum, eftir
að starf grunnskólans flyst til sveit-
arfélaga og lagt er til að Kennara-
sambandið fái einn fulltrúa í stjórn
sjóðsins. BSRB fengi þá einn full-
trúa í stað tveggja nú.
FRÁ slysstað á Hellisheiði í gær. Björgunarmenn vinna við að ná bílsijóranum úr bílnum.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Þrennt slasaðist
er flutning'abíll
ók á lítinn jeppa
Selfossi. Morgfunblaðið.
Samkeppnisráð vekur athygli á ákvæðum búvörulaga
Gegn samkeppnislögum
ÞRENNT slasaðist í hörðum
árekstri á Hellisheiði, skammt ofan
við Kamba um hálfþrjúleytið í
gær. Stór flutningabíll á leið aust-
ur ók aftan á lítinn Daihatsu-jeppa
og kastaði honum út fyrir veg.
Tveir fullorðnir voru í jeppanum,
eldri maður og dóttir hans, og
þriggja ára stúlka, dóttir konunn-
ar. Þau voru öll flutt á Sjúkrahús
Reykjavíkur. Maðurinn sat fastur
í bílnum í klukkutíma, en nota
þurfti klippur til að ná honum út.
Þoka var á Hellisheiði og rigning
þegar slysið átti sér stað og
skyggni var takmarkað. Að sögn
lögreglunnar brást fólk sem kom
á slysstað mjög vel við, hlúði að
fólkinu og skýldi því fyrir rigning-
unni með teppum og öðru lauslegu
þar til sjúkrabílar komu á vett-
vang. Hópur manna aðstoðaði
slökkviliðsmenn og lögreglumenn
frá Selfossi við að ná fólkinu úr
flaki bílsins.
Við áreksturinn kýldist jeppinn
saman þannig að aftursæti hans
þrýstust á framsætin. Litla stúlkan,
sem sat í miðju aftursætinu, lenti
á milli framsætanna. Einn þeirra
sem kom á vettvang og aðstoðaði
við björgun sagði að auðvelt hefði
verið að losa um hana og móður
hennar í framsætinu.
SAMKEPPNISRÁÐ hefur vakið
athygli landbúnaðarráðherra á því
áliti ráðsins að nokkur ákvæði nú-
gildandi búvörulaga stangist á við
markmið samkeppnislaga og séu
skaðleg samkeppnishindrun á við-
komandi markaði. Er vísað til
þeirra ákvæða að fimmmanna-
nefnd skuli ákveða heildsöluverð
búvara og að enginn megi kaupa
eða selja búvöru innanlands á öðru
verði en ákveðið hafi verið sam-
kvæmt lögunum.
Samkeppnisráð vekur athygli á
þessu í framhaldi af að ráðið mælt-
ist til þess við Osta- og smjörsöluna
að fyrirtækið veiti magnafslátt af
þeim vörum sem ekki séu háðar
verðákvörðunum stjómvalda, en
Bónus hafði leitað til ráðsins vegna
þessa. Mjólkursamsalan hefur veitt
magnafslátt af þessum vörum.
í áliti Samkeppnisráðs segir að
um 70% af vörum sem Bónus kaupi
af Mjólkursamsölunni á ári séu háð
verðlagsákvæðum, en viðskiptin
nemi um 430 milljónum. í tilfelli
Osta- og smjörsölunnar eru um 45%
af viðskiptunum vegna vara sem
háðar eru verðlagsákvæðum og
viðskiptin nemi um 400 milljónum.
„Almennt er viðurkennt í sam-
keppnisfræðum að verð á vöru og
þjónustu og frelsi til verðákvörðun-
ar sé ein meginforsenda fyrir því
að virk samkeppni fái þrifist," seg-
ir í áliti Samkeppnisráðs. „Sem
dæmi um þetta er litið á verðsam-
ráð fyrirtækja á sama sölustigi sem
eina alvarlegustu samkeppnis-
hindrunina í viðskiptum, sbr. 10.
gr. samkeppnislaga. Þegar fyrir-
tæki á markaði eru hindruð í að
verðleggja eigin söluvörur þykir
vera um óhóflega takmörkun á
frelsi í atvinnurekstri að ræða og
skaðlega samkeppnishindrun sem
gengur gegn markmiði samkeppn-
islaga, sbr. 1. gr. Iaganna.“
Samkeppnisráð segir að það
ákvæði búvörulaga, sem banni
kaup og sölu á þeim búvörum sem
verðlagðar eru samkvæmt lögunum
á öðru verði en ákveðið er af verð-
lagsnefndum landbúnaðarins, sé
skaðleg samkeppnishindrun á við-
komandi markaði. Á sama hátt
gangi ákvæði búvörulaga um að
verðlagsnefndir landbúnaðarins
skuli akveða afurðaverð til búvöru-
framleiðenda og heildsöluverð bú-
vara, gegn markmiði laganna.
Ekki náðist í Guðmund Bjarna-
son landbunaðarraðherra vegna
þessa máls í gær þar sem hann er
staddur erlendis.