Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 15
AKUREYRI
i +
Tvær milljónir poka af lausfrystum karfa hjá UA
Pökkunarsamstæða
þrefaldar afköstin
Morgunblaðið/Kristján
SIGURVIN Jónsson húsvörður í Lundarskóla gætti þess að nem-
endur færu ekki ofan í holu sem grafin var þar sem flæddi inn.
Málþing kennara
Mótmæla
aðför að
starfs-
öryggi
SAMEIGINLEGT málþing
Bandalags kennara á Norður-
landi eystra og svæðafélags
Hins íslenska kennarafélags á
Norðurlandi eystra var haldið
í Lóni við Hrísalund á Akur-
eyri um helgina.
Kjara- og réttindamál voru
efst á baugi á málþinginu, en
fundurinn mótmælti harðlega
þeirri aðför að starfsöryggi
og lífeyrisréttindum opinberra
starfsmanna sem felast í
ákvæðum í frumvarpsdrögum
að lögum um réttindi og
skyldur opinberra starfs-
manna, lögum um lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins og lög-
um um samskipti á vinnu-
markaði.
„Samkvæmt framan-
greindum lagadrögum er ver-
ið að afnema nær öll núver-
andi réttindi starfsmanna rík-
isins og skerða stórlega sjálf-
stæðan samningsrétt stéttar-
félaga þeirra. Fundurinn telur
að hér sé um fólskulega árás
á launafólk að ræða og krefst
þess að þegar verði fallið frá
þessum áformum,“ segir í
ályktun fundarins.
Vatnflæddi
í kjallara
Lundarskóla
VATN flæddi inn í kjallara Lund-
arskóla og var allt á floti i gær-
morgun þegar kennarar komu til
starfa.
Hörður Ólafsson skólastjóri í
Lundarskóla sagði að drenlögn
umhverfis skólabygginguna hefði
gefið sig, þannig að grunnvatn
kringum það hækkaði og komst
inn um rör á veggjum hússins.
„Það var vatn í kjallara annarr-
ar álmu skólans, það fór um endi-
langan ganginn og eitthvað inn í
skólastofur," sagði Hörður. Ekki
var hægt að kenna í tveimur
fyrstu kennslustundum gærdags-
ins í þessum skólastofum á meðan
vaskur hópur gangavarða og
kennara þurrkaði upp bleytuna.
Börnum sem áttu að vera í þessum
kennslustofum var kennt í sam-
komusal skólans.
Skemmdir urðu ekki verulegar
inni í skólanum að sögn Harðar.
Unnið var að viðgerðum í gær.
PÖKKUN á lausfrystum karfa í
eins kílóa pokum hefur vaxið hröð-
um skrefum hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa en í gær var þeim
áfanga náð að búið var að fylla í
tvær milljónir poka. Karfi í þessum
neytendaumbúðum er einkum
seldur til Þýskaland en líka Frakk-
lands.
ÚA hóf framleiðslu á þessari
afurð árið 1993 þegar fyrirtækið
framleiddi um 7 tonn, en árið eft-
ir fór hún upp í 461 tonn. Á síð-
asta ári nam framleiðslan um
1.353 tonnum.
„Við höfum varla undan að
pakka, það er alltaf unnið fram á
kvöld,“ sagði Gunnar Aspar, fram-
leiðslustjóri ÚA. Mikið af karfa
hefur borist að landi að undan-
förnu, en þijár síðustu vikur hafa
skipin verið að koma með karfa
að miklum meirihluta í aflanum.
í vikunni bárust þannig um 320
tonn af karfa í 400 tonna heildar-
afla. Að jafnaði hefur verið pakkað
í einn gám á dag eða um 12,4 tonn.
Pökkunarsamstæða eykur
hagkvæmni og afköst
Útgerðarfélag Akureyringa
hefur keypt fullkomna pökkunar-
samstæðu sem verður tekin í notk-
un í næsta mánuði. Með tilkomu
hennar verður lausfrystingin mun
hagkvæmari og afköst munu auk-
ast. Pökkunarstöðin afkastar allt
upp í tvö þúsund kíló á klukku-
stund sem er um þrefalt meira en
í núverandi kerfi. Þá má nefna að
yfirvigtin í lausfrystingunni hefur
verið um 2% en gert er ráð fyrir
að hún lækki niður undir núll þeg-
ar pökkunarlínan verður tekin í
notkun. Miðað við allt að tvö þús-
und kílóa framleiðslu og meðal-
talsverð um 240 krónur á kíló mun
minni yfirvigt færa félaginu um
7-10 milljónir króna í auknar tekj-
ur á ári.
Þá býr vélasamstæðan einnig
til poka um afurðimar og nemur
spamaðurinn miðað við að kaupa
poka um þremur milljónum króna
Morgunblaðið/Kristján
RAGNHEIÐUR Björgvinsdóttir, Ingibjörg Ásta Björnsdóttir,
Oddný Jósefsdóttir og Gunnar Aspar með pokann, sem fyllti
tveggja milljóna poka markið í framleiðslu á þessari afurð, laus-
frystum karfaflökum.
á ári. Einnig má nefna að sam-
stæðan verður notuð til að pakka
þorskbitum í 10 punda, 5 og 6
kílóa pakkningar fyrir Bandaríkja-
markað, Þýskaland og Frakkland
og mun það hafa umtalsverðan
spamað í för með sér í umbúða-
kostnaði. Pökkunarsamstæðan
kostar uppsett um 30 milljónir
króna.
Stefnt að vaktavinnu
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, sagði að þessi fram-
leiðsla yrði aukin fengist til þess
nægt hráefni, en neytendur hefðu
tekið vömnni vel. Þróunin hefði
verið sú á síðustu ámm að tækni-
væðingin hefði sífellt orðið meiri
og í framtíðinni væri stefnan að
taka upp vaktir til að nýta tækin
betur.
Föstumessa
FYRSTA föstumessa vetrar-
ins verður í Akureyrarkirkju
í kvöld, miðvikudagskvöldið
21. febrúar og hefst hún kl.
20.30. Sungið verður úr
Passíusálmunum og fögur lít-
anía verður flutt.
ClFullmarlcI)
• Prentborðar í flestar gerðir prentara.
• ISO 9002 gæðaframleiðsla.
• Urvals verð.
J. áSTVRLDSSON HR
Skipholti 33, 105 Reykjoá, sími 552 3580.
íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi
Eiríkur
Björn ráðinn
EIRÍKUR Björn Björgvinsson var
á bæjarstjórnarfundi í gær ráðinn
íþrótta- og tómstundafulltrúi á Ak-
ureyri. Hann tekur við starfinu af
Hermanni Sigtryggssyni sem gengt
hefur stöðunni í röska þrjá áratugi.
Eiríkur er fæddur árið 1966,
hann hefur síðustu misseri starfað
sem íþrótta- og tómstundafulltrúi á'
Egilsstöðum.
MAZDA
4 ImrÖa kt
1.346.000
Aðmr geróir kosta
frá kr. UIO.OOO
Komdu, skoðaðu og taktu i MAZDA 323.
því stuttur reynsluakstur segir meira en
mörg ord. Það segja þeir éem valiötofa MAZDA
eftir rxkilegan samanburð við aðnt bfla!
OPIÐ FRÁ KL. 9-18, LAUGARDAGA 12-16
RÆSIR HF
SKIT.AGÖTI 59 - SÍMl 561 9550