Morgunblaðið - 21.02.1996, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.02.1996, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 MINIMIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ OLAFUR JÓHANNSSON + Ólafur Jóhanns- son fæddist 28. janúar 1908 í Reykjavík. Hann lést í Reykjavík 10. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jó- hann Sigmundsson, sjóm. þar, og k.h. Þuríður Sigmunds- dóttir. Ólafur kvæntist 12. nóv. 1936 fyrri konu sinni, Elínu. Þau skildu. Hann kvæntist aftur 18. nóv. 1954 Sigur- laugu Kristínu, f. 17. jan. 1917, Jóhannsdóttur kaupm. á ísafirði Jónssonar Eyfírðings og k.h. Salóme Gísladóttur. Ólafur varð stúdent frá MR 1927. Cand. med. frá Háskóla íslands 1934. Námskandídat við Landspitalann 1934-35. Fram- haldsnám á ýmsum sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1936-40. Námsdvöl í Lundúnum og í Kaupmannahöfn 1949 (röntgen- greining), í Þýskalandi 1958 (ath. á ísótópum) og í Lundúnum 1968 (röntgenrannsóknir - beinasjúk- dómar). Almennt lækningaleyfí 22. nóv. 1935. Viðurk. sérfræð- ingur í geislalækningum 20. jan. 1960. Slaðgengill héraðslækn- anna í Borgarnes- og Borgar- fjarðarhéruðum sumarið 1934. Starfandi læknir á Akranesi 1935-36. Aðstoðarlæknir við STERKUR, skapríkur og hjartahlýr maður er fallinn frá, tengdafaðir minn, Ólafur Jóhannsson. Ólafur var sannkallað íslands- barn. Allt sem íslenskt er var honum mjög hugleikið, hvort heldur væri íslensk tunga, náttúra landsins, Is- lendingasögurnar eða annað sem snerti landið. Ólafur var víðlesinn og fróður um alla skapaða hluti og miðlaði hann óspart af þeirri þekk- ingu. Þegar fjölskyldan fór í ferðalög, var Ölafur leiðsögumaður, þekkti heiti á flestu sem fyrir augu bar og sagði sögur sem lágu að baki nafngiftinni. Sögurnar sagði hann með sínum sérstaka hætti, blöndu af kímni og alvöru, því grunnt var á skopskyninu. Barnabörnin nutu þess sannar- lega að vera með afa úti í náttúr- unni, hvort heldur í fjöruferðum, þar sem steinar voru skoðaðir, eða þá að lesa blómin í garðinum. Lit- brigði jarðarinnar skyldu útskýrð, því hann var næmur á hvert smáat- riði í umhverfinu. íslenskan var honum hugleikin og vildi hann að barnabörnin næðu snemma góðum tökum á fallegu máli. Lestrarkennslan var hluti af því og sinnti hann henni af mikilli natni og þolinmæði og bar kennsla afa því góðan árangur. Það var gott og skemmtilegt að sækja þau Ólaf og Laugu heim. Okkur var alltaf tekið opnum örm- . um í orðsins fyllstu merkingu. Gest- um varð að gera gott og því fylgdi mikil ánægja. Saman áttu þau fal- legt heimili, sem bar vitni um óþijótandi áhugamál þeirra. Eiginkonu sína dáði Ólafur mjög og gerði hún honum kleift að dvelja heima svo lengi sem auðið var, en þar leið honum best. Ég kveð elskulegan tengdaföður minn með söknuði og virðingu. Eft- ir situr minningin um umhyggju- HÓTEL BORG Tökum að okkur crlidrykkjur Upplýsingar í símum 551 1440 og 551 1247 amtssjúkrahúsið í Lemvig á Jótlandi mars-ág. __ 1940. Kom heim til Islands um Petsamo haustið 1940. Starfandi læknir í Reykjavík frá okt. 1940. Að- stoðarlæknir á handlækninga- og fæðingardeildum Landspitalans 1941. Kandídat við rönt- gendeild Landspítal- ans 1942-44 og síð- an starfandi á sömu deild 1944-49. Rönt- genlæknir við St. Jósefsspítala í Reykjavík 1949-70. Stofnaði Röntgenstofuna í Domus Medica, starfandi röntgenlækn- ir þar frá 1968 til okt. 1981. Kennari i heilsufræði og með- ferð slysa og sjúkdóma við Stýrimannaskólann og Vélskól- ann í Rvík 1946-68 og skóla- læknir beggja skólanna. Ráð- gefandi röntgenlæknir Sjúkra- húss Akraness 1972 og í hlut- astrfí þar frá 1974. Form. Fé- lags ísl. röntgenlækna 1965-68. í stjóm Geislavarnafél. Norður- landa 1974-78. Skipaður í dóm- nefnd um hæfni umsækjenda um prófessorsembætti í geisla- lækningum 1974. Rit: Lækningabók handa sjó- mönnum (ásamt Benedikti Tóm- assyni lækni), 1967. Greinar í Læknablaðið. saman mann með stórbrotið skap. Ólafur var sáttur við að fá hvíldina, þegar kraftar hans voru að lokum komnir að þrotum. Guð geymi minningu hans. Anna Jónsdóttir. Síðdegis einn sólbjartan og fagr- an vetrardag lauk jarðvist Ólafs læknis Jóhannssonar. Vistin sú var orðin nokkuð löng og honum erfið síðustu árin þar sem Elli kerling hafði gert honum ýmsa skráveifu. Kollegar hans höfðu boðið meðferð til að lengja jarðvistina en Ólafur, af þeirri karlmennsku og reisn er jafnan einkenndi hann, afþakkaði og fékk síðan hægt og rólegt and- lát að viðstöddum þeim er honum voru kærastir. Ólafur var fæddur í Reykjavík, yngstur 5 systkina. Faðir hans var sjómaður og langdvölum í burtu við að draga björg í bú. Efnin voru knöpp og heimilið fjölmennt í litla húsinu á Njálsgötunni. Húsmóðirin, Þuríður Sigmundsdóttir, var dugn- aðarforkur en einnig hjartahlý með afbrigðum. Jafnan var pláss við matarborðið á Njálsgötunni fyrir þá sem þurfandi voru en auk þess að sinna stóru heimili fór Þuríður um landið, safnaði skófum og mos- um og útbjó seyði er læknaði marg- an sjúkan og súran maga Reykvík- inga. Jóhann Sigmundsson lést 1936 en Þuríður andaðist í hárri elli 1966. Öll börn þeirra fengu gott veganesti í foreldrahúsum og urðu dugandi fólk. Yngsti sonurinn var sá eini er lagði á langskólanám, enda mjög góður námsmaður. Ólaf- ur lauk stúdentsprófi úr máladeild MR 1927 og síðan embættisprófí í læknisfræði frá Háskóla íslands 1934. Hann starfaði sem kandidat á sjúkrahúsum í Reykjavík en einn- ig sem héraðslæknir næstu tvö ár- in. 1936 fór Ólafur til framhalds- náms til Kaupmannahafnar og var þar næstu 4 árin. Kom heim haust- ið 1940 um Petsamo og hóf aftur störf á sjúkrahúsum í Reykjavík. Hann var starfandi heimilislæknir í rúm 30 ár en starfaði jafnframt lengst af við sérgrein sína, röntgen- greiningu. Hann endurskipulagði röntgendeild Landakotsspítala og var yfirlæknir röntgendeildar þar í rúm 20 ár frá 1949. Hann stofnaði röntgenstofu í Domus Medica 1968 og rak hana allt þar til hann lét af störfum aldurs vegna. Þá var hann skólalæknir og kennari í heilsufræði við Stýrimanna- og Vélskólann í Reykjavík í meira en 20 ár. 40 ára læknisferli verður lítt lýst í upptalningu sem þeirri hér að framan. Bæta má við að Ólafur var alla tíð farsæll læknir, vinsæll og vel látinn heimilislæknir og þótti mjög fær röntgenlæknir. Naut hann þar góðrar greindar og afburða- námshæfileika. Margir gamalla sjúklinga hans héldu tryggð og leit- uðu til Ólafs um ýmis smærri er- indi allt fram á síðustu ár. Ólafur var tvíkvæntur, hann gekk að eiga Elínu Júlíusdóttur 1936 en þau skildu eftir nokkurra ára samvistir. Sonur þeirra er Jó- hann Þorkell kennari í Garðabæ. Síðar kvæntist Ólafur Sigurlaugu Jóhannsdóttur og varð sambúð þeirra löng og ástrík. Sonur þeirra GUNNAR HALLDOR JÓSEFSSON + Gunnar Halldór Jósefsson fædd- ist á Hlíðartúni í Miðdölum, Dala- sýslu, 15. apríl 1922. Hann andaðist á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund 10. febrúar 1996. For- eldrar hans voru Ólafía Mikkelína Ólafsdóttir og Jósef Jónsson. Gunnar var yngstur 13 systkina. Eiginkona Gunnars var Jó- hanna S. Jóhannes- dóttir, f. 15. ágúst 1915, d. 28. janúar 1990. Hún átti fyrir dótt- urina Ásdísi Aðalheiði Þórar- insdóttur, f. 23. febrúar 1945. Sonur Ásdísar er Gunnar Jóhann Svavarsson, f. 18. september 1965. Gunnar og Jóhanna eignuðust soninn Ólaf Jósef, f. 30. september 1958. Kona hans er Ingibjörg R. Guð- jónsdóttir, f. 16. nóvember 1956. Dóttir Ólafs er Sól- ey Kristbjörg Ólafs- dóttir, f. 11. júní 1979. Utför Gunnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. PABBI fæddist á Hlíðartúni í Mið- dölum, Dalasýslu, 15. apríl 1922. Hann var yngstur 13 systkina. í uppvexti pabba var oft flutt á milli bæja í leit að betri lífskjörum. Pabbi bjó í foreldrahúsum þangað til þau létu af búskap árið 1945. Pabbi var mikið hraustmenni og voru hann og bræður hans ásamt fleirum stundum að keppa í aflraunum. Var ýmislegt notað til að sanna hreysti sína, m.a. steinarnir Am- lóði, Hálfsterkur og Fullsterkur, sem eru rétt hjá bænum Villinga- dal sem var einn af þeim bæjum sem pabbi átti heima á í uppvexti sínum. Veturinn 1946-47 var pabbi í Haukadalsskóla í Biskups- tungum þar sem hann lagði stund á íþróttanám. Pabbi vann við hin ýmsu störf, þó aðallega landbúnað- arstörf. Hann var m.a. ráðsmaður á Korpúlfsstöðum, einnig hjá Þor- geiri bónda og hestamanni í Gufu- nesi, vinnumaður hjá Guðmundi Guðmundssyni mági sínum á Kol- er Ragnar, arkitekt í Reykjavík. Ólafur var sonum sínum og barna- börnum umhyggjusamur faðir og afi en einnig elskulegur stjúpi tveggja sona Sigurlaugar frá fyrri hjónaböndum. Eins og fyrr sagði einkenndist sambúð Ölafs og Sigurlaugar af gagnkvæmri ást og virðingu. Síð- ustu árin er heilsa Ólafs var farin að bila reyndi mjög á þrek Sigur- laugar við umönnun hans heimavið. Er það til marks um umhyggju hennar að Ólafur gat verið heima- við allt fram á síðustu daga fyrir andlát sitt. Áhugamál Ólafs voru margvísleg en lutu flest að náttúru þessa lands. Hann var þjóðernissinni í þess orðs bestu merkingu, elskaði allt er laut að sögu íslands, náttúru þess, margfróður um staðhætti, örnefni, jarðfræði, plöntu- og fuglalíf. Á ferðalögum var hann ólatur að miðla af þekkingu sinni og komu allir fróðari heim úr slíkum ferðum með Ólafi. Þjóðernissinni var hann í þeirri merkingu að honum þótti landið sitt betra og fallegra en önn- ur lönd en þjóðremba var honum jafnframt fjarri, íslendingar sem slíkir voru ekki hótinu merkilegri né gáfaðri en annað fólk. Aðalástríða Ólafs allt fram á hin síðustu ár var þó stangaveiðin. í 50 ár fór hann á hveiju sumri til laxveiða í hinum ýmsu ám landsins og veiddi oftast vel, enda glúrinn og duglegur veiðimaður og var eft- irsóttur veiðifélagi. Mest var veitt í ánum á suðvesturhorninu, einkum í Borgarfírði en einnig fór Ólafur oft í Víðidalsá og Straumfjarðará. Uppáhaldsáin var þó alltaf Norðurá og fannst honum hin síðari árin sem veiðimennskan væri til lítils hefði hann ekki komist til veiða í perlu Borgarfjarðar. Ólafur var hár maður og gjörvi- legur á velli, rauðbirkinn og með rauðjarpt hér en hærðist fljótt. Augun voru fremur djúpsett, nefið hvasst og sterklegt og varir fremur þykkar. Hann var ákafamaður til vinnu sem og skemmtana, söng- maður ágætur og hrókur alls fagn- aðar í góðra vina hópi. Hann var einarður og beinskeyttur og átti það til að segja fólki til syndanna en gerði það jafnan augliti til auglitis, illmælgi og baktal voru ekki hans deild. Meðferð hans á íslensku máli var ti! fyrirmyndar, hann var alla tíð áhugamaður um málhreinsun, hafði skýra og fallega rödd og tal- aði fellegt mál. Málamaður var hann að auki ágætur, talaði reip- stöðum og einnig hjá Sigrúnu syst- ur sinni og hennar manni á Svarf- hóli. Hann starfaði líka hjá Pósti og síma. Pabbi var ráðsmaður á Þor- bergsstöðum í Haukadal í Dala- sýslu þegar hann, veturinn 1956, brá sér á dansleik til Reykjavíkur og kynntist þar móður minni, Jó- hönnu S. Jóhannesdóttur frá Húsavík, sem lést 1990. Fylgdi hún á eftir honum í Dalina um vorið með dóttur sinni, Ásdísi Þór- arinsdóttur, og hófu þau fljótlega búskap á Ketilsstöðum í Hörðudal í sömu sýslu. Undirritaður kom í heiminn haustið 1958. Ég man fyrst eftir pabba þegar ég var u.þ.b. 3-4 ára. Hann var vanur að taka mig með í útiverkin frá því að ég man eftir mér og bar mig m.a. í strigapoka á bakinu þegar veðrið var vont. Hann hefur sennilega ætlað að gera bónda úr einkasyninum og þá var eins gott að byrja nógu snemma að kenna mér réttu handtökin. Á hverju vori urn sauðburðinn gaf hann mér eina væna gimbur, helst skrítna á litinn, eins og hann var vanur að segja. Þegar ég barðist við að halda á nýfæddu lambinu þá sagði pabbi stundum: „Haltu fast, drengur, ertu alveg máttlaus eða hvað?“ Þegar við komum inn í eld- hús til mömmu eftir útistörfin lagði pabbi mikla áherslu á að menn tækju hraustlega til matar síns, til jress að verða stórir og sterkir. Arið 1964 flutti fjölskyld- an sig um set og hófum við bú- rennandi dönsku, ensku og þýsku auk hrafls í fleiri tungumálum. Hann var tryggur og trúr vinum sínum. Vinir hans og samstúdentar fyrir tæpum 70 árum höfðu fyrir sið að hittast í hádegiskaffi á Hótel Borg um helgar og hélst sá siður allt fram á síðasta ár er hópurinn var orðinn of fáliðaður. Þá var hann félagi í Oddfellowstúku um langt árabil. Að leiðarlokum kveð ég Ólaf stjúpa minn eftir meira en 40 ára viðkynningu sem tæpast bar nokk- urn skugga á. Langri og farsælli ævi er lokið, viðskilnaðurinn varð hægur og rólegur og þegar gamall maður kveður með slíkum hætti, saddur lífdaga, er tæpast hægt að tala um sorg, ofar í huga er þakk- læti fyrir fijóa ævi og friðsælan endi. Leifur. Elsku afi minn. Nú ert þú farinn úr þessu lífi, en þú verður alltaf hjá mér í hjarta mínu. Samband okkar var sérstakt, ég á þér svo margt að þakka. Mér fannst svo gaman, sem barni, að koma til ykkar ömmu í Hörgshlíðina, og ef ég fékk að sofa, þá var hátíð í bæ. Alltaf hafðir þú tíma til að búa til tjald úr sænginni þinni og segja mér Búkollu, lesa með mér Grimms ævintýrin og kenna mér að lesa. Það var mér sérstök ánægja þegar þú gafst mér stjörnur í bókina þína og skrifaðir hvað ég var dugleg að lesa. Alltaf hafðir þú áhuga á því sem var að gerast í mínu lífi og leyfðir mér að fylgjast með þínu. Þú varst svo fróður og hafðir svo gaman af að deila þekkingu þinni með öðrum og það var alltaf gaman að hlusta. Svo komu efri árin og gleymskan fór að hijá þig, en alltaf mundir þú það sem skipti máli. Þú spurðir mig alltaf þegar ég kom til ykkar ömmu í Hellulandið, hvort ég ætti ennþá heima í Bjarnaborg og hvað dóttir mín héti aftur. Ég sagði þér þá að hún héti Katrín Ósk. Þá sagð- ir þú: „Já, var ég ekki þegar hún var skírð?“. „Jú,“ sagði ég. „Já, ég man það,“ sagðir þú og baðst mig að passa hana vel. í dag kveð ég þig í síðasta sinn, elsku afi minn, en minningarnar geymi ég á sérstökum stað í hjarta mínu. Vonandi líður þér vel á nýja staðnum þínum, Guð geymi þig. Þín, Sigurlaug. skap í Ólafsdal í Saurbæjarhreppi í sömu sýslu þar sem pabbi byggði stór og mikil fjárhús. Við bjuggum þar til ársins 1968 þegar pabbi varð að bregða búi vegna bakveiki. Pabbi var aldrei vanur að bera til- finningar sínar á torg en hann viðurkenndi þó fyrir mér mörgum árum seinna að það hefði verið mjög erfið ákvörðun að bregða búi. Við fluttum til Reykjavíkur þar sem hann hóf störf hjá Póstin- um. Fyrst vann hann sem bréfberi og síðar sem húsvörður á Pósthús- inu í Pósthússtræti þangað til hann komst á eftirlaun. Pabbi var alla tíð mikill hesta- maður. Hestar voru hans líf og yndi. Hann átti m.a. nokkra góða hesta í gegnum tíðina. Hann keppti á mörgum hestamannamótum al- veg fram á efri ár og vann alloft til verðlauna bæði í stökki og skeiði. Síðastliðið sumar varð pabbi að láta hestana og hesthúsið frá sér vegna veikinda. Það var greinilega mjög erfitt fyrir hann þótt hann talaði ekki um það. Ég berst á fáki fráum fram um veg. Mót fjallahlíðum háum hleypi ég, og golan kyssir kinn, á harða, harða spretti hendist áfram klárinn minn. (H. Hafstein.) Með þessum fáu orðum kveð ég pabba minn sem ég mun sakna mjög mikið. Ólafur Jósef.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.