Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Kosið 29. maí íIsrael ÁKVEÐIÐ var í gær að þing- kosningar yrðu haldnar í ísra- el 29. maí. Shimon Peres for- sætisráðherra tilkynnti í síð- ustu viku að kosningunum, sem halda átti í október, yrði flýtt og hefur verið deilt um dagsetningu síðan. Samkvæmt skoðanakönn- unum hefur Peres drjúgt for- skot á Benjamin Netanyahu, ieiðtoga Likud-bandalagsins. Peres sagði í gær að morð- hótanir á hendur ráðherrum skiptu hundruðum. „Fólk hót- ar því að myrða ráðherra,“ sagði Peres við fréttamenn og þegar hann var spurður hvort átt væri við lítinn hóp öfgamanna svaraði hann: „Þeir skipta hundruðum, jafn- vel þúsundum." Mír tíu ár í geimnum RÚSSNESKA geimstöðin Mír hefur verið tíu ár í geimnum og ferðast 2,5 milljarða km. Mír var tákn um stöðu Sovét- ríkjanna, en hefur haldið velli eftir að þau hrundu og var haldið upp á tíu ára afmælið í gær með því að fagna fjár- framiagi úr vestri. Nú er að- eins fimmtungi þess fjár veitt til geimferða, sem látin var af hendi rakna á tímum Sovétríkjanna. Bandaríkja- menn hyggjast hins vegar veita 330 milljónum dollara (um 21 milljarð króna) til stöðvarinnar. Ekki framseldur DÓMSTÓLL í Austurríki úr- skurðaði í gær að Michal Kovac, sonur og alnafni for- seta Slóvakíu, yrði ekki fram- seldur Þýskalands, þar sem hann er sakaður um peninga- svik. Kovac var numinn brott skammt frá Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, í ágúst og skilinn eftir fyrir utan lög- reglustöð í Austurríki. Hann var í haldi vegna kröfu Þjóð- veija fram í október. Réttur- inn - sagði að beiðninni um framsal hefði verið hafnað þar sem Kovac hefði verið fluttur til Austurríkis gegn vilja sín- um. Strand Sea Empress iindan strönd Suður-Wales 40.000 tonn af olíu í Milford Haven. Reuter. ÁÆTLAÐ var í gær að allt að 40.000 tonn af hraolíu hefðu lekið úr olíuskipinu Sea Empress, sem strandaði undan strönd Suður- Wales á fimmtudag, en mestur hluti olíunnar stefndi til hafs, að sögn bresku strandgæslunnar. Dráttarbátar reyndu í gærkvöldi að ná skipinu á flot og ætlunin var að toga skipið á skjólsaman stað, til að hægt yrði að dæla olíu í önn- ur skip. Hvassviðri var á strandstaðnum, sem er nálægt einu af þekktasta friðlandi fugla í Bretlandi. „Ástand- ið er augljóslega slæmt en lekinn er ekki mikill núna,“ sagði talsmað- ur strandgæslunnar. Áætlað er að um 110.000 tonn af hráolíu séu enn í skipinu. Emb- ættismenn sögðu enga hættu á að skipið liðaðist í sundur þrátt fýrir tvær misheppnaðar tilraunir til að draga það á flot. Björgunarmenn fóru um borð í skipið í gær og komust að því að vélarrúmið er óskemmt. Flytja hafði þurft björgunarliðið úr skipinu með þyrlum vegna hvassviðrisins í fyrri- nótt. Peter Cooney, framkvæmdastjóri Acomarit, sem rak Sea Empress, sagði að allt að tíu daga gæti tekið að dæla olíunni úr skipinu. Eitt mesta mengunarslysið í grennd við strandstaðinn eru heimkynni allt að 100.000 fugla. Þar eru m.a. stelkar, langvíur, súl- sjóinn ur, fjöruspóar, álkur og brandendur og nokkrar fuglategundanna eru sjaldgæfar. Þegar hafa fundist nokkrir fuglar þaktir olíu. Strand Sea Empress er nú orðið eitt mesta olíumengunarslys síðustu tíu ára. 80.000 tonn láku í sjóinn við strönd Hjaltlands í janúar 1993, svipað magn nálægt höfninni í La Coruna á Norður-Spáni í desember 1992, og 38.000 tonn undan strönd Alaska í Exxon Valdez-slysinu í mars 1989. Reuter Mótmæla ofbeldi Baska UM 600.000 manns gengu um götur Madrídar, höfuðborgar Spánar, í fyrrakvöld og mót- mæltu ofbeldisaðgerðum hryðjuverkasveita aðskilnaðar- sinna Baska. í fylkingarbijósti voru ætt- ingjar fólks sem týnt hefur lífi vegna ofbeldisverka aðskilnað- arsinna en næstir þeim gengu Felipe Gonzalez forsætisráð- herra, Jose Maria Aznar, leið- togi Þjóðarfylkingarinnar, og fleiri pólitískir leiðtogar. Gonz- alez og Aznar eru pólitiskir and- stæðingar en héldu saman á mótmælaspjaldi. Að mótmæla- göngunni stóðu stjórnmála- flokkar og verkalýðssamtök sem tóku sig saman um að efna til aðgerðanna eftir morð á Franc- isco Tomas y Valiente, lagapró- fessor við Madrídarháskóla, í síðustu viku. Hann var fyrrver- andi forseti spænska stjórnlaga- dómstólsins. Harka færist í deilu Japans og S-Kóreu Japanir færa út landhelgina Búist við að Suður-Kórea svari í sömu mynt Seoul. Reuter. BÚIST var við í gær að stjórn Suð- ur-Kóreu færi að dæmi japönsku stjómarinnar og lýsti yfir útfærslu efnahagslögsögu landsins í 200 mílur. Þetta er liður í deilu ríkjanna um tvær smáeyjar, sem bæði ríkin gera tilkall til. Stjóm Japans samþykkti að færa landhelgina út í 200 mílur sam- kvæmt hafréttarsáttmála Samein- uðu þjóðanna og þingið á eftir að staðfesta útfærsluna. Búist var við að stjórn Suður-Kóreu myndi svara í sömu mynt. 250 fermetra eyjar Deilan snýst um eyjar, sem eru um það bil mitt á milli ríkjanna tveggja og í Japan heita þær Takes- hima en í Suður-Kóreu Tokdo. Stærð eyjanna er samtals 250 fer- metrar en umhverfís þær eru gjöful fískimið og hugsanlega fleiri nátt- úruauðlindir. Japanir hafa gert tilkall til eyj- anna frá árinu 1905 þegar þeir undirrituðu samning við Kóreu sem greiddi fyrir innlimun landsins í Japan. Embættismenn í Seoul segja að skriflegar heimildir sýni að eyj- arnar hafí verið hluti af Kóreu frá árinu 512. Mörg deilumál óleyst Allsheijarþing Sameinuðu þjóð- anna samþykkti hafréttarsáttmál- ann í nóvember 1994 til að hvetja ríki heims til að leysa slík deilu- mál. Sáttmálinn gæti þó orðið til þess að harðvítugar deilur blossuðu upp um þúsundir smáeyja og eyði- DEILA JAPAN5 OG SUÐUR-KÓREU Stjóm Japans tilkynnti í gær að efnahagslögsaga iandsins yrði færð út í 200 mílur og stjórnvöld í Suður-Kóreu bjuggu sig undir að gera það sama. UMDEILDAR EYJAR Takeshima (Japan) Tokdo (SuSur-Kórea) Alls um 250 fermetrar. Umhverfis eyjamar eru gjöful fiskimiö og hugsanlega miklar nátlúruauðlindir. SUÐUR -V KÓREA JAPAN kv Hafsvæðiö \ semþarfaðskipta samkvaeml haf- réttarsáttmálanum / REUTER Austur-Kinahaf skeija sem Asíuríki deila um vegna fískimiða, olíulinda og annarra nátt- úruauðlinda. Hermálasérfræðingar segja þessa hagsmuni helstu ástæðu þess að Asíuríkin hafa lagt ríka áherslu á að efla sjóheri sína síðustu misseri með herskipa- og vopnakaupum. HÚÐKREM DR. GUTTORMS HERNES Húðkrem dr. Guttorms Hernes frá Bod$ í Noregi er nú aftur fáanlegt í Græna vagninum. Borgarkringlunni, 2. hæð, Sendum í póstkröfu um land allt. símar 854 2117 & 566 8593. Einlœgar þakkir fœri ég öllum þeim mörgu, sem heiðruðu mig og glöddu á sjötíu ára afmœli mínu þann 12. febrúar sl., með heimsóknum, kveðjum og gjöfum. Sérstakar þakkir fœri ég vinum mínum í Leikfélagi Reykjavíkur fyrir frábœra leiklist á afmœlisfagnaði mínum í Borg- arleikhúsinu, Rannveigu Fríðu Bragadóttur og Jónasi Ingimundarsyni og Caput hópnum fyrir yndislega tónlist, og rœöumönnum öllum fyrir falleg orÖ í minn garÖ. Baldvin Tryggvason. jn0r0tmf»Ig>Mþ -kjarnimálsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.