Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 35 I I 1 ; < < ; < < 1 < < Kringlu- karneval á öskudag í TILEFNI af öskudeginum verður efnt til Kringlukarnevals í Kringlunni í dag. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til kl. 16. Kötturinn verður sleginn úr tunnunni á táknrænan hátt af leikurum Götuleikhússins. Tunnukóngur verður síðan krýndur og farið í kóngadans um Kringluna undir stjórn leikhópsins og tunnu- kóngsins. Kóngadansinn verður síð- an leystur upp þar sem leikhópurinn slær trumbur, blæs eld, syngur og dansar. Hallveig Thorlacius verður með brúðusýningar og trúðar og stultu- fólk verða á ferðinni um Kringluna. Ævintýraleikhúsið sýnir barnaleikrit, börnunum gefst kostur á að læra að ,juggla“ og krakkar geta fengið andlitsmálun. Hoppukastali verður á staðnum og söngstjórar verða vítt og breytt um Kringluna og stjórna hópsöng þar sem allir geta tekið þátt. Dagskránni í Kringlunni lýkur kl. 16 í dag. • • Oskudagur í Laugardal ÖSKUDAGSHÁTÍÐ verður haldin á Öskudaginn í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í Laugardal. Hátíðin hefst kl. 13 og er til 16.30. Fjölbreytt dagskrá verður allan daginn t.d. verða nokkur leiktæki sett út ef veður leyfir, hestar teymd- ir undir börnum, andlitsmálun, leik- þáttur, brandarakeppni og að sjálf- sögðu kötturinn sleginn úr tunnunni. Allir eru hvattir til að koma í grímu- búningi því verðlaun verða veitt fyr- ir skemmtilegasta búninginn. Húsdýragarðurinn er opinn á sama tíma og þar verður hægt að klappa kanínum og skoða nýja kvígukálfínn Væntingu sem fæddist í Húsdýra- garðinum 1. febrúar sl. Bæði sölubúð og kaffihús verða opin þennan dag. Aðgangseyrir er 100 kr. fyrir böm og 200 kr. fyrir fullorðna. Flugvallar- og Vatnsmýrar- hringurinn genginn HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í gönguferð frá Hafnarhúsinu mið- vikudagskvöldið 21. febrúar kl. 20. Val verður um að ganga um Há- skólahverfið suður í Skerjafjörð, síð- an með ströndinni inn í Nauthólsvik og til baka um Öskjuhlíð niður í Hljómskálagarð eða ganga styttri leið um Háskólahverfið og um byggð- arhverfið í Litla-Skeijafirði og yfir Vatnsmýrina niður í Hljómskálagarð til baka. Á fimmtudaginn verður gengið úr Sundahöfn frá Sundakaffi kl. 20 og á föstudagskvöld frá Ártúnshöfða, frá húsi Ingvars Helgasonar lif., einnig ki. 20. Allir velkomnir. Fræðslufundir Fuglaverndar- félagsins ÞRIÐJI fræðslufundur vetrarins verður fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20.30 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskólans, stofu 101. Þá mun Ólafur Einarsson, líffrðingur, halda erindi sem hann nefnir: Fljúga álftir fugla hæst í forsal vinda? I fréttatilkynningu segir m.a. að í erindi sínu muni Ólafur segja frá rannsóknum á farflugi álfta sem staðið hafa yfir sl. tvö ár á vegum Colin J. Pennyquick prófessors við Bristolháskóla og fleiri aðila. Rann- sóknir þessar eru framkvæmdar með hjálp gervihnattasenda sem festir eru á fuglana. Athugið breyttan fundarstað að þessu sinni. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir KRISTÍN Alda Kjartansdóttir við opnun nuddstofunnar. Betri heilsa á Þórshöfn Þórshöfn. Morgunblaðið. NÝ nuddstofa var opnuð nýlega á Þórshöfn og ber hún nafnið „Betri heilsa." Það er Kristín Alda Kjart- ansdóttir nuddari sem hefur nú formlega starfsemi hér. Nuddstofan „Betri heilsa“ er staðsett á efri hæð hússins Eyrar- vegur 2, þar sem áður voru skrif- stofur til húsa. Kristín hefur gert gagngerar endurbætur á hús- næðinu sem er hið vistlegasta og hentar vel fyrir starfsemi hennar. Nudd er nú almennt viðurkennt mnan heilbrigðisstéttarinnar sem heilsubót og hefur góð áhrif á marga kvilla, t.d. vöðvabólgu sem er algengur kvilli, ekki síst hjá starfsfólki í fiskvinnslu. Þórshafn- arbúa bíður nú væntanlega betri heilsa í framtíðinni en aðsókn hefur verið ágæt, að sögn Kristínar. Lifandi tónlist á Kringlukránni Á KRINGLUKRÁNNI í kvöld, mið- vikudagskvöldið 21. febrúar, leikur hljómsveitin So What. Hljómsveitina skipa Friðborg Jóns- dóttir, söngur, Pétur Valgarð Pét- ursson, gítar, Sigfús Höskuldsson, trommur, Jón Þorsteinsson, bassi, og Þorsteinn Pétursson, tenórsax. Bítlavina- félagið á Kaffi Reykjavík HUÓMSVEITIN Bítlavinafélagið leikur á Kaffi Reykjavík í kvöld, miðvikudagskvöldið 21. febrúar, og fimmtudagskvöld. Bítlavinafélagið kom sér saman á ný eftir nokkurra ára hlé í tilefni af 10 ára afmæli hljómsveitarinnar og á dagskrá eru mörg vinsælustu lög þeirra. Samband ungra sjálfstæðismanna um sj á var útvegsmál Vilja auknar fjárfest- ingar erlendra aðila STJÓRN Sambands ungra sjálfstæð- ismanna lýsir yfír óánægju sinni með frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráð- herra um breytingu á lagaákvæðum um fjárfestingu erlendra aðila í sjáv- arútvegi, segir í ályktun frá SUS. I frumvarþi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að erlendum aðilum verði heimiluð óbein eignaraðild að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum upp að ákveðnu marki. Samkvæmt orðanna hljóðan felur frumvarpið í sér rýmkun frá núgildandi reglum. Raunin er hins vegar sú að hingað til hafa stjómvöld ekki, í fram- kvæmd, amast við óbeinni eignar- aðild erlendra aðila í íslenskum sjáv- arútvegsfyrirtækjum. Frumvarpið felur ekki í sér neina raunverulega rýmkun frá þeim reglum sem gilt hafa í framkvæmd hér á landi. Stjóm Sambands ungra sjálfstæð- ismanna telur mikilvægt að gengið verði mun lengra í þá átt að heimila erlendum aðilum aðild að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, þ.á m. með beinni eignaraðild. Það er ekki sjáv- arútveginum í hag að vera nánast útilokaður frá erlendu áhættufjár- magni og sjávarútvegsfyrirtæki þannig oft og tíðum neydd til lántöku í ríkum mæli. Aukið frelsi að þessu leyti mundi óhjákvæmilega leiða til sterkari eininga á sviði fiskvinnslu og útgerðar og um leið tryggja af- komu þeirra einstaklinga sem starfa í sjávarútvegi. I ljósi þessa hvetur Samband ungra sjálfstæðismanna þingmenn til að styðja fyrirliggjandi fmmvarp Kristjáns Pálssonar, Péturs Blöndal, Vilhjálms Egilssonar og Guðjóns Guðmundssonar um að er- lendir aðilar megi eiga allt að 49% hlut í íslenskum sjávarútvegsfyrir- tækjum. FULLTRÚAR útgefenda færa Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra fyrsta eintak handbókar- innar. Með henni á myndinni eru f.v. Svanhildur Þengilsdóttir RKÍ, Herdís Storgaard SVFÍ, Gunn- hildur Sigurðardóttir RKÍ, Esther Guðmundsdóttir SVFÍ og Helgi Daníelsson, fulltrúi Barnaheilla. Bók um slysa- varnir bama HEILBRIGÐISRÁÐHERRA var nýleg a afhent Handbók fyrir heilsugæslustöðvar - forvarnir gegn slysum. Handbókin er sam- vinnuverkefni Rauða krossins, Slysavarnafélagsins og Barna- heilla. í henni er að finna fræðsluefni um öryggi og for- varnir gegn slysum á börnum fyrir starfsfólk heilsugæslu- stöðva og foreldra, m.a. eru í bókinni bæklingar ætlaðir for- eldrum barna að 7 ára aldri. ístravel um flug til og frá landinu Flugmálayfirvöld greini frá staðreyndum EKKI er tilefni til að gera upp á milli áætlunarflugs og leiguflugs enda notaðar sömu flugvélar af ýmsum fyrirtækjum í báðum tilfell- um, líkt og hjá Flugleiðum hf., seg- ir í fréttatilkynningu frá ferðaskrif- stofunni Istravel. Ennfremur segir: „Það er skiln- ingur okkar að Flugmálastjórn beri Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson DIETER Roth, Björn Roth og Þorvaldur Jóhannsson bæjar- stjóri Seyðisfjarðar við gjöfina sem þeir fyrrnefndu gáfu íbúum Seyðisfjarðar. I FRÉTT Morgunblaðsins 14. febr- úar sl. urðu þau leiðu mistök að röng mynd birtist með frétt um gjöf Dieters og Björns Roth til Seyð- firðinga. Mynd sem sögð var vera af kassanum sem Gunnar Helgason Leiðrétting smíðaði utan um gjöfina, var í reynd mynd af útilistaverki Kristjáns Guð- mundssonar „Útlínum" í smíðum. Það verk prýðir nú miðbæ Seyðis- Qarðar. Allir hlutaðeigandi eru beðnir um að afsaka þessi mistök. að hafa eftirlit með að slíkur rekst- ur fari fram skv. íslenskum reglum og þá um leið alþjóðareglum, sem gilda um flugrekstur. Alkunna er að staðall í rekstri ýmissa flugfé- laga er misjafn, samanber mat bandarískra flugmálayfirvalda í þeim efnum. Þegar umdeild atriði koma upp, eins og að undanförnu, samanber deilur einstakra ferðaskrifstofa, er nauðsynlegt að íslensk flugmálayf- irvöld geri grein fyrir staðreyndum í þessum efnum svo að komið verði í veg fyrir að einstakir hagsmuna- aðilar séu að bera hvor öðrum á brýn vanefndir í að framfylgja sett- um reglum. Er þess að vænta að svo verði gert undandráttarlaust. Almenningur á kröfu á slíkum upp- lýsingum. Með tilliti til þess að fjöldi Islendinga og útlendinga mun ferð- ast til og frá Islandi er nauðsynlegt að flugmálayfirvöld greini frá hvaða flugfélög hafi fengið tilskilin leyfi til reksturs og hvernig staðli þeirra sé háttað.“ Fram kemur að ístravel hafi ný- verið gert samning við Transavia Airlines, hollenskt dótturfýrirtæki KLM um flug í sumar milli Amster- dam og Keflavíkur. Flogið yrði með þotum af gerðinni Boeing 737-300, 138 sæta flugvélum. Tilkoma samn- inganna byggist fyrst og fremst á ónógu sætaframboði í flugi til og frá Islandi. Markmið ferðaskrifstof- unnar er að gefa íslendingum, sem ætla til meginlandsins, kost á að ná öllum tengingum að morgni hvort heldur er með flugi eða járn- brautum. Engin lágmarks- eða há- marksdvöl fylgir sölu farmiða innan sölutímabils. Samskipti kynja í forn- sögunum FÉLAG íslenskra fræða boðar til fundar með Jenny Jochens í Skólabæ við Suðurgötu í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30. Jenny Jochens er prófessor í mið- aldasagnfræði við Towson State University í Bandaríkjunum. Hún er vel kunn af ritum sínum um kon- ur í íslensku miðaldasamfélagi. Á síðasta ári kom út bók hennar „Women in Old Norse Society" og í vor er væntanleg bókin „Old Norse Images of Women“. Jenny Jochens hefur dvalist hér við rannsóknir á mansöngvum og samskiptum karla og kvenna í forn- sögunum. í erindi sínu kynnir hún nokkur viðfangsefni sín og tekur m.a. dæmi af hinum fræga ástarþrí- hyrningi milli Þórðar, Bjarna og Oddnýjar í Bjarnar sögu Hítdæla- kappa. Jenny Jochens flytur erindi sitt á ensku en umræður geta farið fram á íslensku, dönsku eða ensku. Eftir framsöguerindi eru léttar veitingar áður en almennar umræður hefjast. Fundurinn er öllum opinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.