Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 48
•flYUNDAI Hátækni tii framfara ii Tæknivai Skeifunni 17 • Slmi 568-1665 Fáðu þér miða fyrir föstudag MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAINARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Ásdís Ottó Wathne á flot TOGARINN Ottó Wathne, sem sat fastur í slipp Stálsmiðjunnar í Reykjavík eftir að dráttarbraut- in gaf sig undan honum, náðist á flot um hálfátta í gærkvöldi. Varðskipið Ægir dró togarann á flot á flóðinu og gekk dráttur- inn eins og í sögu. Skipið var bundið við bryggju í Reykjavík- urhöfn og virtist lítið skemmt. Mikill viðbúnaður vegna flóðahættu MIKILL viðbúnaður var í sjávar- plássum um allt vestanvert landið í gærkvöldi og nótt vegna yfirvof- andi sjávarflóðahættu nú í morgun. Sjávarstaða hefur sjaldan verið hærri á stórstraumsflóði vegna af- stöðu himintungla og aukinheldur var spáð afar slæmu veðri með tíu til ellefu vindstigum og 12 metra ölduhæð úti fyrir Suðvestur- og Vesturlandi. Allt frá Vestmannaeyjum, vestur um landið og til ísafjarðardjúps hafa lögregla, slökkvilið og björg- unarsveitir verið í viðbragðsstöðu í nótt ef til þess kæmi að sjór gengi á land. Einna mestur viðbúnaður hefur verið í Sandgerði, þar sem varnargarðar við höfnina voru styrktir í gær, og á Flateyri, þar sem neglt hefur verið fyrir glugga Brimnesvegi og Kristján Jóhanns- son sveitarstjóri fór sjálfur á jarð- ýtu upp í hlíðina fyrir ofan bæinn til að ryðja upp vörnum gegn skriðuföllum. Margar fyrirspurnir frá almenningi í mörgum bæjum og þorpum hefur allt lauslegt verið bundið nið- ur og smábátar hafa verið rækilega tjóðraðir við bryggju. Bátseigendur hafa víða vakt í bátunum. Þá hafa Morgunblaðið/Þorkell Varnargarður við höfnina í Sandgerði styrktur með gijóti í gær vegna flóðahættunnar. eigendur húseigna nálægt sjó haft vakt ef sjór tæki að flæða að eða inn í húsin. Að sögn lögreglu- og björgunarsveitarmanna er mikil- vægast að menn haldi vöku sinni og fylgist með sjávarstöðunni. Hjá Almannavörnum ríkisins voru símalínur rauðglóandi í gær- kvöldi vegna hringinga frá almenn- ingi, sem vildi vita hvernig bregð- ast ætti við flóðahættunni. í Reykjavík voru 15-20 starfs- menn gatnamálastjóra til taks ef á þyrfti að halda. Að sögn Guðbjarts Sigfússonar yfirverkfræðings verða einnig stórar dráttarvélar og gröfur til taks, ef gijót berst á land eða loka þarf götum. Nýjar dælustöðvar hafa minnkað mjög hættuna á að flæði upp um niðurföll eða í kjall- ara í Reykjavík. Búizt er við að sjávarhæð verði um 4,7 metrar á háfióði í morgun, eða svipuð og 7. febrúar árið 1970. Þá urðu miklar skemmdir af sjó- gangi í Reykjavík og nágrenni. Öskudagshátíðahöld innandyra? Eitthvað er um að íþrótta- og menningarviðburðum hafi verið af- lýst vegna veðurútlitsins. Þannig hefur Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur aflýst skíðamóti í Blá- fjöllum. Öskudagur er í dag og ekki víst að yngsta kynslóðin hafi gott af útiveru. Búast má við að hátíðahöld barna vegna öskudags- ins verði færð undir þak, að sögn Ómars Einarssonar, framkvæmda- stjóra ÍTR. ■ Veðurstofan varar við/4 Verðfall á ísfiski VERULEG verðlækkun hefur orðið á þorski, ýsu og karfa seldum á fiskmörkuðum heima og erlendis á þessu ári. Verðlækkun á þorski í Bretlandi nemur 28% og 15% hér heima. Svipaða sögu er að segja af verði á ýsu, sem hefur lækkað um 21 til 29% eftir löndum og verð á karfa hefur lækkað um 11 til 13%. Verð á ufsa hefur á hinn bóginn hækkað um 3 til 21%. Þessar upplýsingar koma fram í samantekt Aflamiðlunar á seldum fiski á innlendum og erlendum mörkuðum. í janúar í ár fóru 294 tonn af óunnum þorski til sölu á mörkuðunum í Hull og Grimsby í Englandi. Það er 5 tonnum meira en á sama tíma í fyrra, en verðið lækkaði engu að síður um 28% í krónum talið og var aðeins 130 krónur á kíló. Þorsksala um inn- lendu markaðina jókst hins vegar verulega, fór úr 2.347 tonnum í fyrra í 2.919 tonn nú, sem er 24% aukning. Verðið lækkaði um 15% og var nú 96 krónur á kíló. Mikið framboð og erfið vinnsla Framboð af ýsu í janúar var einnig með allra mesta móti. Til Englands fóru héðan nú 549 tonn á móti 243 í fyrra og er það 126% aukning. Því féll verðið um 21%, fór úr 154 krónum í 122. Sala á ýsu á innlendu mörkuðunum jókst um tæp 60% og nam nú 1.137 tonn- um. Það leiddi til verðlækkunar ásamt miklum erfiðleikum í ýsu- vinnslu. Verðið lækkaði úr 129 krónum í 91, eða um 29%. ■ Veruleg verðlækkun/Bl Morgunblaðið/Halldór FELAGAR í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar greiða at- kvæði í formanns- og stjórnarkjöri í gær. Tæplega helmingur félagsmanna neytti atkvæðisréttar síns. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Kaupfélag Langnesinga gjaldþrota Ollu var lokað fyrirvaralaust Þórshöfn. Morgunblaðið. ÖLLUM deildum Kaupfélags Lang- nesinga á Þórshöfn var lokað fyrir- varalaust síðdegis í gær vegna gjaldþrots félagsins. Rekstrarerfiðleikar hafa verið í mörg ár og haustið 1991 leitaði félagið nauðasamninga, en þeir náðu ekki fram að ganga. Heildar- skuldir félagsins eru 124 milljónir en á móti eru eignir félagsins áætl- aðar um 100 milljónir. Skiptastjóri kom á staðinn í gær og er hann Örlygur Hnefill Jónsson, hdl. Kaupfélag Langnesinga var stofnað árið 1911, nánar tiltekið í mars, svo senn hefði liðið að 85 ára afmæli félagsins. Stofnendur voru bændur úr héraðinu, hugsjóna- menn, sem vildu hag byggðarlags- ins sem mestan. Smám saman urðu umsvif félagsins meiri og byggði Kaupfélagið frystihús og sláturhús og síðar mjólkurstöð. Innlánsdeild var einnig í Kaupfélaginu. Kaupfélagið starfrækti síðustu árin tvær verslanir á Þórshöfn, brauðgerð og skipaafgreiðslu og einnig útibú á Bakkafirði. Fyrr á árum hafði félagið töluvert meira umleikis. Sjöfn endurkjör- in formaður SJÖFN Ingólfsdóttir var í gær endurkjörin formaður í Starfs- mannafélagi Reykjavíkurborgar. Sjöfn hlaut 703 atkvæði, 47,6% gildra atkvæða. Grétar Jón Magn- ússon fékk 534 atkvæði (36,2%) og Marías Sveinsson 240 atkvæði (16,2%). Auð og ógild atkvæði voru 26 talsins. Kjörfundi lauk klukkan 20 í gærkvöldi og úrslit lágu fyrir um eittleytið í nótt. Auk formannskjörs voru greidd atkvæði um fímm sæti af tíu í stjórn Starfsmannafélags Reykja- víkurborgar. Þessi náðu kjöri: Guðrún Guðjónsdóttir (1.016 at- kvæði), Helgi Eiríksson (972 at- kvæði), Jakobína Þórðardóttir (1.233 atkvæði), Jónas Engilberts- son (956 atkvæði) og Óskar D. Ólafsson (1.069 atkvæði). Tæplega helmingur notaði atkvæðisréttinn Tæplega helmingur félags- manna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar neytti atkvæð- isréttar síns, eða 1.503 af um 3.100 sem voru á kjörskrá. Fíkniefnamálið á Keflavíkurflugvelli Tveir menn í gæslu- varðhald WP'tl’ t- "• < TVEIR menn voru á mánudag úr- skurðaðir í 10 daga gæsluvarðhald fyrir fíkniefnasmygl. E’3') t ° ; miilki■■ # V- liiiiíiiiMr ** Imii 1^-ja Samvinna tollgæslunnar á Kefla- víkurflugvelli og fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík leiddi til þess á sunnudag að tveir menn, sem komu með flugi frá Lúxemborg, voru handteknir og síðar tvær kon- ur. Annar mannanna var með tæpt kíló af amfetamíni í fórum sínum og hinn með tæp 400 grömm af amfetamíni og um 800 hvítar töfl- Morgunblaðið/Júlíus Annar mannanna var með tæpt kíló af amfetamíni. ur. í fyrstu var talið að um E-töflur væri að ræða en við efnagreiningu kom í ljós að þær voru amfetamín. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu er enn ekki vitað hvort eða hvernig mennirnir tveir tengjast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.