Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 13 FRÉTTIR Krafa um að biskup víki í deilumáli Biskups- stofa tekur afstöðu síðar BISKUPSSTOFA hefur enn ekki tek- ið formlega afstöðu til kröfu Sigurð- ar G. Guðjónssonar, lögfræðings séra Flóka Kristinssonar, um að biskup Islands víki vegna vanhæfí í Lang- holtskirkjudeilunni, að því er fram kemur í tilkynningu biskupsritara. í tilkynningunni kemur fram að afstaða verði tekin síðar og verði byggð á lögfræðilegu mati Eiríks Tómassonar. Morgunblaðinu hefur ennfremur borist tilkynning frá fjórum vara- mönnum í sóknarnefnd Langholts- kirkju. Fjórmenningarnir, Árni Geir Pálsson, Haraldur Sigurðsson, Ólöf Ólafsdóttir og Guðmundur Gíslason, lýsa yfir furðu sinni á því að fundur hafi verið haldinn í sóknamefnd Langholtskirkju hinn 12. febrúar sl. án þess að varamenn væru boðaðir til fundarins. „Það hefur verið ófrávíkjanleg regla á undanförnum árum að sókn- arnefnd hefur ætíð verið boðuð til fundar heil og óskipt,“ segir í tilkynn- ingunni og óskað er eftir útskýring- um á þessari stefnubreytingu sókn- arnefndar. --------------- Fegurðarsamkeppni íslands Undankeppni haldin á 7 stöðum UNDIRBÚNINGUR fyrir Fegurð- arsamkeppni íslands 1996 stendur nú sem hæst. Að þessu sinni verður undankeppni haldin sjö stöðum á landinu. Fyrsta keppnin að þessu sinni verður haldin á Hótel Valskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 2. mars, en þar fer fram Fegurðarsamkeppni Austurlands. Fegurðardrottning Suðurnesja verður valin í Stapanum í Njarðvík laugardaginn 16. mars. Laugardaginn 23. mars verður feg- urðardrottning Vestíjarða valin í Sjallanum á ísafirði. Föstudaginn 29. mars verða tvær drottningar valdar, fegurðardrottning Norðurlands í Sjallanum á Akureyri og fegurðar- drottning Suðurlands á Hótel Örk í Hveragerði. Fegurðardrottning Vest- urlands verður valin í Félagsheimil- inu í Ólafsvík miðvikudaginn 3. apríl og loks verður fegurðardrottning Reykjavíkur valin á Hótel íslandi föstudaginn 12. apríl. Framkvæmdastjórn Fegurðar- samkeppni íslands skipa Ólafur Laufdal, Helena Jónsdóttir og Elín Geirsdóttir. Við blöndum litinn... DU PONT bílalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bíllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 553 8000 vio hjálpum með þinni Hjálparsjóður Rauða kross Islands veitti 92 milljónum króna til neyðar- og þróunar- aðstoðar erlendis á síðasta starfsári. Félagið svaraði beiðnum um aðstoð frá 53 löndum. Rauði kross íslands gegnir mikilvægu hlutverki í skipulagi Almannavarna ríkisins og á síðasta ári veitti félagið tugum fjölskyldna margs konar aðstoð í kjölfar hörmulegra náttúruhamfara. 50 deildir Rauða kross Islands eiga fjóra af hverjum fimm sjúkrabílum í landinu og árlega eru nær 17 þúsund einstakl- ingar fluttir í bifreiðum deildanna. Þúsund manna komu á nám- skeið á vegum félagsins, flestir á námskeið í skyndihjálp. 700 unglingar hafa dvalið í Rauðakrosshúsinu - neyðar- athvarfi fyrir börn og ung- linga, og 34 þúsund manns hafa hringt í trúnaðar- símann - 800 5151. Um 20 manns koma að meðaltali á degi hverjum í Vin - athvarf fyrir geðfatlaða. Félagið hefur aðstoðað flótta- menn hér á landi í áratugi. Rauði kross fslands er helsti styrktaraðili Alnæmissam- takanna og styður við ýmsa aðra starfsemi í þágu þeirra sem minna mega sín. Árlega dvelja um 800 manns á Sjúkrahóteli RKÍ. .og utan Öskudagurinn er fjáröflunardagur deilda Rauða kross íslands. Þú getur lagt okkur lið með því að kaupa penna í dag. Félagið stendur að þróunar- verkefnum í Lesótó, Mós- ambík, Gambíu og Palestínu. Árlega eru um 20 sendi- fulltrúar við margvísleg hjálparstörf erlendis. RAUÐI KROSS ISLANDS A plús, auglýsingastola ehl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.