Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 21 GUÐJÓN Rúdólf leikur á hátíðinni. Listahátíð Sköllóttu trommunnar Fljúg’andi fíll Konur skelfa V eggspjaldasýning í Borgarleikhúsinu í TILEFNI af leikritinu Konur skelfa eftir Hlín Agnarsdóttur sem Al- heimsleikhúsið sýnir nú í Borgarleik- húsinu er sýning á auglýsingavegg- spjöldum sem nemendur á jokaári í grafískri hönnun við MHI gerðu. Verkefnið fór þannig fram að nem- endur lásu handritið, komu á æfing- ar, túlkuðu efni verksins og unnu veggspjöld út frá hugmyndum sínum. Guðmundur Oddur er deildarstjóri í grafískri hönnun við MHÍ. Hann segir tilgang verkefnis af þessu tagi vera þann að gefa nemendum kost á að vinna raunveruleg verkefni og sýna fram á að menntaðir hönnuðir geti gert eftirtektarverð og skemmti- leg leikhúsplaköt en hingað til hafi þessari listgrein ekki verið gert hátt undir höfði í leikhúsum á Islandi. í leikhúsinu á sér stað samstarf ólíkra listgreina og telur Guðmundur að grafísk hönnun eigi heima í því sam- starfi og ætti að vinna á vettvangi leikhússins við að kynna leikhús- starfsemi. Þannig er veggspjalda- gerð fyrir leikhús sérstök listgrein sem hefur lítið verið stunduð hér á landi og miðað við hefðina sem fyrir er í Evrópu, en þaðan koma mörg þekkt leikhúsveggspjöld. Sýningin á veggspjöldunum úr leikritinu Konur skelfa hangir fyrir ofan kvennakló- settin í Borgarleikhúsinu. Uppselt hefur verið á allar sýning- ar og verið er að bæta við aukasýn- ingum. Á næstunni gefur Alheims- leikhúsið út hljómdiskinn Konur skelfa með tónlist úr leikritinu eftir hljómsveitina „Skárren ekkert.“ FIMMTUDAGINN 22. febrúar verður „árlegur listviðburður Sköllóttu trommunnar" haldinn í sjöunda skipti á Veitingahúsinu 22 við Laugaveg. Aðalhvatamað- ur þessarar árlegu listahátíðar frá upphafi er klarinettuleikar- inn Guðjón Rúdólf Guðmundsson sem einnig er kunnur sem trúbadorinn Guðjón Bakviðtjöld- in. „Það sem einkennt hefur þennan listviðburð frá upphafi er að þar hafa komið fram fram- sæknir tónlistar- og gerninga- menn og skáldmenni sem ekki hefur alltaf farið hátt um í opin- berri menningu“, segir í kynn- ingu. Að þessu sinni verður afmælis- dagskráin mjög fjölbreytt. Þeir sem koma fram eru trúbadorinn GG. Gunn, Bogga, Tryggvi Han- sen með Seiðbandinu, séra Isleif- ur og Englabörnin, dúettinn Súkkat, rafmagnsbandið Inferno 5 sem flytur „instrumental tón- list“, og gleði- og blástursbandið Kíkóti og vindmyllurnar. Hljóm- sveitin Kjöttromman kynnir nýtt efni auk laga af plötunni Exem. Kokkur Kyijan Kvæsir mun „kvæsa vísdómi sínum“ og skáld- in Þorri, Róska og Rússinn Dim- itrii flylja ljóð. Hljómsveitin Sköllótta tromman leikur og að lokum hljómsveitin INRI. Forsala aðgöngumiða á 200 kr. er á Veitingahúsinu 22, en miðaverð við innganginn er 300 kr. Skemmtunin hefst kl. 22. KVIKMYNDIR S a g a bí,ó DUMBO-AÐGERÐIN „Operation Dumbo Drop“ ★ ★ Leikstjóri: Simon Wincer. Aðalhlutverk: Danny Glover, Ray Liotta, Denis Leary. Walt Disney. 1995. VÍETNAMSTRÍÐIÐ . hefur hingað til ekki verið vettvangur Disneymynda. Svokallaðar Víet- nammyndir hafa lýst tortímingu og skelf- ingu stríðsins frá ýmsum sjónarhorn- um en lítið pláss hef- ur verið fyrir gaman- mál. Nú eru breyttir tímar og framleitt hefur verið Disney- ævintýri sem gerist í þessu alræmda stríði. Myndin heitir Dumbo-aðgerðin og er samin mjög í anda Disneyhefðarinnar sem fjölskyldu- skemmtun, gaman- mynd og mynd með þekkilegan sáttaboðskap fyrir alla. Dumbó-aðgerðin segir af því hvernig hinir kærleiksríku banda- rísku hermenn fórna frama sínum í hernum til að koma fíl úr einu héraði í annað og efna þannig loforð við þorpsbúa og vini, sem glatað hafa fíl sínum. Þetta er skondin sendiför og hermennirnir, sem m.a. Ray Liotta, Danny Glo- ver og Denis Leary leika, lenda í fjölmörgum ævintýrum á leið sinni með skepnuna í gegnum óvinasvæði hvort sem þeir eru með fast land undir fótum, á fljótabát eða skýjum ofar á fíla- ferðalagi sínu. í hópinn slæðist víetnamskur drengur, eigandi fíls- ins, en hann er hin unga Disney- hetja sem veldur straumhvörfum í lífí hermannanna. Sá ágæti leikstjóri Simon Winc- er leikstýrir með alla áherslu á fjölskyldugildi myndarinnar. Það deyr enginn í þessu gamni, sem mun byggt að einhverju leyti á sannsögulegum at- burðum, og jafnvel óvinurinn fær á sig mennskan svip. Hann er ekki það óbermi sem við eig- um að venjast úr V íetnammyndunum þótt vissulega sé búin til spenna í kringum eltingarleik hans við fílaflutn- inginn. Myndin sver sig mun meira í ætt við meinlausa stríðs- gamanmynd eins og Hetjur Kellys en háðsádeilu eins og M.A.S.H. Þeir Liotta og Glover fara ágætlega með hlutverkin sem andstæðingar í byrjun er bindast vinaböndum. Um það snýst þessi Disneymynd, að bindast vina- böndum, og hún er ágæt til síns brúks þótt hún sé væmin á köflum og einfaldi grimmilegan stríðs- rekstur. Arnaldur Indriðason Bláir eru dalir þínir NÚ Á þorranum kom út nýr hljóm- diskur með 9 tónverkum tónskáldsins Skúla Halldórssonar, sem nefnist „Bláir eru dalir þínir“. Skúli tók lokapróf í tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1947 og hefur verið afkastamikið tónskáld æ síðan. „Mörg sönglaga hans eru löngu orðin þjóðfræg, en Skúli hefur einnig samið píanóverk og hljómsveitarverk og koma nokkur þeirra nú út í fyrsta sinn á þessum hljóm- diski. Meðal hljóm- sveitarverkanna skal fyrst tilgreina „Gos í Heimaey" sem Skúli samdi til að minnast hinna óvæntu atburða sem urðu þegar hraunsprunga opnað- ist á Heimaey 23. jan- úar 1973. Einnig má nefna annað sögulegt hljómsveitarverk, „Pourquoi pas?“, sem samið er við samnefnt ljóð Vilhjáims frá Ská- holti og fíallar um af- drif franska hafrann- sóknarskipsins Pourquoi pas? sem fórst við Mýrar árið 1936. Þá þykir mikill fengur í Sinfóníu nr. 1, „Heimurinn okkar“, sem hljóðrituð var árið 1985, en þessi sinfónía hef- ur ekki verið gefin út áður,“ segir í kynningu. Þar segir jafnframt: „Skúli er sennilega kunnastur fyrir hin auð- lærðu sönglög sín sem hvert manns- barn þekkir. Honum lætur einkar vel að semja sönglög við ljóð helstu skálda okkar og þar eru ljóð skáid- mæltra forfeðra hans engin undán- tekning. Á þessum hljómdiski má til að mynda finna lag Skúlar við ljóðið „Stúlkan mín“ eftir langafa hans Jón Thoroddsen sem og lag við ljóðið „Að vestan" eftir ömmu hans Theódóru Thoroddsen. Einnig má geta tveggja annarra laga. „Við svala lind“ við ljóð Páls J. Árdal og „Hörpusveinn" við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Þá hefur Skúli samið lög við þtjú ljóða Hannesar Péturssonar skálds, en það eru ljóðin „Söngvarinn er horfinn", „Skeljar" og titillagið „Bláir eru dal- ir þínir. Það er einvalalið söngvara sem kemur við sögu á hljómdisknum, J).e. Kristinn Hallsson, Ásta Thorsteinsson, Magn- ús Jónsson og Sigríður Gröndal. Skúli Hall- dórsson annast sjálfur undirleik í öllum söng- lögunum, en Sinfóníu- hljómsveit íslands leik- ur hljómsveitarverkin undir stjórn Páls P. Pálssonar og Jean- Pierre Jacquillat. Allar upptökurnar voru gerðar af tæknimönn- um Ríkisútvarpsins á rúmlega tveggja ára- tuga tímabiii, Hljómdiskurinn „Bláir eru dalir þínir“ gefur fróðlega svipmynd af tónsmíð- um Skúla Halldórssonar í gegnum tíðina og kemur hann út í beinu fram- haldi af hljómdisknum „Út um græna grundu" sem kom út á síðasta ári. Við vinnslu hljómdisksins naut Skúli dyggrar aðstoðar Mána Siguijóns- sonar og Hreins Valdimarssonar hjá Ríkisútvarpinu. Skúli valdi sjálfur þá tónlist sem finna má á disknum og það var Jónatan Garðarsson sem hafði umsjón með útgáfunni í félagi við tónskáldið.“ Umslagið var unnið hjá Prisma, en Sony DADC annaðist framleiðslu og prentun. Það er Skúlaútgáfan sem gefur út hljómdiskinn „Bláir eru dal- ir þínir“, en Spor hf. annast dreif- ingu. Skúli Halldórsson -dekraðu við þig VÁIÍIA' 6 o\> B-K I CHOlOLight er „léttur“ súkkulaðidrykkur, hver bolli inniheldur einungis 40 hitaeiningar og er þess vegna skynsamlegur kostur ef þú ert að hugsa um línurnar. Prófaðu B-K-l CHOHOLight næstþegar þig langar í eitthvað gott. Fæst í 2 Ijúffengum bragðtegundum. Ekta mjólkursúkkulaði- og appelsínubragð. 2 mæliskeiðar i bollann 80°C heitu vatni hellt yfir og hrært - einfaldara getur það varla verið B-K-l CHOKOUGHT Einstaklega bragðgott III íslensk///// Ameríska

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.