Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐRUN SVEINSDOTTIR + Petrína Guðrún Sveinsdóttir fæddist á Hjalla- bakka í Húnavatns- sýslu 27. desember 1909. HtFn lést á öldrunardeild Landakotsspítala 22. janúar síðastlið- inn. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey. AÐ MORGNI 22. jan- úar lést langamma barna minna, þá á átt- ugasta og sjöunda ald- ursári, og amma mannsins míns. Þegar ég sest nú nið- ur til að rita kveðjulín- ur þá sé ég fyrir mér aldraða dugnaðar- og sómakonu sem var faðmur margra bama í gegnum ævina. Guð- rún ól ekki bara sín eigin böm upp heldur tók hún eitt barnabam sitt, Kristján Valdimarsson, að sér frá blautu barnsbeini og ól hann upp sem sitt eigið barn. Árið 1969 dó ein dóttir Guðrúnar, móðir Kristjáns, aðeins 26 ára gömul frá þremur ungum bömum sem ólust upp hjá henni. Voru þessir timar erfiðir fyrir börnin, sem vora Guð- rún, 3 ára, Sigurður, 10 ára, og Dagný, 11 ára. En faðmur Guðrún- ar var stór, og tók hún börnin til sín norður að Miðsitju í Skagafirði á hvetju sumri alla þeirra barnæsku og unglingsár og eiga þau góðar og dýrmætar minningar frá þeim tíma ásamt öðrum barnabörnum, frændsystkinum og vinabörnum. Árið 1974 flutti Guðrún til Lilju dóttur sinnar og þegar ég kem inn í fjölskylduna þá var hún flutt að Njálsgötu 13b í Reykjavík. Af mikl- um drengskap og dugnaði hafði Lilja útbúið íbúð í kjallaranum handa móður sinni og var það hreykin móðir sem talaði þegar Lilju bar á góma. Guðrún las mikið og hafði yndi af söng sem elsta dóttir okkar, hún Lilja Rut, varð aðnjótandi í fangi ömmu sinnar, er við komum í heim- sókn. Margar áttum við stundirnar saman tvær einar í þau ellefu ár sem ég átti með henni og þótt glað- værð og trygglyndi væra aðalein- kenni hennar, þá var eins og svart- asta skammdegið drægi upp minn- ingar um löngu liðna atburði, sem oft komu upp á yfirborðið, er við vorum einar saman og gerðu hana dapra og viðkvæma. Minningamar um Guðrúnu eru óteljandi, og margt sem á eftir að minna okkur á hana í framtíðinni til að segja börnum okkar. Hennar tími var kominn til að kveðja. Elsku Guðrún mín, megi guð og góðar vættir varðveita þig á nýjum heimaslóðum, og þakka þér fyrir öll þau ár sem við áttum saman. Elsku Kiddi, Gulla, Lilja og fjöl- skyldur, ásamt öðrum barnabörnum og ættingjum, megi guð styrkja ykkur öll. Ég, Siggi og börnin okkar send- um ykkur samúðarkveðjur. Megi minningin um góða langömmu, ömmu og mömmu ylja ykkur um ókomna tíð. Sigríður Ásgeirsdóttir. RAÐAUGÍ YSINGAR Járnsmiður Járnsmiður eða maður, vanur járnsmíðavinnu, óskast strax við nýsmíði. Framtíðarstarf. Svör sendist afgreiðslu Mbl., merkt: „J - 4010“, fyrir 1. mars. AUGLÝSINGASTOFA REYKJAVÍKUR ALHLIÐA AUGLVSINGAGERB STOfNSETT 1991 v Auglýsingastofa Reykjavíkur er framsækið fyrirtæki sem auk hefðbundinnar hönnunar hefur sérhæft sig í þjónustu við útflutningsfyrirtæki og vefsmíði á Internetinu. Framundan eru spennandi tímar þar sem fyrirtækið er m.a. að stíga sín fyrstu skref t útflutningi á þekkingu sinni. Við viljum ráða: Góða grafíska hönnuði. Reynsla og þekking á notkun helstu teikni- og mynd- vinnsluforrita er nauðsynleg. Vefsmiði fyrir Internetið. Þekking á html og UNIX umhverfi er forsenda. Við leggjum ríka áherslu á að kröfum h ef ð b u n d i n n a r hönnunar sé fullnægt og er því nauðsynlegt að vefsmiðirnir hafi þekkingu og reynslu af myndvinnslu. Sími: 562 4050 Fax: 562 8999 Tölvupóstur: webmaster@arctic.is Tlt SÖIU Matvara - söluturn - myndbönd Erum með söluturn til sölu sem selur mat- vöru, myndbönd, Lottó o.fl. Þetta er upplagt tækifæri fyrir aðila, sem vilja skapa sér og sínum góða vinnu og afkomu. Hóll - fyrirtækjasala, Skipholti 50b, sími 551 9400. Söngáhugamenn! Snæfellingakórinn í Reykjavík bráðvantar karlaraddir, aðallega bassa. Kórinn, sem er samsettur af hressu og skemmtilegu fólki á öllum aldri, æfir á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.15 til 22.15 í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Eggert, hs. 557 9153, vs. 552 8555 eða Sigurð í s. 551 4737. Stjórnin. Sjálfsbjörg í Reykjavík og nágrenni heldur fund með þeim, sem fengið hafa Polio (mænuveiki), í félagsheimilinu, Hátuni 12, í dag, miðvikudaginn 21. febrúar, kl. 20.00. Gísli Einarsson, læknir flytur erindi. Umræður. C Landsvirkjun Forval Endurnýjun á stjórn- og varnarbúnaði Landsvirkjun óskar hér með eftir umsóknum verktaka um að fá að taka þátt í lokuðu út- boði vegna endurnýjunar á stjórn- og varnar- búnaði fyrir Ljósafossstöð, írafossstöð og Steingrímsstöð í samræmi við forvalsgögn SOG-06. Verkið felur m.a. í sér deilihönnun, efnisút- vegun, framleiðslu, samsetningu og prófun á stjórn- og varnarbúnaði fyrir 8 vélasam- stæður, 3 tengivirki og 8 lokuvirki auk tilheyr- andi hjálparbúnaðar í stöðvunum öllum. Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu Lands- virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 14. febrúar 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð 3.000 krónur m. vsk. fyrir hvert eintak. Umsóknum skal skila á skrifstofu Landsvirkj- unar í Reykjavík fyrir kl. 12.00 mánudaginn 18. mars 1996. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Hvöt Almennur félagsfundur veröur haldinn í Valhöll fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 20.30. Efni fundarins verður konan og nútíminn. Frummælendur verða Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi, og Sól- veig Pétursdóttir, alþingismaður. Fundarstjóri verður Erna Hauksdóttir, viðskiptafræðingur. Fundurinn er opinn félagsmönnum Hvatar og gestum þeirra. Mætum stundvíslega og tökum virkan*þátt í umræðum. Stjórnin. Stefnir ígjaldþrot heilbrigðiskerfisins? Hver ervandinn? Hverjir eru valkostirnir? Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik - efnir til al- mennsfundará Hótel Borg ídag, miðvikudaginn 21. febrúar, kl. 17.15. Framsögumenn: Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður, og Sturla Böðvarsson, alþing- ismaður og varaformaður fjárveitinganefndar. Fundarstjóri: Ásta Möller, form. heilbrigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins. Allir velkomnir. Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík. auglýsingor I.O.O.F.9 = 1772218'h = I.O.O.F. 7 = 17702218'/2=BRK. □ GLITNIR 5996022119 I 1 FRL.ATKV □ HELGAFELL 5996022119 VI 2 Frl. Hörgshlíð 12 Bænastund í kvöld kl. 20.00. Skíðafélag Reykjavíkur Reykjavíkurmeistaramótið 115 km skíðagöngu verður haldið i Bláfjöllum nk. laugardag, 24. febr., kl. 14. Skráning og upplýsingar í síma 551-2371 fyrir kl. 20 föstudags- kvöldið 23. febr. Frjáls aðferö. Skiðafélag Reykjavikur. REGLA MDSTERISRIDDARA RMHekla , 14.2. HS - MT SAMBAND ÍSLEN2KRA KRISTTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum. Ræðumaöur: Sr. Ólafur Jóhannsson. Allir velkomnir. A SÁLARRANNSÓKNAR- FÉLA6IÐ í HAFNARFIRÐI Sálarrannsóknafélagið í Haf narfirði heldur skyggnilýsingafund í „Gúttó" annað kvöld, fimmtu- daginn 22. febrúar, kl. 20.30. Skyggnilýsinguna annast Þór- hallur Guðmundsson, miðill. Aðgöngumiðar fást i Bókabúð Oliver Steins, sími 555 0045. Stjórnin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Lofgjörð, bæn og biblíulestur í kvöld kl. 20.00. Ræðumaður John Wíldrianne. Allir hjartanlega velkomnir. Xrislið samlélag Samkoma með Wynne Goss í Góötemplarahúsinu, Suðurgötu 7, Hafnarfirði, í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. FERÐAFÉLAG % ÍSLANDS MORKINNI 6 - SlMI 568-2533 Miðvikudagur 21. febr. kl. 20 Fræðslukvöld Ferðabúnaður til fjalia Annað fræðslukvöld vetrarins i samvinnu við Landsbjörgu veröur í félagsheimili F.í. í Mörkinni 6 (stóra sal í miöju) og hefst það kl. 20.30. Fyrirlestur um klæðnaö og ferða- útbúnað til fjallaferða. Aldrei veröur of brýnt fyrir ferða- fólki að búa sig vel til útiveru og fjallaferöa. Aðgangseyrir 1.000 kr. og fylgir rit Landsbjarg- ar um almenna ferðamennsku með. Allir velkomnir, félagar sem aðrir. Ferðafélag islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.