Morgunblaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 19
*'2va<
Vetrarhörkur um mestalla Evrópu
Samgöngur úr
skorðum og
miklar slysfarir
ERLENT
Reuter
Kosið í New Hampshire
FORKOSNIN G AR Repúblik-
anaflokksins voru haldnar í
New Hampshire í gær en þær
hafa löngum verið taldar gefa
góða vísbendingu um það, hver
sé líklegur til að ná útnefningu
sem forsetaefni.
íbúar bæjarins Dixville
Notch voru þeir fyrstu er
greiddu atkvæði í gærmorgun
ena vilja fá sérákvæði um að erlent
herlið verði ekki staðsett á land-
svæði þeirra.
Rúmenar neituðu á sínum tíma
að erlent herlið hefði bækistöðvar
í landinu er þeir voru í Varsjár-
bandalaginu. Ráðamenn í Búkarest
munu þó hafa gefið í skyn að þeir
myndu slaka til í þessum efnum ef
þannig mætti ná jafnvægi milli
tveggja sjónarmiða, annars vegar
traustum tengslum við vestræn ríki
og hins vegar góðum samskiptum
við Rússland og Úkraínu.
líkt og hefð er fyrir. Talning
atkvæða gekk hratt og vel fyr-
ir sig enda einungis 20 sem
greiddu atkvæði. Allir íbúarnir
vinna á hóteli í Hvítufjöllum,
skammt frá kanadísku landa-
mærunum.
Bob Dole, forseti öldunga-
deildarinnar, hlaut ellefu at-
kvæði og var því efstur í próf-
Varaður við
ÞÝSKIR fjölmiðlar og stjórnarand-
stöðuleiðtogar vöruðu í gær Helmut
Kohl kanslara við því að ieggja allt
undir í stuðningi við Borís Jeltsín
Rússlandsforseta er berst fyrir end-
urkjöri í júní. Bent var á að kanslar-
inn hefði fyrir opinbera heimsókn
sína til Rússlands, sem nú stendur
yfir, fullyrt að hún hefði ekkert með
kosningabaráttuna að gera en lýst
síðan einlægum stuðningi við Jeltsín
kjörinu. Lamar Alexander,
fyrrum ríkissljóri Tennessee,
var annar með fimm atkvæði
og Pat Buchanan þriðji með
einungis tvö atkvæði.
Demókratar héldu einnig
forkosningar í Néw Hampshire
í gær og hlaut Bill Clinton öll
greidd atkvæði, fimm talsins, í
Dixville Notch.
hlutdrægni
í Moskvu. Þýski kanslarinn hittir
ekki forystumenn stjórnarandstöð-
unnar í Rússlandi í för sinni.
„Það mun koma í ljós hvort hlut-
drægni af þessu tagi, sem reyndar
nýtur stuðnings í Washington og
París, muni þegar upp er staðið verða
leiðtoganum í Kreml að liði,“ sagði
í leiðara Frankfurter Allgemeine
Zeitung. Á myndinni sjást Kohl og
Jeltsín með eiginkonum sínum.
Kaupmannahöfn, London, Kiev. Reuter.
KAFALDSBYLUR með miklu frosti
olli verulegum erfiðleikum í Dan-
mörku og Suður-Svíþjóð í gær og
fóru samgöngur úr skorðum og
skólum var lokað. Mikið snjóaði
einnig í stórum hlutum Frakklands
og allt suður á Spán og í Úkraínu
hafa hundruð manna orðið úti.
Þrátt fyrir bylinn urðu engar
truflanir á flugi til og frá Kaup-
mannahöfn en miklar tafir urðu á
ferðum dönsku járnbrautanna og
ferjanna yfir Eyrarsund, einkum
hraðferjanna. Stóru bílferjunum
gékk betur en þó hefur ferðum ver-
ið hætt á nokkrum leiðum milli Sjá-
lands og Jótlandsskaga.
Snjóar eru nú meiri á Jótlandi
en um áratugaskeið og ekki hefur
það bætt úr, að frostið hefur verið
meira en 10 gráður síðustu daga
og hvassviðri að auki. Sömu sögu
er að segja frá Suður-Svíþjóð, sem
sleppur þó yfirleitt vel við verstu
vetrarveðrin þar í landi.
Frakkar í vandræðum
Snjór, ísing og hávaðarok ollu
vandræðum í Frakklandi í gær og
trufluðu flugsamgöngur og ferju-
siglingar yfir Ermarsund. Víða
stöðvaðist umferð vegna snjókom-
unnar og ísingar en bifreiðar eru
almennt vanbúnar til aksturs við
þessar aðstæður.
Hundruð manna hafa látið lífið
í mestu kuldum í Úkraínu um ára-
tugaskeið. Er aðallega um að ræða
utangarðsfólk, sem orðið hefur úti
í görðum, undir bním og í undir-
göngum og mörg dæmi eru um, að
fólk hafi frosið til dauðs í anddyri
húsa.
Síðustu daga hefur frostið verið
um 25 stig og horfur eru á, að enn
bæti á snjóinn. Jafnvel á Krímskaga
þar sem vetur eru yfirleitt mildir
hafa 89 manns látist vegna kulda.
Mörg dauðsfallanna er sögð stafa
af því, að útigangsfólk hefur verið
rekið út í frostið af járnbrautar-
stöðvum og öðrum slíkum stöðum.
Slysaalda í Þýskalandi
Um miðjan dag í gær var vitað
um meira en 1.100 umferðarslys í
Þýskalandi og voru þau flest rakin
til ófærðar og ísingar á vegum. Var
ástandið verst í Slésvík-Holstein.
Nálægt Plön bannaði lögreglan alla
bifreiðaumferð vegna ástandsins og
hótaði að sekta þá, sem brytu gegn
því, um 45.000 kr. Vitað var um
nokkur dauðsföll í umferðinni í gær
og nokkrir tugir manna slösuðust.
í Bretlandi var hið versta veður
í gær og sums staðar varð fólk að
flýja hús sín við sjávarsíðuna vegna
brimskaflanna, sem gengu langt
upp á land. Annars staðar lokuðust
vegir vegna skafrennings. íbúar
Bretlandseyja muna ekki annan
vetur líkan þessum en i gær fór
frostið víða niður fyrir 14 stig.
Rúmenía
Andvígir
erlendu
herliði
RÚMENAR hafa þokast nær því
að verða fullgildir aðilar að Atlants-
hafsbandalagsinu, NATO, að sögn
Dumutru Cioflina, forseta rúm-
enska herráðsins. Rússneska dag-
blaðið Moscow Tribune segir Rúm-
Reuter
Finna mikið magn
sprengiefna
London. Reuter.
BRESKA lögreglan greindi frá því
í gær að mikið magn af sprengi-
búnaði og sprengiefni hefði fundist
við húsleitir er gerðar voru aðfara-
nótt þriðjudagsins. Engar handtök-
ur fóru þó fram.
Þá sagðist breska og írska út-
varpið hafa heimildir fyrir því að
farþegi, sem særðist er sprengja
sprakk í miðborg London á sunnu-
dagskvöld og talið var að kynni
að tengjast sprengingunni, lægi
ekki lengur undir grun. Lögregla
vildi þó ekki staðfesta það.
Talið er að maður sem fórst í
sprengingunni hafi verið að flytja
sprengjuna á milli staða. írski Iýð-
veldisherinn hefur lýst yfir ábyrgð
á ódæðinu.
Tveimur mönnum, er handteknir
voru á mánudagskvöld, var í gær
sleppt úr haldi án þess ákæra á
hendur þeim væri lögð fram.
Lögreglumenn eru enn að rann-
saka leifar strætisvagnsins og hef-
ur blaðið The Guavdian það eftir
heimildum innan lögreglunnar að
hugsanlega kunni sömu menn að
hafa verið að verki við þessa
sprengingu og er sprengja sprakk
í Docklands-hverfinu fyrr í mánuð-
inum.
FRÆÐSLA * SPENNA ♦ HU6VIT * MANNBÓT * AFÞREYINC * VISINDI * SKALDSKAPUR * HEILAFÓÐUR
BOKAMARKAÐUR
FELACS ISLEN5KRA / /Eh|
_ * _________ J " __
BÓKAÚTCEFENDA ^ W
VERDUR HALDINN
í PERLUNNt
m, ..idaca1 -
... v X.W1 4
■m< a
x ° >f
\a y * **
\ f*. A\
> BOJSATITLAR
SKEMMTUN * UTIVIST * AHUCAVERT♦ DULSPEKI ♦ TÆKNI ♦ LANDSLAÓ * FERÐALOÓ ♦ IÞROTTIR* A\ATUR