Morgunblaðið - 21.02.1996, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimilisleg þjónusta
Sparisjóðs Ónfirðinga
FRETTARITARI Morgun-
blaðsins á Flateyri átti fyrir
skömmu erindi í Sparisjóð
Önfirðinga á Flateyri. Vatt sér
þá inn úr dyrunum Einar Odd-
ur Kristjánsson, alþingismað-
ur og Flateyringur, og hugðist
ganga frá bankaviðskiptum
við næsta gjaldkera. Hann átt-
aði sig hins vegar fjótlega á
því að hann hafði gleymt gler-
augunum heima og var því í
mesta basli með að ganga frá
sínum málum. Gjaldkerinn
dró þá upp úr skúffu sinni
forláta kvenmannsgleraugu
sem einhver hafði gleymt í
bankanum fyrir langalöngu.
Einar Oddur skellti þeim á
nefið og kláraði sín viðskipti.
Margir, sem lent hafa í svip-
aðri aðstöðu og Einar Oddur,
hafa notað gleraugun. Til
gamans má þess geta að við-
Morgunblaðið Egill
GLERAUGUN góðu.
skiptamenn Sparisjóðsins fara
úr skóm sínum, háir sem Iág-
ir, áður en þeir hitta banka-
sljórann á Flateyri. Ekki fara
sögur af því hver viðbrögð
bankastjórans verða sé þessi
regla brotin.
Lögreglan fylgist
með kerrum
LÖGREGLAN á Suðvesturlandi ætl-
ar í dag og á morgun að huga að
eftirvögnum eða kerrum. Sérstak-
lega er ætlunin að kanna ástandið
á snjósleðakerrum, svo sem ljósa-
og hemlabúnað og skoðun.
Eftirvagnar, þar á meðal snjó-
sleðakerrur, sem eru yfir 750 kíló
af leyfðri heildarþynd eru skráning-
arskyidir. í frétt frá samstarfsnefnd
lögreglunnar á Suðvesturlandi í
umferðarmálum kemur fram að
flestar snjósleðakerrur séu yfir 750
kg en undir 1.500 kg að leyfðri heild-
arþynd. Því er fullnægjandi að þær
séu með ýtihemli og öryggistengingu
(keðju eða vír) á milli dráttartækis
og beislis eftirvagns.
Sami Ijósabúnaður og á bifreið
Aftan á snjósleðakerru á að vera
sami ljósabúnaður og krafist er aftan
á bifreið. Ef breidd kerrunnar er
meiri en 1,6 m eiga að vera tvö fram-
vísandi stöðuljós á henni. Aftan á
kerrunni eiga að vera a.m.k. tvö
rauð þríhyrnd glitaugu, á hvorri hlið
a.m.k. eitt glitauga og að framan
a.m.k. tvö hvít glitaugu. Svo má
bæta við framvísandi stefnuljósum
og stefnuljósum á hliðum kerrunnar.
Einnig afturvísandi bakkljósum,
auka hemlaljósum, þokuafturljósum
og auka stöðuljósum.
Breidd bifreiðar og eftirvagns má
ekki vera meiri en 2,55 metrar.
Snjósleðakerru skal skoða al-
mennri skoðun á þriðja ári eftir að
hún var skráð fyrsta sinni og síðan
árlega frá og með fimmta ári eftir
að hún var skráð fyrsta sinni.
Það er von lögreglunnar að eig-
endur og umráðamenn eftirvagna
gæti þess jafnan að tækin uppfylli
skilyrði reglugerðar um gerð og
búnað ökutækja.
Ályktun borgarráðs
Ráðherra
og kennar-
ar leysi sín
deilumál
BORGARRÁÐ hvetur fjármálaráð-
herra og fulltrúa samtaka kennara
til að leysa deilur sínar sem fyrst svo
áfram verði unnt að vinna að yfir-
færslu í samræmi við ákvæði grunn-
skólalaga í góðu samstarfi allra.
Ályktun þessa efnis var samþykkt
samhljóða á fundi borgarráðs í gær.
Borgarráð lýsir áhvggjum sínum
vegna deilu ráðherra og samtaka
kennara og leitt hefur til þess að
kennarar hafa dregið sig út úr samn-
ingaviðræðum um yfirfærslu grunn-
skólans frá ríki til sveitarfélaga.
Góð samvinna
í áliti borgarráðs kemur fram að
góð samvinna hafi verið milli ríkis,
sveitarfélaga og kennara um undir-
búning yfirfærslu grunnskólans og
að borgaryfirvöld hafí lagt mikla
vinnu í undirbúning málsins. Viðræð-
ur ríkis og sveitarfélaga, m.a. um
kostnaðarskiptingu, fari fram undir
breyttum forsendum, komi samtök
kennara ekki að málinu á nýjan leik.
Núverandi staða gæti stefnt flutningi
grunnskólans og stöðu sveitarfélaga
í óvissu, sem brýnt væri að eyða.
----------»■»—♦----
NýtingHafnarhússins
Tillögnr í
borgarráði
TILLÖGUR starfshóps um nýtingu
Hafnarhússins voru kynntar á fundi
borgarráðs í gær.
Að sögn Jóns Kristjánssonar
starfsmannastjóra og fundarritara,
verða þær afgreiddar síðar.
Gert er ráð fyrir að um 3.500
fermetra húsnæði verði keypt í
Hafnarhúsinu og fengið Listasafni
Reykjavíkur til umráða. Kaupverð
er áætlað um 110 milljónir, sem.
greiðist samkvæmt samkomulagi
hafnar og borgar. Gert er ráð fyrir
að þar verði safn Errós.
Andri Már Ingólfsson um mexíkóska flugfélagið Taesa
Itrekað fengið staðfest-
ingu á öryggi fyrirtækisins
„GREININ dæmir sig í rauninni sjálf
því textinn er ekki í neinu samræmi
við listann. í textanum er sérstök
áhersla lögð á að hvergi séu gerðar
strangari kröfur um öryggi í fiugi
en i Bandaríkjunum og tekið er fram
að mörg flugfélög í Evrópu standist
ekki bandaríska staðla. Samt er
Taesa, sem flýgur til 11 áfangastaða
í Bandaríkjunum, án nokkurs rökst-
uðnings sett á lista yfir flugfélög
sem varað er við annars staðar í
greininni," segir Andri Már Ingólfs-
son, forstjóri Heimsferða, um grein
um flugöryggi í þýska tímaritinu
Focus. I greininni er m.a. varað við
mexíkóska flugfélaginu Taesa. Vitn-
að er í greinina í Morgunblaðinu sl.
laugardag.
Andri Már sagðist aðeins skipta
við Taesa af því hann teldi sig hafa
fullvissu fyrir því að flugfélagið
stæðist ítrustu öryggiskröfur.
„Ég myndi ekki skipta við Taesa
nema af því að ég hefi ítrekað feng-
ið staðfestingu á því að fyrirtækið
væri öryggt. Nú síðast veittu íslensk
flugmálayfirvöld fyrirtækinu áfram-
haldandi réttindi til að fljúga til og
frá landinu. Hins vegar legg ég
mesta áherslu á réttindi fyrirtækis-
ins til að fljúga í Bandaríkjunum
enda eru hvergi gerðar strangari
kröfur og í greininni kemur m.a.
fram að ekkert flugfélag frá Dómin-
íkanska lýðveldinu hafi leyfí til að
fljúga á flugstjórnarsvæði Banda-
ríkjanna. Flugfélagið skiptir við við-
haldsstöð Delta flugfélagsins eða
eina bestu viðhaldsstöð í heiminu,"
sagði Andri Már en Taesa flýgur
m.a. til Boston, Las Vegas, New
York og Seattle í Bandaríkjunum.
Af áfangastöðum í Kanada má nefna
Calgary, Halifax, Toronto og Mon-
treal. Áfangastaðir í Evrópu er m.a.
Brússel, Barcelona, Madrid og Vín-
arborg.
Á traustum grunni
Jens Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Loftferðaeftirlitsins, sagðist
ekki hafa nægjanlegar upplýsingar
á hveiju listinn væri byggður til að
geta tjáð sig um hann sérstaklega.
„Ég get hins vegar sagt almennt
að hlutverk Loftferðaeftirlitsins felst
í því að tryggja öryggi íslenskra
farþega í flugi til og frá landinu.
Við fylgjum ákveðnum vinnureglum
varðandi umsóknir um flug erlendra
félaga. Félögin eru könnuð eins og
gert var áður en Taesa var veitt
leyfi til að fljúga hingað til lands á
sínum tíma. í framhaldinu höfum
við gjaman skoðað vélar erlendra
fyrirtækja og farið yfir að öll gögn,
tryggingaskírteini, lofthæfiskírteini
og viðhaldsgögn, séu í lagi við kom-
una til Keflavíkur. Hingað til hefur
ekkert í því eftirliti gefið tilefni til
að heimild flugfélagsins til flugs til
og frá íslandi verði endurskoðuð,"
sagði Jens og tók fram að almennt
væri litið svo á að mexíkósk flugfé-
lög stæðu á traustum grunni og
framar flugfélögum annars staðar í
Suður- og Mið-Ameríku.
Óskað eftir ítarlegri
upplýsingum
Hins vegar sagði Jens alvarlegt
að Taesa hefði fengið annað flugfé-
lag til að fljúga hingað fyrir sig án
heimildar frá íslenskum flugmálayf-
irvöldum.
„Eins og fram hefur komið höfum
við gert athugasemdir við þennan
framgangsmáta. Flugfélagið hefur
gefið okkur ákveðnar skýringar og
á þeim byggjast tímabundin flug-
réttindin. Við höfum hins vegar ósk-
að eftir ítarlegri upplýsingum og
gögnum og því hefur ekki verið kom-
ist að endanlegri niðurstöðu um
framhaldsflugréttindi," sagði Jens.
LANDIÐ
LEIKHÓPURINN „Við“ á Dalvík.
*
Ahugasamir leikarar
Dalvík - Hópur ungra og áhuga-
samra leikara hefur að undan-
förnu boðið Dalvíkingum upp á
dagskrá sem að öllu leyti er
þeirra eigin vinna.
Hópurinn sem kallar sig
„Við“ samanstendur af krökk-
um á aldrinum 13-16 ára og
hefur samið og æft dagskrá sem
heitir „ýmislegt" og inniheldur
atriði úr ýmsum áttum eins og
nafnið bendir til. Þar má nefna
söng- og dansatriði, ævintýri
frásagnir og stutta leikþætti.
Efnið er alfarið þeirra frum-
smíð, sem og öll vinna sem felst
í því að setja upp slíka sýningu.
Miðaverði er stillt í hóf en allur
ágóði af sýningunni rennur til
líknarmála.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
UM 40 manns mættu á ráðstefnu um starfsmenntun.
Nemendur ME fjalla
um starfsmenntun
Egilsstöðum - Nemendur Mennta-
skólans á Egilsstöðum stóðu fyrir
ráðstefnu um starfsmenntun í fram-
haldsskólum. Þar var fjallað um
starfsménntun í framhaldsskólum á
íslandi og þá möguleika sem felast
í nýju frumvarpi til laga um fram-
haldsskóla. Ræðumenn voru Helgi
Ómar Bragason, skólameistari ME,
Hjálmar Árnason, alþingismaður og
fyrrverandi skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, og Þórður
Þorsteinsson, nemandi við ME.
Hjálmar Árnason kynnti frumvarp
til laga um framhaldsskóla, en það
er til umræðu á Alþingi núna. Mik-
ið var fjallað um starfsmenntun í
framhaldsskólum og samstarf við
atvinnulíf þar um. Nemendur ME
nýttu sér heimsókn Hjálmars og
spurðu fjölmargra spurninga um
málefni skólanna .
KJARTAN Páll Einarsson og Jón Pétursson starfsmenn Búnað-
arbankans í Stykkishólmi afgreiða heimilisfólk á dvalarheimili
aldraðra.
Aukin bankaþjónusta
við aldraða
Stykkishólmi - Búnaðarbankinn í
Stykkishólmi hefur tekið upp nýja
og betri þjónustu fyrir fólkið sem
býr á Dvalarheimili aldraðra. Mættu
starfsmenn bankans á dvalarheimilið
og opnuðu bankaþjónustu fyrir íbú-
ana.
Ætlunin til að byija með er að
koma einu sinni í mánuði, klukku-
tíma í senn, og bjóða íbúunum að
stunda sín bankaviðskipti á staðn-
um. Reynslan mun síðan segja til
um það hvort afgreiðslutímum verði
fjölgað.
Þennan fyrsta opnunardag var
nóg að gera hjá bankastarfsmönnum
og greinilegt var að fólkið kunni vel
að meta heimsókn þeirra. Þennan
dag átti starfsmannafélag Búnaðar-
bankans afmæli og færði starfsfólk
bankans íbúum dvalarheimilisins
rjómatertu í tilefni dagsins.
r
►
I
>
>
í
i
I
t
í
!
\
!
i
I
í
;
>
&
i
i
y