Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Svæðisskrifstofa
Rauða krossins á
Vestfjörðum
Sigríður
Hrönn
ráðin til
starfa
ísafirði. Morgunblaðið.
SIGRÍÐUR Hrönn Elíasdóttir,
oddviti Súðavíkurhrepps og
fyrrverandi sveitarstjóri í Súða-
vík, hefur verið ráðin starfs-
maður svæðisskrifstofu Rauða
kross íslands á Vestfjörðum.
Ráðgert er að skrifstofan verði
opnuð um næstu mánaðamót
en fram að þeim tíma mun Sig-
ríður Hrönn verða i starfsþjálf-
un hjá Rauða krossinum.
Sigríður Hrönn sagði í sam-
tali við blaðið að enn ætti eftir
að frnna framtíðarhúsnæðffyrir
starfsemina, en ákveðið hefði
verið að skrifstofan yrði stað-
sett á Isafirði. Sigríður Hrönn
mun vinna með Rauða kross-
deildunum á Vestíjörðum að
ýmsum verkefnum og vera
væntanlegum flóttamönnum til
aðstoðar, ef af komu þeirra til
ísafjarðar verður.
„Starfíð leggst. mjög vel í
mig og ég held að reynsla mín
af sveitarstjórnarstörfum muni
nýtast í þessu starfí. Einnig þau
námskeið sem ég hef sótt sem
formaður almannavamarnefnd-
ar sem og félagsstörf mín hjá
Ungmennafélaginu Geisla. Það
leggur allt sitt lóð á vogarskál-
ina,“ sagði Sigríður Hrönn.
Tíu umsóknir bárust um
stöðu starfsmanns svæðisskrif-
stofunnar.
ÁTVR
Selja ekki
fjögurra
flaskna
bjórkippur
ÁTVR hefur hafnað beiðni um-
boðsaðila franska bjórframleið-
andans Brasserie Duyck hér-
lendis um að taka til sölu bjór-
kippur með fjórum 250 ml flösk-
um. Svava Bemhöft innkaupa-
stjóri segir neifunjna byggjast á
innkaupareglum ÁTVR, en þær
kveða á um að ekki megi selja
minna en 1,5 lítra af bjór í einu.
„Þetta er lágmark sem við mið-
um við til að hafa einhveija
viðmiðun, svo að magnið fari
ekki niður í eina dós eða flösku.
Þessar reglur eru samþykktar
bæði af stjóm ÁTVR og fjár-
málaráðuneytinu," segir hún.
ÁTVR selur íjögurra dósa
bjórkippur og er hálfur lítri af
bjór í hverri dós, eða samtals 2
Iítrar. „Við höfum ekki fengið
mörg tilboð sem fela í sér 250
ml dósir eða flöskur og verðum
að halda okkur við reglur í
þessu sambandi. Fyrst og
fremst em reglumar tilkomnar
af þörf fyrir mörk um þessi
kaup, en ég reikna heldur ekki
með að bindindismenn væru
ánægðir yfír því að við fæmm
að selja eina og eina dós, því
að mjög líklega myndi aðgengi
barna og unglinga aukast í bjór-
inn,“ segir Svava.
Hún segir ákvörðun fyrir-
tækisins óháða gæðum bjórsins
eða eftirspurn og byggjast ein-
göngu á fyrrgreindum reglum
um lágmark.
108 hafa greinst með salmonellusýkingu á sýkladeild Landspítalans
FRETTIR
Ríkisspítalar
kanna bótarétt
ENGIN saursýni sem tekin voru til
ræktunar á sýkladeild Landspítala
í gær vegna salmonellamengunar,
reyndust jákvæð, og er það í fyrsta
skipti síðan sýkingin kom upp, eða
í þijár vikur, sem þetta gerist. Ing-
ólfur Þórisson aðstoðarforstjóri
Ríkisspítala segir kostnað vegna
sýkingarinnar nema milljónum
króna, en ekki séu öll kurl komin
til grafar í málinu. Ríkisspítalar
hyggjast kanna réttarstöðu sína
með skaðabótakröfu á hendur Sam-
sölubakaríi í huga.
Hundrað og átta manns hafa
greinst með sýkingu af völdum
salmonella enteritidis og þrátt fyrir
að engin sýni hafi verið jákvæð í
gær, má búast við að fleiri eigi enn
eftir að greinast að sögn Hjördísar
Harðardóttur læknis á sýkladeild
Landspítala.
Sextán þeirra sem hafa greinst
með sýkilinn tengjast ekki Ríkis-
spítölum en aðrir sýktust innan
veggja þeirra. Þar af eru 28 börn
af leikskólum spítalanna og þijú
af barnadeild. Ljóst er orðið að sýk-
ingin tengist ijómabolluáti, en ekki
er búið að uppgötva hvemig sýkill-
inn barst í bollurnar.
Mesta holskeflan afstaðin
„Ég geri ráð fyrir að fleiri bætist
við, þetta er ekki lokatalan," segir
Hjördís. „Hins vegar berast nú
færri sýni til rannsóknar en áður
sem bendir til að mesta holskeflan
sé afstaðin og flestir sem fengu
einkenni séu búnir að senda inn
sýni.“
Ingólfur segir að ekki sé allur
kostnaður kominn fram vegna sýk-
ingarinnar, og þannig sé fólk t.d.
enn frá vinnu. Eftir um mánaðar-
tíma verði þó væntanlega hægt að
reikna út endanlegan kostnað
vegna sýkingarinnar. „Verið er að
kanna réttarstöðu Ríkisspítala
vegna þessa máls og mér fínnst
mjög líklegt að Ríkisspítalar fari
fram á að Samsölubakarí bæti það
tjón sem þeir hafa orðið fyrir,“ seg-
ir Ingólfur.
Fjárhagslegt tjón er m.a. vegna
vinnutaps sýktra, aukinnar yfír-
vinnu, rannsókna, lyfja, sýnatöku
og leitar að uppruna sýkingarinnar.
Innan kostnaðarþátta Ríkisspítala
eru ekki kostnaðarliðir á borð við
slátrun á þriðja hundrað hæna sem
rannsakaðar voru í leitinni og
vinnutap eða annar kostnaður ein-
staklinga utan spítala.
Uppfylla ekki skilyrði en selja
áfram á smásölumarkaði
Ingólfur segir stíft eftirlit með
þeim fyrirtækjum sem selja Ríkis-
spítölum matvæli og njóti þeir full-
tingis Rannsóknastofnunar land-
búnaðar og Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðar í því sambandi, en þær
taka reglulega sýni hjá birgjum
spítalanna. Ríkisspítalar hafi meðal
annars hætt viðskiptum við fyrir-
tæki vegna þess að söluvara þeirra
hafí ekki uppfyllt skilyrði þeirra
eftir sýnatöku og rannsóknir, en
sömu aðilar selji áfram á smásölu-
markaði.
„Ef við ætluðum hins vegar að
taka sýni af vöru á borð við bollur
sem keyptar eru einu sinni á ári,
þyrfti að fá þær til rannsóknar
þremur til fjórum dögum áður en
þær eru borðaðar, sem vart er ger-
legt. Við töldum okkur vera að
skipta við mjög ábyggilegan aðila,
eins og ég held að flestir hljóti að
skilja, þannig að útilokað var að sjá
sýkinguna fyrir. Við höfum fylgt
útboðsstefnu en við þetta mál setur
hik að mönnum, og vissulega gæt-
um við tekið fullvinnslu hráefnis
alla inn aftur. Það mál er hins veg-
ar aðeins á hugmyndastigi," segir
hann.
80 ára afmæli Alþýðusambandsins
# Morgunblaðið/Kristinn
FRU Vigdís Finnbogadóttif með gjafaskjalið. Við hlið hennar stendur Benedikt Davíðsson.
Ræða sam-
einingu við
Egilsstaði
BÆJARSTJÓRNIN á Egilsstöðum
og hreppsnefndimar í Eiðaþinghá
og Hjaltastaðaþinghá hafa sam-
þykkt að hefja viðræður um sam-
einingu sveitarfélaganna. Yfir
1.800 íbúar yrðu í þessu sameinaða
sveitarfélagi á Úthéraði, þar af
1.600 í þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Þuríður Backman, forseti bæj-
arstjórnar á Egilsstöðum, segir að
sveitarstjórnirnar hafi þegar
ákveðið að taka upp viðræður.
Ekki sé hægt að fullyrða um niður-
stöðuna. Hún segir að fyrsti fund-
urinn verði á fimmtudag.
Unnið að takmarkaðri
sameiningu
Þuríður hefur talað fyrir sam-
einingu allra sveitarfélaganna á
Fljótsdalshéraði ásamt Borgarfirði
og Seyðisfirði. Það segir hún að
sé það eina rétta. Hins vegar hafi
það ekki gengið og því sé verið
að vinna að takmarkaðri samein-
ingu.
Trúnaðarbrestur biskups kærður til siðanefndar prestafélagsins
Biskup biður presta
um fyrirgefningu
80 trjáplönt-
ur til forseta
*
Islands og
þjóðarinnar
ALÞÝÐU S AMB AND íslands
gaf forseta Islands og íslensku
þjóðinni 80 tijáplöntur á 80
ára afmæli sambandsins í gær.
Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ, tilkynnti um gjöfina í
boði frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta Islands, fyrir
miðsijórn Alþýðusambands ís-
lands á afmælisdeginum í
gær. Hann afhenti frú Vigdísi
fyrstu birkiplöntuna og
skrautritað gjafaskjal. I skjal-
inu segir að í tilefni af 80 ára
afmæli Alþýðusambands ís-
lands hafi 68 þúsund félags-
menn sambandsins ákveðið að
færa forseta íslands og þjóð-
inni allri 80 tré. Eitt ár fyrir
hvert ár í sögu ASÍ. „Megi
trén vaxa og dafna um
ókomna tíð rétt eins og ís-
Ienska þjóðin,“ segir í niður-
lagi.
Trén verða gróðursett í
Vinaskógi í maí.
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúla-
son, hefur ritað öllum prestum lands-
ins bréf og beðið stéttina fyrirgefn-
ingar á því að hafa brotið trúnað og
sagt frá því að fundur hefði átt sér
stað milli þeirra séra Flóka Kristins-
sonar, sóknarprests í Langholts-
kirkju, og Sigrúnar Pálínu Ingvars-
dóttur, sem sakað hefur biskup um
kynferðislega áreitni. Sömuleiðis bað
biskup presta um að efni bréfsins
yrði ekki gert að fjölmiðlamáli. Engu
að síður var efni þess gert opinbert
í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær,
svo og í sjónvarpsfréttum beggja
stöðva. Þá lagði Sigrún Pálína fram
kæru í siðanefnd prestafélagsins í
gær á hendur biskupi þar sem hún
sakar hann um trúnaðarbrot með því
að greina í fjölmiðlum frá fundi henn-
ar og séra Flóka. Siðanefndin mun
ekki hafa fjallað um þá kæru á fundi
sínum í gær.
Ólafur segir að auðvitað eigi bisk-
up ekki að stuðla að því að opinbera
samband prests og sóknarbarns al-
menningi. „Aftur á móti var ég að
bregðast við frétt, sem ég heyrði í
útvarpinu með tilvitnun í Alþýðu-
blaðið, sem er nú ekki traustasti
heimildaaðilinn í þessu máli, um að
Flóki Kristinsson hefði borið á móti
því að hafa átt fund með umræddri
konu. I einhverri fljótfærni sendi ég
yfirlýsinguna, sem fjórmenningarnir
í Langholti höfðu látið mér í té, um
að fundur þessi hefði átt sér stað,
til fjölmiðla. Ég sé nú mjög eftir því
að þessi yfirlýsing skyldi, fyrir minn
tilverknað, lenda hjá fjölmiðlum. Það
er auðvitað mjög alvarlegur hlutur
að bera það út hveijir leita til
presta," segir Ólafur.
í bréfinu til prestastéttarinnar
segist biskup einnig hafa gert grein
fyrir sannleikanum vegna ásakana
um kynferðislega áreitni og tók Guð
til vitnis um að hann væri að segja
satt um að vera saklaus af ákærum
kvennanna. „Ég hafði lengi hugsað
mér að skrifa prestum bréf til að
lýsa sannleikanum undandráttar-
laust og ég bað sömuleiðis fyrir-
gefningar á því að hafa sagt frá
fundi prests og sóknarbarns. Það
var gert undir mikilli pressu, sem
ég held að allir hljóti að sjá að ég
hef verið undir sl. mánuð. Þetta
hefur ekki verið neitt venjulegt
ástand, ekki óvenjulegt, heldur
furðulegt.
Siðanefnd prestafélagsins hefur
tekið marga fundi í að fjalla um
kæru þessarar sömu konu um að
prestur í Grafarvogssókn hafí ekki
borið það á torg sem hún sagði hon-
um og ekki heldur sagt frá þv: að
hún hefði komið til fundar við hann.
Þessi kona leggur síðan fram aðra
kæi'u í gær þess efnis að trúnaður
hafi verið brotinn við hana með því
að segja frá fundi hennar og sóknar-
prests Langholtskirkju. Þetta er orð-
ið nokkuð flókið mál,“ segir Ólafur
að lokum.