Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 23 List í sím- bréfaformi FYRIRHUGAÐ er að halda sýningu 23. mars til 3. apríl undir yfirskrift- inni List í símbréfaformi í sýningar- salnum við Hamarinn. Þátttakend- um gefst kostur á að senda efni á sýninguna í formi símbréfa/faxa eða skilja eftir skilaboð á símsvara sýningarinnar. í kynn- ingu segir: „List í símbréfa- formi hefur ekki verið mjög áber- andi. Ekki síst vegna þess að mið- ill þessi þykir fletja út myndræn gæði bréfanna auk þess sem fax- pappírinn sjálfur þykir ekki merki- legur til listrænna nota. Sama má segja um notkum símsvara til list- sköpunar, skilaboð lesin eða tekin upp á símsvara þykja vélræn og ómannleg. Fjölmargir eru einnig haldnir fælni gagnvart símsvörum. Listform dagsins í dag er sennilega internetið sem býður upp á ijöl- marga mögu- leika kannaða ókann- aða.“ /..■ Þátttak- endum er , heimilt að : senda/faxa/lesa inn hvað sem er, skissur, teikning- ar, málverk, ljós- myndir, texta, hug- myndir, hugleiðingar og ljóð. Innsend verk skulu að sjálfsögðu vera send í nafni viðkomanda. Öllum er heimil þátttaka. Tekið verður við símbréfum og skilaboðum í símsvara, í síma sýn- ingarsalarins 555-2440, vikuna 14.-21. mars, allan sólarhringinn. Agnes fær góða dóma í Variety KVIKMYNDIN Agnes fær góða dóma í nýjasta hefti kvikmynda- timaritsins Variety. Er gagnrýn- andinn sérstaklega hrifinn af frá- sögninni og ber í því samhengi lof á leikstjórann Egil Eðvarðsson og handritshöfundinn og framleið- andann Snorra Þórisson. „Hið hrjóstruga landslag Islands er lát- ið styðja sérstaklega vel við endur- sköpunina á þessum ógeðfellda iið í fortíð lítils lands.“ Þá er leikur Maríu Ellingsen, í hlutverki hinnar „þróttmiklu“ Agnesar, sagður áhrifamikill. Að sögn Snorra Þórissonar er sitthvað í farvatninu varðandi sölu myndarinnar, sem tekur þessa dagana þátt í aðalkeppni norrænu kvikmyndahátíðarinnar í Rúðu- borg. A næstu dögum verði til að mynda gengið frá sölusamningum við rússneska dreifingarfyrirtæk- ið Standard Magnetic og pólska sjónvarpið. Þá segir Snorri að verið sé að kynna Agnesi á Banda- ríkjamarkaði og hafi aðilar frá Dreamworks, fyrirtæki Stevens Spielbergs, óskað eftir sérsýning- um. Agnes var nýverið sýnd á Ber- línarhátíðinni í svokölluðum Pan- orama-flokki. Að lokinni frumsýn- ingu sat Snorri fyrir svörum á fréttamannafundi sem meðal ann- ars var sýndur í beinni útsendingu á ZDF sjónvarpsstöðinni. „Á fund- inum voru bæði fréttamenn og áhugafólk um kvikmyndir og auð- heyrt að mikil ánægja var með myndina. í Berlín var uppselt á allar sýningar og sátu áhorfendur jafnan eftir í salnum til að ræða um myndina við mig,“ segir Snorri. Lúðrasveit Reykjavíkur Nýr kafli í sögu sveit- arinnar AÐALFUNDUR Lúðrasveitar Reykjavíkur var haldinn ný- lega. „Rekstur sveitarinnar hefur staðið í járnum sökum minnk- andi eftirspurnar eftir spila- mennsku og lækkandi rekstrarstyrks frá Reykjavík- urborg,“ segir í tilkynningu. Alls lék sveitin þrettán sinnum opinberlega á síðasta ári, þ.á m. á fjölskyldutónleikum í Ráðhúsinu og sameiginlega með lúðrasveitum Selfoss og Vestamannaeyja. Ný stjórn var kosin á fund- inum og hana skipa eftirfar- andi: formaður Kristófer Ás- mundsson fisksali; varafor- maður Gunnar Björn Bjarna- son nemi; gjaldkeri Jón Krist- inn Snorrason málari; ritari Anna Þóra Oskarsdóttir nemi; og meðstjórnandi Guðjón Ein- arsson fyrrv. blaðamaður og ljósmyndari. Gengið var endanlega frá ráðningu nýs stjórnanda til sveitarinnar, Jóhanns Ingólfs- sonar, „og hófst þar með nýr kafli í sögu sveitarinnar sem mun einkennast af uppbygg- ingarstafi fyrir árið 1997, en þá verður sveitin 75 ára og er ætlunin að halda uppá þau tímamót með pomp og prakt þar sem m.a. er stefnt að því að fara erlendis og spila,“ seg- ir í tilkynningunni. Æfingar Lúðrasveitar Reykjavíkur eru á þriðjudögum frá kl. 9-21 og eru þeir sem geta og hafa áhuga á að spila með hvattir til að láta sjá sig. íslendinga- sagnastyrkur STJÓRN Norræna menningar- sjóðsins veitti á síðasta stjórn- arfundi sínum 7,5 milljónum d.kr. til yfir 80 verkefna. Hæsta einstaka styrknum, sem Var 400.000 d.kr., var veitt til þýðingar á Islendinga- sögum til nota í skólum í Bandaríkjunum. Formennsku í stjórn Menn- ingarsjóðsins gegnir nú Riitta Saastamoinen, fyrrverandi þingmaður. AUKIÐ FRAMBOÐ, KALLAR Á LÆGRA VERÐ. ÞESS VEGNA BÝÐST ÞÉR SVlNAKJÖT sem rennur Á KYNNINGARAFS LÆTTI ÚT MARS. beint í vasa NOTAÐU TÆKIFÆRIÐ OG KAUPTU SVÍNAKJÖT Á BETRA VERÐI. V - svínvirkar á buddunal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.