Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Úthlutað úr Málræktar- SJOOl ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Málræktarsjóði í annað sinn. Islensk málnefnd stofnaði sjóð- inn 7. mars 1991. Fjölmargir einstaklingar, stofnanir og fyr- irtæki hafa lagt honum til fé. Ætlunin er að sjóðurinn komist upp í a.m.k. 100 milljónir króna á næstu flórum árum með fram- lagi Lýðveldissjóðs. Auglýst var eftir umsóknum um styrki í dagblöðum 1. des- ember 1995. Alls bárast 22 umsóknir um 22,4 milljónir króna. Til úthlutunar voru 3 milljónir. Eftirtaldir umsækjend- ur fengu stjTk að þessu sinni: 1) Svavar Sigmundsson 250.000 kr. til að undirbúa út- gáfu Orðabókar um slangur. 2) Námsgagnastofnun 350.000 kr. til að gefa út grein- ingarforritið íslensk málfræðj. 3) Skýrslutæknifélag íslands 800.000 kr. tii að gefa út endur- skoðap Tölvuorðasafn. 4) íslensk málnefnd 600.000 kr. til að gefa út Hagfræðiorða- safn. _ 5) íslensk málstöð 1.000.000 kr. til að koma upp tölvukerfi fyrir orðabanka málstöðvarinn- ar. Gert er ráð fyrir að auglýst verði aftur eftir umsóknum 1. des. nk. Verk eftir Jón Leifs á nýjum geisladiski Jón Leifs NÝR geisladiskur, sá annar í röðinni með verkum eftir Jón Leifs, er nýkominn út í Bret- landi hjá Chandos-útgáfunni. Verkin eru Alþingishátíðar- kantata, Minni Islands, Opus 55, Ópus 56 og Elegía ópus 53. Flytjendur eru Kór íslensku óperunnar og Sínfóníuhljóm- sveit íslands undir stjórn Petris Sakari. í kynningu frá Chandos er Alþingishátíðarkantötunni líkt við sinfónískt ljóð og um Elegíu ópus 53 segir að hún sé eitt af fegurstu verkum Jóns Leifs. Útgáfa geisladisksins er liður í útgáfusamningi Sinfóníu- hijómsveitar Islands við Chan- dos. Diskarnir hafa fengið af- bragðs viðtökur tónlistargagn- rýnenda. Morgunblaðið/Sig. Jóns. KIRKJUKÓRINN að loknum afmælistónleikum. Fyrir framan kórinn eru Glúmur Gylfason kórstjóri og Elín Arnoldsdóttir, formaður kórsins. Agaður og fallegur söng- ur á afmælistónleikum Selfossi. Morgunblaðið. KIRKJUKÓR Selfoss hélt upp á 50 ára starfsafmæli sitt með tón- leikum í Selfosskirkju 2. mars. undir stjórn Glúms Gylfasonar söngstjóra. Haukur Guðlaugs- son, söngmálastjóri þjóðkirkj- unnar, lék undir á orgel í nokkr- um lögum. Á trompet léku Jó- hann I. Stefánsson og Eysteinn Jónasson. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullu húsi og voru mjög vel heppnaðir enda söngur kórsins fallegur og vel agaður. Á tónleikunum söng kórinn 17 lög þar af syrpu fjögurra laga sem öll voru eftir félaga í kórnum og kórstjórann auk fjögurra laga úr Grallaranum. Kórnum var mjög vel tekið á tónleikunum og í lok þeirra voru honum og kór- stjóranum færð blóm og heilla- óskir. Kirkjukór Selfoss telur 31 fé- laga á öllum aldri. Yngstu kórfé- lagarnir eru á 17. ári og mjög góð breidd er í kórnum en hann hefur orð á sér fyrir fagran söng við allar þær athafnir sem fram fara í Selfosskirkju og þegar hann kemur fram á tónleikum. Mikið söngstarf fer fram í Sel- fosskirkju en þar eru starfandi auk kirkjukórsins barnakór kirkjunnar og unglingakór. Þetta starf allt hefur borið mik- inn ávöxt en það er undir hand- leiðslu og stjórn Glúms Gylfason- ar, organista og kórstjóra. Villtur og ástríðuþrung- inn leikur TONLIST B ú s t a ð a k i r k j a KAMMERTÓNLEIKAR Tríó Nordica flutti tónverk eftir Mendelssohn og Tsjaikovskij. Sunnu- dagurinn 10. mars 1996 KAMMERMUSIKKLUBBUR- INN hefur starfað í 39 ár og lauk starfsári sínu með glæsilegum tón- leikum, þar sem Tríó Nordica lék d-moll tríóið, op. 49 eftir Mend- elssohn og tríó í a-moll, op. 50, eftir Tsjaikovskij. í Tríó Nordica leika Mona Sandstöm á píanó, Auður Hafsteinsdóttir á fiðlu og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló. Það fer ekki á milli mála að hér eru á ferðinni afburða tónlistarkon- ui' og var samspilið sérstaklega gott, eins t.d í verki Mendelssohns, sem var leikið í mjög miklum hraða, er naut sín einkar vel í skérsó-þættinum. Eins og fyrr segir var samleikur- inn sérlega góður, en það eina sem á vantar er betra jafnvægi í styrk. Píanóið var stundum einum of sterkt, sérstaklega í Mendejssohn, fyrsta þættinum og þá var sellóið það einnig á stundum, svo að fiðlan átti oft erfitt með að halda í á móti, þegar sterkt.var leikið. Líklega er einleikarinn ekki langt undan, en í kammertónlist gegnir ekki sama máli og í einleik, því þar verður samspilið að ráða. Þetta er mikilvægt, því hér eru á ferðinni frábærir tónlistarmenn, sem gætu gert stóra hluti. Spilamennskan var í heild nokkuð villt og ástríðufull en skemmtileg og lifandi. Leikur þeirra þriggja var nrjög góður, en leikur Sandström þó sérlega glæsi- legur. Seinna verkið, tríóið eftir Tsjai- kovskij, er tilfinningaþrungin tón- smíð, sem var mjög vel flutt, þó nokkuð vantaði á tregafulla mótun, tregann og sorgina sem Tsjai- kovskij var þrúgaður af og kom skýrar fram í verkum hans en hjá nokkru öðru tónskáldi. Þennan trega og sársauka kunna fáir að túlka og leikurinn í heild var helst til ungur, ástíðufullur og ákafur, þó ýmsir ljóðrænir þættir væru sér- lega fallega mótaðir. Eins fyrr segir er hér á ferðinni samleikshópur, alfær til stórra átaka og því er mikilvægt að allt sé tekið til gaumgæfilegrar athug- unar og þá sérstaklega styrkleika- jafnvægi hljóðfæranna, fínlegt en mikilvægt agaatriði, því allt annað er til staðar, góð tækni, ástríður, kraftur og leikgleði. Jón Ásgeirsson „Eitruð verk“ MYNDLIST Við Ilamarinn MYNDVERK Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Opið frá 14-18 alla daga. Til 17 marz. Aðgangur ókeypis. Í SÍVAXANDI mæli sér maður miða í nágrenni myndverka á sýningum þar sem á stendur „vin- samlegast snertið ekki“ og á þetta einnig við í ólíklegustu tilvikum, enda siðurinn kominn að utan og þykir staðfesta vægi og vigt listaverkanna, Oft er þó ekki vanþörf á slíkum miðum, því fólki er gjarnt að káfa á myndverkum sjái það eitthvað forvitnilegt í þeim og þá einkum hafi þau efnis- lega dýpt eða þyki lygilega vel máluð. Er þetta mikill ósiður, því eftir sitja fita og fingraför og myndflöturinn getur verið mjög viðkvæmur fyrir slíku, hins vegar átta fæstír sig á þessu og gjörð- in því í flestum tilvikum merki vanþekkingar við- komandi. Það er hins vegar nýtt að myndverkin eða hluti þeirra séu svo eitruð, að sérstaklega þurfi að vara fólk við að koma of nærri þeim, hvað þá krukka í þau. Þó er þetta svo með sýningu hins únga Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar í sýningarsalnum Við Hamarinn á Strandgötu 50 í Hafnarfirði. Til- mælin eru skýr og afdráttarlaus, því á forsíðu sýningarskrár stendur feitletrað: „Athugið að verkin í innri hluta sýningarsalarins innihalda eitr- uð efni sem gætu valdið miklum skaða, komist þau í snertingu við sýningargesti. Því er þeim tii- mælum beint til gesta að sýna fyllstu varkárni í umgengni við verkin og undir engum kringum- stæðum snerta þau.“ Við hvert verk sem þetta á við er innihald verk- anna skilgreint á eldrauðu skilti við hlið þeirra, t.d. þannig; „Járn, svart blikk 4mm snitteiningar, rær og skrúfur, 6mm MDF Chervrolet orange (plastique), aseton 30-40%, xyel 5-10 % Tru bond, laufer, teygjur, grunnal, míneralterpentína, tilraunaglas, gúmmítappi, doby ductseal cascet, Bany 1, bio, allethrin, permethyn, pipernyl Buxo- id, dimetylereter, fylliefni, plastglæra, járn, raf, galv, primer (plast cote), t-235. Það hafa lítil umsvif verið í sýningarsalnum undanfarið sem er synd, því hann er afar sérstæð- ur, persónulegur og vel fallinn fyrir margar teg- undir listsýninga svo sem fram hefur komið. Segja má að þessi sýning dragi fram styrk og einkenni húsnæðisins, því formrænt séð yfirgnæfir það sjálf verkin á sýningunni. Gesturinn þarf sem sé að líta vel í kringum sig til að koma auga á þau, því verkin eru hvorki stór né ábúðarmikil. Kannski er þetta dæmi um síkvika list og liður VARUÐ! ATHUGIÐ AÐ VERPÍIN í INNRI HLUTA SÝNINGARSALARINS INNIHALDA EITRUÐ EFNI SEM GÆTU VALDIÐ MIKLUM SKAÐA, KOMIST ÞAU í SNERTINGU VIÐ SÝNINGAR- GESTI. ÞVÍ ER ÞEIM TILMÆLUM BEINT TIL GESTA AÐ SÝNA FYLSTU VARKÁRNI í UMGENGNI VIÐ VERKIN OG UNDIR ENGUM KRINGUM- STÆÐUM SNERTA ÞAU. í endurskoðun á sjónvenjum tilfallandi sýningar- gesta, en satt að segja hefði listamaðurinn þurft að fylgja hugmyndafræði sinni úr hlaði með skil- virkari textum. Vísunin til hins eitraða þáttar er ekki nóg ein sér, en hins vegar fer ímyndunarafl- ið af stað, sem í sjálfu sér er sterkasta aflið í sálarkirnunni. Hvert það leiðir gest og gangandi er svo auðvitað rannsóknarefni. Bragi Ásgeirsson KVIKMYNDIR B í ó b o r g i n , B í ó h ö 11 i n VASKI GRÍSINN BADDI (,,Babe“) ★ ★ ★ Vi Leikstjóri Chris Noonan. Handrits- höfundar Dick King-Smith, George Miller, Chris Noonan. Kvikmynda- tökustjóri Andrew Lesnic. Tónlist Nigel Westlake. Aðalleikendur Ja- mes Cromwell, Magda Szubanski, Zoe Burton, Paul Goddard. Islenskar raddir, undir stjórn . Áströlsk. 1995. Ondin galar, grísinn smalar ER það fréttist að ástralska fjöl- skyldumyndin Babe, væri ein sú fremsta í flokki meðal útvalinna er óskarsverðlaunatilnefningarnar voru tilkynntar á dögunum, læddist að manni sá grunur að nú væri það fullkomlega deginum Ijósara að Aka- demían væri orðin elliær. Það hefur áður legið í loftinu. Sá grunur gleym- ist snarlega eftir að hafa séð þessa frumlegu og vel gerðu áströlsku heið- ursmynd, sem á greiðan aðgang að hjarta allra aldurshópa. Vaski grísinn Baddi (af hveiju Baddi?) segir af samnefndum grís, .sem gerir uppreisn gegn viðteknum reglum á lífsmynstri og hlutverki síns göfuga kynstofns. Ætlar sér ekki að enda ævina sem kviðfylli okkar mannana. Baddi sleppur naumlega frá sláturhúsinu þegar hann er valinn sem verðlaunagripur á héraðsmóti og lendir í höndum bóndans Heggetts (James Crom- well). Þar bíða hans engu að síður gastrónómísk örlög en öndin Ferdin- and kveikir hjá honum hugmynd um undankomuleið. Feddi telur sig nefni- lega komast hjá því að enda á jóla- hlaðborðinu með því að þykjast vera hani og þenur sig á hverjum morgni í sínu nýja hlutverki. Hann uppfræð- ir Badda um þann stórasannleik að öll dýr hafi ákveðið hlutskipti í aug- um bænda, í fyllingu tímans séu endur og grísir einfaldlega matvæli. Baddi, sem deilir hlöðunni með hund- unum, gerir það að hlutskipti sínu í lífinu að verða smalahundur á fjár- búi bónda. Og una allir glaðir við sitt. Öfugmælavísurnar koma upp í hugann, hér láta ástraiskir og banda- rískir brellumeistarar dýrin gera allt það sem Hugh Lofting, Richard Bach og fleiri ævintýraskáld dreymdi um. Það er svo lýtalaust gert að unun er á að horfa. Ekki spillir sá þáttur sem hér er unninn. Vönduð, íslensk tal- setning kemur ekki lengur á óvart, en að mínu mati hefur hún aldrei tekist betur en hér. Hreinæktuð snilld og engin ástæða að nefna einn lista- mann frekar en annan. Þeir standa sig allir stórkostlega og gefa hinum frábæra dýrahópi (bæði leiknum og tölvugerðum) enn meira gildi. Fjöl- breytt tónlist ernotuð á athyglisverð- an hátt og grundvallarboðskapurinn, tillitsemi, hinn gagnlegasti. Ekki síst bílstjórum þessa lands. Vaski grísinn Baddi er jákvæð mynd, falleg og skemmtileg, og gefur börnum að auki nauðsynlega innsýn í veröld dýranna. Hún á flestar sínar tilnefn- ingar skildar. Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.