Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 41 íslandsmótið í sveitakeppni hefst á föstudag Hörð barátta fyrirsjá- anleg í öllum riðlum Morgunblaðið/Arnór Á ÞRIÐJA hundrað bridgespilara leiðir saman hesta sína í Þöngla- bakka 1 um helgina. Þessi mynd var tekin í undanúrslitum íslands- mótsins i sveitakeppni í fyrra. ________Brids_________ Þönglabakki 1 LANDSBANKAMÓTIÐ Undanúrslit íslandsmótsins í sveitakeppni verða haldin 15.-17. mars í Þönglabakka 1, Reykjavík. Þar berjast 40 sveitir um tíu sæti í úrslitum um páskana. ÍSLANDSMÓTIÐ í sveitakeppni er nú haldið undir merkjum Lands- banka íslands. í undanúrslitunum er keppt í fimm 8 sveita riðlum og efstu tvær sveitirnar í hvetjum riðli fá keppnisrétt í úrslitunum. Það er útlit fyrir mikla_ baráttu í öllum riðlunum fimm. í A-riðli ættu íslandsmeistararnir í sveit Landsbréfa að eiga frátekið annað úrslitasætið og Hjalti Elíasson og menn hans í sveit Hjólbarðahallar- innar eru líklegir til að hreppa hitt. Aðrar sveitir sem koma til greina eru sveit Lyfjaverslunar íslands frá Reykjavík og sveit Stefáns Stefáns- sonar frá Akureyri. í B-riðli ætla nýbakaðir félags- meistarar Bridsfélags Reykjavíkur í sveit Búlka varla að láta það sama henda sig og í fyrra, þegar þeir misstu af úrslitasæti í síðustu um- ferð undanúrslitanna. Þá spiluðu þeir undir nafni Tryggingamið- stöðvarinnar. Um hitt úrslitasætið gæti orðið hörð keppni milli ungu mannanna í sveit Tímans og sveitar Antons Haraldssonar frá Akureyri, Akureyringarnir misstu einnig af úrslitasæti í fyrra og koma því ör- ugglega grimmir til leiks að þessu sinni. Sigfús Þórðarson og félagar hans frá Selfossi í sveit Skandía geta þó vel bitið frá sér og einnig Dröfn Guðmundsdóttir og liðsmenn hennar úr Hafnarfirði. Sveit VÍB ætti að komast auð- veldlega áfram úr C-riðli en um hitt sætið ætti baráttan að standa á milli sveitar Roche og sveitar Hróa Hattar, en í þeirri sveit er skemmtileg blanda gamalla og ungra spilara. í þann slag gætu Kristján M. Gunnarsson og hinir Selfyssingarnir í H.P. Kökugerð raunar vel blandað sér. I D-riðli virðast Samvinnuferðir- Landsýn og Símonar Símonarsonar og félagar hans í sveit BangSímon- ar standa best að vígi, en þessar sveitir eru með flest meistarastig í riðlinum. En spilararnir í sveit Isaks Arnar Sigurðssonar taka ör- ogglega þátt í baráttunni um efstu sætin af fullri hörku en sú sveit er skipuð tvennum íslandsmeistur- um í tvímenningi, bæði í opnum flokki og unglingaflokki. Þá verða Sigmundur Stefánsson og menn hans ekki auðunnir. I E-riðli er sveit Ólafs Lárusson- ar sigurstranglegust. Um annað sætið gæti orðið mikill kvótaslagur milli sveita Þormóðs ramma frá Siglufirði og Granda hf. í Reykja- vík. Siglfirska sveitin er Ijölskyldu- sveit, skipuð bræðrunum Jóni og Ásgrími Sigurbjörnssonum, Björku Jónsdóttir konu Jóns, og sonum þeirra Birki og Ingvari. Jón Örn Berndsen er sjötti liðsmaðurinn. Jón Steinar Gunnlaugsson leiðir Grandamenn, sem spiluðu áður undir merkjum Metró. í baráttuna gætu vel blandað sér Kópavogsbú- arnir í sveit Flutningsmiðstöðvar Jóna og Akurnesingarnir í sveit Inga Steinars Gunnlaugssonar. Zia vann Vanderbildt Zia Mahmood og félagar hans unnu um helgina eina af 'stærstu sveitakeppnunum fjórum í Norður- Ameríku, Vanderbildtbikarinn. Þeir mættu heimsmeistaraliði Banda- ríkjanna í 64 spila úrslitaleik og unnu með 37 stiga mun. Með Zia spiluðu Michael Rosen- berg, Chip Martel, Lew Stansby og Seymon Deutch en andstæðing- ar þeirra í úrslitaleiknum voru Nick Nickell, Richard Freeman, Bobby Wolff, Bob Hamman, Jeff Meckst- roth og Eric Rodwell. Hamman og Wolff voru frekar svekktir, enda hefur þeim ekki tekist að vinna Vanderbildtmótið í 24 ár! Keppnin um Vanderbildtbikarinn var hápunktur tveggja vikna lands- móts sem haldið var í Fíladelfíu. Hjördís Eyþórsdóttir var meðal þátttakenda á landsmótinu og hún náði 4. sæti í aðaltvímennings- keppni kvenna ásamt sænsku landsliðskonunni Piu Andersen. Af öðrum sigurvegurum á lands- mótinu má nefna Larry Cohen og Dave Berkowitz sem unnu eitt af aðaltvímenningsmótunum, en þeir félagar kepptu hér á Bridshátíð fyrir ári. Zia hvíldi fyrstu lotuna í úrslita- leiknum en félagar hans náðu 23 stiga forskoti. Þetta var eitt af góðu spilunum þeirra: Vestur gefur, NS á hættu Norður ♦ Á ¥986 ♦ ÁG5 ♦ G76542 Vestur Austur ♦ DG10932 ♦ K54 ¥742 ¥ D1053 ♦ 103 ♦ K8642 *D3 ♦ 8 Suður ♦ 876 ¥ ÁKG ♦ D97 + ÁK109 Við annað borðið sátu Deutsch og Rosenberg NS en Freeman og Nickell AV. Vestur Norður Austur Suður pass pass pass 1 Gr 2 lauf pass 2 tíglar pass 2 spaðar 3 spaðar dobl 4 lauf pass 4 spaðar pass 6 lauf/// Sagnir fóru ekki sérlega slemmu- lega af stað. Freeman sýndi einlita hönd með 2 laufum yfir grandopnun Rosenbergs og Deutsch beið átekta þar til liturinn var vís. Þá tók hann við sér og þegar Rosenberg sýndi lauflit bauð Deutsch upp á slemmu sem Rosenberg þáði. Slemman vannst þegar hjartasvíningin gekk. Við hitt borðið sátu Hamman og Wolff NS en Martel og Stansby AV. Vestur Norður Austur Suður 3 spaðar pass 4 spaðar dobl pass 5 lauf/// Sumum þykir það sjálfsagt mál að opna á þriðja sagnstigi með spil af þessu tagi á hagstæðum hættum. í þetta skipti gafst opnunin vel þegar Hamman og Wolff komust ekki að fyrr en á 5. sagnstigi og Zia græddi 13 stig. Guðm. Sv. Hermannsson Afmælishátíð Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni FELAG eldri borgara í Reykjavík og nágrenni gengst fyrir fjöl- skylduhátíð í Laugardalshöll kl. 15 í dag, fimmtudaginn 14. mars. Dagskráin er eftirfarandi: Kl. 14:00: Húsið opnað. Lúðra- sveit Grafarvogs og harmonikku- leikarar leika í anddyri. Skemmtun í sal hefst kl. 15 og verður þulur og stjórnandi: Gunnar Eyjólfsson, leikari. Davíð Oddsson forsætis- ráðiierra flytur ávarp. Að því loknu syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona einsöng og kór Félags eldri borgara syngur undir stjórn Kristínar Pjetursdóttur. Þá kemur grínistinn Laddi fram og skemmtir og Sigfús Halldórsson og Friðbjörn G. Jónsson leika nokkur lög. Leik- atriði verður svo í umsjón Leikhóps FEB, Snúður og Snælda og að því loknu verður glímusýning þar sem glímumenn úr KR koma fram und- ir stjórn Ólafs Ólafsson. Eftir 30 mín. hlé eða kl. 17 heldur dagskráin áfram þar sem Kvennakór Reykjavíkur, Senorít- ur, koma fram undir stjórn Rut Magnússon. Örn Árnason og Jónas Þórir flytja gamanmál, Þjóðdansa- flokkurinn kemur fram, söngkvart- ettinn Útí vorið syngur og leikatr- iði verður flutt í umsjón Bessa Bjarnasonar og Margrétar Guð- mundsdóttur. Kl. 18.10 syngur Ragnar Bjarnason og stjórnar fjöldasöng og að því loknu verður Áutt atriði úr söngleiknum Okla- homa í flutningi Söngskólans í Reykjavík undir stjórn Halldórs Laxness. Aftur verður gert 30 mínútna hlé og hátíðinni lýkur með dans- leik sem hefst kl. 19.10. Matur og matgerd Smákökur fyrir páska og fermingar í þessum þætti gefur Kristín Gestsdótt- ir okkur uppskriftir að gyðingakökum og Bessastaðakökum, en Bessastaðir blasa við henni út.um stofugluggann LÍKLEGA ber flestum saman um að veður hafi verið milt og gott í vetur, þótt veðurstofan segi að febrúar hafi verið 1 ‘A gráðu kaldari en í meðalári. Flötin hér fyrir framan húsið er með grænni nál, sem hefur aldrei sölnað í vetur, og fyrir kuldak- astið í febrúar sótti ég mér grænkál í garðinn. Þrestirnir eru farnir að syngja í trjánum og raflínurnar eru oft þéttsetnar störrum, sem láta hátt og boða vorkomu. Vonandi kemur kuld- inn ekki í apríl eins og stundum vill verða. Þegar þetta er skrifað laugardaginn 9. febr. er jafnfall- inn snjór yfir öllu, hin fjölmörgu grenitré í garðinum eru þakin hvítri mjöll Dóttursonur minn kom í heimsókn og sagði: „Það er alveg eins og jólin séu að koma.“ En það eru ekki jólin sem eru að koma heldur páskarnir og fermingarnar og þá förum við að huga að veisluföngum. Smákökur eru ómissandi, hvort sem er á kökuhlaðborðið eða með kaffinu eftir matarhlaðborðið, en þær tvær tegundir sem hér eru uppskriftir að eru mínar uppá- haldskökur. Bessastaðakökur rúml. 100 stk. 250 g smjör (ekki smjörlíki) 250 g (3 ’/. dl) flórsykur 250 g (5 dl) hveiti 1 eggjarauða nokkrir val- eða pecanhnetukjarnar 1. Bræðið smjörið við hægan hita, látið síðan storkna. Takið smjörskjöldinn ofan af en fleygið syijunni (botnfallinu), skafið það af sem er laust neðan á smjör- skildinum. 2. Setjið hveiti og flórsykur í skál, hnoðið smjörið saman við. 3. Fletjið út ‘A sm á þykkt, skerið síðan undan kringlóttu litlu glasi, þvermál um 4 ‘A sm. Einnig má búa til rúllu úr deig- inu og skera í '/■■ sm þykkar sneiðar. 4. Setjið smádropa af eggja- rauðu ofan á hveija köku, leggið bita af val- eða pecanhnetu- kjarna á hann. 5. Hitið bakaraofn í 180° C, blástursofn í 170° C, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 15 mínútur. Kökurnar eiga ekki að taka lit, þær eiga að vera alveg hvítar. Gyðingakökur 150 stk. 6 sm í þvermál 425 g (rúml. 8 dl) hveiti 'A tsk. hjartarsalt 150 g (rúml. 1 ‘A dl) sykur 200 g smjör (ekki smjörlíki) ___________2 iítil egg_______ 10 steyttar kardimommur eða ‘A tsk. kardimommudropar 2 eggjahvítur ofan á 100-150 g afhýddar möndlur ofan á 1 - 1 ’A dl sykur ofan á 1. Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur í skál, myljið smjörið .út í. Setjið síðan eggin saman við ásamt steyttum kardimommum eða kardimommudropum. Hnoð- ið samfellt deig. Geymið á köld- um stað í 1 - 2 klst. 2. Fletjið deigið mjög þunnt út, stingið út kringlóttar kökur með glasi. Raðið á bökunarpapp- ír á bökunarplötu. 3. Setjið eggjahvíturnar á disk og sláið sundur með gaffli svo að örlítil froða myndist. 4. Saxið möndlurnar frekar smátt og setjið saman við sykur- inn. 5. Penslið kökurnar með eggjahvitunni alveg út á brúnir, stráið síðan möndlu/sykri ofan á alveg út á brúnina, gott er að hafa mikið af möndlum á kökun- um. 6. Hitið bakaraofn í 190° C, blástursofn í 180° C. Setjið í miðjan ofinn og bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar hafa aðeins tekið lit, en þær eiga að vera ljósar. Athugið: Ef kökurnar eru mjög þunnar verða um 150 stk. af þeirri stærð sem upp er gefin úr þessu deigi, en ef þær eru þykkari verða þær að sjálfsögðu færri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.