Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 11 FRETTIR Arnarnesland í Garðabæ Bæjarstjóra falið að undirbúa eignamám Kópavogur >" Arnarnes \ Arnarnesland í Garðabæ Antarnes• i'Ogur V S' u <f > FLATJif ,, . 4.S0<- Framkvæmdastjóri VSÍ um staðhæf- ingar formanns Svínaræktarfélags Málflutningur bygg- ist á misskilningi BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur falið Ingimundi Sigurpálssyni bæjar- stjóra að undirbúa eignarnám á um 35 hekturum úr landi Arnarness. Samkvæmt samþykktu aðalskipulagi fyrir Garðabæ er gert ráð fyrir lóðar- úthlutun á þessu landi á árunum 1995 til ársins 2000. Að söng Ingi- mundar Sigurpálssonar bæjarstjóra eru fáar lóðir til úthlutunar á árinu. Eigendur landsins eru erfingjar ein- setumanns sem þarna bjó. Ingimundur sagði að sér hafí ver- ið falið að undirbúa eignarnám á hluta úr Arnarneslandi en reyna ætti til þrautar að ná samkomulagi við eigendur á næstu vikum eða fram til næsta fundar í bæjarstjórn. Mikið ber í milli Sagði hann að ýmsar óljósar verð- hugmyndir hafi verið nefndar og að mikið bæri í milli hugmynda eigenda og bæjaryfirvalda. „Ég hef verið að horfa til fasteignamatsins, sem er milli 80-90 krónur fyrir hvem fer- metra,“ sagði hann. „Ég hef líka horft á fyrri samninga við Arnarnes- bændur en árið 1990 var samið við þá um kaup á spildum og voru greiddar 360 krónur fyrir hvem fer- metra í öðru tilvikinu og 450 krónur fyrir hvern fermetra í hinu. Svo hef ég líka horft til eignarnáms í Smára- hvammslandi, sem við fórum í árið 1989 og eignarnám, sem farið var í í sumar sem leið en það var spilda undir Fjölbrautaskólann og voru greiddar 480 krónur fyrir hvern fer- metra. Þetta er það sem ég hef ver- ið að nefna eða allt frá 80 krónum upp í 500 krónur.“ Ingimundur sagði að <erfítt væri að átta sig á hvaða verðhugmyndir eigendur hefðu. Nefnt hafi verið lóð- arverð á bilinu 3.500 krónur til 4.000 krónur fyrir hvern fermetra, sem þau hafi viljað miða við. „Þarna er vænt- anlega verið að bera saman lóðar- verð, sem fengist hefur fyrir einstaka lóðir þegar um er að ræða eitt og eitt hús, en þær lóðir seljast á mun hærra verði en þegar um er að ræða landspildu," sagði hann. „Ég get þess vegna bent á land sem var selt fyrir 12 krónur fermetrinn.“ Sagði Ingimundur að samkvæmt aðalskipulagi hafí verið gert ráð fyr- ir að úthluta lóðum á landinu á þessu ári „Við erum með mjög fáar lóðir til úthlutunar á árinu en það er þó ekki stórt vandamál," sagði hann. „Við höfum ekki keppt að því að úthluta mörgum lóðum á hveiju ári. Það hafa verið svona á milli 50-60 lóðir á ári og við höfum náð því undanfarin ár. Okkur fínnst meira atriði að halda jafnri uppbyggingu en að fá inn sprengju, sem setur okkur í vandræði með leikskóla, grunnskóla og aðra þjónustustarf- semi.“ KJÚKLINGABÆNDUR og svína- ræktendur hafa óskað eftir fundi með Vinnuveitendasambandi ís- lands sem haldinn verður í dag, til að kynna VSÍ sjónannið sín um m.a. samkeppni á markaði og hvernig líta ber á framleiðslu þeirra. Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri VSÍ kveðst telja sýnt að sjónarmið VSÍ og framleiðenda svinakjöts hljóti að fara saman að mestu. Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, hefur sakað VSÍ um atvinnuróg og alvar- legar aðdróttanir, fyrir þær sakir meðal annars að líkja framleiðslu búgreinanna við iðnaðarfram- leiðslu. Þórarinn kveðst telja mál- flutning Kristins á misskilningi byggðan. Iðnaður ekki skammaryrði „Hann segir það atvinnuróg og illmælgi að líkja svína- og kjúk- lingarækt við iðnaðarframleiðslu. Ég hygg að það sé að minnsta kosti torvelt fyrir iðnrekendur að skilja í hverju rógburðurinn liggur, því hingað til hefur þótt þokkalega heilbrigð og heiðarleg starfsemi að stunda iðnað. Við lítum ekki á iðn- að sem skammaryrði, en það er kannski til marks um vanda land- búnaðarins ef Kristinn Gylfi skilur það sem rógburð að líkja einstökum þáttum í framleiðslu hans við venju- lega iðnaðarstarfsemi. Það er full- komlega fráleitt að tala um atvinnu- róg í þessu sambandi," segir Þórar- inn. Hann segir einnig rangt að VSÍ hafi borið á móti því að framleiðslu- vörur svinaræktenda hafi lækkað í verði og að ekki ríki innbyrðis sam- keppni í greininni. „Við vöktum á því athygli í haust að ýmsar framleiðsluvörur landbún- aðarins hefðu hækkað með þeim hætti að við teldum um að ræða ógn við verðlagsmarkmið samn- inga. Þar bentum við sérstakiega á grænmeti, en verðlag á því hefur þróast með fullkomlega óeðlilegum hætti eftir að GATT-reglurnar voru innleiddar. Einnig töldum við svig- rúm til að ná fram verðlækkun í framleiðslu á hvíta kjötinu með nið- urfellingu á óeðlilegri skattlagningu á aðföngin og takmörkunum á framleiðslu eins og gerist í kjúk- lingarækt.“ Niðurfelling skatts stuðlar að verðlækkun Þórarinn segir svínaræktina hafa það fram yfir kjúklingafram- leiðslu, ekki síst eggjaframleiðsl- una, að ekki hafi verið viðhaldið aðgangstakmörkunum eða fram- leiðslutakmörkunum með tilstyrk hins opinbera. „Þar hefur verið stunduð eðlileg verðsamkeppni eft- ir því sem við þekkjum til. Við höfum því ekki gert neinar athuga- semdir við þann þátt málsins, en hins vegar get ég dregið það fram að með niðurfellingu þess hluta kjarnfóðurskatts, sem er endur- greiddur, ætti að vera hægt að ná niður framleiðslukostnaði í grein- inni og gera henni kleift að bjóða ódýrari framleiðsluvöru en hún gerir nú,“ segir hann. Hanna 5.0001 ammon- íaksgeymi fyrir Svía * Morgunblaðið/Þorkell RUNÓLFUR Maack, vélaverkfræðingur og framkvæmdastjóri VGK, og Gunnar Herbertsson vélaverkfræðingur. VERKFRÆÐISTOFA Guðmund- ar og Kristjáns hf., VGK, er langt komin með hönnun á 5.000 tonna ammoníaksgeymi fyrir efnafyrir- tækið Akzo-Nobel í Svíþjóð, en smíði geymisins hefst í sumar og er áætlað að hann verði tekinn í notkun í ársbyijun 1997. VGK hannaði og stjórnaði uppbyggingu nýs ammoníaksgeymis Aburðar- verksmiðjunnar í Gufunesi sem tekinn var í notkun um áramótin 1990-91, en hann vakti athygli erlendis fyrir öryggi og tiltölulega lágan byggingarkostnað. Að sögn þeirra Runólfs Maack, framkvæmdastjóra VGK, og Gunn- ars Herbertssonar vélaverkfræð- ings tók VGK upphaflega að sér að annast forhönnun á 2.000 tonna ammoníaksgeymi fyrir sænska efnafyrirtækið, en fulltrúar þess komu hingað til lands árið 1992 og kynntu sér ammoníaksgeymi Áburðarverksmiðjunnar. VGK vann að þessu verkefni fyrir um 2 milljónir króna, en haustið 1993 óskuðu Svíamir eftir því að breytt yrði yfir í hönnun á 5.000 tonna geymi, sem komið yrði fyrir í þró í bergstapa á athafnasvæði fyrir- tækisins í verksmiðjubæ 40 km norður af Gautaborg. Bauðst að taka að sér verkefnisstjórn Unnið var að þessu verkefni fyrir um eina milljón króna, en í árslok 1994 óskuðu Svíarnir svo eftir nákvæmari forhönnun á geyminum og áætlun um kostnað verksins, en meðal annars var far- ið mun nákvæmar í öll öryggis- mál. VGK lauk við þetta verkefni í júní á síðasta ári fyrir tæpar 2,5 milljónir króna. í október í fyrra tók Ákzo-Nobel svo ákvörðun um að ráðast í smíði ammoníaksgeymisins og var VGK þá boðið að taka að sér verkefnis- stjórn ásamt hönnun geymisins, en af því varð þó ekki. „Við töldum betra að einbeita okkur að því sem við kunnum vel, þ.e. að hanna geyminn og kerfíð og vera ráðgjaf- ar og sérfræðingar fyrirtækisins í stað þess að hoppa inn í sænskt umhverfí og fara að stjórna verk- efni þar,“ sagði Gunnar. Runólfur segir að ástæða þess að VGK varð fyrir valinu hjá sænska fyrirtækinu hafi m.a. verið sú að þeir hafi nýlega farið í gegn- um allt það nýjasta við hönnun á geymi af þessu tagi og þá sérstak- lega allt hvað varðar öryggisbún- að, en í Svíþjóð er litið á ammon- íaksgeymi af þessari stærð á svip- aðan hátt og kjarnorkuver hvað varðar öll öryggismál. „Það sem kannski kom á óvart var að þeir töldu okkur ódýra en þá áttu þeir ekki við þóknun okkar heldur hönnunina sem heildar- pakka og það skipti mestu máli í þeirra huga,“ sagði Runólfur. Reyna að koma sér enn frekar á framfæri í Svíþjóð Samningurinn við Akzo-Nobel um hönnun og ráðgjöf skilar VGK um 20 milljónum króna, en það er um 25% af ársveltu fyrirtækis- ins eins og hún hefur verið undan- farin ár. Hönnunin er nú langt á veg komin og er áætlað að smíði geymisins hefjist í júní og verði lokið í árslok, en hann verður væntanlega tekinn í notkun í febr- úar á næsta ári. VGKerhlutafé- lag í eigu 15 einstaklinga sem starfa á stofunni eða tengjast henni. VGK var stofnað 1963 af vélaverkfræðingnum Guðmundi heitnum Björnssyni og Kristjáni Flygenring. í upphafi voru starfs- menn aðeins stofnendurnir tveir en upp úr 1970 voru starfsmenn orðnir sex. Upp úr miðjum áttunda áratugnum stækkaði stofan hröð- um skrefum samfara stórum verk- efnum vegna virkjunar jarðvarma þar sem Nesjavallavirkjun var stærsta verkefnið, en þar sá VGK um verkefnis- og framkvæmda- stjórn, hönnun vinnslurása, svæð- isskipulag, almenna vélahönnun, loftræstingu og lagnir auk þess að veita ráðgjöf við rekstur virkj- unarinnar. Um 1980 voru starfs- menn VGK komnir á þriðja tug- inn, en í dag eru þeir 22 talsins. Runólfur sagði að VGK ætlaði að reyna að notfæra sér samning- inn við Akzo-Nobel til að koma sér enn frekar á framfæri í Sví- þjóð, en erfitt væri að segja til um það á þessari stundu hvernig til tækist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.