Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Atak gegn loftmengun Mexíkóborg. Reuter. ÁKVEÐIÐ hefur verið að verja 778 milljörðum ísl. kr. til að draga úr loftmengun í Mexíkóborg, menguðustu höfuðborg í heimi. Munu aðgerðirnar fyrst og fremst beinast gegn bifreiðum og iðnfyr- irtækjum en ekki virðist þó enn ljóst í hverju þær verða fólgnar. Stjórnvöld segjast stefna að því að minnka loftmengun í borginni um 35-50% fyrir aldamót en yfir henni hvílir mikið mengunarský allan ársins hring. Hefur það veru- leg áhrif á heilsufar íbúanna, sem eru 20 milljónir talsins, og margir þjást stöðugt af öndunarerfiðleik- um, höfuðverk, hósta og sviða í augum. Helmingur þriggja milljóna bif- reiða í borginni notar enn blýbens- ín og bílaflotinn einn eys út í and- rúmsloftið þremur milljónum tonna af mengandi efnum árlega. Ortega fram- bjóðandi sandinista Managua. Reuter. DANIEL Ortega verður frambjóð- andi sandinista í Nicaragua í for- setakosningunum sem fram fara í haust. Ortega var forseti landsins á árunum 1984 til 1990. Ortega sem er fimmtugur sigr- aði í kosningum sem fram fóru innan flokks sandinista með mikl- um yfirburðum. Hlaut hann tæp- lega 240.000 atkvæði en helsti keppinautur hans rúmlega 41.000. Sandinistar, sem nutu stuðnings Sovétríkjanna og Kúbu, komust til valda í Nicaragua árið 1979 eftir að hafa komið Somoza-fjöl- skyldunni frá völdum. Contra- skæruliðar, sem nutu stuðnings Bandaríkjanna, háðu vopnaða bar- áttu gegn sandinistastjórninni um árabil. Svo fór að lokum að sandin- istar féllust á að fram færu fijáls- ar kosningar í landinu árið 1990 og sigraði bandalag stjómarand- stöðunnar undir stjóm Violeta Chamorro, núverandi forseta, í þeim. Mótorhjólaklúbbarnir Bandidos og Vítisenglar í skotbardögum í Danmörku og Noregi Farandsveinar í glæpum á framfæri hins opinbera Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÞRIR félagar úr dönsku mótorhjólasamtökunum „Vítisenglar" voru í gær ákærðir um morð og til- raun til morðs í skotbardaga á Kastrup-flugvelli við Kaupmannahöfn um helgina. Kurt Larsen rannsóknarlögregluþjónn sagði að kærurnar væru vegna morðsins á Uffe Larsen, leiðtoga „Bandi- dos“-gengisins, andstæðinga „Vítisenglanna" og árásar á þijá samferðamenn hans úr genginu, sem særðust. Einn maður er í haldi í Noregi vegna árásar, sem gerð var á sama tíma í Noregi. Há- vær umræða hefur hafist um mótorhjólagengi í Danmörku, sem hafa notið undarlegrar sérstöðu þar í landi. Það virðist ef til vill skemmtilegt tómstunda- gaman manna á miðjum aldri að þeysa um leður- klæddir á mótorhjólum með klúbbfélögum sínum. Skólar geta hringt í mótorhjólaklúbbana og fengið þaðan fyrirlesara, sem segir frá mótorhjólaástríðu, vináttu og heiðurshugtaki klúbbanna. Því hafa dönsk yfírvöld stundum litið á klúbbstarfsemina sem tómstundastarfsemi og styrkt hana eins og klúbba er skipuleggja silkimálun og kórsöng. Nú vænta margir viðhorfsbreytingar eftir skotbardag- ana á Kastrup-flugvelli og í Ósló um síðustu helgi. Vitað er að að baki klúbbunum er önnur starf- semi, nokkurs konar Myrkraverk hf., sem teygir anga sína um öll Norðuriönd, þó líklega að Is- landi undanskildu, og er líka í undirheimasam- bandi við skyld samtök í Bandaríkjunum og Evr- ópu. Og þó að margir forsprakkanna lifi á fram- færslueyri frá hinu opinbera og hafi samkvæmt skattskýrslunni aðeins nokkra tugi þúsunda ís- lenskra króna á mánuði sér til framfæris hindrar það þá ekki í að eiga dýr hjól og bfla og ferðast til fjarlægra landa. Fullgilding frá Bandaríkjunum Þótt oft sé aðeins talað um Hells-Angels, Vítis- engla, þá er um að ræða fleiri en eina fylkingu er heyra undir bandaríska móðurklúbba. Það eru bandarísku klúbbarnir með höfuðstöðvar í Oakland í Kaliforníu og Houston, sem veita leyfi til að nota klúbbnöfnin, veita klúbbunum fullgildingu og þangað rennur líka hluti af veltunni. í Evrópu eru klúbbamir einnig skipulagðir og til dæmis greiða allir meðlimir í sjóð, sem kallast „Defense" og hefur höfuðstöðvar í Sviss. Sjóðurinn ér meðal annars notaður til að styrkja meðlimi, sem komast í kast við lögin. Á Norðurlöndum hafa klúbbamir helst aðsetur í eða við Kaupmannahöfn, á Skáni, i Stokkhólmi, Helsinki og Ósló, en talið er að Kaupmannahöfn sé miðstöð norrænu starfseminnar. Kunnugir benda á að ekki sé tilviljun að þeir séu staðsettir Þrír danskir mótorhjólamenn handteknir SKÖMMU eftir skotbardagann á Fornebu- flugvelli handtók norska lögreglan mann í grennd við Lysaker. Var hann klæddur skyrtu með merki Bandidos og sést hér í höndum lögreglumanna, andlitið á ljós- myndinni hefur verið gert torkennilegt. nálægt höfnum, þar sem smygl geti farið um. Klúbbmeðlimir hafa verið flæktir í glæpi af öllu tagi, eiturlyfjasölu, peningaþvætti, áfengissmygl og reka innheimtufyrirtæki af hörku. Það er einmitt harkan sem gerir lögreglunni svo erfitt að eiga við klúbbana. Vitnum í málum með- limanna er misþyrmt, eða þau missa skyndilega minnið og lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra er hótað. Ekki þykir vænlegt að reyna að láta lögreglumenn blanda sér í hópinn á fölskum for- sendum. Jafnvel blaðamenn, sem hafa skrifað um starfsemina, hafa fengið hótanir eða verið mis- þyrmt. Það gerist því undarlega oft að réttarhöld gegn meðlimunum renna út í sandinn og dráps- mál enda í lítilvægum sektum fyrir smávægilegar yfirsjónir. Tæknivædd virki Klúbbamir hafa aðsetur í húsum, sem líkjast virkjum. Oftast er um að ræða fleiri en eitt hús í þyrpingu, sveitabæi eða einbýlishús í úthverfum, en líka eru klúbbhús inni í stórborgum eins og Kaupmannahöfn. Klúbbhúsin eru varin gaddavírs- klæddum veggjum, sem fjarstýrðar myndavélar vaka yfir. Að innan eru húsakynnin vel búin alls kyns tæknibúnaði og vakað yfir öllu. Sænsku klúbbarnir eru margir tengdir ný-nasistahreyfmg- um þar. En það er ekki aðeins lögreglan sem virðist eiga erfitt með að ná tökum á glæpastarfsem- inni. Skattamál meðlimanna eru oft hin undarleg- ustu. Þeir hafa engar tekjur á pappírnum, en lifa þó góðu lífí með dýr hjól, bíla og ferðalög. Ýmsir þeirra fá einnig félagslegar bætur og hafa gert um árabil. Og þó klúbbarnir og meðlimimir eigi lítið á pappímum þá hefur ekki staðið á lánum, sem oft eru fengin með milligöngu slóttugra lög- fræðinga. Undanfarin tvö ár hafa orðið stigvaxandi erjur milli helstu klúbbanna, Vítisenglanna og Bandi- dos. Hér er ekki um nein strákapör að ræða, því meðlimirnir takast á um völd og um leið ábata- sama starfsemi. Vítisenglarnir hafa um árabil verið allsráðandi á Norðurlöndum, en leyfðu litlum klúbbi, Bandidos, að hasla sér völl í mesta bróð- erni fyrir um þremur árum. En vináttan hélst ekki lengi, þegar fór að fjölga í Bandidos, sem nú er orðinn álíka stór og gamli klúbburinn. Um leið hefur nýi klúbburinn að öllum líkindum seilst inn á athafjiasvæði hins. Lokauppgjör? í fyrra var yfirmaður Bandidos í Málmey skot- inn á götu. Jarðarförin var stórbrotin samkoma meðlima alls staðar að úr Evrópu og frá Bandaríkj- unum. í kjölfarið var skotið flugskeytum að tveím- ur virkjum Vítisenglanna í Finnlandi og Svíþjóð. Á þessu ári hefur fjórum sinnum komið til vopn- aðra átaka á Skáni milli hópanna. Átökin verða bæði tíðari og eru ekki lengur bundin við staði, sem þeir einir sækja, heldur berast út um víðan völl. Þeir sem fylgst hafa með þróun klúbbanna undrast því ekki árásina í Kastrup og á Fornebu og álíta hana innganginn að úrslitaátökum klúbb- anna um hver eigi að stjórna norrænum geira Myrkraverka hf. Major milli steins og sleggju í Evrópumálum London. Reuter. SÓTT er að ríkisstjórn Johns Maj- or í Bretlandi úr tveimur áttum vegna Evrópustefnu hennar. Ann- ars vegar hóta „efasemdamenn" í íhaldsflokki Majors að greiða at- kvæði gegn stjórninni við umræður um Evrópustefnu hennar á þingi í næstu viku og hins vegar ógnar væntanlegt framboð flokks millj- arðamæringsins James Goldsmith íhaldsflokknum. Goldsmith er forystumaður hins nýstofnaða fjóðaratkvæða- greiðsluflokks (Referendum Party), sem krefst þess að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Bretlands innan Evrópu- sambandsins og um þátttöku í efnahags- og myntbandalagi Evr- ópuríkja (EMU) Goldsmith gæti fellt 25 íhaldsþingmenn Goldsmith hótar að bjóða fram í hundruðum kjördæma í næstu þingkosningum, verði Major ekki við kröfum hans. Ríkisútvarpið BBC birti á mánudag upplýsingar úr skýrslu, sem unnin hefur verið fýrir Ihaldsflokkinn um hugsanleg- ar afleiðingar af framboði Gold- EVRÓPA^ smiths og fylgismanna hans. í skýrslunni kemur fram að flokkur Goldsmiths gæti tekið atkvæði af íhaldsmönnum í jaðarkjördæmum og þannig komið í veg fýrir kjör íhaldsmanna í allt að 25 þingsæti. Meirihluti íhaldsflokksins á þingi er nú aðeins tvö sæti. Flokksskrifstofa íhaldsflokksins viðurkenndi að skýrslan hefði verið útbúin, en sagði að hún væri verk utanaðkomandi ráðgjafa og ekki opinbert flokksplagg. Goldsmith birti stórar auglýs- ingar í brezkum blöðum á mánu- dag, þar sem hann krafðist þess að ríkisstjómin héldi þjóðarat- kvæðagreiðslu fyrir eða um leið og næstu þingkosningar. Ian Lang, iðnaðar- og viðskiptaráðherra I stjórn Majors, sagði að ríkisstjórn- in myndi ekki mæta kröfum auð- mannsins. „Við látum ekki hræða okkur til eins eða neins þótt einn mjög ríkur kaupsýslumaður hafi ákveðna skoðun á þessum málum,“ sagði Lang. EkJki orðið við kröfum hægrivængsins Önnur hætta, sem steðjar að Major, er umræða á þinginu 21. þessa mánaðar um stefnu ríkis- stjórnarinnar á ríkjaráðstefnu ESB, sem hefst í lok mánaðarins. „Hvítbók“ um helztu atriðin í stefnunni var gefin út í gær, þriðju- dag. í henni er ítrekuð fyrri af- staða stjómar Majors, sem felst í að hindra aðildarríki ESB í að af- sala meira valdi en orðið er til sameiginlegra stofnana. Hins veg- ar er ekki tekið undir kröfur hægri- vængs Ihaldsflokksins um að end- urheimta „fullveldi“, sem hafí ver- ið framselt til Brussel. I hvítbókinni kemur fram að Bretland sé áfram hlynnt evrópsku samstarfi, en hafni algerlega frek- ari takmörkunum á neitunarvaldi sínu í ráðherraráði ESB. Jafnframt kveðst ríkisstjórnin ætla að beita sér fyrir endurskoðun á starfshátt- MAJOR þarf að verjast eigin flokksmönnum og peninga- valdi Goldsmiths í Evrópu- málunum. um Evrópudómstólsins, en þar hafa Bretar tapað hveiju málinu á fætur öðru. Lagzt er gegn því að hlutverk ESB í varnar- og öryggismálum verði útvíkkað og ítrekað að NATO sé grundvöllur vestræns varnar- samstarfs. Bill Cash, einn helzti leiðtogi hægrivængsins, sagði í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina áður en hvít- bókin var gerð opinber, að ekki væri líklegt að hann myndi greiða atkvæði með henni. Vinnutímatilskipun Evrópusambandsins Hafna kröfum um frávísun Lúxemborg. Reuter. RÁÐGJAFI Evrópudómstólsins tel- ur einsýnt að hafna beri kröfu Breta um frávísun vinnutímatilskipunar Evrópusambandsins. Bretar fara fram á að tilskipun- inni verði vísað frá þar sem að hún hafi verið samþykkt sem „heilbrigð- islöggjöf" með meirihlutaatvæða- greiðslu en ekki sem löggjöf varð- andi „réttindi og hagsmuni laun- þega“ en þá þarf samhljóða sam- þykki aðildarríkjanna að koma til. Philippe Leger, sérstakur ráð- gjafi dómstólsins færir hins vegar í áliti rök fyrir því að tilskipunin frá 1993 varði heibrigði og öryggi og að túlka beri hana í víðu sam- hengi þannig að hún fjalli um „vinnuumhverfi". Álit ráðgjafans eru einungis leið- beinandi en yfírleitt fer dómstóllinn eftir þeim. Leger leggur til að kröfu Breta verði alfarið hafnað. Breskir embættismenn segja hins vegar að stjómin standi fast á kröfu sinni og muni ekki gefast upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.