Morgunblaðið - 13.03.1996, Síða 8

Morgunblaðið - 13.03.1996, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞAÐ ætti að létta séra Bolla verkið að búið var að hjólvæða kirkjumublurnar... 48 ályktanir samþykktar á Búnaðarþingi Gjaldtaka Stofnlánadeildar minnki um helming ÖÐRIJ reglulega búnaðarþingi eft- ir að Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda sameinuð- ust í Bændasamtök íslands lauk á Hótel Sögu síðastliðinn sunnudag. Alls voru 48 ályktanir samþykktar á þinginu, en meðal þeirra er álykt- un um að töku á háum kjarnfóður- tolli og endurgreiðslu hans verði hætt, en í staðinn verði haldið eft- ir 4-5% tolli á korni og 12-15% tolli á unnum fóðurvörum. Þá var samþykkt að leggjá til að inn- heimtu til Stofnlánadeildar land- búnaðarins verði breytt þannig að gjaldtaka af bændum verði minnk- uð um helming. Ari Teitsson, formaður Bænda- samtaka íslands, segir að þetta muni þýða minnkandi álögur á landbúnaðinn, en Stofnlánadeildin hafí bætt eiginfjárstöðu sína und- anfarin ár og ætti því að þola skerðinguna. Jafnframt þessu var lagt til að vextir á lánum sem tek- in verða hjá Stofnlánadeild héðan í frá verði hækkaðir, en það þýðir t.d. að lægstu vextir hækka úr 2% í 3%. Eitt fyrirtæki um útflutning Á búnaðarþingi var rætt um stefnu í framleiðslu á lífrænum og vistvænum afurðum og var stjórn Bændasamtakanna falið að halda áfram að vinna að þeim málum. Þá komu á þinginu fram miklar áhyggjur af stöðu afurðastöðva í landbúnaði. Hvetur þingið til þess að menn reyni að ná þar meiri samvinnu bæði á innlendum og erlendum markaði, og þá sérstak- lega hvað varðar kjötframleiðsl- una. „Það er horft til þess að koma upp einu fyrirtæki sem hafi umsjón með og beri ábyrgð á útflutningn- um til þess að hann fari ekki í bein undirboð og samkeppni. Þetta er kannski svolítið svipað og SH og íslenskar sjávarafurðir eru með hvort í sínu lagi, þannig að færri séu í því að flytja út og séu þá með ákveðna markaði sem hægt sé að spilla með undirboðum. Stjórn bændasamtakanna hefur verið falið að vinna að þessu máli, en að því koma jafnframt slátur- leyfishafar sem eru eigendur kjöts- ins. Þettá verður ekki gert nema í samvinnu við þá,“ sagði Ari. Jafnrétti til náms Búnaðarþing samþykkti erindi um jafnrétti til náms, en þingið telur að eigi markmið til laga um jöfnun á aðstöðu til náms að ná fram að ganga verði að tryggja aukna íjárveitingu til þess. „Það kom fram að geta bænda- fólks til þess að kosta börn sín til náms hefur farið minnkandi vegna minnkandi tekna og á sama tíma hefur unglingum gengið verr og verr að fá vinnu. Þetta er orðið alvarlegt vandamál og hreinlega ekki efnahagslegir möguleikar á að kosta fólk til náms. Þetta gildir upp að námslánum sem menn fá ekki fyrr en á háskólastigi. í náms- jöfnunarstyrki er veitt um 100 milljónum á þessu ári en talin er þörf á 200 milljónum. Þarna er því mikið bil og ljóst að þetta er orðið félagslegt vandamál," sagði Ari. Samstarf við aðila vinnumarkaðarins Ari sagði búnaðarþing hafa ver- ið jákvætt og fullur hugur væri í mönnum að horfa fram á veginn og beina sjónum ekki alltof mikið að fortíðinni. Þingið telur rétt að farið verði í viðræður við aðila vinnumarkaðarins og samstarfi eins og komið var á fyrir nokkrum árum haldið áfram. „Aðilar vinnu- markaðarins hafa svolítið efast um hug okkar en þarna á þinginu kom þetta alveg skýrt fram,“ sagði Ari. Fræðslunámskeið um ofbeldi gegn konum Ofbeldi minnkarekki SAMTÖK um Kvenna- athvarf hyggjast standa fyrir nám- skeiði um ofbeldi gegn konum í Hinu húsinu þann 28.-30. mars' nk. Þetta námskeið er'ætlað hinum ýmsu starfsstéttum, að sögn Ástu Júlíu Arnar- dóttur, fræðslu- og kynn- ingarfulltrúa Kvennaat- hvarfsins. Það verður í fyrirlestrarformi og ráð- gerðar umræður eftir hvern fyrirlestur. Er of- beldi gegn konum í samfé- laginu mikið? Miðað við aðsókn að Kvennaathvarfinu er ekk- ert sem bendir til þess að ofbeldi gegn konum fari minnkandi. Markmið Samtaka um kvennaat- hvarf er að reka athvarf annars vegar fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsi er þeim óbærileg vegna andlegs eða lík- amlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna, og hins vegar fyrir konur sem verða fyrir nauðgun. Markmiðið er enn- fremur að veita ráðgjöf og upp- lýsingar, efla fræðslu og um- ræðu um ofbeldi innan fjöl- skyldu, meðal annars til þess að auka skilning í þjóðfélaginu á eðli ofbeldis og afleiðingu þess dg stuðla að því að þjóðfélagið, lög þess og stofnanir verndi og aðstoði þá sem slíku þurfa sæta. Hvað margar konur komu í Kvennaathvarfið í fyrra? Árið 1995 leituðu 282 konur til Kvennaathvarsins og 131 barn kom þangað til dvalar það ár. Símtöl- frá konum víðs vegar af landinu voru 2.095. Allar þessar konur komu eða hringdu vegna heimilisofbeldis, nánast alltaf vegna ofbeldis eiginmanns eða sambýlismanns. Um þrjátíu prósent kvenna sem leitað hafa til athvarfsins frá upphafi hafa borið líkamlega áverka, hinar hafa sætt andlegu ofbeldi. Hvað er talið andlegt ofbeldi? Margar konur búa við ofbeldi á heimilum sínum, það getur birst í ýmsum myndum og verið bæði Iikamlegt og andlegt. Fjöldi kvenna býr við ofbeldi án þess að bera þess sýnileg merki. Of- beldi læðist oft hægt inn í sam- bandið en getur einnig þróast á skömmum tíma og þrífst í skjóli friðhelgi heirhilisins. í sambúð þarf fólk að laga sig hvort að öðru, koma til móts við hinn aðilann og breyta ýmsu í fari sínu ef vel á að takast -------- til. í ofbeldissambönd- um er það oftast þann- ig að karlmanninum finnst að konan þurfi bara að breytast en ekki hann. Þetta ferli ______ getur verið mjög lúmskt og margar konur komast ilía út úr því án aðstoðar. Hvenær er hægt að tala um of- beldissamband? Það er konan sjálf sem skil- greinir og metur hvort samband- ið er orðið ofbeldissamband. Komist hún að þeirri niðurstöðu leitar hún sjálf aðstoðar á eigin forsendum. Við hér hjá Kvenna- athvarfínu komum ekkert ná- lægt því mati. Starfskonur at- hvarfsins eru fyrst og fremst til þess að veita stuðning og ráð- gjöf. Konurnar sem í athvarfið koma taka sjálfar allar ákvarð- Ásta Júlía Arnardóttir ►Ásta Júlía Arnardóttir er fædd árið 1961 í Reykjavík. Hún er stúdent frá Mennta- skólanum við Sund og stund- aði nám í Frakklandi í frönsku og frönskum nútímabók- menntum i tvö ár. Eftir það lagði hún stund á fjölmiðla- fræði í London og lauk BA- gráðu í þeirri grein eftir þriggja ára nám. Að loknu námi vann Ásta tvö ár í Kvennaathvarfinu en vann svo fimm ár hjá fjölmiðlunarfyrir- tækinu Myndbæ. Nú er Ásta fræðslu- og kynningarfulltrúi hjá Samtökum um kvennaat- hvarf. Ásta er gift Grétari Skúlasyni menntaskólakenn- ara og eiga þau tvö börn. Fjöldi kvenna býr við ofbeldi án þess að bera þess sýnileg merki anir, enginn segir þeim að gera þetta eða hitt. Kvennaathvarfið er húsaskjól og stuðningur til sjálfshjálpar og þar ríkir nafn- leynd og trúnaður. Konurnar sem koma þar hitta aðrar konur með svipaða reynslu. Þær eru í viðtölum í athvarfinu en konur geta líka nýtt sér slík viðtöl þótt þær dvelji ekki þar. í athvarfinu er barnastarf fyrir þau börn sem ekki geta sótt eigin leikskóla eða skóla. í Kvennaathvarfinu er ætíð húsrúm fyrir konur, við segjum aldrei: „Það er fullt“. Við björgum málunum einhvern veginn. Við reynum að útvega hverri konu eigið herbergi. Kon- urnar skipta með sér almennum heimilisstörfum og bera sjálfar ábyrgð á börnum sínum. Á hveiju er helst tekið á hinu fyrirhugaða námskeiði? ------- Við munum byrja á að skýra frá hvernig Kvennaathvarfið_ hóf starfsemi sína á íslandi fyrir forgöngu Sam- taka um kvennaat- hvarf. Síðan munum við leitast við að skýra hvað er heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum. Þá verður innra starf athvarfsins skýrt og skil- greint. Spurningunni: „Hvers vegna ofbeldissamband?" verður velt upp. Fjallað verður um kyn- ferðislegt ofbeldi. Kynning verð- ur á starfsemi Stígamóta og Neyðarmóttöku Borgarspítal- ans. Ennfremur verður fjallað um samskipti fólks og áhrif heimilisofbeldis á börn. Síðasti fyrirlesturinn fjallar svo um karla gegn ofbeldi. í lokin munu allir fyrirlesararnir sex svara spurningum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.