Morgunblaðið - 13.03.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Kaupþing Norðurlands hf.
Keypti hlutabréf
Framkvæmda-
sjóðs 1 fyrirtækinu
KAUPÞING Norðurlands hf. hefur keypt öll hlutabréf Framkvæmda-
sjóðs Akureyrarbæjar í fyrirtækinu. Nafnverð hlutabréfanna var rúm-
lega 1,2 milljónir króna og voru þau seld á genginu 1,5. Slippstöðin
Oddi hf. hefur gert tilboð í hlutabréf Framkvæmdasjóðs í fyrirtækinu
á genginu 1 en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vill Fram-
kvæmdasjóður fá hærra verð fyrir bréfin og er málið óafgreitt. Þá
hafa forsvarsmenn Laxár óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um
kaup á hlut Framkvæmdasjóðs í fyrirtækinu.
Samþykkt hreppsnefndar Skútustaðahrepps í skólamálinu
Skilyrði sveitar-
stjórnar óeðlileg
Lúðra-
blástur í
sólarhring
ELDRl blásarasveit Tónlistar-
skólans á Akureyri lék tónlist
samfleytt í einn sólarhring um
helgina en tilgangurinn var að
safna peningum í ferðasjóð. Ung-
mennin í sveitinni söfnuðu áheit-
um áður en maraþonspilamennsk-
an hófst og söfnuðust á annað
hundrað þúsund krónur. Um 35
ungmenni á aldrinum 12-18 ára
eru í blásarasveitinni og i sumar
heldur hópurinn í viku tónlistar-
ferð til Skotlands og spilar í Edin-
borg, Aberdeen og Dunfermline.
Blásarasveitin fékk inni á sal
Gagnfræðaskólans og þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins leit þar
inn höfðu ungmennin spilað í 22
klukkustundir. Ekki var þó að sjá
að loftið væri farið að minnka í
krökkunum eða að varirnar væru
aumar, því þeir Iéku enn af mikl-
um krafti, undir handleiðslu Jóns
Halldórs Finnssonar, stjórnanda
sveitarinnar.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur svarað fyrirspurn frá Hjörleifi
Sigurðarsyni sem sæti á í sveitar-
stjórn Skútustaðahrepps þar sem
hann spurðist fyrir um hvort hluti
samþykktar hreppsnefndar frá því í
lok janúar stæðist lög. Um er að
ræða samþykkt í kjölfar umsóknar
íbúa í suðurhluta Mývatnssveitar um
rekstrarstyrk fyrir einkaskóla sem
rekinn er að Skútustöðum, en fyrir
lá að sveitarfélagið gæti fengið fram-
lag úr jöfnunarsjóði upp í rekstrar-
styrkinn. í samþykkt sveitarstjórnar
kom fram að styrkveiting yrði háð
því skilyrði að rekstrarstjórn einka-
skólans og meirihluti foreldra barna
sem sækja skólann undirriti yfirlýs-
ingu um að þeir muni ekki sækja
um slíkan styrk eftir þetta skólaár.
í svari félagsmálaráðuneytisins er
vísað til jafnræðisreglunnar þar sem
segir að stjórnvöld skuli gæta sam-
ræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti
og óheimilt sé að mismuna aðilum
við úriausn mála á grundvelli sjón-
armiða sem byggist á kynferði, kyn-
þætti, litarhætti, þjóðerni, trúar-
brögðum, stjórnmálaskoðunum,
þjóðfélagsstöðu, ætterni eða öðrum
ástæðum. Einnig er bent á 12. grein
stjórnsýslulaga þar sem fjallað er um
meðalhófsreglu í stjórnsýslunni þar
sem m.a. segir að stjórnvöld verði
að gæta hófs í meðferð valds síns.
Ekki meiri
bein útgjöld
Ráðuneytið telur því að skilyrði
þau sem hreppsnefnd Skútustaða-
hrepps setti á fundinum í janúar séu
óeðlileg gagnvart viðkomandi ein-
staklingum. Þá er bent á að sveitar-
félög muni alfarið sjá um rekstur
grunnskólanna eftir 1. janúar.
„Þannig er vandséð að rekstur
einkaskóla geti eftir þann tíma átt
sér stað án tilstyrks viðkomandi
sveitarfélags, því ríkið mun ekki
taka þátt í rekstri einkaskóla eins
og nú er. Það er því sveitarstjórn á
hveijum tíma sem tekur ákvörðun
um þátttöku í rekstri einkaskóla og
getur núverandi sveitarstjórn ekki
bundið hendur komandi sveitar-
stjórna í því máli. Jafnframt er rétt
að benda á að ekki verður séð að
sveitarsjóður Skútustaðahrepps
verði fyrir meiri beinum útgjöldum
til einkaskólans að Skútustöðum
með því að falla frá skilyrði um
undirritun yfirlýsingar," segir í áliti
félagsmálaráðuneytis.
Bæjarsljóri segir hugmyndir um sameiningu RA og RARIK úr sögunni
Kanna hagkvæmni sam-
einingar veitustofnanna
JAKOB Bjömsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri segist líta svo á að hugmyndir
um sameiningu Rafmagnsveitu ríkis-
ins og Rafveitu Akureyrar og um
flutning höfuðstöðva RÁRIK til Ak-
ureyrar, séu ekki lengur uppi á borð-
inu. Þess í stað vill bæjarstjóri að
farið verði í að skoða í fullri alvöru
sameiningu Hita-, Vatns- og Rafveitu
Akureyrar, þá með einni yfirstjórn
og einum framkvæmdastjóra.
Jakob segir að árið 1993 hafi verið
gert samkomulag milli þáverandi
iðnaðarráðherra, Jóns Sigurðssonar,
og Akureyrarbæjar um að kanna
hagkvæmni þess að RARIK og RA
yrðu sameinaðar og að höfuðstöðvar
RARIK flyttust til Akureyrar. Skip-
uð var nefnd til að skoða þá kosti
en Jakob segir að nefndin hafi í
raun aldrei skilað af sér.
Engin svör borist
frá ráðuneytinu
„Ástæða þess var ekki ósætti,
heldur voru settir fram ákveðnir
fyrirvarar af hálfu fulltrúa RARIK
í nefndinni sem ráðherra gat ekki
sætt sig við og þar stoppaði málið.
Síðan hefur verið vakið máls á þessu
aftur við ráðuneytið en þaðan hafa
engin svör borist og ég Íít svo á að
þetta sé ekki lengur inni í myndinni."
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Morgunblaðið/Kristján
HÖFUÐSTÖÐVAR Rafveitu Akureyrar
eru í glæsilegu húsnæði við Þórsstíg.
VERÐI af sameiningu veitustofnana bæjarins, segist bæjarstjóri
líta svo á að starfsemi Rafveitunnar yrði flutt að Rangárvöllum,
en þar eru höfuðstöðvar Hita- og Vatnsveitu.
bæjarins fyrir árið 1996, var sam- iðnaðarráðuneytið um sameiningu
þykkt bókun, þar sem fram kemur Rafveitu Akureyrar og RARIK , verði
að náist ekki árangur í viðræðum við kannað til'hlítar hvort hagkvæmt sé
að sameina rekstur veitustofnana
Akureyrarbæjar.
„Þessi vinna er ekki komin í gang
en ég sé ekki að það sé eftir neinu
að bíða með að hún hefjist sem
fyrst,“ segir Jakob. Með sameiningu
veitnanna er talið að hægt sé að ná
fram auknum sparnaði í rekstri
þeirra og hafa bæði starfsmannamál
og innheimtumál verið nefnd í því
sambandi.
Rafveitan flytji
að Rangárvöllum
Hitaveita og Vatnsveita voru sam-
einaðar fyrir nokkrum árum og er
starfsemi þeirra til húsa á Rang-
árvöllum. Jakob segist sjá það fyrir
sér að við sameiningu veitnanna
myndi Rafveitan flytja úr húsnæði
sínu við Þórsstíg og að Rangárvöllum
og um leið opnðust ýmsir möguleikar
varðandi húsnæði Rafveitunnar.
„Það að húsnæði Rafveitunnar
losnaði gæti leyst ýmsan vanda, t.d.
vanda gatnagerðar bæjarins, við-
haldsdeildar húseigna, viðhaldsdeild-
ar leikvalla eða verkstæðis umhverf-
isdeildar. Það verður alla vega eng-
inn vandi að nýta húsnæðið. Hins
vegar gæti þurft að bæta eitthvað
við húsakost Hita- og Vatnsveitu við
flutning Rafveitunnar að Rangár-
völlum,“ segir Jakob.
Þær viðræður hafa ekki farið
fram en málið er á borði bæjar-
stjóra. Nafnverð hlutabréfa Fram-
kvæmdasjóðs í Laxá hljóðar upp
á rúmar 21 milljón króna.
Raunverð um
300 millj.
Eins og komið hefur fram í blað-
inu hafa forsvarsmenn Útgerðar-
félags Akureyringa hf. lagt það
til við bæjarstjórn, að ÚA fái heim-
ild til kaupa á töluverðum hlut
bæjarins í ÚA að loknu hlutafjár-
útboði upp á 150 milljónir króna
að nafnvirði. Um er að ræða hluta-
bréf um 91 milljón króna að nafn-
virði eða 10% hlut í félaginu eftir
hlutafjáraukningu. Raunverð
þessa hlutar gæti verið um 300
milljónir króna.
Skýrsla Landsbréfa
afhent í dag?
Bæjarstjórn fól Landsbréfum
að gera skýrslu um hvernig bæri
að standa að sölu _ hlutabréfa
Framkværydasjóðs í ÚA. Líklegt
er að bæjarstjóri fái þá skýrslu í
hendur í dag og að innihald henn-
ar verði til umræðu á fundi bæjar-
ráðs á morgun.
------» ♦ ♦-------
F<
Ráðin
lektor
• KRISTÍN Aðalsteinsdóttir
hefur verið ráðin til að gegna stöðu
lektors í kennslufræði við kennara-
deild Háskólans á Akureyri.
Kristín er fædd
árið 1946, hún
lauk kennaraprófi
frá Kennaraskóla
íslands 1966 og
prófi frá fram-
haldsdeild Kenn-
araháskóla ís-
lands í almennri
kennslu barna
með námsörðugleika 1971. Hún
stundaði framhaldsnám í Osló sem
hún lauk 1983ogþálauk hún
meistaragráðu í kennslufræðum
viðTláskólann í Bristol í Englandi
1988.
Hún hefur starfað við kennslu
á Akureyri og í Ósló, verið sér-
kennslufulltrúi á Fræðsluskrif-
stofu Norðurlands eystra og vestra
og verið yfirkennari við Síðuskóla.
Þá var hún deildarstjóri við Kenn-
araháskóla íslands og hafði um-
sjón með framhaldsnámi í sér-
kennslufræðum til BA-prófs.
Kristín var stundakennari við Há-
skólann á Akureyri 1994-’95 og
sérfræðingur frá 1995.
Kristín hefur haldið námskeíð
og flutt erindi um uppeldis- og
kennslumál víða um land og skrif-
að og þýtt kennsluefni. Hún stund-
ar nú doktorsnám við Háskólann
í Bristol í Englandi, en tekur við
stöðu sinni hjá háskólanum 1.
ágúst næstkomandi.