Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Fegnrðarsamkeppni Suðurnesja verður haldin í Stapa á laugardag
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
STÚLKURNAR sem taka þátt í keppninni um titilinn fegurðardrottning Suðurnesja 1995. í fremstu
röð frá vinstri til hægfri eru: Jónína Magnúsdóttir, Garði, Jenný Kamilla Knútsdóttir, Garði, Helga
Erla Gunnarsdóttir, Keflavík, Kristbjörg Helga Eyjólfsdóttir, Grindavík og Sólveig Lilja Guðmunds-
dóttir, Njarðvík. í miðröðinni eru vinstri til hægri: Margrét Jóna Þórhallsdóttir, Njarðvík, Tinna
Ösp Skúladóttir, Garði, Helga Margrét Sigurbjörnsdóttir^ Keflavík og Lára Sig Jónsdóttir, Njarðvík.
í öftustu röðinni eru frá vinstri til hægri: Eva Björk Oskarsdóttir, Keflavík, Rakel Óskarsdóttir,
Sandgerði, Ingibjörg Bergmann Magnúsdóttir, Keflavík og Vigdís Jóhannsdóttir, Keflavík.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
EYDÍS Konráðsdóttir,
íþróttamaður Keflavíkur
1995.
Eydís Kon-
ráðsdóttir
íþrótta-
maður
Keflavíkur
Keflavík - Eydís Konráðs-
dóttir, 17 ára nemandi í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja var
kjörin íþróttamaður Keflavík-
ur fyrir árið 1995 og fór verð-
launaafhendingin fram á að-
alfundi Iþrótta- og ung-
mennafélags Keflavíkur um
s.l. helgi.
Hefur glæstan sundferil
að baki.
Eydís hefur þrátt fyrir
ungan aldur þegar glæstan
sundferil að baki og á síðasta
ári setti hún 8 íslandsmet. Á
smáþjóðaleikunum í Luxem-
borg vann hún til 7 gullverð-
launa og á sundmeistaramóti
íslands sigraði hún í 4 grein-
um. Þá var hún eini íslenski
sundmaðurinn sem náði lág-
mörkum á Evrópumeistara-
mótið sem haldið var í Vínar-
borg.
13 stúlkur keppa
um titilinn
Keflavík - Fegurðarsamkeppni
Suðurnesja fer fram í Stapa á
laugardagskvöldið og að þessu
sinni taka 13 stúlkur þátt í keppn-
inni og hafa þær aldrei verið jafn-
margar. Stúlkurnar voru valdar
um og eftir áramót eftir ábending-
um, að sögn Ágústu Jónsdóttur,
umboðsmanns keppninnar á Suð-
urnesjum, og síðan hefði undir-
búningur hafist í febrúar.
Stúlkurnar sem keppa um titil-
inn eru: Sólveig Lilja Guðmunds-
dóttir, 19 ára úr Njarðvík, Tinna
Ösp Skúladóttir, 19 ára úr Garði,
Eva Björk Óskarsdóttir, 18 ára úr
Keflavík, Lára Sif Jónsdóttir, 19
ára úr Njarðvík, Vigdís Jóhanns-
dóttir, 18 ára úr Keflavík, Helga
Margrét Sigurbjörnsdóttir, 21 árs
úr Keflavík, Kristbjörg Helga Ey-
jólfsdóttir, 19 ára úr Grindavík,
Helga Erla Gunnarsdóttir 18 ára
úr Keflavík, Jónína Magnúsdóttir,
18 ára úr Garði, Rakel Öskarsdótt-
ir, 19 ára úr Sandgerði, Margrét
Jóna Þórhallsdóttir, 20 ára úr
Njarðvík, Ingibjörg Bergmann
Magnúsdóttir, 18 ára úr Keflavík,
og Jenný Kamilla Knútsdóttir, 19
ára úr Garði.
I dómnefnd eru: Sigtryggur
Sigtryggsson formaður, Bjargey
Einarsdóttir, Jón Kr. Gíslason,
Kristín Stefánsdóttir og Unnur
Steinson. Þetta er í 11. sinn sem
Ágústa Jónsdóttir og Páll Ketils-
son standa fyrir þessari keppni.
Vill sameiningu
á Norðurhéraði
ODDVITI Tunguhrepps á Fljótsdals-
héraði hefur sent hreppsnefndum
Jökuldalshrepps og Hlíðarhrepps
bréf til að kanna vilja þeirra til frek-
ari samvinnu sveitarfélaganna eða
sameiningar. Mest andstaða hefur
verið við sameiningu í Jökuldals-
hreppi og voru skiptar skoðanir í
hreppsnefndinni þegar erindið var
kynnt þar.
Jón Steinar Elísson bóndi og odd-
viti á Hallfreðarstöðum í Hróars-
tungu segir að með samstarfi hafi
sveitarfélögin náð að bæta mjög
þjónustu sína við íbúana. Samvinnan
hafi verið góð en hún sé hins vegar
seinvirk þegar leggja þurfi málin
fyrir þijá oddvita og þtjár hrepps-
nefndir sem ekki fundi oft og geti
einföldustu mál tafist af þeim ástæð-
um ef ekki er um þau full sam-
staða. Því vilji hann kanna aukið
samstarf eða sameiningu hreppanna
þriggja.
Sameining skólahverfa
Jón Steinar telur að yfirtaka sveit-
arfélaganna á grunnskólanum þrýsti
á um sameiningu. Hætt sé við því
að minni sveitarfélögin beri skarðan
hlut frá borði við yfirfærsluna. Telur
hann að sameining Skjöldólfsstaða-
skóla á Jökuldal og Brúarásskóla
sem Hlíðarhreppur og Tunguhrepp-
ur reka geti verið hagkvæm. Með
því móti yrði mögulegt að draga úr
stjórnunarkostnaði og nota pening-
ana til að auka kennsluna.
Þá segir hann að mörk skólahverf-
anna séu sífellt að verða ógreini-
legri. Þannig geti foreldrar sem búa
í jaðri sveitarfélags í raun ákveðið
að senda barn í skóla nær sér þótt
hann sé í öðru sveitarfélagi og tekið
með sér þann aksturs- og kennsluk-
vóta sem barninu fylgi. Um þetta
séu nokkur dæmi í þessum sveitarfé-
lögum og telur Jón Steinar líkur á
að þeim muni fjölga.
Endir á ferli
Hreppsnefnd Jökuldalshrepps af-
greiddi ekki erindi oddvita Tungu-
hrepps efnislega en mun taka það
upp á almennum hreppsfundi í
næsta mánuði. Oddvitinn, Arnór
Benediktsson á Hvanná, talaði ják-
vætt um sameiningu, annar lýsti
efasemdum sínum. Einn hrepps-
nefndarmaðurinn, Sigurður Aðal-
steinsson á Vaðbrekku, lýsti ein-
dreginni andstöðu við sameiningu
sveitarfélaganna. Sigurður segist
'hins vegar vera fylgjandi aukinni
samvinnu. „Ég lít svo á að samein-
ing sé endir á ferli en ekki byijun,“
segir hann í samtali við Morgun-
blaðið.
Rótarýklúbbur Rangæinga þrjátíu ára
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
ÞÓRÐUR Tómasson, safnvörður í Skógum, tekur við heiðursviður-
kenningu úr hendi Sveins Runólfssonar, forseta Rótarýklúbbsins.
JÓHANNES B.M. Gijsen flytur sína fyrstu
messu í Stykkishólmi.
Morgunbiaðið/Árni Helgason
RÓBERT Jörgensen kveður systur Ludwinu.
Biskup heilsar, systir kveður
Stykkishólmi - Jóhannes B.M.
Gijsen biskup, sem var útnefndur
af páfanum í Róm 12. október sl.
til að vera biskup kaþólskra á Is-
landi og umsjónarmaður með
stjórn kaþólsku kirkjunnar, kom
til Stykkishólms sunnudaginn 4.
mars og flutti sína fyrstu messu.
Jóhannes er hollenskur, fæddur
1932 en hlaut prestvígslu 1957 og
lauk doktorsprófi í guðfræði við
Háskólann í Bonn 1964. Hann var
skipaður biskup í Roermond í
Hollandi 1972 oggegndi því starfi
til 1993 er hann sótti um lausn frá
embætti vegna heilsubrests. Jó-
hannes fluttist þá til Austurríkis
sér til heilsubótar sem hann hefur
nú öðlast og hefur fallist á að taka
við störfum að nýju og hefur að-
stöðu í Reykjavík.
Systurnar buðu öllum viðstödd-
um í kaffisamsæti að lokinni
messugerðinni. Undanfarið hefur
kirkjunni verið þjónað af prestum
úr Reykjavík sem hafa komið um
hveija helgi til Stykkishólms en
nú er vonast efitr að prestur komi
til búsetu hér og þjóni söfnuðin-
um. Sr. Jón sem tók við af sr.
Habets hefur verið erlendis og því
ekki getað þjónað kirkjunni en lík-
lega verður hann kominn hingað
á næstunni.
Systir Ludwina kvödd
Systir Ludwina, hjúkrunarfor-
stjóri Sjúkrahússins í Stykkis-
hólmi, hefur nú látið af störfum
við sjúkrahúsið. Henni var haldið
kveðjuhóf 6. mars sl. og var þar
mættur fjöldi vina hennar ásamt
starfsfólkinu en þá hafði hún ver-
ið starfandi hjúkrunarforstjóri
frá 1988 en ails hafði hún verið
hér í starfi frá 1976 eða um 20
ára skeið. Róbert Jörgensen, for-
stjóri Sjúkrahússins, stýrði hóf-
inu.
Systir Ludwina er frá Haag í
Hollandi. Árið 1957 gekk hún í
St. Fransiskusregluna og fór þá í
sjúkraliðanám síðan í hjúkrun- _
arnám og nam Ijósmóðurfræði. I
tvö ár fór hún í sérnám til að
læra hjúkrunarstjórnun og eftir
að hún kom til íslands hélt hún
áfram að mennta sig og fór m.a.
í stjórnun I og II.
Ekki er vitað hvað systir Ludw-
ina tekur sér fyrir hendur en í
nánustu framtíð ætlar hún að fara
til Lundúna og 20. september nk.
á hún að mæta í skóla í Sviss þar
sem hún mun búa sig undir þjón-
ustu við deyjandi sjúklinga.
Þórður Tóm-
asson í Skóg-
um heiðraður
Hellu - Rótarýklúbbur Rangæinga
stóð nýlega fyrir málþingi í tilefni af
30 ára afmæli klúbbsins. Á málþing-
inu var Þórði Tómassyni, safnverði í
Skógum, veitt viðurkenning klúbbsins,
en það mun vera á stefnuskrá Rótarý-
klúbbanna að veita slíkar viðurkenn-
ingar til þeirra sem skarað hafa fram
úr á ýmsum sviðum í sínú héraði.
Málþingið hófst með því að Sveinn
Runólfsson, forseti Rótarýklúbbs
Rangæinga, afhenti Þórði viðurkenn-
ingu í formi málverks eftir lista-
manninn Jón Kristinsson, Jónda í
Lambey. Á málverkinu er Eyjafjalla-
jökull, safnið í Skógum og náttúran
í kring umgjörð um textann, „Heið-
ursviðurkenning fyrir frábær störf
að stofnun, uppbyggingu og vörslu
byggðasafns í Skógum".
Nokkur erindi voru flutt á mál-
þinginu um ævi og störf Þórðar, en
hann hefur verið afkastamikill á
ýmsum sviðum. Hann hefur ekki
aðeins staðið að stofnun byggða-
safnsins í Skógum og unnið við
vörslu þess mest alia ævi, heldur
liggja eftir hann ógrynni af blaða-
greinum í tímaritum, dagblöðum og
fræðiritum að ógleymdu héraðsritinu
Goðasteini, en hann var annar rit-
stjóra þess í 25 ár. Þá hefur hann
skrifað nokkrar bækur, síðast rit-
verkið Sjósókn og sjávarfang, sem
er dýrmæt heimild um sjósókn frá
Suðurlandi fyrr á öldum. Þá hefur
Þórður séð um útgáfu ótal sagna frá
liðinni tíð og einnig haft forgöngu
um prentun verka eftir aðra höfunda.