Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
VISA ísland
með 70 millj.
hagnað
Verðbólga í nokkrum ríkjum
Hækkun neysluverðsvísítölu frá janúar 1995 til janúar 1996
Bandaríkin
Kanada
ísland
Sviss
Noregur
2,6%
Japan □ -0,3%
Gríkkland
ítalia*
Spánn
Bretland
Portúgal
írland
Sviþjóð
Frakkland
Belgía
Holland
Austurríki
Danmörk
Þýskaland
Lúxemborg
Finn[and
Meðaltal ESB *
| 5,4%
8,4%
3,9%
*Bráðabírgðatölur Heimlld: Eurostai
Vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,2% í febrúar
Minni hækkun en
gert var ráð fyrir
HAGNAÐUR VISA íslands nam
alls um 70,3 milljónum eftir skatta
á síðasta ári sem er svipuð afkoma
og árið 1994. Útgefin VISA kort
í umferð voru 201.580 talsins í
árslok. VISA kreditkort voru
100.464 talsins og fjölgaði um 5
þúsund og VISA Electron debet-
kort voru í árslok 101.116 og hafði
fjölgað um 31 þúsund á árinu, seg-
ir í frétt.
Fram kom á aðalfundi VISA
íslands að íslendingar eru nú
fremstir allra þjóða í greiðslukorta-
notkun miðað við íbúafjölda. Bera
þeir höfuð og herðar yfir aðra hvað
rafræn viðskipti og sjálfvirkar boð-
og raðgreiðslur snertir sem eru
reyndar íslensk uppfinning. Á liðnu
ári tóku kvikmyndahúsin upp al-
hliða greiðslukortaþjónustu með
hraðposum og opinberir aðilar eiga
nú debetkortaviðskipti í auknum
mæli. Unnið var að margvíslegum
tæknilegum umbótum og fjölgaði
rafrænum færslum um 78%, námu
23 milljónum. Útgefnum tékkum
hefur fækkað um 2A hluta eða
nærri 20 milljónir á tveimur árum.
• aSCOm Hasler
• Frímerkjavél framtíðarinnar
• Stílhrein, falieg hönnun
• Svissnesk tækni og nákvæmni
Samanlögð heildarvelta í VISA-
viðskiptum nam 73 milljörðum
króna á árinu 1995 og hefur aldr-
ei verið meiri. Þar af 48,6 milljörð-
um kr. í hinum hefðbundnu kredit-
kortaviðskiptum og jókst um slétt
10%, álíka mikið bæði heima og
erlendis. Innlend viðskipti námu
alls 41,9 milljörðum og jukust um
tæpa 4 milljarða. Þar af námu
boðgreiðslur 5,6 milljörðum og rað-
greiðslur 3,4 milljörðum ogjukust
um 13% að meðaltali. Úttektir
reiðufjár úr hraðbönkum innan-
lands, sem er ný þjónusta, námu
tæpum milljarði króna. Erlend við-
skipti námu 6,8 milljörðum. Notk-
un útlendinga á kortum sínum
hérlendis jókst um 21% og nam
1,7 milljörðum kr. Debetkortavið-
skipti fjórfölduðust í krónum en
sexfölduðust að magni, námu 24,4
milljörðum króna samanborið við
5,6 milljarða árið 1994 sem var
reyndar fyrsta árið í þeim viðskipt-
um.
Aukin markaðshlutdeild
í debetkortum
VISA ísland er með 76% af kred-
itkortaviðskiptum hérlendis og hélt
markaðshlutdeild sinni að fullu á
árinu, þrátt fyrir harðnandi sam-
keppni, og jók markaðshlutdeild
sína af debetkortaviðskiptum um
3% eða í 71%.
Samþykkt var að greiða 10%
arð af hlutafé og gefa út jöfnunar-
hlutabréf að fjárhæð 6,9 m. kr.
(1,6%) eða til jafns við það sem lög
heimila.
Stjórn VISA íslands var endur-
kjörin en hana skipa: Jóhann Ág-
ústsson, Landsbanka, Sólon R.
Sigurðsson, Búnaðarbanka, Sig-
urður Hafstein, Sparisjóðunum, og
Björn Björnsson, Islandsbanka.
VERÐHÆKKANIR í febrúar mæld-
ust 0,2% miðað við vísitölu neyslu-
verðs. Þetta samsvarar um 2,1%
verðbólgu á ársgrundvelli og er
nokkuð minni hækkun en verðbólg-
uspá Seðlabankans hafði gert ráð
fyrir en þó innan skekkjumarka.
Ástæðan er fyrst og fremst verð-
lækkun á grænmeti og ávöxtum, en
þessar vörur hækkuðu um 5,9% í
janúar og voru drifkrafturinn í
hækkun vísitölunnar þá.
Mjólk og mjólkurvörur hækkuðu
um 3,9% í febrúar og olli það 0,11%
hækkun vísitölunnar. Dilkakjöt
hækkaði um tæp 6% og olli sú hækk-
un u.þ.b. 0,06% hækkun vístölunn-
ar. Grænmeti og ávextir lækkuðu
hins vegar um 4,4% frá því í janúar
og svarar það til um 0,11% lækkun
vísitölunnar.
Síðastliðna 3 mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 0,7%
sem samsvarar 3,0% verðbólgu á
ári. Verðbólgan undanfarna 12 mán-
uði hefur hins vegar mælst 2,0%,
en hækkun vísitölu neysluverðs án
húsnæðis er 2,8% í meðfylgjandi
töflu má sjá verðbólgu í nokkrum
nágrannaríkjum frá janúar 1995 til
janúar 1996 í samanburði við verð-
bólgu hér á landi á sama tímabili.
Styrkir
vaxtalækkanir
Birgir ísleifur Gunnarsson, Seðla-
bankastjóri, segir að þetta ætti að
styrkja frekar þá þróun sem verið
hefur að undanförnu. Hann bendir
á að frá 21. febrúar síðastliðnum
hafi vextir 3ja og 5 ára ríkisbréfa
lækkað um á bilinu 0,2-0,4% og rík-
isvíxlar hafi lækkað um 0,05-0,1%
á sama tíma. Þá segir Birgir að allt
virðist stefna í að verðbólga á þessu
ári verði í kringum 2% sem sé held-
ur lægra en menn hafi reiknað með
í upphafí árs.
Skeljung-
ur kaupir
Sápu-
gerðina
Frigg
SKELJUNGUR hf. hefur keypt öll
hlutabréf í Frigg hf. af Nathan &
Olsen hf. Gengið var frá kaupunum
í gær og var starfsfólki Friggjar
skýrt frá því á fundi í hádeginu í
gær. Að því er fram kemur í frétt
frá Skeljungi er’ stefnt að því að
rekstur fyrirtækisins verði með
óbreyttu sniði að minnsta kosti fyrst
um sinn. Kaupverð Friggjar er hins
vegar ekki gefið upp.
Skeljungur hefur um árabil rekið
skylda starfsemi þar sem fyrirtækið
hefur flutt inn mikið magn hreinsi-
efna auk þess að reka umfangs-
mikla átöppun á ýmsum efnavörum.
Með kaupunum er stefnt að því að
sameina skyldan rekstur fyrirtækj-
anna tveggja og byggja upp öflugt
fyrirtæki sem annist átöppun á
hreinsiefnum til fiskvinnslu, iðnaðar
og fyrir neytendamarkað, að því er
segir í fréttatilkynningunni.
Nathan & Olsen keyptu rekstur
Gömlu sápugerðarinnar hf., áður
Sápugerðarinnar Frigg, fyrir tæp:
um tveimur árum síðan skömmu
áður en Gamla sápugerðin var tek-
in til gjaldþrotaskipta. Kaupverð
fyrirtækisins þá var 47 milljónir
króna og veltan um 180-190 millj-
ónir. Nýtt hlutafélag var stofnað
um reksturinn og hlaut það nafnið
Sápugerðin Frigg. Nathan & Ólsen
tók í kjölfarið yfir alla dreifingu
fyrir Sápugerðina og mun fyrirtæk-
ið halda áfram að dreifa öllum fram-
leiðsluvörum fyrir neytendamarkað
eftir eigendaskiptin.
Frigg framleiðir fjölda hrein-
lætisvara til heimilisnota auk
ýmissa hreinsiefna til nota í iðnaði.
Meðal nýjustu afurða fyrirtækisins
er Maraþon Extra þvottaefnið sem
var sett á markað á síðasta ári til
höfuðs vinsælla innfluttra þvotta-
efna á borð við Ariel Ultra.
Stökktu tíl Kanarí
um páskana
fyrirkr. 39.932*
3. til 21. april
Við seljum nú síðustu sætin til Kanarí um páskana og bjóðum þér
nú einstakt ferðatilboð þar sem þú getur notið þess besta á Kanarí
í átján daga í frábæru veðri á einstöku verði.
Þannig gengur það fyrir sig
Við höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu á frábærum kjörum.
Þú bókar í dag eða á morgun og tryggir þér sæti og gistingu í
páskaferðina og 5 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og
látum þig vita hvar þú gistir í fríinu.
B6kasustrax
s'ðu«u ssetíf,
umPískana!
Gi/clir.
>;t!
'Keðan
s*tierum
39.932
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
Kr.
M.v hjón mcft 2 böm. 2-11 ára.
.49.960
M.v. 2 fullorönu í íbúÖ. 3. apríl.
skaltar innifaldir.
Endalok AEG var-
in á hluthafafundi
Berlín. Reuter.
STJÓRN hins dauðvona, þýzka járn-
brauta- og verkfræðifyrirtækis AEG
AG hefur varið fyrirætlanir um upp-
lausn fyrirtækisins og svarað harðri
gagnrýni minnihluta hluthafa.
Ernst Georg Stöckl stjórnarfor-
maður sagði á sérstökum hluthafa-
fundi í Berlín að rekstrartap AEG
1995 hefði numið 500 milljónum
marka og því hefði ekki komið til
greina að móðurfyrirtækið Daimler-
Benz AG kæmi til bjargar.
Stöckl, sem hættir hjá Daimler um
leið og AEG líður undir lok, sagði
að það eitt að koma aftur fótunum
undir orkudeild og tækjabúnaðar- og
sjálfstýringardeild fyrirtækisins
hefði kostað einn milljarð marka.
Umræddar deildir standa fyrir þriðj-
ungi umsvifa AEG.
Fundinn sóttu um 300 hluthafar,
sem nú eiga aðeins 7% í AEG. Fund-
urinn var fyrsta tækifæri þeirra til
að láta í ljós óánægju síðan Daimler-
Benz skýrði frá því í janúar að til
stæði að innbyrða AEG þegar helztu
deildir fyrirtækisins hefðu verið seld-
ar erlendum kaupendum.
Ræðumenn sökuðu stjórn AEG um
að hafa ekki tekið mark á sér og
létu reiði sína aðallega bitna á Stöckl,
sem sagði fyrir níu mánuðum að
fyrirtækið mundi halda velli.
Stöckl fullvissaði hluthafa um að
tilboð um að þeir fengju eitt hluta-
bréf í Daimler í skiptum fyrir fimm
í AEG yrði í fullu gildi þangað til
fyrirtækin yrðu sameinuð, sennilega
síðar á þessu ári.
Hluthafar kváðust óttast að Da-
imler kynni að breyta tilboðinu þeim
í óhags.
Stöckl sagði að nánari upplýsingar
um skiptin mundu liggja fyrir 13.
marz. Hann sagði að núverandi tilboð
yrði í gildi nema því aðeins að til
málaferla kæmi vegna fyrirætlana
Daimlers um að innlima ÁEG.
Tilgangur fundarins var að bera
undir atkvæði fyrirætlanir um að-
skilnáð þeirra deildar, sem verða
seldar, en það var aðeins formsatr-
iði, þar sem Daimler á 93% hluta-
bréfa í AEG.
Daimler hyggst selja tækjabúnað-
ar- og sjálfstýringardeild AEG Ceg-
elec-deild franska iðnfyrirtækisins
Alcatel Alsthom og orku- og afl-
færsludeild fyrirtækisins sameignar-
fyrirtæki Alcatels og brezkra aðila,
GEC-Alsthom.
Aðalfjármálastjóri AEG, Giinter
Schad, sagði að verulegt tap yrði á
sölunni.
Stöckl sagði að ekki hefði verið
endanlega gengið frá samningunum.
Atkvæðagreiðsla um áætlunina
um algera sameiningu AEG og Da-
imler fer fram á reglulegum hlut-
hafafundi 5. júní.
I
>
I
I
>
I
I