Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
>
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAIMDSMEISTARAKEPPIMI
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
HÉR eru sigurvegararnir úr flokki 7 ára og yngri
að dansa skósmíðadans. Þetta eru Þorleifur Ein-
arsson og Hólmfríður Björnsdóttir.
GYLFI Aron Gylfason og Helga Björnsdóttir sigr-
uðu tvöfalt á sunnudaginn; þau eru íslandsmeistar-
ar í gömlu dönsunum í flokki 8-9 ára og í flokki
9 ára og yngri í rokki.
ÞETTA fjölhæfa par, Gunnar Hrafn Gunnarsson
og Ragnheiður Eiríksdóttir, vann til bronsverð-
launa í gömlu dönsunum í flokki 12-13 ára og silf-
urverðlauna í rokki í flokki 10-12 ára.
íslandsmeistarakeppni í gömlum
dönsum og rokki fór fram sunnu-
daginn 10. marz og hófst hún
klukkan 13. Aðgangseyrir var
1.000 kr. í sæti við borð, 600 kr.
fyrir fullorðna (í stúkusætum) og
400 kr. fyrir börn (í stúkusætum).
SÍÐASTLIÐINN sunnudag stóð
Dansráð íslands fyrir íslandsmeist-
arakeppni í gömlum dönsum og
rokki í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði. Keppnin hófst
klukkan 13 með ávarpi forseta
Dansráðsins, Heiðars R. Ástvalds-
sonar. Að ávarpinu loknu fóru allir
keppendur, nærri 200 pör, út á
gólfið og dönsuðu stiginn skottís
og var þetta mjög skemmtileg sjón.
Það voru yngstu keppendurnir
sem hófu leikinn og dönsuðu skó-
smíðadansinn, stiginn skottís og
þeir sem komust í úrslit þurftu
einnig að dansa fingrapolka.
Venjulega er það þessi aldursflokk-
ur sem stelur senunni og var þar
engin breyting á nú á sunnudaginn.
Flokkur' 8-9 ára dansaði stiginn
skottís, vínarkruz og ræl í undanúr-
slitum og stóð þessi flokkur sig
ekki síður en sá sem dansaði á
undan. Ræilinn var þó versti dans-
inn þeirra, þar voru í raun ekki
nema tvö efstu pörin með réttan
fótaburð á „polkasporinu" í ræin-
um, eins get ég ekki sætt mig við
að fyrstu chasse sporin fram í ræln-
um, séu dönsuð fram í hæl... mér
finnst það svo ljótt!
Allir flokkar sem á eftir fóru
dönsuðu skottís og Gay Gordon,
en í undanúrslitum var svo dansað-
ur polki eða vínarkruz til skiptis.
Stóðu allir þessir flokkar sig með
ágætum og verð ég að segja eins
og er að gömlu dansamir voru
dansaðir miklu betur í þessari
keppni en í fyrra. Betur má þó ef
duga skal.
Það helsta sem laga má að mínu
mati er fótaburðurinn í polka; á
innri hluta snúnings á að dansa: í
tá, tá, tá, en var i langflestum til-
fellum dansað: tá, tá, hæll (heel
pull), sem er með afbrigðum ljótt,
það kubbar dansinn svo niður og
mýktin verður nær engin. Gömlu
dansarnir urðu til upp úr ballet og
eru því mjúkir í eðli sínu og fynd-
ist mér að meiri áherzlu mætti
leggja á uppruna dansanna, sem
myndi óneitanlega lyfta þessari
tegund af dansi uppá hærra plan.
Um leið yrði dómurum auðvelduð
þeirra störf. Annað er það sem
mig langar að nefna, en það er
fjölbreytnin í gömludansakeppn-
inni. Hvers vegna ekki að láta eldri
hópana dansa meira krefjandi
dansa, eins og marzúrka eða
svensk maskerade? Það væri óneit-
anlega skemmtilegra fyrir þá sem
á horfa að hafa fjölbreytnina svolít-
ið meiri, að ég tali nú ekki um
keppendur sjálfa. Eitt er það enn
sem angraði mig í keppninni en
það eru þau áhrif sem standard-
dansarnir og suður-amerísku
dansarnir virtust hafa á marga
keppendur. Til dæmis mjaðma-
hreyfingar í Gay Gordon, það var
eins og þeir sem það gerðu væru
að taka þátt í tískusýningu en
ekki keppni i gömlum dansi, stand-
arddansstaða, sem passar engan
veginn á þessa tegund dansa og
„rise and fall“ og mikil „sway“ í
polka. Það er langt í frá að allir
hafi verið með þessa galla, en þó
fannst mér þeir alltof algengir.
Um miðjan daginn fór svo fram
keppni í rokki. Rokkið á rætur sín-
ar að rekja í ameríska sveiflutón-
list og er ákaflega skemmtilegur
en hraður dans, sem gerir miklar
kröfur til dansaranna um gott út-
hald. 27 pör voru skráð til leiks
og var dansað í fimm flokkum; 9
ára og yngri, 10-12 ára, 13-15
ára, 16 ára og eldri og í flokki
atvinnumanna. Var ágætlega dans-
að í öllum flokkum, þó verð ég að
segja að parið í flokki 16 ára og
eldri hefði mátt vinna heimavinn-
una sína betur; stökkin voru ekki
nógu vel æfð og mistókust flest
og svo var lítill sem enginn dans í
röðinni, rokk er nefnilega meira
en bara acrobatikin! Eins get ég
ekki séð eftir hverju dómarar voru
að slægjast í flokki 10-12 ára, því
ekki var verið að dæma eftir tækni-
lega rétt dönsuðu rokki, með réttri
fótavinnu, svo mikið er víst!
Þrátt fyrir nokkrar athugasemd-
ir, gekk dagurinn ágætlega fyrir
sig og held ég að flestir hafi átt
góða stund í Hafnarfirði. Dómar-
arnir voru fimm, allt íslenskir dans-
kennarar, stóðu sig ágætlega að
mínu mati, í gömlu dönsunum og
voru úrslitin mjög sanngjöm, í
langflestum tilfellum. Aðrir starfs-
menn og skipuleggjendur stóðu sig
einnig með miklu ágætum.
Það er virðingarvert að íslenskir
danskennarar standi fyrir veglegri
keppni í gömlum dönsum og við-
haldi á þann hátt parti af þeirri
menningararfleifð sem okkur hefur
verið falin til varðveizlu.
JóhannGunnar Arnarsson
Úrslit
7 ára og yngri
1. Þorleifur Einarss./Hólmfríður Bjömsd. DHR
2. Stefán Claéssen/Ema Halldórsdóttir DJK
3. Guðmundur Gunnarss./Jónína Sigurðard.DHR
4. Baldur Kári Eyjólfsson/Sóley Emilsd. DHR
5. Ásgeir Bjömsson/Ásdís Geirsdóttir DHR
6. Elias Sigfússon/Ásrún Ágústsdóttir DHR
8-9 ára
1. Gylfi Aron Gylfason/Helga Bjömsdóttir DHR
2. Jónatan Örlygsson/Bryndís M. Bjömsd. DJK
3. Hrafn Hjartarson/Sunna Magnúsdóttir DJK
4. BenediktÞ. Ásgeirss./Tinna R. Pétursd. DSH
5. Aðalsteinn Bragason/Unnur Másdóttir DJK
6. FriðrikÁmason/IngaMariaBackman DHR
8-9 ára, D-riðill
1. Jóhanna Gilsd./Sigrún L. Traustadóttir DJK
2. Ólöf K. Þórarinsd./Sigrún Anna Knútsd. DJK
3. Bára Bi agadóttir/Thelma Dögg Ægisd. DHÁ
ÁHUGINN og vandvirknin leynir sér ekki hjá
yngstu kynslóðinni, Elías Sigfússon og Ásrún
Ágústsdóttir (fyrir aftan) og Guðmundur Gunnars-
son og Jónína M. Sigurðardóttir (fyrir framan).
VIÐ endurskoðun útreiknings úr 8 og
10 dansa keppninni kom í ljós, að örlítil
skekkja var í útreikningi, þetta unga og
efnilega danspar var reiknað í 4. sæti,
en átti að fá 3. sætið. Þetta eru Snorri
Engilbertsson og Dóris Ósk Guðjónsdótt-
ir. Þau sigruðu í flokki 12 til 13 ára í
gömlu dönsunum á sunnudaginn.
Nær 200 pör dönsuðu
stiginn skottís
DANS
íþróttahúsið
við Strandgötu
í Ilafnarfirði
ÍSLANDS-
MEISTARAKEPPNI
4. HallaJónsdóttir/Heiðrún Baldursdóttir DAH
5. Lilja Magnúsd./Jóhanna Sigmundsdóttir DHR
10-11 ára
1. Árni Traustason/Helga Þ. Björgvinsd. DHR
2. Guðni R. Kristinsson/Helga D. Helgad. DSH
3. Sturlaugur Garðarss./Aðalheiður Sigfúsd. ND
4. Davíð G. Jónsson/Halldóra S. Halldórsd. DJK
5. Páll Kristjánsson/Steinunn Þ. Sigurðard. DHR
6. Sigurður Á. Gunnars./Stefanía T. Miljevic DAH
10-11 ára, dömu-riðill
1. Freyja Rós Óskarsd./Ósk Stefánsdóttir DHR
2. Kristín B. Eiriksdóttir/Sísí S. Sigurgeirsd. DJK
3. Ástrós Jónsdóttir/EIva Ámadóttir ND
4. Bergrún Stefánsd./Ingunn Ó. Benediktsd. DJK
5. Sigurlaug Þ. Kristjánsd./Dóra Sigfúsd. DHÁ
6. Eva D. Sigtryggsd./Laufey SigurðardóttirDJK
7. MargrétAmardóttir/ValgerðurB. ND
12-13 ára
1. Snorri Engilbertsson/Dóris Ósk Guðjónsd. ND
2. Haraldur A. Skúlas./Sigrún Ýr Magnúsd. DAH
3. Gunnar H. Gunnarss./Ragnheiður Eiriksd.
DSH
4. Hannes Þór Egilsson/Linda Heiðarsd. DHR
5. Skapti Þóroddsson/IngveldurLárusdóttir ND
6. Magnús S. Einarsson/Hrund Ólafsdóttir DHR
12- 13 ára, D-riðill
1. Sigrún Ösp Sigurjónsd./Tinna Ingibergsd.
DAH
2. Hafrún Ægisdóttir/Kolbrún Þorsteinsd. ND
3. Ósk Kjartansdóttir/Berglind A. Stefánsd.DHÁ
4. Aldís Gísladóttir/Bima Dögg Bjömsdóttir DJK
5. Elín Bj arnadóttir/írene Ósk Bermudez DJK
14-15 ára
1. Victor K. Victorsson/Ásta Björnsdóttir DHÁ
2. Bjarki Steingrimsson/Klara Steingrímsd. DHÁ
3. Amar S. Jónsson/Þóra S. Torfadóttir DJK
14-15 ára, D-riðill
1. Guðrún H. Hafsteinsd./Þórey Gunnarsd. DHÁ
2. Hrönn M. Magnúsdóttir/Laufey Árnad. DJK
3. Hjördís M. Ólafsdóttir/Ólöf B. Bjömsd. DJK
4. Magga Ásgeirsd./Ragnheiður Sveinþórsd. DJK
16-24 ára
1. Jón Ágústsson/Henrietta Þóra Magnúsd. ND
2. Þorvaldur S. Gunnars./Jóhanna E. Jónsd. DAH
3. Hinrik Bjamason/Þórunn Óskarsdóttir ND
4. VictorVictorsson/Anna BjörkJónsdóttir ND
5. Hálfdán Guðmundsson/Bryndís Sverrisd. DAH
35-49 ára
1. Bjöm Sveinsson/Bergþóra Bergþórsd. DJK
2. Ólafur Ólafsson/Hlíf Þórarinsdóttir DJK
3. Eyjólfur Baldursson/Þórdís Sigurgeirsd. DJK
4. Þór Steinarsson/Aníta Knútsdóttir DJK
5. Eggert Claessen/Sigrún Kjartansdóttir DJK
Úrslit í íslandsmeist-
arakeppninni í rokki
9 ára og yngri
1. Gylfi A. Gylfason/Helga Bjömsd. DHR
2. lirus Guðjónss./Halldóra Kristjánsd. DHR
10-12 ára
1. Haraldur A. Skúlas./Sigrún Ýr Magnúsd. DAH
2. Gunnar H. Gunnarss./Ragnheiður Eiriksd.
DHR
3. Guðni R. Kristinss./Helga Dögg Helgad. DSH
4. Gunnar Þór Pálsson/Bryndís Símonard. DHR
5. Sigurður Á. Gunnars./Stefanía T. Miljevic
DAH
6. Conrad McGreal/Lilja Rut Þórarinsdóttir DSH
13- 15 ára
1. BaldurGunnbjömss./Sigrún Björgvinsd. DHR
2. Magnús S. Einarsson/Hrund Olafsdóttir DHR
16 ára og eldri
1. Haraldur J. Þórðarson/Anna B.Jónsd. DAH
Atvinnumenn
1. Jóhann Gunnar Amarss./Sólborg S. Sigurðard.