Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR
SMÁRIMAGNÚSSON
+ Guðmundur
Smári
Magnússon fædd-
ist á Akranesi 28.
ágúst 1968. Hann
lést í Reykjavík 1.
mars síðastliðinn.
Móðir hans er
Svava Guðmunds-
dóttir og stjúpfað-
ir Friðrik Bridde.
Systkini hans eru
Anna Margrét
Bridde, maki EI-
var Birgisson, og
Katrín Dröfn
Bridde. Hann ólst
að mestu upp hjá ömmu sinni,
Katrínu Ragnarsdóttur, og afa
sínum, Guðmundi Nikulássyni.
Börn Guðmundar Smára eru
Smári, en svo var
hann alltaf kallaður,
var nokkuð bráðþroska
sem barn og fljótur til
allra hluta. Kátur var
hann og brosmildur
alla tíð. Það koma upp
í hugann ógrynni at-
vika þar sem galsinn í
honum var svo mikill
að sumum fannst nóg
um. Smári var kröftug-
ur og heilbrigður
krakki sem þurfti þetta
rými. Hann fann fljót-
lega inn á það að best
var hjá ömmu og afa,
því þar mátti allt gera og þau voru
svo góð. Amma Stella og afi Gummi
hafa misst dreng áður og báðir
hétu þeir Smári. Sorg þeirra á efri
Brynjar Smári, f. 18. ágúst
1992, og Svava, f. 4. júní 1994.
Barnsmóðir hans er Bryndís
Kristinsdóttir.
Útför Guðmundar Smára fer
fram frá Hallgrímskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Hann Smári okkar er dáinn,
sagði móðir hans við mig í síma.
Ekki man ég þá leið sem ég ók
heim það kvöld né hver hraðinn
* var. Sorg og minningar um glæsi-
legan ungan mann vel af guði gerð-
an, ávallt tilbúinn að rétta hjálpar-
hönd er til hans var leitað. Dagfars-
prúður mjög og vinmargur. Hann
átti auðvelt með að kynnast fólki
og áhugamál hans urðu mörg á
þessari stuttu ævi. Þessi síðari ár
í ævi Smára var hugur hans að
mestu bundinn akstri stórra mótor-
hjóla og keppni á því sviði. Tók
hann þátt í einni keppni síðastliðið
sumar og var hann ákveðinn í að
margbæta þann árangur á sumri
komanda. Stór áform var hann með
um að hjóla erlendis. Hann var
stoltur af því að vera félagi í Snigl-
unum. Sjáðu, sagði hann eitt sinn
við mig og sýndi mér úrklippu úr
blaði þar sem sagt var frá að félag-
ar í Sniglunum hefðu afhent Barna-
spítala Hringsins peninga sem þeir
höfðu safnað. Þá var hann stoltur.
árum er mikil og söknuður stór.
Guðmundur Smári var fjölhæfur
íþróttamaður og fótbolta stundaði
hann til hins síðasta og var liðtæk-
ur vel. Fljótur var hann að tileinka
sér allar nýjungar. Og glöggur var
hann að leysa hinar ýmsu þrautir
og leiki. Unglingsárin voru Smára
spennandi því margt var brallað.
Þá vaknaði áhugi hans á skellinöðr-
um með öllum þeim hávaða og basli
sem því fylgir. Oft gekk mikið á í
hjólageymslunni þegar verið var að
gera við og vinimir í hópum að
ræða málin. Hann naut sín vel þeg-
ar rætt var um hjól og síðar bíla.
Þegar Smári fór síðar að keyra á
sínum fyrstu bílum, kom í ljós alveg
ný hlið á drengnum. Hann þreif og
bónaði bílana svo vel að eftir var
tekið. Enda kom sú þekking sem
hann fékk við að hirða vel um bíla
sína honum vel þegar hann fór að
vinna á bónstöð.
Síðar átti hann sína eigin bónstöð
og vann mikið. Allt frá því Smári
fór að vinna, sem var lengst af hjá
Vífilfelli, var hann ákveðinn í því
að verða sjálfstæður atvinnurek-
andi. Því varð Smári dapur þegar
húsnæðið var selt og honum skylt
að flytja út með sinn rekstur. Hann
sagði mér oft þegar við ræddum
þessi mál að það kæmi dagur eftir
þennan dag og hann ætlaði að byija
aftur þegar betri staðsetning fyrir
bón- og þjónustustöð gæfist. Þenn-
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BERTA BJÖRNSDÓTTIR,
Karfavogi 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 15. mars kl. 15.00.
Rakel Ólafsdóttir, Ásgeir Magnússon,
Edda Ólafsdóttir,
Gunnhildur Ólafsdóttir, Olgeir Bárðarson,
Sjöfn Ólafsdóttir, Jón Brynjólfsson,
Ólöf Ólafsdóttir, Ólafur Benediktsson,
Kjartan Örn Ólafsson, Anna Gísladóttir,
Ólafur Þór Kjartansson, Sigrún Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
i_____________________________________________________________
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANS SIGURBERG
DANELI'USSON
frá Hellissandi,
til heimilis
á Sunnubraut 12,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavikurkirkju
fimmtudaginn 14. mars kl. 14.00.
Sólveig B. Guðmundsdóttir,
Sveindís Hansdóttir, Ómar Sigtryggsson,
Brynjar Hansson, Rut Lárusdóttir,
Sumarrós Hansdóttir,
Vigdís Kristjánsdóttir,
Bára Hansdóttir, Guðmundur Þétursson,
Danelíus Hansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
MINNIIMGAR
an draum ól Smári með sér allan
þann tíma sem hann lifði.
Smári giftist aldrei en var í sam-
búð í nokkur ár. Sambýliskona
Smára var Bryndís Kristinsdóttir
og áttu þau tvö falleg börn, Brynjar
Smára og Svövu. Erfitt verður það
hlutskipti að útskýra fyrir litlum
pabbastrák hvers vegna pabbi kem-
ur ekki að sækja hann. Smári var
glaður þegar hann kom heim til
okkar og tjáði okkur að hann fengi
að hafa strákinn um helgina. Hann
sagðist hafa spjallað við drenginn
í síma og sá stutti væri spenntur
að koma. Við, amma og afí, vorum
ánægð að fá að sjá þá feðga loks
saman. Það kvöld var Guðmundur
Smári allur.
Systur Smára, þær Anna og
Katrín, syrgja nú bróður sinn því
hann var þeim svo góður. Við minn-
umst þess ekki að Smári hafi neitað
þeim systrum sínum um nokkurn
hlut. Hann var alltaf boðinn og
búinn til að hjálpa þeim.og sendast
með þær eða fyrir þær um allan
bæ. Betri bróður var ekki hægt að
hugsa sér sögðu þær. Okkur var
hann góður sonur og minningar
okkar um æsku hans og drauma
munu lifa með okkur. Við biðjum
góðan Guð að taka á móti sál hans
og gefa henni frið. Haf þökk fyrir
allt, hvíl þú í friði, drengur minn.
Friðrik Bridde.
og þakklæti fyrir þann stutta tíma
sem við áttum saman.
Ég vil votta fjölskyldu hans, ætt-
ingjum, vinum og kunningjum mína
dýpstu samúð og þakka þann ómet-
anlega stuðning sem þið hafið veitt
mér. Guð gefí okkur styrk og þrek
á þessum erfiðu tímum.
Guð geymi sálu hans.
Laufey Dóra.
Hart er mannsins hjarta
að hugsa mest um sig.
Kveldið er svo koldimmt,
ég kenndi í bijósti um mig.
Dýrlega þig dreymi
og drottinn blessi þig.
(Stefán frá Hvítadal.)
Elsku Smári minn, ég þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig. Þú gerðir allt sem ég bað þig
um, þú neitaðir mér aldrei um neitt.
Þú varst hinn eini og sanni bróðir
í raun. Ég gat aldrei séð þig í fýlu
né í vondu skapi. Þú varst oftast
brosandi og kátur. Ég mun ætíð
sakna þín. Guð veri með þér þar
sem þú ert núna. Ég vona og veit,
Smári minn, að þú ert á góðum
stað hjá Guði og þér líður vel. Nú
kveð ég þig með miklum söknuði
en veit að okkar leiðir munu aftur
liggja saman.
Þín litla systir
Katrín Dröfn (Kata).
Laugardaginn 2. mars hringdi
Svava, móðir Smára, í mig og til-
kynnti mér að unnusti minn væri
dáinn. Ég hef aldrei upplifað jafn
sársaukafullan tíma og síðan þá.
Mín fyrstu kynni af Smára voru
þannig að ég sat aftan á mótorhjól-
inu hennar Indu vinkonu og vorum
við að hjóla með stórum hópi fólks,
þar á meðal Smára. Ég var að gera
hana vinkonu mína vitlausa á tuð-
inu í mér, hversu vel mér litist á
hann og hve mikið mig langaði til
að tala við hann og kynnast honum.
Þegar við svo stoppuðum í miðbæn-
um kom Inda mér fyrir aftan á hjól-
inu hans á frekar vandræðalegan
hátt fyrir okkur Smára. Ég hef
ekki sest aftan á hjá Indu eftir það.
Ég minnist helst góðmennsku
hans, þolinmæði og umburðarlynd-
is, sem drógu engin mörk. Það var
aldrei neitt nógu gott fyrir þá sem
hann unni. Það dýrmætasta sem
ég á, fyrir utan minningar, er gull-
hringur með steini í sem hann gaf
mér í jólagjöf. Þegar ég þakkaði
honum fyrir, baðst hann fyrirgefn-
ingar á því að hafa ekki haft efni
á ekta demanti, sem hann langaði
svo til að gefa mér.
Hans daglegu heimsókna er sárt
saknað af fjölskyldunni í Efstasundi
61, hann var alltaf tilbúinn að
hlaupa til ef eitthvað vantaði eða
eitthvað bjátaði á. Ég minnist hans
Smára míns með söknuði, hlýhug
Víst er þetta lðng og erfið leið
og lífið stutt og margt sem út af ber,
en tigið gegnum tál og hverskyns neyð
skín takmarkið og bíður eftir þér.
Hve oft þú hrasar, oft þig brestur mátt
hve undarlega er gott að sitja kyrr.
Samt kemstu á fætur, réttir höfuð hátt,
og hraðar þér af stað sem áður fyrr.
Svo styttist þessi ganga smátt og smátt
og seinast stendurðu einn við luktar dyr.
(Steinn Steinarr.)
Kæri Smári. Við viljum trúa því
að þegar þessi orð eru skrifuð sértu
kominn í gegnum dyrnar lokaðu,
yfir í nýjan og bjartari heim, og
hafir fundið innri ró. En hjá okkur
á minning þín eftir að lifa um ókom-
in ár.
Við sendum öllum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur. Megi
Guð gefa ykkur öllum styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Elsa Dögg, Björk,
Guðfinna, Inga Þóra,
Sunna og Ágústa.
Laugardaginn 2. mars sat ég á
stjórnarfundi hjá Bifhjólasamtökum
lýðveldisins þegar Laufey vinkona
mín kom til mín grátandi og til-
kynnti mér að Smári vinur minn
væri dáinn. Ég brotnaði niður og
grét eins og barn.
ICGSTCINAR
F. 14.11. 1807
D.21.3. 1865
Grcinít s/f
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
Ég minnist þess, að þegar ég
kynntist Smára þá vorum við Lauf-
ey að hjóla niðri í bæ, við urðum
báðar ástfangnar, hún af Smára
og ég af hjólinu hans.
Þau voru ófá skiptin sem hann
kom heim til mín og spurði hvort
ég væri ekki til í að koma út að
hjóla, þá dreif maður sig í leðrið,
rauk út á plan, ræsti hjólin og
æddi niðrí bæ að hitta félagana,
þannig að hans verður sárt saknað
í mínum huga þegar við félagarnir
hjólum í sumar.
Vinirnir voru alltaf í fyrirrúmi
hjá Smára. Hann gat alltaf gefið
sér tíma ef ég þurfti á honum að
halda.
Ég man þegar Smári slasaðist í
fyrra, hann lánaði mér hjólið sitt,
við fórum og sóttum hjólið og ég
varð að taka hann aftan á og skutla
honum heim. Þetta er svo minnis-
stætt því hann hafði unun af því
að stríða mér þegar ég sat við stjórn
á þessum stutta vegarkafla.
Minningarnar eru svo margar að
ég þyrfti heila bók til að koma þeim
niður á blað. Ég vona að ég hafi
reynst þessum yndislega dreng jafn
góður vinur og hann reyndist mér.
Minning hans er ljós í lífi mínu.
Ég votta fjölskyldu, börnum,
Laufeyju, vinum og vandamönnum
mína dýpstu samúð og ég bið til
guðs um að okkur hlotnist styrkur
á þessum erfiða tíma.
Guðdómlegasta reynsla
sem nokkrum getur
hlotnast er
að heyra rödd vináttunnar
þegar neyðin steðjar að.
(Charlotte V. Sciller.)
IndaBjörk 1015.
Laugardaginn 2. mars sl. bárust
mér þær sorgarfréttir að Smári vin-
ur minn væri dáinn, þessi góði
drengur og besti vinur sem hægt
var að eignast. Ekki hafði ég þekkt
hann lengi en nánir vinir urðum við
strax þegar við hjóluðum saman
síðasta sumar. Alltaf voru vinirnir
númer eitt. Smári var alltaf til stað-
ar og mun ég sakna hans sárt því
slíkur vinur er vandfundinn.
Maður heyrði aldrei: „Ég nenni
ekki“ eða: „Ég get ekki.“ Allt sem
hann gat gert fyrir mann gerði
hann.
Ég gleymi því aldrei þegar við
poppuðum og hann kryddaði poppið
með kartöflukryddi. í mínum huga
eru minningarnar um þennan yndis-
lega dreng góðar og ég þakka af
öllu mínu hjarta fyrir að hafa þekkt
hann.
Ég sendi öllum sem misstu mínar
innilegustu samúðarkveðjur og ég
bið guð að vera með ykkur og
styrkja á þessum erfiðu tímum.
Einn er maður veikur,
en með öðrum sterkur.
Einmana huga þrúgar
þarflaus kvíði.
Ef vinur í hjarta þitt horfir
og heilræði gefur
verður hugurinn heiður,
sem himininn bjartur
og sorgarský sópast burt.
(J.G. Herder.)
Karl 696.
Vönduö þjónusta
Góðar veitingar
Rúmgóð salarkynni
Næg bílastæöi
FÉLAGSHEIMILIÐ
SELTJARNARNESI
Sími 561-6030