Morgunblaðið - 13.03.1996, Blaðsíða 56
Hátækni til framfara
iM Tæknival
Skeifunnl 17 • Slmi 568-1665
MORGUNBLAÐIÐ, KIUNGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181.
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Borgarstjóri um brottrekstur Viðars Eggertssonar
Mikil mistök
i
Áfram úlpuveður
EKKI er ráðlegt að pakka vetrar-
fatnaðinum niður að sinni þótt
vetur konungur hafi verið fremur
mildur það sem af er. A næstu
dögum verður hitinn aðeins um
eða rétt ofan við frostmark, hlýj-
ast austast. Fram á sunnudag verð-
ur suðlæg og síðar suðaustiæg átt
ríkjandi og allhvasst um tíma.
Fremur vætusamt verður um
landið suðaustan- og austanvert,
en suðvestan til má búast við
slydduéijum. Norðanlands og á
Vestfjörðum verður úrkomulítið.
„MÉR FINNST mjög mikil mistök
felast í því hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur að segja Viðari upp. Eiginlega er
hér um að ræða alveg ótrúlega að-
gerð hjá meirihluta leikhúsráðsins.
Satt að segja hafði ekki hvarflað að
mér að svona myndi fara vegna þess
að leikhúsráðið ákvað, ekki fyrir svo
mörgum mánuðum, einróma að ráða
Viðar til starfa eftir að hafa tekið
sér góðan umhugsunartíma. Nú er
sama leikhúsráðið að leysa hann frá
störfum án þess að í raun sé farið
að reyna á hann. Án þess að hann
hafi brotið af sér eða fengið nokkur
haldbær rök fyrir uppsögninni,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um brottrekstur Viðars
Eggertssonar frá LR.
í máli hennar kom fram að starf-
andi hefði verið nefnd með tveimur
fulltrúum borgarinnar og tveimur
fulltrúum leikfélagsins á síðasta ári.
„í niðurstöðum nefndarinnar var
gengið út frá því að auka þyrfti list-
ræna starfsemi í húsinu og leikhús-
stjóri þyrfti að fá meira svigrúm til
að stjóma starfseminni,1.1 sagði hún
og sagðist líta svo á að fulltrúar leik-
félagsins hefðu verið í fullu umboði
þess í nefndinni. „Viðar hafí því ver-
ið í góðri trú þegar hann var ráðinn
til starfa um að hann eigi að fá svig-
rúm til að stjórna þarna og breyta.
Sú reynist hins vegar ekki raunin.
Mér sýnist einfaldlega að við þessar
aðstæður, sama hvort um er að ræða
Viðar eða einhvern annan, sé mjög
erfitt að ætla sér að vera stjómandi
í þessu húsi.“
Ingibjörg Sólrún sagði að væring-
arnar í Borgarleikhúsinu gætu haft
áhrif á hvaða stefnu endurskoðun á
samstarfssamningi borgar og leikfé-
lags tæki. I máli hennar kom fram
að fjárframlag borgarinnar hefði sér-
staklega verið hækkað til að gefa
leikfélaginu loft undir vængina á
þessu ári. Fjárframlag nemi 140
milljónum á þessu ári.
Hún sagði að tíminn yrði að leiða
í Ijós hvort fjárframlagið yrði lækkað
eftir árið í ár. „Mér fínnst þetta ansi
mikil mistök í þessari 100 ára sögu
leikfélagsins."
■ Leikhúsráð/28
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
SANDRA Silfá Ragnarsdóttir með reykskynjarann í glugga
slökkvibílsins að afhendingu lokinni.
30 þúsund tóku þátt
í eldvarnagetraun
Nefnd um endurskoðun á lögum
um atvinnuleysistryggingar
Starf komi í stað
atvinnuleysisbóta
Krafist
gjaldþrota-
skipta AB
ALMENNA bókafélagið hf. hætti
endanlega rekstri í síðustu viku og
verður væntanlega úrskurðað gjald-
þrota á næstu dögum að kröfu
þriggja lánardrottna, þ.e. Heimilis-
tækja hf., Sýslumannsins í Reykjavík
og Hugvers hf.
Útgáfa félagsins hefur verið sára-
lítil að undanfömu og starfsemin
nánast eingöngu miðað að því að
selja lager til að lækka skuldir. Heild-
arskuldir félagsins eru áætlaðar
kringum 100 milljónir króna.
■ Gjaldþrotaskipta/19
----» » «----
Söluaukning hjá
Iceland Seafood
Söluverð-
mæti
35% meira
HEILDARSALA Iceland Seafood
Ltd., dótturfyrirtækis ÍS í Bretlandi,
í Evrópu jókst um 35% í verðmætum
og 40% í magni fyrstu tvo mánuði
ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Árið í fyrra var í heild hið besta frá
•upphafi.
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood, segir
að ástæða aukinna verðmæta sölu
fyrirtækisins sé meðal annars sala
verðmeiri afurða. Hlutfall sérpakkn-
inga hafi aukist svo og vinnsluvirði
ýmissa afurða, s.s frá Seaflower
Whitefish í Namibíu. í fyrra var
mikill hluti afurðanna þaðan heil-
frystur en nú er framleiðsla flaka
vaxandi enda fullkominn frystitogari
kominn í flota fyrirtækisins og nýtt
frystihús hefur verið tekið í notkun.
Selt fyrir 1,3 milljarða
Sala fyrirtækisins fyrstu tvo mán-
uði ársins á markaðssvæði Iceland
Seafood í Hull og söluskrifstofu þess
í Þýskalandi og Frakklandi nam alls
um 1,3 milljörðum króna. Á sama
tíma í fyrra seldi fyrirtækið fisk og
fiskafurðir fyrir tæplega einn millj-
arð.
■ Iceland Seafood eykur sölu/Cl
Selfossi. Morgunblaðið.
ÞRJÁTÍU þúsund svör bárust í
eldvarnagetraun brunavarna-
átaks Landssambands slökkvi-
liðsmanna sem efnt var til jafn-
hliða heimsóknum í skóla á höf-
uðborgarsvæðinu og víða um
land. Nöfn 21 barns voru dregin
út og hljóta þau fjölskylduspilið
Trivial Pursuit, RBK reykskynj-
ara og bol merktan landssam-
bandinu auk viðurkenningar-
skjals. Ráðgert er að halda ár-
lega einn eldvarnadag fyrsta
mánudag í desember.
Sandra Silfá Ragnarsdóttir, 4
ára, Laufhaga 1 á Selfossi tók
við verðlaunum á slökkvistöð-
inni á Selfossi fyrir hönd fjöl-
skyldu sinnar. Hún fékk að setj-
ast inn í einn slökkvibílinn á
stöðinni og var ekki annað að
sjá en henni líkaði það vel.
í TILLÖGUM nefndar um endur-
skoðun á lögum um atvinnuleysis-
tryggingar, sem Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra skipaði sl. haust,
er gert ráð fyrir að atvinnuleysis-
bótaþegar skili starfi fyrir þær bæt-
ur sem þeir þiggja. Meirihluti nefnd-
arinnar leggur til að að hámarki
verði hægt að þiggja atvinnuleysis-
bætur í þijú ár samfellt.
Hjálmar Árnason alþingismaður
er formaður nefndarinnar.
„Við leggjum til að komið verði
upp nettengdum svæðisvinnumiðl-
unum á vegum ríkisins en undir
stjórn aðila vinnumarkaðarins og
haldið verði uppi öflugu starfi í nán-
um tengslum við fyrirtækin á svæð-
unum. Með þessu yrði veruleg breyt-
ing frá því sem nú er því vinnumiðl-
unarþátturinn er, almennt séð, af-
skaplega veikur og meira fólginn í
skráningu en miðlun starfa," sagði
Hjálmar.
Dregið úr möguleikum
á misnotkun
Aðrar tillögur nefndarinnar snúa
að atvinnuleysistryggingunum.
Lagt er til að áður en einstaklingur
fái greiddar atvinnuleysisbætur geri
hann starfsleitaráætlanir í samstarfi
við svæðisvinnumiðlanirnar. Skili
LÖGREGLAN vinnur nú að því að
setja skýrar vinnureglur um hvern-
ig bregðast eigi við, þegar börn og
unglingar undir sakhæfisaldri eru
staðin að búðarhnupli.
í fyrradag voru tvær stúlkur, 15
og 16 ára, staðnar að því að hnupla
vörum í verslun Hagkaups í Kringl-
unni. Samtals stálu þær vörum að
andvirði 110 krónur. Lögreglan
flutti stúlkurnar á lögreglustöð til
yfirheyrslu og var þeim sleppt eftir
þær honum ekki starfí innan tiltek-
ins tíma verði hann að velja sér
annað starf sem skilgreint hefur
verið af svæðisvinnumiðluninni í
samstarfi við atvinnulífið á svæðinu.
„Þetta yrðu fyrst og fremst störf
sem tengjast nýsköpun og ýmiss
konar þjónustu. Átvinnuleysistrygg-
ingasjóður legði því bæturnar til
með einstaklingnum, jafnvel til fyr-
irtækja, góðgerðastofnana o.s.frv. í
tiltekinn tíma,“ segir Hjálmar.
„Hugsunin er fyrst og fremst sú
að reyna að koma í veg fyrir það
að atvinnuleysingjar brotni niður
andlega af völdum atvinnu- og iðju-
leysis. Um Ieið er verið að draga
úr möguleikum á óréttlátri misnotk-
un á sjóðnum," sagði Hjálmar.
Lagt er til að lágmarksaldur at-
vinnuleysisbótaþega verði hækkað-
ur úr 16 árum í 18 ár. Ágreiningur
er innan nefndarinnar um styttingu
-á atvinnuleysisbótatíma. Meirihlut-
inn gerir tillögu um að aðeins verði
hægt að vera samfellt í þrjú ár á
atvinnuleysisbótum. Samkvæmt nú-
gildandi lögum getur einstaklingur
verið á atvinnuleysisbótum í allt að
54 ár, eða frá 16 ára aldri til sjö-
tugs. Nefndin mun skila tillögunum
til félagsmálaráðherra nk. mánu-
dag.
að haft hafði verið samband við
foreldra þeirra.
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir að
þriðjungur þeirra, sem gripnir séu
við búðahnupl, séu 14 ára og
yngri, eða undir sakhæfisaldri.
„Lögreglan er að kanna þessa
dagana, hvernig hægt sé að taka
á málum þessa hóps af meiri festu
og í samráði við barnaverndaryfir-
völd og foreldra," segir hann.
Lögreglan tekur
á hnupli barna