Morgunblaðið - 14.07.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C/D
158. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 14. JULI1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jordan fær
1,7 milljarð
MICHAEL Jordan, sem almennt er talinn
besti körfuknattleiksmaður heimsins, gekk
á föstudagskvöld frá eins árs samningi við
bandaríska félagið Chicago Bulls og fær
skv. fréttum vestanhafs tæpan 1,7 milljarð
króna á samningstímanum; 25 milijónir
bandaríkjadala sem er andvirði
1.675.000.000 króna. Þetta er hæsta upp-
hæð sem einstaklingur í hópíþrótt fær á
einu ári frá upphafi vega.
Jordan, sem var í meistaraliði Chicago á
nýafstöðnu keppnistímabili og kjörinn var
besti ieikmaður deildarinnar í vetur og úr-
slitakeppninnar í vor, hafði nýlokið átta ára
samningi við Chicago. Fyrir þann samning
fékk Jordan 24 milljónir dala þannig að
hann á von á heldur meiru fyrir næsta ár
en hin fyrri átta.
■ Jordan/33
Dregur úr ofsa
Berthu
Wilmington, N-Karolínu. Reuter.
DRAGA tók úr ofsa fellibylsins Berthu á
laugardag, en hann hafði valdið miklu tjóni
á ferð sinni frá Karíbahafi norður með
Austurströnd Bandaríkjanna, m.a. dauða
að minnsta kosti 6 manna.
Vindhraðinn sem fylgdi fellibylnum hafði
komizt upp í 185 km hraða á klukkustund
er Bertha fór yfir N-Karólínu-fylki á föstu-
dag, þar sem stór tré rifnuðu upp með rót-
um og fjöldi mannvirkja eyðilagðist.
Á laugardag hélt Bertha áfram ferð norð-
ut eftir og var komin yfir Massachusetts-
fylki, en vindhraði var þá kominn niður
fyrir 100 km á klukkustund. Búizt var við
að Bertha skildi um 15 cm úrkomu eftir sig
í fylkinu.
Líkamshár til
marks um gáfur
London. The Daily Telegraph.
LÍKAMSHÁR eru til marks um gáfnafar
karla, því hærðari sem þeir eru, þeim mun
gáfaðari, að því er fullyrt var á ráðstefnu
sálfræðinga í London. Þar kynnti dr. Aikar-
akudy Alias, frá Chester- geðlæknastöðinni
í Illinois í Bandaríkjunum, rannsóknir sem
hann gerði á félögum í Mensa, sem eru
samtök gáfumenna, og bandarískum og
indverskum nemum í vélaverkfræði.
í rannsókn Alias kom fram að 45% af
námsmönnunum töldust „mjög hærðir“, en
hlutfall mjög hærðra karla er að jafnaði um
10%. Var fullyrt að mun líklegra væri að
karlar sem væru nægilega gáfaðir til að
leggja stund á háskólanám, væru loðnir á
bringunni, en aðrir.
Alias sagði þetta hrekja þá skoðun
margra að það væru ekki síst verkamenn
sem væru mikið hærðir. Hann kvaðst að
vísu viðurkenna að hárkenning sín væri
ekki algild, til dæmis hefði Albert Einstein
vart haft nokkur líkamshár.
ÞAÐ var létt yfir þessari litfríðu og ljós-
hærðu snót sem ljósmyndari blaðsins hitti
á átthagamóti Grunnvíkinga á Flæðar-
eyri við Leirufjörð í Jökulfjörðum um
ÓEIRÐIR milli mótmælenda og kaþólikka á
Norður-írlandi héldu áfram af fullum krafti á
Iaugardag. Lögreglan stóð í ströngu í viðleitni
sinni til að halda átökum hundruða hópa
óeirðaseggja í skefjum.
í Londonderry, annarri stærstu borg N-
Irlands, sem er að meirihluta byggð kaþólikk-
um, lézt á laugardagsmorgun ungur maður
af sárum sínum, sem hann hafði hlotið þegar
benzínsprengju var varpað inn í bíl hans í
óeirðunum kvöldið áður.
Á laugardagsmorgun var lögreglan enn að
vinna að því að taka saman fjölda slasaðra
og særðra, bæði meðal lögreglumanna og
borgára sem þátt tóku í óeirðunum, en heildar-
ijöldi þeirra er vart undir einu hundraði. Þrír
lögreglumenn, sem urðu fyrir skotum leyni-
skyttna í Belfast á föstudagskvöld, voru óðum
að ná sér.
Samskipti Ira og Breta
bíða hnekki
Óeirðaaldan sem riðið hefur yfir N-írland
undanfarna daga hefur sett tilraunir til að
I SUMARSKAPI
síðustu helgi. Þar komu saman um 400
brottfluttir Grunnvíkingar, afkomendur
binda loks enda á 27 ára Jangt borgarastríð
hina tveggja trúflokka N-írlands í alvarlega
hættu. Auk þess hafa samskipti írska lýð-
veldisins og Bretlands, sem eru aðilar að
friðarumleitununum, beðið verulegan hnekki.
Á föstudag skiptust stjórnir {rlands og Bret-
lands á hvössum orðsendingum. John Bruton,
forsætisráðherra írlands, sagði brezkum
stjórnvöldum hafa orðið á „mjög alvarleg mis-
tök“ með því láta undan þrýstingi mótmæi-
enda og meina ekki Óraníureglunni að ganga
um hverfi kaþólskra. Spurningu fréttamanns,
hvort hann væri þeirrar skoðunar að Bretar
bæru ábyrgð á átökunum, svaraði Bruton ját-
andi.
Sir Patrick Mayhew, ráðherra Norður-
írlandsmála í brezku ríkisstjórninni, sagði orð
Brutons vera „móðgandi". „Með því að ásaka
ríkisstjórnina um að láta undan þrýstingi er
hann að vefengja orð lögregluyfirvalda og .. .
mín,“ sagði Mayhew.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórn-
málaarms írska lýðveldishersins (IRA), sagði
friðarumleitanirnar liggja í rústum, og ábyrgð-
þeirra og tengdafólk. Mikið var um dýrð-
ir á þessari sérstæðu útihátíð.
ina á því bæri John Major. Brezki forsætisráð-
herrann vísaði þessum ásökunum á bug. Hann
ítrekaði að Sinn Fein fengi þá aðeins aðild
að friðarviðræðunum, að IRA virti aftur vopna-
hléð, sem IRA braut með því að hefja aftur
hryðjuverk í febrúar sl.
írski utanríkisráðherrann, Dick Spring,
sagði áríðandi að írsk og brezk stjórnvöld
ættu með sér fund og ræddu nýjustu stöðu
mála.
Óeirðirnar berast til Tenerife
Hundruðum brezkra og írskra ferðamanna
lenti saman á spænsku orlofseynni Tenerife á
laugardag vegna stjórnmálaástandsins á N-
írlandi. Á bar nokkrum á strandbaðstaðnum
Plaýa de las Americas upphófust deilur milli
kaþólskra íra og brezkra mótmælenda, sem
mögnuðust upp í hörkuslagsmál, þar sem bar-
izt var með glerflöskum, hnífum og járnstöng-
um.
Um 300 manns áttu þátt í átökunum, sem
bárust út á götu, og varð lögregla að kalla
til liðsauka til að stöðva þau.
Fjör á Flæðareyri/Bl
Átökum mótmælenda og kaþólikka á N-írlandi linnir ekki
Oeirðaaldan setur frið-
arumleitanir í hættu
EVDIR ,
AMMONIAKS-
TfMENGUN
ERÁ KllNllM 0
vrosiapn javiNNULír
Á SUNIMUDEGI ám\t
Ævintýri á Flúðum