Morgunblaðið - 14.07.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.07.1996, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ TALIÐ ER að sú regla að sleppa laxi eigi rætur að rekja til norðausturríkja Bandaríkjanna og fá- einna áa í Kanada, en fyrir um áratug höfðu mengun, veiðiþjófn- aður, skógarhögg, úthafsveiðar og stíflugerð nánast gengið af lax- veiðiám á þessum slóðum dauðum. Til að freista þess að bjarga málum var gripið til ýmissa með- ala og var eitt þeirra að skylda veiðimenn til að sleppa aftur öllum laxi sem þeir veiddu. Til þess að auðvelda gjörninginn var aðeins leyft að veiða á flugur með agn- haldslausum önglum. Margir lögðu hönd á plóginn, m.a. Orri okkar Vigfússon sem með elju og stórhug náði að kaupa upp stærstan hluta úthafsveið- anna. Arnar tóku við sér, en með vakningunni ,sem fylgdi varð sú skoðun mjög útbreidd meðal bandarískra og kanadískra stangaveiðimanna að stéttin ætti að leggja sitt af mörkunum í rík- ari mæli, halda fyrirkomulaginu og helst breiða það út. Um líkt leyti kom til skjalana hrun járntjaldsins, en þá opnuðust miklar Iaxveiðilendur á Kólaskaga Rússlands. Þar eru magnaðar lax- veiðiár á borð við Ponoi og Strelna og Bandaríkjamenn voru fljótir að koma ár sinni þar fyrir borð. Ferðaskrifstofur á borð við Fronti- ers lögðu mikla vinnu og tilkostn- að í uppbyggingarstarf, til að land- ar þeirra og aðrir viðskiptavinir gætu sótt í rússneskar ár. Aðbún- aður við árnar og samgöngur meðfram þeim voru í lamasessi, en mikil breyting til batnaðar hef- ur orðið þar á. Eitt af því sem fylgdi Banda- ríkjamönnum til Rússlands var veiða-sleppa fyrirkomulagið. Nú kom það sér vel, því veiðin var gífurleg, en allur aðbúnaður og aðstaða buðu upp á stórvandræði við að flytja afla. Þetta small því eins og flís við rass. í millitíðinni hafði fyrirkomulagið náð fótfestu í einhverri mynd sums staðar á Bretlandseyjum. Andstæðu pólarnir Síðustu sumur hefur borist vísir að fyrirkomulaginu til íslands. í fyrra var holl í Selá sem veiddi rúmlega 80 laxa og sleppti flestum eða öllum. Annað holl var í Hítará með tæplega 60 laxa og var öllum sleppt. Þannig mætti áfram telja og auk þess bæta við, að vaxandi fjöldi íslenskra stangaveiðimanna stundar það reglulega að sleppa laxi, sérstaklega þegar hausta tek- ur og menn hafa landað stórum legnum og belgmiklum hrygnum. Þetta eru einkum snjallir flugu- veiðimenn sem eru búnir að veiða nóg í soðið handa sjálfum sér, vin- um og vandamönnum löngu áður. Ekki má gleyma, að leginn Iax er auk þess lélegt hráefni hvort held- ur í pott, á pönnu eða í reyk. Á það sérstaklega við um hrygnurn- ar. Veiða-sleppa hugsjónin á samt sem áður nokkra hérienda postula. Einn þeirra er Orri Vigfússon sem hefur sýnt fram á með gröfum og línuritum að Atlantshafslaxinn er í útrýmingarhættu. Orri hefur stofnað til óformlegs áhugahóps hér á landi. Einn af skoðanabræðr- um hans er Kristján Guðjónsson stjórnarmaður í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur sem vakti athygli 1. júní er hann sleppti fyrsta stangar- veidda laxi sumarsins í Norðurá, u.þ.b. 11-12 punda hrygnu á Eyr- inni. Skömmu síðar landaði for- maðurinn Friðrik Þ. Stefánsson ámóta laxi og viðhafði þjóðlegri siði og rotaði laxinn. Þar stóðu pólarnir andspænis hvor öðrum, hvor á sínum bakka og var það táknrænt fyrir þá togstreitu sem kann að vera í uppsiglingu. Morgunblaðið/gg GESTUR og Brynjólfur sleppa einum vænum í Hólakvörn. Upp- rennandi veiðimaður, Jóhannes Brynjólfsson fylgist grannt með. FRUMKVÖÐLARNIR, t.v. Gestur Árnason og Brynjólfur Markús- son fyrir framan veiðihúsið Flóðvang í Vatnsdal. íslenskir stangaveiðimenn fylgjast af athygli með þróun mála á bökkum Vatnsdalsár í Húnaþingi þessa daganna og er sumum ekki rótt. Nýtt fyrirkomulag sem á rætur að rekja til Rússlands, Quebec, Main og Nýfundnalands hefur rutt sér til rúms í Húnaþingi. Fyrirkomulagið felur í sér að einungis er leyfc að veiða laxinn á flugu og sleppa beri fengnum að glímu lokinni.Guðmimdur Guðjónsson leit við á bökkum Vatnsdalsár og ræddi við ýmsa þá sem hafa látið sig málið varða. Mennirnir sem nú ríða á vaðið, frumkvöðlarnir, eru Brynjólfur Markússon og Gestur Árnason, leigutakar Vatnsdalsár til síðustu tólf ára. Skrefið er þó ekki stigið til fulls, því veiða-sleppa fyrir- komulagið stendur aðeins til 17. ágúst, en þá lýkur útlendingatíma árinnar og innlendir veiðimenn mæta til leiks gráir fyrir járnum og vel möðkum og spónum búnir. Hvers vegna er þetta svona? Brynjólfur svarar þessu og seg- ist fyrst vilja leiðrétta þá útbreiddu skoðun að umræðan hafí byrjað er Pétur Pétursson og Fransmað- urinn Guy Geffroy tóku Vatns- dalsá á leigu á vordögum. Þeir Gestur hafi fyrst velt þessu upp í fyrrahaust. „Annars skiptir það ekki meginmáli, heldur að við höf- um orðið varir við þá þróun árin okkar tólf hér í Vatnsdal, að stór- laxi hefur fækkað. Vatnsdalsá er þekkt fyrir sína stóru laxa og veiðimenn sækja hingað ekki síst vegna þess hve möguleikar þeirra á því að ná stórlaxi eru tiltölulega miklir miðað við það sem gengur og gerist. Fyrirkomulagið snýst þannig einkum um stórlaxinn, stærri en 10 punda og við teljum að með því að sleppa stórlaxinum þá sé hægt að snúa þessari þróun við. Það er ein skýringin, segja Brynjólfur og Gestur og halda áfram: „Árum saman hafa sömu mennirnir komið hingað í Vatns- dalsá, þar á meðal erlendir veiði- menn sem koma um 10. júlí og þeir síðustu fara 17. ágúst. Þeir hafa séð það ár eftir ár að mikið er búið að veiða og drepa af stór-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.