Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 9 FRÉTTIR Osamið um bætur vegna salmonellusýkingar Talsvert skilur á milli ENN hefur ekki náðst samkomulag á milli Ríkisspítala og Samsölubak- arís og tryggingafélags þess, Sjó- vár-Almennra, um bætur til handa spítulunum vegna salmonellusýk- ingar sem kom upp seinasta vetur. Orsök sýkingarinnar mátti rekja til rjómabolla frá bakarínu. Bótakrafa Ríkisspítala nemur 8,3 milljónum króna og er þá miðað við kostnað vegna afleysinga vegna þeirra sem veiktust, aukið vinnu- álag og yfirvinnu þeirra sem veikt- ust ekki, rannsókna innan sjúkra- hússins og utan o.fl. Standa fast á kröfum Ingólfur Þórisson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Ríkisspítala, segir að tryggingafélagið hafi yfirfarið kröf- ur þeirra og lagt fram gagntilboð sem sé talsvert mikið lægra. Rík- isspítalar muni hins vegar standa fast á kröfum sínum. „Það er ágreiningur um hvernig á að túlka okkar skaða, aðallega vegna þess að tryggingafélagið vill bæta okkur laun þeirra sem veiktust en við viljum fá bætt tjónið við urð- um fyrir til fulls, þar á meðal kostn- að við laun þeirra sem leystu veikt fólk af. Á þessu munar talsvert miklu, eða nálægt helmingi. Málinu er hins vegar ekki lokið og ég vona að samkomulag náist,“ segir hann. Ingólfur kveðst gera ráð fyrir að haldinn verði fundur í deilunni inn- an skamms til að reyna að ná fram samkomulagi. Alls veiktust 124 manns sökum salmonellu, þar af 25 sem höfðu engin tengsl við Ríkisspítala, 32 sjúklingar, 27 börn starfsmanna og 40 starfsmenn. Þijú dauðsföll Ingólfur segir að rekja megi þtjú dauðsföll til sýkingarinnar eða með- virkandi þátta. Enn séu nokkrir ein- staklingar að glíma við eftirköst eða fylgikvilla vegna salmonellu í boll- unum. Samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá-Almennum hafa 50 einstakl- ingar haft samband til fyrirtækisins vegna krafna um bætur. Ingólfur segir eftirlit innan Rík- isspítala með matvælum og með þeim aðilum sem selja hráefni og tilbúin matvæli hafa verið aukið í kjölfar sýkingarinnar. Eins virðist fyrirtæki sem eru í viðskiptum við spítalanna hafa tekið sig á í gæða- eftirliti og mörg þeirra fengið vott- un þar að lútandi. „Birgjar kvarta sumir undan hörðu eftirliti hjá okkur. Við teljum ólíklegra að sýking sem þessi geti endurtekið sig en það er aldrei hægt að ábyrgjast að samsvarandi atburðir komi ekki upp aftur,“ seg- ir hann. Ætla að njóta lífsins ÞAU Erla Jóhannsdóttir og Þor- steinn Úlfars duttu í lukkupott- inn þegar nöfn þeirra voru dreg- in út í brúðhjónaleik Aðalstöðv- arinnar á dögunum. Vinningur- inn var þriggja vikna ferð til Karíbahafsins á vegum Heims- klúbbs Ingólfs. Erla og Þorsteinn gengu í það heilaga í Háteigskirkju 13. júlí síðastliðinn. Það var móðir Erlu sem skráði þau í brúðhjónaleik- inn. Fyrr í sumar voru nöfn þeirra dregin úr pottinum og fengu þau þá ýmsar gjafir, svo sem vöruúttektir, kransaköku og innbústryggingu. Þegar leiknum lauk voru nöfn þeirra sex brúð- hjóna sem unnið höfðu í sumar sett í einn pott og upp úr honum komu svo nöfn þeirra Erlu og Þorsteins. Innifalið í ferðinni er gisting í brúðarsvítu allan tímann, allur matur, drykkur og ferðir. Að sögn Þorsteins eru þau nýbúin að fá skeyti frá hótelinu þar sem þau munu dvelja, með staðfest- ingu á því að þeirra bíði brúðar- svíta með kampavíni og blómum. „Það verður tekið vel á móti þeim,“ segir Ingólfur Guð- brandsson. Þau leggja af stað á morgun, sunnudag, og segjast vera langt komin að pakka niður í ferða- töskurnar, sem þau fengu raunar einnig að gjöf í brúðhjónaleikn- um. Og hvað skyldu þau svo ætla að gera næstu þijár vikurnar á strönd Karíbahafsins? „Slappa af og njóta lífsins," segir Þor- steinn. „Og leiðast á ströndinni," bætir Erla eiginkona hans við, dreymin á svip. ------» ♦ ♦------ Mótmæla bótaskerðingu MORGUNBLAÐINU hefur borist ályktun frá Öryrkjabandalagi ís- lands þar sem ítrekuð eru „eindreg- in mótmæli við þeirri framkvæmd bótaskerðingar lífeyrisþega af völd- um fjármagnstekna sem í gildi gekk nú 1. september." I ályktuninni segir að í raun sé um beina afturvirkni að ræða þar sem skerðingin sé miðuð við tekjur ársins 1995. í þessu sambandi er vakin sérstök athygli á því að lögin um skattalega meðferð fjárniagns- tekna taki fyrst gildi um næstu áramót þannig að lífeyrisþegar séu nú einir teknir fyrir hvað hugsan- legar fjármagnstekjur varðar. Morgunblaðið/Golli BRÚÐHJÓNIN taka við blómum og ferðaskjölum úr hendi Ing- ólfs Guðbrandssonar hjá Heimsklúbbi Ingólfs. Frá vinstri: Geir Brynjólfsson, starfsmaður markaðsdeildar Aðalstöðvarinnar, brúðhjónin Erla Jóhannsdóttir og Þorsteinn Úlfars, Albert Ág- ústsson, dagskrárstjóri Aðalstöðvarinnar og Ingólfur Guðbrands- son. Opið til kl. 17 í dag. NYKOMNAR VORUR Antik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977 Útsala 30-70% afsláttur opiö laugardaga frá 10-16 Qullbrá snyrtivöruverslun, Nóatúni 17, simi 562 4217. 99 3oxers cc áömunærbuxur 95% bómull og 5% teygja. Verð kr. 725 Langur laugardagur Opið til kl. 17 í dag. 57. ■)///// •/■J//7/j FASTEIGN ER FRAMTÍD )T\ SÍMI 568 77 68 FÁSTElGNÁ í ílMIÐLUN Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, ^lj fax 568 7072 ^ 11 ^ Sverrir Kristjansson XJ lögg. fasteignasali II Þór Þorgeirsson, sölum. Kristín Benediktsdóttir, ritari, Kristjana Lind, ritari | Einbýli é einní hæð m fallegum útsýnísstað rétt víð goMvöll Starengi 110 og 112 Til sölu tvö glæsileg hús í smíðum, 130 fm ásamt 35 fm bílskúr. Gert er ráð fyrir 12 fm sólskála. Húsin eru byggð úr timbri og afar vel skip- ulögð.Við getum sýnt þér samsskonar hús fullbúið. Húsin eru afhent í dag fullfrágengin að utan og einangruð með pússuðum gólfum, hita-, vatns- og rafmagnsheimtaug. Óuppsett eldhúsin- nrétting og allir skápar fylgja. Verð aðeins 9.825 þús. Einnig er hægt að fá húsin lengra komin eftir samkomulagi, allt að fullgerðum. Áhv. 6,3 millj.' húsbréf til 25 ára með 5,1% vöxtum. Ath. til greina kemur að taka minni íbúð upp í: Traustur byggingaraðili Sigurður Pálsson. Hrismóar 13 + bllskúr Laus. Sérlega vönduð og vel skipulögð 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Miklar og mjög vandaðar innréttingar. Parket og flísar. Áhv. 7 millj. góð lán. Innbyggður bílskúr. Mikið útsýni. Opið í dag frá kl. 13-15 Laugavegi 58, sími 551 3311 Krakkar — Krakkar Langur laugardagur Skólatöskur — 20% afsláttur Pocahontas kr. 2.480. Toy Story kr. 2.280. lá a Q:My ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina, simar 55Í9800 og 5513072.,, jellreven fatnaði og viðlegubúnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.