Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 11 FRÉTTIR MAÐUR hlýtur að verða óskaplega gáfaður af að ganga í „fuliorðinna manna skóla“, er það ekki? Morgunblaðið/Ásdís ÆRSL og kátína fylgja frímínútum, enda er gaman að hitta gömlu félagana á ný. Engjaskóli fær inni í Borgar- holtsskóla Nemendum fjölgaði um 50% milli ára NEMENDUM Engjaskóla í Borgar- holtshverfi hefur fjölgað úr 200 í 300 milli skólaára. Rúmast þeir því engan veginn í þeim lausu kennslu- stofum sem notaðar hafa verið og hefur verið gripið til þess ráðs að fá afnot af einni álmu Borgarhoits- skóla fyrir alla bóklega kennslu, að sögn Guðrúnar Björgvinsdóttur að- stoðarskólastjóra. Nýtt skólahúsnæði er í byggingu fyrir Engjaskóla, sem tilbúið verður haustið 1997 og mun rúma 500-600 nemendur. Frá því skólinn tók til starfa skólaárið 1995-96 hefur verið notast við 12 lausar kennslústofur. Þar af voru nokkrar notaðar til kennslu í heimilisfræði, handmennt og undir starfsemi heilsdagsskóla. Verða þær notaðar áfram undir þessa starfsemi í vetur. Fjölgunin er mest meðal yngstu nemendanna og bættust 50 börn við í 6 ára bekk en hinir 50 dreifðust í aðra bekki. „Fjölgunin í 7. bekk var einnig töluverð, þannig að við urðum að vísa frá nemendum vegna pláss- leysis. Að vísu var um að ræða börn sem búa ekki alveg inni á svæðinu, þannig að þau fóru í Rimaskóla." ------♦ ♦ ♦---- Sjúkra- þjálfarar hvetja til samninga „KJARADEILA heilsugæslulækna og ríkisins hefur nú staðið í rúman mánuð og hefur víða skapast mjög alvarlegt ástand. Það má öllum ljóst vera að ef fram heldur sem horfir má lítið út af bregða til að neyðar- ástand skapist," segir í ályktun stjórnar Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara. Jafnframt segir: „Stjórn Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara (FSSS) telur að heilbrigðisyfu’völd beri fulla ábyrgð á þeirri háskalegu stöðu sem upp er komin. Má þar nefna að aðgangur fólks að endur- hæfingu hefur skerst verulega sem aftur getur leitt til aukinna útgjalda fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Stjórn FSSS hvetur deiUiaðila til að setjast að samningaborðinu og hvetur aðrar heilbrigðisstéttir til að sýna heilsugæslulæknum samstöðu. Stjórn FSSS vill einnig minna á að heilsugæsla og göngudeildarþjón- usta sjúkraþjálfara er hluti af grunn- þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Vilji heilbrigðisyfirvöld ná fram sparnaði ber að styrkja þá þjónustu." Mamma „Við borðum Cheerios hringi... á meðan jörðin hringsnýst um möndul sinn...!“ Cheerios sólarhringurinn Málið er einfalt, í hvert sinn sem þú borðar Cheerios borðar þú hollan og góðan mat. Cheerios er trefjaríkur matur, svo til laus við sykur og fitu en hlaðinn steinefnum og vítamínum. Þess vegna er ráðlegt að borða Cheerios hvenær sem hungrið segir til sín - á nóttu sem degi. , — einfaldlega hollt allan sólarhringinn!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.