Morgunblaðið - 07.09.1996, Page 12
12 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
Mikil óánægja að undanförnu með formann Taflfélags Reykjavíkur
SKULDIR Taflfélags Reykjavíkur
nema nú rúmlega 19 milljónum
króna, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, aðallega vegna kaupa á
húsnæði þess í Faxafeni. Styrkir
Reykjavikurborgar til félagsins frá
1990 til og með 1995 nema rétt
tæpum 80 miiljónum króna, mest-
megnis vegna umræddrar bygging-
ar. Skáksamband íslands, sem er
meðeigandi hússins, hefur sömu-
leiðis fengið samtals 17,5 milljónir
króna í byggingastyrki á ljárlögum
vegna húsakaupanna á undanförn-
um fjórum árum.
Skáksambandið tók fyrir
skömmu ákvörðun um að veita ekki
frekari styrki til skákmanna innan
TR, vegna skulda félagsins við það.
TR er stærsta félagið innan sam-
bandsins.
Aðallega var um að ræða ferða-
styrki, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins námu skuldir TR
við sambandið tæpri hálfri milljón
króna þegar mest var. Fyrir um
tveimur vikum greiddi félagið seinni
helming skuldarinnar, og geta því
félagsmenn TR sent inn styrkum-
sóknir að nýju.
Fjármálin í glundroða
„Mér skilst að fjármál Taflfélags-
ins séu í algjörum glundroða, nán-
ast stjórnlaus," segir Friðrik Ólafs-
son stórmeistari í skák, en hann
er eini stórmeistarinn íslenski sem
enn er í félaginu, en ekki er búið
að útnefna Þröst Þórhallsson sem
slíkan enn sem komið er. Friðrik
kveðst telja það vera mikla ógæfu
að gamalgróið félag á borð við TR
eigi við jafn ramman reip að draga.
Friðrik hefur verið félagi í TR í
rúma hálfa öld eða frá um tíu ára
aldri. Félagið var stofnað um sein-
ustu aldamót.
„Mál félagsins eru í óviðunandi
ástandi og virðast stefna hraðbyri
í óefni. Það væri mjög slæmt ef
félagið leystist upp og
æskilegast að einhverjir
nýir gætu tekið við
stjórnartaumum til að
bjarga því sem bjargað
verður.
Hins vegar virðist ekki
hægt að koma tauti við núverandi
formann þótt ítrekað hafi verið
rætt við hann, þar á meðal af minni
hálfu. Formaðurinn virðist hafa
eitthvert stuðningslið sem ver hann
og gerir sér ekki grein fyrir hversu
djúpt vandinn ristir. Það er hins
vegar erfitt við að eiga.“
Friðrik segir að formaðurinn,
Ólafur Hraunberg Ólafsson, hafi
unnið gott starf á sínum tíma, eink-
um fyrir æskulýðsstarf skákhreyf-
ingarinnar, en málin hafi hins vegar
Þröng staða og
stórmeistarar
leita annað
íslensku stórmeistaramir í skák sem hafa ver-
ið í Taflfélagi Reykjavíkur hafa allir sagt sig
úr því undanfarin misseri nema Friðrik Ólafs-
son. Hann kveðst nú íhuga úrsögn eftir hálfa
öld í TR vegna óánægju með stjóm félagsins.
Friðrik Ólafsson
Daði Örn Jónsson
Ólafur H. Ólafsson
Húsið dýr-
keypt fyrir
félagið
farið á verri veg upp á síðkastið.
„Hann ætti að víkja frá því að ekki
er hægt að lifa á fortíðinni í þessum
efnum, ef eitthvað bjátar á,“ segir
hann.
Daði Örn Jónsson fyrr-
um stjórnarmaður í Tafl-
félagi Reylqavíkur og
mótframbjóðandi Ólafs á
seinasta aðalfundi, segir
_________ að um 550 félagsmenn
hafi verið skráðir í TR,
en þar af hafi aðeins um 100-150
talist virkir til skamms tíma. Frá
seinasta aðalfundi félagsins í vor
hafi hins vegar að minnsta kosti
40 manns sagt sig úr félaginu sök-
um óánægju.
Þröskuldur í vegi umbóta
Hann segir félagið í alvarlegum
fjárhagslegum vandræðum og
hann telji að skuldirnar hafi nán-
ast verið látnar hlaðast upp að-
gerðarlaust. Þar leiki kaup á húsi
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA S: SSI 8SI9
Tilboð á löngum
gi
handa félaginu í Faxafeni stórt
hlutverk og þótt eignir séu umfram
skuldir, sé lausafjárstaðan afar
bágborin.
„Fyrir greiðsluvandanum er or-
sök en vandinn er hvernig brugðist
er við honum, eða ekki ----------
brugðist. Menn hafa ekki
nýtt þau tækifæri sem
eru fyrir hendi til að
niðurgreiða skuldir, og
væri t.d. unnt að skoða
þann möguleika að selja hús fé-
lagsins, sem er mjög stórt, en nýt-
ist ekki félaginu nægjanlega vel,
meðal annars sökum stærðar.
Einnig hefur ekki verið unnið
markvisst að fjáröflun og þær leið-
ir sem eru færar í því sambandi
ekki verið kannaðar," segir hann.
„Ólafur hefur verið þröskuldur
í vegi fyrir því að komið yrði á
umbótum, hann hefur fyrst og
fremst einbeitt sér að hluta skák-
hliðarinnar en ekki sinnt fjármál-
unum. Ólafur gerði sömuleiðis
samkomulag við hóp stjórnar-
manna um áramótin um að hann
myndi draga sig í hlé á næsta aðal-
Virðist stefna
hraðbyri
í óefni
fundi, og kynnti það sjálfur á þeim
fundi.
í vor stóð hann hins vegar ekki
við samkomulagið og smalaði sam-
an félagsmönnum til að tryggja sér
embættið áfram, þar á meðal rnörg-
um þeirra sem eru ekki virkir og
fylgjast því lítt með því sem er að
gerast innan félagsins."
Daði kveðst ekki vilja geta sér til
um ástæður þess að formaður TR
hafi gengið á bak loforða sinna um
áramót eða hvaða hagsmuni hann
hafi af áframhaldandi formennsku
í trássi við vilja stórs hluta virkra
félagsmanna. Þó megi geta þess að
hann hafi sinnt mótsstjórn, en þar
sé um launað starf að ræða.
Daði segir mót á vegum TR hafa
fallið niður eða seinkað óeðlilega og
stjórnarfundir verið fáir síðan í vor.
Ósannindum og áróðri beitt
Ólafur H. Ólafsson formaður TR
vísar því alfarið á bug að eitthvað
sé athugavert við stjórnarhætti fé-
lagsins, gagnrýni komi frá þröngum
sérhagsmunahópi manna sem hafi
beitt ósannindum og áróðri í mál-
flutningi sínum.
Hann hafi rætt um að hætta um
seinustu áramót með þeim fyrirvara
að hann myndi sitja áfram í stjórn
TR, að líkindum sem æskulýðsfull-
trúi eða meðstjórnandi. Þegar í ljós
hafi komið fyrir aðalfund í vor að
ekki væri gert ráð fyrir að þetta
gengi eftir, hefði hann talið sig
óbundinn af þeim orðum sem féllu
um áramót.
Ólafur segir að þeir sem hafa
sagt sig úr félaginu séu um þijátíu
talsins, og aðeins 8-10 þeirra virkir
félagsmenn. Aðrir hafi ekki sést í
félaginu árum saman, börn eða að
menn hafi sagt sig úr félaginu án
þess að hafa forsendur fyrir úr-
sögn. Sumir þeirra muni hætta við
úrsögn.
Á aðalfundi í vor hafi það gerst
í fyrsta skipti að aðeins þeir félags-
--------- menn sem hefðu greitt
félagsgjöld fengu að
greiða atkvæði í for-
mannskjöri, og þar hefði
hann fengið um 65% at-
kvæða. Þessi niðurstaða
sýni að breiðfylking félagsmanna
standi að baki honum.
Hagsmunapólitík stórmeistara
„Mér finnst það leiðinlegt þegar
sterkir skákmenn fara úr félaginu,
en þar liggja fleiri ástæður að baki
en óánægja með formennsku mína
eða fjármál félagsins.
Fjármálin eru vissulega gríðar-
lega erfið en ég vil eiga peninga
aflögu fyrir unga og efnilega skák-
menn og athuga verður að atvinnu-
skákmenn reka mjög harða hags-
munapólitík í skákhreyfingunni,
þrátt fyrir að vera á launum hjá
ríkinu,“ segir hann.
Tegund:5336
Verd áður:^395^
Verð nú kr: 2.495,- Ath. með Ijósum framan á tá
Stærðir: 26-34
Litur: Hvítur m/bláu og svörtu
Póstsendum samdægurs
Fáskrúðsfj örður
Ábyrgðarmaður
lyfsölu á brott
HEILSUGÆSLULÆKNIR-
INN á Fáskrúðsfirði hefur yfir-
gefið byggðarlagið, en seinasta
mánuð eftir uppsögn hélt hann
áfram að hafa umsjón með lyf-
sölu á staðnum.
Búðahreppur mun afgreiða
áfram lyf til sjúklinga þangað
til og ef lyfjaeftirlitið gerir at-
hugasemdir við það fyrirkomu-
lag, að sögn Steinþórs Péturs-
sonar sveitarstjóra í Búða-
hreppi.
„Þetta ástand er langt frá
því að vera gott en það væri
hörmung ef fólk gæti ekki
fengið lyfin sín hér og þyrfti
kannski að fá þau send annars
staðar frá. í raun gætum við
staðið frammi fyrir því að lyf-
sölunni væri lokað. En í sjálfu
sér hefur lítið breyst nema að
ábyrgðaraðilinn fyrir lyfsöl-
unni er farinn, sá sem á að sjá
um að verið sé að gera rétta
hluti.“
Heilsugæslulæknirinn fékk
tæplega 100 þúsund krónur í
laun á mánuði fyrir umsjón með
lyfjasölunni og var greitt fyrir
þau störf seinasta mánuð, eftir
að hann lét af störfum sem
læknir. Hann segir að allar
lausar stöður á heilsugæslunni
hafi verið auglýstar, en engar
umsóknir hafí borist.
MORGUNBLAÐIÐ
Læknar annast lyf-
sölu á ellefu stöðum
Lyfjaeft-
irlit ósk-
ar skýr-
inga
LYFJAEFTIRLIT ríkisins hefur
óskað eftir því við heilbrigðisráðu-
neytið að skýrt verði hveijir beri
faglega ábyrgð á lyfjasölu lækna
og sveitarstjórna, í þeim tilvikum
sem faglega ábyrgir læknar hafa
látið af störfum. Á ellefu stöðum á
landinu annast læknar lyfsölu, þar
af á fimm stöðum í eigin nafni.
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir segir að til sé bráða-
birgðaákvæði í lyfjalögum sem veiti
heimild fyrir lækna að reka lyfsölu,
falist enginn lyfjafræðingur eftir
henni.
Umsjón eftir uppsagnir
Heilsugæslulæknar á umræddum
stöðum hafa haft tekjur af þessari
starfsemi eftir að þeir létu af störf-
um 1. ágúst síðast liðinn, annað-
hvort fastar greiðslur frá sveitar-
stjórnum eða ágóðahlut af sölu.
„Það er túlkunaratriði hvort
læknar beri ekki lengur ábyrgð á
lyfsölunni eftir að þeir létu af störf-
um. Ef þeir eru enn á staðnum og
leyfið er á þeirra nafni, höfum við
túlkað það svo að það sé í lagi að
lyfsalan sé áfram í þeirra höndum,"
segir hann.
Matthías segir ekkert augljóst
samband á milli umsjónar lækna
með þessari starfsemi og að lyfja-
notkun sé mikil. Hann segir erfitt
að segja til um hvort þetta fyrir-
komulag sé réttlætanlegt eftir upp-
sagnir heilsugæslulækna, en
ástandið nú sé hins vegar það erf-
itt um þessar mundir að farið sé á
ystu nöf þess sem er löglegt af
þeim sökum.
„Út af fyrir sig hefur þetta fyrir-
komulag á lyfjaafgreiðslu gengið
allvel, miðað við það sem væri ef
ekkert væri til staðar. í sumum til-
vikum hefur þetta verið heppilegt
þar sem litlar tekjur hafa verið af
læknisverkum, til að menn ílengist
frekar á stöðunum," segir hann.
Gunnar Ingi Gunnarsson formað-
ur samninganefndar Læknafélags
íslands segir að á sínum tíma hafi
verið talin ástæða til að læknar
væru ekki að tengjast lyfjaverslun
og slíkt verið tekið úr höndum
þeirra.
Ábyrgð ráðuneytis
„í sjálfu sér er það réttmætt, því
ekki er eðlilegt að í höndum læknis
sé bæði að ákveða lyfjameðferð og
selja lyfíð. Hins vegar þróuðust
málin þannig að það var ráðuneytið
sem fór þess á leit við lækna að
sinna þessu, því annar valkostur
var ekki fyrir hendi.
Þessir læknar sem um ræðir sitja
því uppi með þessa sölu að tilstuðl-
an ráðuneytisins, en það er kapps-
mál okkar að kjör lækna verði með
þeim hætti að þeir þurfi ekki að
bæta kjör sín með neinum öðrum
störfum. Enginn sem ég þekki styð-
ur núverandi fyrirkomulag," segir
hann.
Af öðrum aukastörfum heilsu-
gæslulækna nefnir harin læknastörf
í þágu stofnana og fyrirtækja, auk
þess sem ýmis dæmi séu um að
læknar séu í hlutastarfi á sjúkra-
húsum. Hann segir jafnframt kunn
dæmi um að læknar hefðu tekið
út orlof sem þeir áttu inni eftir að
uppsagnir þeirra tóku gildi.
Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki
svarað erindi lyfjaeftirlitsins enn,
en Matthías segir afstöðu landlækn-
isembættis vera þá að ekki sé sér-
stök ástæða til að hafa afskipti af
þessu fyrirkomulagi á lyfsölu.