Morgunblaðið - 07.09.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 13
J
FRÉTTIR
Hyggst kæra ákvörðun um synjun
hundaleyfis
Níu lögreglu-
menn sóttu dýrið
EIGANDI hunds, sem Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur lét fjarlægja
frá heimili sínu, hyggst kæra
ákvörðun borgarráðs um að hafna
umsókn hans um leyfi til stjórnar
Hollustuverndar ríkisins. Hundin-
um hefur verið komið fyrir í
geymslu meðan á kærumeðferð
stendur.
Eigandi hundsins tók því illa
þegar hundaeftirlitsmaður hugðist
fjarlægja dýrið í fylgd tveggja lög-
reglumanna. Lögreglan sá því
ástæðu til að kalla út liðsauka,
alls um sjö lögreglumenn til við-
bótar, að sögn Kristbjargar Steph-
ensen skrifstofustjóra í Heilbrigði-
seftirlitinu.
Réðst á tvær konur
Kristbjörg segir að eigandinn
hafi sótt um hundaleyfi eftir að
stofnunin hafði afskipti af dýrinu
í vor. Þá lágu fyrir tvær lögreglu-
skýrslur vegna hundsins, sem er
nokkurra ára gamall og óskráð-
ur.
I öðru tilviki var um að ræða
konu sem kærði að hundurinn
hefði ráðist á sig þegar hún var á
skemmtigöngu í Heiðmörk, en í
hinu tilvikinu var um að ræða
konu sem hafði átt leið framhjá
heimili hundsins í Breiðholti þegar
hann stökk á hana. Heilbrigðiseft-
irlitið mælti gegn því að leyfi feng-
ist af þessum ástæðum.
„Við töldum þessar kærur nægj-
anlegar ástæður til að sýna alla
varúð og mæltum gegn því að
borgarráð veitti leyfið. Borgarráð
féllst á umsögn okkar í byijun
júlí og því fékkst ekki leyfi.
Þá töldum við ástæðu til að eig-
andinn léti hundinn af hendi, enda
áhersla lögð á að hundurinn fengi
ekki leyfi til að vera í Reykjavík,
en hann sinnti ekki þeim tilmæl-
um.
Við mátum stöðuna svo að
ástæða væri til að ná í dómsúr-
skurð án tafa og var því fenginn
sá úrskurður sem framfylgt var á
fimmtudag,“ segir hún.
Sjaldgæf mál
Kristbjörg segir að kærumeð-
ferð geti tekið nokkra mánuði, en
falli úrskurður svo að röksemdir
borgarráðs fyrir synjun leyfis
standist ekki, verði málið skoðað
að nýju. Því sé hins vegar lokið
af hálfu stofnunarinnar að öðru
leyti.
Hún segir mál sem þessi sjald-
gæf, enda sæki fólk yfirleitt um
leyfi fyrir hunda sína og komi
þeim í fóstur án frekari afskipta,
fáist ekki leyfi af einhveijum
ástæðum.
Haustnámskeið Skákskóla íslands
hefjast mánudaginn 9. september
Kennsla í framhalds-
flokkum hefst mánudaginn
9. september.
Kennt verður frá kl. 17.30 til
19.00 alla virka daga.
Alþjóðlegir titilhafar annast
kennslu.
Námskeiðsgjald kr. 6.000.
Kennsla í byrjendaflokkum hefst
laugardaginn 14. september og fer
kennsla fram frá kl. I 1.00 til 12.30.
6 vikna námskeið.
Námskeiðsgjald er aðeins kr. 4.000.
Byrjendanámskeið ein-
göngu fyrir stúlkur á
aldrinum 8 til 16 ára .
Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, margfaldur íslands-
meistari kvenna, verður kennari
á námskeiðinu. Kennt á iaugardögum
frá kl. 14.00 til 16.00 og 16.00 til
18.00. í lok námskeiðsins fer fram
skákmót með glæsilegum verðlaunum.
Námskeiðsgjald er aðeins kr. 4.000.
Lokaskráning um helgina
frá kl. 10-14 í síma 568 9141.
11]
Skákskóli
[ S L A N D S
TísT
Eitt blab
fyrir alla!
JílwðunbTaíiiíi
- kjarni málsins!
fitu og
stMftk |rig ug styngi
Hjá Ræktinni eru aö hefjast hin árangursríku 8 vikna fitubrennslunámskeið sem hafa gert ótal mörgu fólki
lífiö léttara. Rafn Líndal, læknir stýrir námskeiöunum þar sem lögö er áhersla á faglega þáttinn meö þaö
aö markmiðiö aö fólk nái ekki áöéins verulegum árangri heldur einnig varanlegum. í upphafi eru allir ræktendur
vegnir og metnir og síðan fylgst náiö meö hríðfallandi framvindu mála út námskeiöiö. Auk þess er farið
ítarlega í samspil hreyfingar og mataræöis og fá allir þátttakendur fróölega heilsuhandbók í kaupbæti.
Konur og Karlar
eiga ekki alltaf samleið
vegna bjóðum við tvö aðskilin námskeið
. 6 o fitutap/lettist um 9 kg. ™
+ 10_| -
+5. 0. Massaaukning 1 kg
-5. 1 ‘ 1 1 FitutaplOkg
-10. . LJ
7% fitutap/léttist unt 6 kg.
Massaaukning 4 kg
| v ] Fitutap 10 kg
FA
GG
Tveir þátttakendur á síðasta námskeiði okkar losuðu sig við 10 kg af fitu en léttust mismunandi mikið.
Þegar árangur þeirra er metinn, er hrýnt að hafa í huga að þótt fitutapið vegi þyngst, er aukning á vöðvamassa
mjög mikilvæg líka.Það er þetta samspil sem á sér stað þegar fólk fer að hreyfa sig og er dálítið blekkjandi
þegar eingöngu er stuðst við viktina sem mælikvarða.
Námskeiðið fyrir konur hefst 9. september og námskeið
karlanna 10. september. Innritun er hafin.
ti!
RÆKTIN
TÆKIASALUR • ÞOLHMI • LIÓSABEKKIR
... og útlitið er gott
SUÐURSTRÖND 4 • Seltjarnarnesi
Við hlibina á Bónus
Símar: 551-2815 & 551-2355