Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Skemmdarverk voru unnin á bj örgunarskýlum Vaðbrekku, Jökuldal - Skýli er hýsa eiga vegfarendur sem lenda í erfiðleikum á leið yfir Möðrudalsör- æfi og Jökuldalsheiði og standa á Austari Pjallgarði og Þrívörðuhálsi hafa nú orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Málað hefur verið allskonar veggjakrot á skýlin, og ijóst er að sami eða sömu menn hafa ver- ið þarna að verki. Skýlið á Austari Fjallgarði er rek- ið af Vegagerð ríkisins, en það aust- ara á Þrívörðuhálsinum er rekið af Slysavarnafélagi íslands í umsjá Slysavarnasveitarinnar Jökuls á Jök- uldal og í Hlíð. Ennfremur hefur nafnskilti á skýlinu á Þrívörðuhálsi, er heitir Landakot, verið stolið. Sigvaldi H. Ragnarsson á Hákon- arstöðum, umsjónarmaður með Landakoti, segist ekki skilja þær hvatir er liggi að baki svona um- gengni um skýlin og bagalegt að svona öryggisskýli fái ekki að vera i friði. Brýnt sé að þessi skýli fái að halda sínum áberandi lit og séu ekki máluð í hálfgerðum felulit. Það rýri öryggisgildi svona húsa mikið. „Einnig er undarlegt að fólk steli þessu skilti af skýlinu, en skiltið var skorið út af Hlyn Halldórssyni mynd- skurðarmanni og þúsundþjalasmið á Miðhúsum. Ef menn hafa áhuga á að eiga eitthvað skorið út eftir Hlyn, er lítið mál að fá svona hluti keypta hjá Hlyn.“ Morgunblaðið/Atli Vigfússon UMHVERFI mannvirkja á Grenjaðarstað hefur tekið miklum stakkaskiptum. Miklar framkvæmdir á Grenjaðarstað íviuigunuiauiu/oiguiuur oigmuiiua&uii LAGT var á trússahest eins og búið var upp á þá áður fyrr. Árni ísleifsson, fjallkóngur i Þjórsár- kalli, heldur í hestinn. Við hlið hans stenda þeir Víglundur Kristjánsson og Benedikt Sigurðsson. Borgarhólsskóli einsetinn Húsavík - Borgarhólsskóli, grunn- skólinn á Húsavík, verður hann ein- setinn í vetur og er það í fyrsta skipti sem svo er. Alls munu verða um 430 nemendur við skólann á komandi vetri. Skólastjóri er Halldór Valdi- marsson. Til þess að hægt væri að einsetja skólann hefur að mestu ver- ið lokið við bygginu III. áfanga og verða í þeim áfanga teknar í notkun sex nýjar kennslustofur á efri hæð. Tónlistarskólinn hefur alla sína aðstöðu í húsakynnum Borgarhóls- skóla. Fjallmanna- kofi endur- byggður Syðra-Langholti - Endurbyggð- ur hefur verið fjallmannakofinn í Hólaskógi í Gnúpverjaafrétti og verður hann hafður til sýnis. Fyrrverandi hreppsnefndar- menn stóðu aðallega fyrir verk- inu undir sljóm Benedikts Sig- urðssonar í Sámsstöðum, en mik- il samstaða og áhugi var um smíði þessa og mættu um 80 manns til sjálfboðavinnu. Umsjón með hleðslunni hafði Víglundur Kristjánsson, en hann sér um viðhald á sögualdarbænum. Kofinn var byggður árið 1936 en aflagður árið 1970 og var hann einkum notaður í eftirleit- um. Við endurnýjunina kom í ljós Laxamýri - í sumar hefur verið lögð mikil vinna í að fegra umhverfi Gren- jaðarstaðar og bæta aðgengi þar fyrir ferðamenn. Forsaga málsins er sú að á vordög- um 1994 héldu sóknarnefnd og Guðni Halldórsson, forstöðumaður Safnahúss Þingeyinga, fund með fyrrum sóknarpresti, Þóri Jökli Þor- steinssyni, og Guðmundi R. Sigurðs- syni, umsjónarmanni kirkjugarða, þar sem talað var um að nauðsynlégt væri að fá heildarskipulag fyrir svæðið, en um tvo kirkjugarða er að ræða auk mikilla mannvirkja á staðn- um. Það sumar var suðurveggur garðsins við kirkjuna byggður upp og á sl. ári voru hlaðnir upp veggir í báðum görðum. Þá gerðist það nú í vetur að Guð- mundur R. Sigurðsson lagði fram tillögu að heildarskipulagi sem unnin var ásamt Guðmundi L. Hafsteins- syni á Þjóðminjasafninu og leist heimamönnum vel á hvernig til tókst. Því var ákveðið að hefja framkvæmd- ir og byijuðu þær snemma í júní og lauk í byijun ágúst. Styrkur úr Ferðamálasjóði Að sögn Guðmundar Sigurðssonar í Fagranesi, formanns sóknarnefnd- ar, ýtti það undir framkvæmdaáhuga að styrkur fékkst úr Ferðamálasjóði sem hafði auglýst styrki til þess að bæta aðgengi að ferðamannastöðum. Heildarkostnaður við verkið mun nema um einni og hálfri milljón sem skiptist á milli Byggðasafns Þingey- inga, prestssetrasjóðs og safnaðarins sjálfs. Við verkið unnu einkum tveir menn, þeir Bergsteinn Gunnarsson í Kasthvammi og Haraldur Karlsson á Fljótsbakka, auk þess sem Róbert Róbertsson var þeim til aðstoðar, en Reynir Yngvason í Brekku annaðist vélavinnu. Mikið þurfti að skipta um jarðveg og stétt var lögð með mógrýtishellum GUÐMUNDUR Sigurðsson, formaður Grenjaðarstaðar- sóknar. frá prestsetri að kirkju. Gerð var slétt grasflöt sunnan við gamla bæinn með lágum gijótvegg í kantinum móti suðri. Við vegg þennan var gerður vegur að bílastæði sem ætlað er fyrir prestbústaðinn, en þaðan er vegur að hinum kirkjugarðinum. Göngustígur var gerður að húsinu og lóðin í kringum það sléttuð og löguð. Þá var einnig gerður stígur sunnan garðsins við kirkjuna, en eft- ir er að laga bílastæði kirkju- og safngesta. Á undanförnum árum hefur verið lögð mikil vinna í að endurbyggja gamla bæinn og í vetur var kirkjan máluð að innan. -------♦ ♦ ♦-------- Mývatnssveit - Fyrstu göngur hefj- ast í Mývatnssveit í suðurafrétt 12. september. Réttað verður í Baldurs- heimsrétt sunnudaginn 15. septem- ber. í austurafrétt verður farið í fyrstu göngur 13. september og réttað í Reykjahlíðarrétt 15. sept- ember. STEINÞÓR Gestsson frá Hóli, fyrrum alþingismaður, einn þeirra áhugamanna er stóðu að uppbyggingu kofans afhendir Bjarna Einarssyni, oddvita, kofann til varðveislu. að tóftin á kofanum var þó nokk- uð heilleg en þótti þó ástæða til að gera hann upp frá grunni. Kofinn var hafður i sinni upp- runalegu mynd, í honum var moldarbálkur, þar sem fjórir menn gátu legið og einnig var þar pláss fyrir 4-6 hesta. Þegar verki var lokið var boðið upp á veitingar í nýja skálanum og tek- ið lagið. Margar ræður voru fluttar, en um 50 manns voru mættir í fögnuðinn, þar af nokkr- ir af Skeiðum og Flóa. Námskeið um kristna trú í allan vetur fyrir 5.000 krónur! Trúfræðsla fyrir almenning. Trú sem leitar skilnings, þroskast og styrkist. Leikmannaskóli kirkjunnar Sími 562 1500 SAMSTARFI meirihluta í hrepps- nefnd Hvammstangahrepps var slitið á þriðjudagskvöld. Ámi Svan- ur Guðbjörnsson varaoddviti, full- trúi P-lista óháðra í hreppsnefnd- inni, lagði fram yfirlýsingu á fundi nefndarinnar þar sem sagði að hann gæti ekki starfað með núverandi oddvita, Val Gunnarssyni, og sagði sig frá samstarfinu. Fulltrúi P-lista og tveir fulltrúar B-lista Framsóknarflokks mynduðu meirihluta í hreppsnefndinni. Valur segir að ýmsir möguleikar séu í stöðinni þótt engar þreifmgar séu famar í gang um myndun nýs meirihluta. „Eg er enn kjörinn odd- viti og mun sinna því þar til ein- hveijar breytingar verða á. Það eru Meirihlutasamstarfi slitið á Hvammstanga Ýmsir möguleikar á nýjum meirihluta margir leikir til í stöðunni, eins og t.d. samstarf við G-lista Alþýðu- bandalags, samstarf við L-lista fijálslyndra borgara, Sjálfstæðis- manna og Alþýðuflokksmanna, eða G og L. Einnig geta G, L og P tek- ið upp samstarf," sagði Valur. Hann kvaðst vilja taka það fram að samstarfið hefði fram til þessa tekist með miklum ágætum og sam- eiginleg niðurstaða verið í flestum málum. Ekki rætt um sveitarstj órnarmál Árni Svanur sagði að þvílíkir samstarfsörðugleikar hefðu verið með honum og oddvita hrepps- nefndarinnar að hann hefði ekki séð neinn tilgang með því að halda meirihlutasamstarfinu áfram. „Ég er hissa ef Valur hefur sagt að engin ágreiningsmál hafi verið uppi því ég skýrði honum frá því áður en fundurinn hófst að ég hygð- ist slíta samstarfinu vegna ágrein- ings. Hann snýst almennt um sveit- arstjórnarmál. Mér finnst að Valur hafí ekki sinnt því að upplýsa mig um mál. Það er þó nokkuð stórt mál að menn í meirihluta geti ekki rætt um sveitarstjórnarmál af neinu vitij“ sagði Árni. Árni kvaðst ekki ætla að beita sér fyrir myndun nýs meirihluta en hann myndi ekki hafna meirihluta með öðrum en framsóknarmönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.