Morgunblaðið - 07.09.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 21
ERLENT
Reuter
Svartur Sigurbogi
FRANSKIR bændur sveipuðu Sig-
urbogann i París svörtum plast-
borðum í gær til að mótmæla fyrir-
ætlunum um að skera niður niður-
greiðslur Evrópusambandsins til
kornbænda.
Ferðalangar horfðu forviða á
Sigurbogann, sem var reistur af
tilefni sigra Napóieons á vígvell-
inum, þegar borðarnir voru
hengdir upp. Lögreglu tókst að
stöðva bændurna áður en þeir
höfðu þakið minnisvarðann til
fulls. Landbúnaðarráðherrar
ríkja Evrópusambandsins hyggj-
ast koma saman síðar í þessum
mánuði til að ræða áform um að
draga úr niðurgreiðslum til korn-
bænda og nota féð þess í stað til
að koma fótunum undir nauta-
kjötsiðnaðinn í kjölfar kúariðu-
fársins. Vildu frönsku bændurnir
leggja sitt af mörkum í þeirri
umræðu með aðgerðinni i gær.
Dæmdir fyrir fyrir-
liugiið hryðjuverk
RAMZI Ahmed Yousef, sem sakaður
er um að hafa verið heilinn á bak við
hryðjuverkahópa, sem hugðust gera
atlögu að bandarískum skotmörkum
víða um heim, var á fimmtudag
dæmdur sekur ásamt tveimur öðrum
sakbomingum fyrir að reyna að
sprengja bandarískar farþegaþotur í
Austur-Asíu snemma á síðasta ári.
Yousef hefur einnig verið ákærður
fyrir að hafa skipulagt sprengjutil-
ræðið í World Trade Center á Man-
hattan í New York árið 1993 og bíð-
ur þess að réttarhöld hefjist yfir sér
í því máli.
Að sögn dagblaðsins The New
York Times gildir hins vegar einu
hvernig það mál fer, því sakfellingin
á þriðjudag var fyrir glæp, sem fylgi
lífstíðardómur, og muni Yousef því
að öllum líkindum sitja ævilangt í
fangelsi.
Nýtt afbrigði
hryðjuverkamanns
Yousef er í augum bandarískra
stjórnvalda nýtt afbrigði hryðju-
verkamanns, sem hyggist láta
Bandaríkjamenn finna fyrir ágrein-
ingi í fjarlægum heimshluta. Yousef
fæddist í Pakistan og hefur viður-
kennt að hafa fengið þjálfun í notkun
sprengiefna í Afganistan. Uns hann
var handtekinn í Pakistan 1995 var
Yousef sá maður, sem Bandaríkja-
menn voru hvað áíjáðust í að hand-
sama, og höfðu tvær milljónir doll-
ara, um 130 milljónir króna, verið
settar til höfuðs honum.
Kviðdómurinn, sem dæmdi Yousef
á fimmtudag, komst einnig að þeirri
niðurstöðu að tveir aðrir, sem var
stefnt ásamt honum, væru sekir.
Þeir heita Abdul Hakim Muraad og
Reuter
RAMZI Ahmed Yousef, sem dæmdur var á fimmtudag fyrir að
leggja á ráðin um að sprengja upp bandarískar farþegavélar,
sést hér á tveimur ódagsettum myndum frá bandarísku alríkis-
lögreglunni. Hann og tveir aðrir, sem einnig voru sekir fundn-
ir, eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Wali Khan Amin Shah og var gefið
að sök að hafa ætlað að sprengja
bandarískar farþegavélar og myrða
Bandaríkjamenn erlendis.
James Kallstrom, yfirmaður
bandarísku alríkislögreglunnar (FBI)
í New York, sagði að réttarhöldunum
loknum að „litlu [hefði] munað“ að
flölda farþegavéla hefði verið grand-
að. Hann lýsti stefndu sem „rögum
úrhrökum" fyrir að ætla að ráðast á
saklaust fólk.
Kevin Thomas Duffy dómari
sagði að þeir hefðu fengið sann-
gjarna meðferð í alla staði.
Lögfræðingar þeirra voru ekki
sammála um það og sögðu að menn-
irnir þrír, sem eru múslimar frá
Miðausturlöndum, mundu áfrýja
dómunum. Einn þeirra greip til þess
hugtaks úr bandarísku réttarkerfi
að stefndi verði að fá að njóta vaf-
ans: „Hvað merkja rökstuddar efa-
semdir í tilfelli múslima, sem er
sakaður um hryðjuverk í þessu and-
rúmslofti?“ spurði David Greenfield,
lögmaður Shahs, og átti þar við ótta
við hryðjuverk eftir að vél flug-
félagsins TWA fórst viðNewYork í
júlí. Málaferlin stóðu í 14 vikur. Ef
árásirnar hefðu verið gerðar hefðu
12 farþegavélar verið sprengdar í
loft upp yfir'Kyrrahafinu og þúsund-
ir manna látið lífið.
Gengegn
krabba-
meini
London. Reuter.
GEN, sem bætir úr þeim skaða, sem
sólin, reykingar og aðrir krabba-
meinsvaldar vinna á frumum líkam-
ans, gæti orðið undirstaða krabba-
meinslækninga í framtíðinni, að því
er segir í tímaritinu Cell í gær.
Genið, sem kallað er XPF, stjórn-
ar eggjahvítuefnum, sem eyða burt
og bæta úr skemmdum á DNA,
hornsteinum erfðaefnisins, og án
þessa stöðuga viðhalds yrði um að
ræða stökkbreytingar og æxlisvöxt
og aðrar tegundir krabbameins.
Tomas Lindahl, formaður konung-
lega krabbameinsrannsóknasjóðs-
ins í Bretlandi, segir að með því
að einangra genið og eggjahvítu-
efnið sem það stjórnar hafi verið
stigið stórt skref.
Aður hafa fundist um 30 gen,
sem vinna að því að bæta úr frumu-
skaða en Rick Wood, sem stjórnaði
rannsókninni nú, segir að XPF sé
síðasti hlekkurinn í keðjunni.
Mamma
HEFST EFTIR
10
DAGA
HEIMSVIÐBURÐUR
íLAUGARDALSHÖLL
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.