Morgunblaðið - 07.09.1996, Page 22

Morgunblaðið - 07.09.1996, Page 22
22 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Jeltsín gengst undir aðgerð vegna kransæðastíflu Er einföld og örugg nema annað komi til London, Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, kom löndum sínum á óvart í fyrradag þegar hann skýrði frá sjúkleika sínum og sagði, að hann gengist undir hjartauppskurð við kransæðastíflu síðar í mánuðinum. Sögðu breskir læknar í gær, að Jeltsín hefði valið þá aðgerðina af tveimur, sem væri meiri og róttækari. Rússneski pró- fessorinn Valerí Sadríkov sagði í gær, að skipt yrði um æðar, sem flytja blóð til hjartans, en þá eru tekn- ar æðar í fæti eða annars staðar og tengt framhjá stífluðu æðunum. Jevgení Tsjazov, yfírmaður hjartalækningastofnunarinnar í Moskvu, kvaðst í gær ekki vita hvar aðgerðin yrði gerð en Jeltsín gaf þó í skyn, að það yrði á stofnuninni. Hann staðfesti hins vegar, að forset- inn hefði verið þar í rannsóknum. Tsjazov er heimskunnur sérfræðing- ur í hjartaskurðlækningum og er sagður hafa átt mestan þátt í að halda Leoníd heitnum Brezhnev, for- seta Sovétríkjanna, á lífi í næstum áratug og löngu eftir að hann var kominn af fótum fram. Margir hjartalæknanna á stofnuninni hafa fengið þjálfun í Bandaríkjunum. Aðeins 5.000 aðgerðir árlega í Rússlandi John Walwark við hjartadeild Papworth-sjúkrahússins í Cam- bridge í Englandi, sagði í gær, að hjartaaðgerð af þessu tagi væri til- tölulega einföld og örugg og líkurn- ar á, að sjúklingur lifði hana ekki af væru ekki nema 2%. Á Vestur- Grikkland Vilja þvinga Tyrki Lissabon. Reuter. THEODOROS Pangalos, utanríkisráðherra Grikklands, segir að Tyrkland verði að sæta refsiaðgerðum, ef það heldur áfram að ögra alþjóða- samfélaginu með hernáms- stefnu sinni á Kýpur. „Ég skil ekki hví þeim að- f;erðum sem beitt er gagnvart rak ætti ekki alveg eins að vera beint gegn Tyrklandi, ef það heldur áfram að ögra al- þjóðasamfélaginu," sagði Pangalos á fréttamannafundi í Lissabon, en hann er nú í opinberri heimsókn í Portúgal. „Það gengur ekki að til séu „vondir“ og „góðir“ lögbtjót- ar. Við verðum að láta sömu reglur ganga yfir alla,“ bætti hann við. Pangalos sagði það vera hlutverk alþjóðasamfélagsins - Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóðanna - að koma fram með tillögur um hvaða skref skuli stigin til lausnar deilunni. „Ef síðan einhver málsaðila fer ekki eftir þessum tillögum, á að beita hann þvingunum." sagði hann, og bætti við að engin lausn á Kýpurdeilunni kæmi til greina, sem gerði ráð fyrir einhvers konar skiptingu eyjarinnar. „Fólkið [á Kýpur] verður að hafa rétt.til að búa þar sem það kýs,“ sagði ráð- herrann. AÐGERÐIN A JELTSIN Borís Jeltsín, forseti Rússlands, 65 ára að aldri, þjáist af blóð- þurrð í hjartavöðva, sem stafar af of þröngum kransæðuml Skurðaðgerðin @ Heilir æðahlutar úr fæti eða brjósti eru tengdir við kransæð og megin- slagæö og blóðstreymiö leitt fram hjá stíflunni. Í.K. hím Blóöþurrð stafar alþvi, að innan á æðaveggina safnast Jag" sem þrengir æðamar (8) Ef æöamar í Jeltsín eru lélegar W verður hugsanlega að notast viö gerviæð. Afleiðingar blóðþurrðar Heill Heilablóðlall Hjarta Hjartakveisa, hjartaáfall eða hjartabilun Nýru Nýmabilun löndum ganga hundruð þúsunda manna undir svona aðgerð árlega en rússneski hjartaskurðlæknirinn Míkhaíl Alsíbaja segir, að f Rúss- landi séu þær ekki nema 5.000 ár- lega og skurðlæknarnir ekki fleiri en svo, að „þá má telja á fingrum sér“. Sagði hann, að þeir væru þó allir mjög færir á þessu sviði. Önnur lækningaaðferð við krans- æðastíflu er að blása út æðarnar, sem svo er kallað, en yfirleitt þarf um þriðjungur sjúklinganna að gangast undir hana aftur eftir tvö ár. Míkhaíl Semjonovskí, sem er sér- fræðingur í ígræðslu líffæra, sagði í viðtali við Mer/ax-fréttastofuna í gær, að flestir sjúklingar kæmust aftur til starfa eftir mánuð frá að- gerðinni og hann kvaðst telja, að svo gæti verið með Jeltsín „nema annað komi til“. Heilablóðfall? Það er þetta „annað“, sem marg- ir velta vöngum yfir og kunnur taugaskurðlæknir, sem vildi þó ekki láta nafns síns getið, sagði í viðtali við Reuters-fréttastofuna, að aug- ljóst máttleysi Jeltsíns í vinstra helmingi líkamans gæti stafað af heilablóðfalli. Haft er einnig eftir konu og sérfræðingi í hjartalækning- um, að í nokkur skipti þegar Jeltsín hafi komið fram opinberlega, hafí hún heyrt hljóð, sem bendi til vatns- myndunar í lungum. Sagði hún, að það gæti þýtt, að eitthvað væri að í vinstra hjartahvolfi og það kallaði á meiri og hættulegri uppskurð. Vináttuheimsókn ANDREA Willi, utanríkisráð- herra Liechtensteins, er nú í opinberri heimsókn hér á landi, og endurgeidur þar með opin- bera heimsókn Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra til Liechtenstein í marz. Liecht- enstein var þriðja EFTA-ríkið, á eftir íslandi og Noregi, sem varð fullgildur aðili að Evr- ópska efnahagssvæðinu og verða mál EES því einkum á dagskrá. Utanríkisráðherrarnir ræddust við í gær. Reuter ALEXANDER Lebed, formaður rússneska öryggisráðsins, ræð- ir við móður hermanns, sem saknað er í Tsjetsjnyu eftir bar- daga rússneskra hersveita og aðskilnaðarsinna. Myndin var tekin i rússneskri herstöð í Khankala í fyrradag. „Þríeyki“ sagt vera við völd í Kreml Moskvu. Reuter. DAGBLÖÐ og fréttaskýrendur í Moskvu sögðu í gær að „þríeyki" væri við völd í Rússlandi þótt forset- inn væri enn fær um að taka ákvarðanir í mikilvægum málum. Meðan Borís Jeltsín forseti býr sig undir hjartaaðgerð síðar í mán- uðinum eru þrír embættismenn við völd í Kreml, þeir Viktor Tsjerno- myrdín forsætisráðherra, Anatolí Tsjúbajs, skrifstofustjóri og æðsti ráðgjafi forsetans, og Alexander Lebed, formaður rússneska öiygg- isráðsins. Fréttaskýrendur sögðu að enginn þessara manna gæti tekið við af Jeltsín upp á sitt eindæmi, en sam- an ættu þeir að geta komið í veg fyrir að glundroði og stjórnleysi skapaðist í Rússlandi. „Ég tel ekki að einhver einoki völdin," sagði einn fréttaskýrand- anna, Viktor Kremenjúk. „Nokkur mál falla undir Tsjúbajs, önnur undir Tsjernomyrdín og enn önnur undir Lebed.“ Aðeins Tsjernomyrdín með lögbundin völd Heilsubrestur Jeltsíns hefur þó vakið spurningar um lagalega stöðu ráðamannanna í Kreml. Samkvæmt stjórnarskránni fer forsetinn með æðstu völd og aðeins er kveðið á um að forsætisráðherrann taki við af honum tímabundið ef hann getur ekki gegnt embættinu. Verði forsetinn ófær um að sinna skyldustörfum sínum í langan tíma þarf að boða til kosninga ekki síðar en þremur mánuðum eftir að hann hættir að gegna þeim. Kremenjúk sagði það hættulegt að ekki skyldi vera kveðið á um varaforseta í stjórnarskránni. „Þetta skapar óstöðugleika og mikla óvissu, en hjá þessu verður ekki komist. Kremenjúk sagði að af embættis- mönnunum þremur væri aðeins Tsjernomyrdín með stjórnarskrár- bundin völd. „Hvorki Tsjúbajs né Lebed hafa slík völd samkvæmt stjórnarskránni, en samt bera þeir ábyrgð á mikilvægum valdastofn- unum sem ekki er hægt að vera án til að stjórna landinu." Lebed líklegur eftirmaður Dagblaðið Sevodnja sagði að Jeltsín myndi að öllum líkindum ekki snúa aftur til Kremlar í bráð en ekkert benti til þess að hætta væri á glundroða í stjórnkerfinu. „Alexander Lebed og Anatolí Tsjúbajs hafa sýnt, með athöfnum sínum og yfirlýsingum, að þeir ætla ekki að láta valdatómarúm viðgang- ast.“ Blaðið bætti við að svo virtist sem Jeltsín teldi að Tsjernomyrdín, Tsjúbajs og Lebed væru færir um að stjórna landinu tímabundið í fjar- veru hans. Fréttaskýrendurnir voru sammála um að Jeltsín væri enn fær um að taka ákvarðanir í mikilvægum mál- um. Kremenjúk sagði að ef forsetinn næði sér ekki eftir aðgerðina væri Lebed líklegur til að komast til valda. „Lebed er vinsæll stjórnmála- maður og hefur mikla möguleika á að ná kjöri,“ sagði Kremenjúk og bætti við að Tsjernomyrdín höfðaði miklu síður til kjósenda og Tsjúbajs nyti sín betur sem stjórnandi á bak við tjöldin en þjóðarleiðtogi. Fellibylurinn Fran rénar eftir hamfarir í Suður- og Norður-Karólínu Raleigh. Reuter. FELLIBYLURINN Fran olli mikilli eyðileggingu í Suður- og Norður- Karólínu í Bandaríkjunum í fyrri- nótt og að minnsta kosti 12 manns týndu lífi af hans völdum. í gærdag hafði verulega dregið úr vindstyrkn- um og bylurinn orðinn að djúpri lægð. Starfsmenn fellibyljastofnunar- innar í Miami sögðu, að í gærmorg- un hefði vindhraðinn verið um 100 km á klukkustund og dró stöðugt úr honum eftir því sem bylurinn gekk lengra inn yfir land. Vindhrað- inn var hins vegar 193 km þegar Fran kom upp að ströndinni þar sem hann eða öllu heldur hún olli miklu tjóni, reif upp tré með rótum og sleit í sundur raflínur. I kjölfarið fylgir gífurlegt úrfelli og er óttast, Mikið tjón og 12 dauðsföll að ár og fljót muni flæða yfir bakka sína. Fallin tré Að minnsta kosti 12 manns týndu lífi með einum eða öðrum hætti af völdum veðursins, tíu í N-Karólínu og tveir í S-Karólínu. Létust meðal annars tveir þegar þeir óku á tré, sem stormurinn hafði fellt, og 18 ára gömul stúlka beið bana þegar tré féll á hjólhýsi hennar. Þrír létust þegar tré féll á húsið þeirra og slökkviliðsmaður í útkalli lét lífið í veðurhamnum. Jim Hunt, ríkisstjóri N-Karólínu, sagði, að Fran hefði valdið mikilli eyðileggingu í ríkinu. Væru vegir við ströndina undir vatni, allt að þriggja metra djúpu, og miklar skemmdir hefðu orðið á íbúðarhús- næði og öðrum byggingum. I S- og N-Karólínu var kjarnorku- verum lokað meðan stormurinn gekk yfír og segja má, að mestöll atvinnu- starfsemi hafí legið niðri. Um 200.000 manns höfðu þá flúið heim- ili sín til öruggari staða. Minni tekjur af ferðamönnum Auk eignatjónsins, sem ekki hefur verið metið enn, er óttast, að ferða- iðnaðurinn á þessum slóðum hafi orðið fyrir miklu áfalli og yfirvöld í S-Karólínu telja, að veðrið og afleið- ingar þess hafí í för með sér, að rík- ið verði af 520 millj. kr. tekjum daglega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.