Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 27
Þ
>EGAR GEORGE
|Lucas hafði hagn-
ast ríkulega á kvik-
myndastússi sínu sneri
hann sér að tölvuleikjum,
en tölvurnar urðu honum
einmitt ærin auðsupp-
spretta í kvikmyndagerð-
inni. Fyrirtæki hans heitir
LucasArts og fyrstu leik-
imir þóttu merkilegir, ekki
síst fyrir að fara nýjar leið-
ir í útliti og viðmóti leiks-
ins, og iðulega vora þeir
meinfyndnir og spennandi
um leið. Doom-vinum, sem
kunnu best við sig í rangöl-
um helvítis, þykir lítið til
leikja LucasArts koma,
ekki nóg blóð, en kannski
þeir felli sig við nýjasta
LucasArts leikinn, Af-
terlife, þar sem sá sem leikur hefur
vald yfir himnaríki og helvíti.
Velflestir tölvuleikjaáhugamenn
kannast við SimCity sem var á allra
vörum fyrir nokkram árum. Þeir
sem þekkja þann leik eiga eftir að
kunna prýðilega við sig í Afterlife,
því útliti leikjanna svipar nokkuð
saman. Það er þó fleira sem greinir
þá að, ekki síst það að í Afterlife þarf
leikandinn að hafa stjórn á tveimur
heimum samtímis. Fjölmörg vanda-
mál skjóta líka upp kollinum sem
ekki eru á hverju strái, eins og þegar
drepsótt eða stríð hrjáir mannheima
og skyndilega fyllist allt af sálum í
himnaríki eða helvíti. Það er ekki
nóg að hleypa þeim inn um gullna
A. eilífðar-
vaktínni
Það er ekki á hverjum degi sem mönnum býðst
að leysa af Lykla Pétur eða ljóta karlinn sjálf-
an. Arni Matthíasson brá sér í hvor tveggja
hlutverkin og komst að því að guðdómurinn er
enginn dans á rósum.
hliðið því það þarf að fínna fyrir þær
húsaskjól og afla viðurværis. Ef
himnasmiðurinn stendur sig vel fær
hann umbun frá enn æðra yfirvaldi,
en standi hann sig illa íýrnar í sjóð-
um himnaríkis sem kallar á frekari
vandamál síðar meir. Helvíti þarf að
glíma við álíka vandamál, en til gam-
ans má geta að helvíti skiptist í sjö
hverfí sem heita eftir dauðasyndun-
um sjö og era litamerkt til samræm-
is við það. Þannig má henda upp einu
rauðu lostahverfí til að taka við
óvæntu innstreymi.
Eftir því sem fjölgar í himnaríki
og hverfi stækka eykst kostnaður
við sálgæsluna. Þá má grípa til þess
ráðs meðal annars að leggja fé í
byggingu veglegra limbóhúsa sem
tekið geta við glötuðum sálum en
þar fer vel um þær á meðan nóg er
til af bjór. Allt viðhald hækkar í
réttu hlutfalli við fjölgun bygginga,
en það eina sem setja má út á leik-
inn er að hann er full auðveldur, þ.e.
ef rétt er farið af stað, með karma-
hlið, eilífðarrásir og svo framvegis,
þá er varla hægt að fara á hausinn.
Sitthvað getur þó farið úrskeiðis,
eins og þegar helvíti frýs, diskóæði
gengur yfir, fljúgandi nef fellir hús,
paradísarfuglar fljúga yfir og skilja
eftir sig minnisvarða sem gera allt
ólíft í 75 ár og svo mætti lengi telja,
en þegar komið er nálægt milljarði
sálna eða svo er nánast engin leið að
sigla í strand. Þrátt fyrir það kunna
flestir eflaust vel að meta aðstoðar-
andana, Jasper og Ariu, sem lið-
sinna á ögurstundu, njósna um sálir,
frelsaðar og fordæmdar, og gefa
hollráð.
Peningar kama
sér ve /
Peningar koma sér vel á himnum
ekki síður en í mannheimum, því allt
kostar. Hver bygging kostar sitt og
einnig ýmislegt smálegt eins og
himinshlið, karmastöðvar, þjálfun-
arbúðir, hvort sem er fyrir engla
eða djöfla og ekki síst vegir því sál-
irnar allar þurfa að komast leiðar
sinnar. Hver sál sem
kemur til himna eða
heljar borgar við kom-
una nokkur penní, mis
mikið efir gangverðinu.
Afterlife er leikur
sem á sér ekki endi sem
slíkan; það má enda-
laust halda áfram að
bæta við byggingum og
sanka að sér sálum og
keppast við að nýta op-
inbert fé æ betur, halda
kostnaði í lágmarki og
sköttum í hámarki.
Einu takmörk leiksins
byggjast í raun á reikni-
getu tölvunnar sem leik-
ið er í.
Sálimar era sálir
Embóa, íbúa plánetu
langt í burtu og staða
þeirra í himnaríki/helvíti ræðst af
því hverju þær trúa. Þannig fara
þeir sem ekki trúa á líf eftir dauðann
hvorki eitt né neitt; þeir liggja í sín-
um gröfum og þarf ekki að hafa
frekari áhyggjur af þeim. Til viðbót-
ar era níu kenningarkerfi, álíka
skynsamleg og þau sem tíðkast í
mannheimum, og spanna allt frá trú
á ódauðlega sál í endurholdgun.
011 myndvinnsla er framúrskar-
andi vel heppnuð, en þegar himna-
ríki/helviti eru orðin vel mönnuð er
eins gott að vera með öfluga tölvu
við hendina, því smáatriðin eru svo
mörg og byggingarnar svo mikil-
fenglegar að það getur tekið heila
eilífð að stýra himnaríki/helvíti.
MIKIL BURÐARGETA , ÁREIÐANLEIKI, ENDING, LÍTIÐ VIÐHALD
OG LÁGUR REKSTRARKOSTNAÐUR SKAPAR EIGANDA
RENAULT PREMIUM FORSKOT í HARÐRI SAMKEPPNI.
ÖKUMENN KUNNA EINNIG AÐ META AÐ BÍLARNIR ERU
ÓVENJULEGA ÖRUGGIR, HLJÓÐLÁTIR OG ÞÆGILEGIR.
RENAULT
Strax við fyrstu kynni kemur í Ijós að Renault
Premium vörubílarnir eru fyrir margra hluta sakir
einstakir. Við hönnun þeirra var fyllsta tillit tekið til
kröfuhörðustu ökumanna um þægindi í umgengni
og akstri. Þegar atvinnutæki er vegið og metið
skiptir sérhvert atriði máli fyrir ökumann og eiganda.
Burðargeta, olíueyðsla, viðhaldskostnaður, áreiðanleiki. Listinn er
langur en þú getur treyst því að hönnuðir Renault Premium sættu
sig aðeins við bestu lausnina.
Premium - ný lína vörubíla frá Renault
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200, BEINN SfMI: 553 1236